Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2007, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2007
Fréttir DV
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaöamadur skrifar:
Breska innanríkisráðuneytið hefur
viðurkennt að um fimm þúsund
ólöglegir innflytjendur hafi fyrir
mistök fengið heimild til að vinna
við öryggisstörf í landinu. Lög-
regluyfirvöld í Lundúnum stað-
festu að einhverjir þeirra sem ekki
voru fyllilega rannsakaðir af eftirlits-
stofnun öryggisstarfa hefðu verið
ráðnir til starfa hjá þeim.
Ráðherrar fóru fram á að fjörutíu
þúsund manns yrðu athugaðir
sérstaklega eftir að í ljós kom að
eftirlitsstofnunin hafði látið undir
höfuð leggjast að athuga hvort
umsækjendur hefðu atvinnuleyfi
í landinu áður en þeim var veitt
heimild til öryggisstarfa. Talið er að
athugun þessara fjörutíu þúsund
einstaklinga, sem veitt hefur verið
leyfi undanfarin þrjú ár, ljúki um
áramót.
Allir þeir sem verða uppvísir að
því að starfa án atvinnuleyfis eiga á
hættu að missa umrædda heimild
og verða vísað úr landi.
Ráðnir gegnum
starfsmannaleigu
Lundúnalögreglan neitaði að
gefa upplýsingar um eðli þeirra
starfa sem ólöglegir innflytjendur
unnu innan stofnunarinnar. f ljós
kom að þeir sem grunur lék á að
„Á síðasta ári komst
innanríkisráðuneytið
að því að það hafði
ráðið ólöglega
innflytjendur til
ræstingastarfa á
þeirri deildsem sér um
innflytjendamál."
væru ólöglegir innflytjendur hjá
lögreglunni höfðu verið ráðnir í
gegnum starfsmannaleigu. Sumir
þeirra hefðu verið ráðnir til starfa á
flugvöllumoghjáhafnaryfirvöldum.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
þegar lögreglunni bárust spurnir
af því að á meðal starfsmanna frá
starfsmannaleigunni kynnu að
vera ólöglegir innflytjendur voru
viðkomandi teknir úr löggæslu-
störfum, og starfsmannaleigan vék
þeim úr starfi svo lengi sem rann-
sókn stæðiyfir.
Ihaldsmenn segja að innan-
ríkisráðuneytið sé „ekki enn starfi
sínuvaxið"vegnamálsinsogDamian
Green, ráðherra í Skuggaráðu-
neytinu var ómyrkur í máli og sagði
að það sem gerði þetta síðasta klúð-
urinnanríkisráðuneytisins stórkost-
legra en ella væri að það hefði lent
í þessu áður. „Á síðasta ári komst
innanríkisráðuneytið að því að það
Victoríu-járnbrautarstöðin Mikill fólksfjöldi fer um stöðina.
hafði ráðið ólöglega innflytjendur
til ræstingastarfa á þeirri deild sem
sér um innflytjendamál," sagði
Green. Hann bætti við að þessar
nýju upplýsingar renndu stoðum
undir þá skoðun að ekki hefði verið
gripið til viðeigandi ráðstafana til
að takmarka aðgengi að mörgum
byggingum þar sem viðkvæm mál
væru til meðferðar.
Deilt um ábyrgð
Andy Drane, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri eftirlitsstofnunarinn-
ar sagði að hún hefði hingað tíl treyst
á atvinnurekendur tíl að kanna
starfsfólk sitt, en þegar vandamálið
varð ljóst fyrr á þessu ári hafi hún
samstundis breytt vinnureglum
sínum þó hann teldi að ábyrgðin
lægi hjá atvinnurekendum.
„Atvinnurekandinn ber ábyrgð
á að tryggja að hver og einn sem
hann ræður til vinnu hafi leyfi til
að stunda vinnu í Bretlandi," sagði
hann í viðtali í útvarpi BBC.
Þegar þrýst var á hann að meta
hversu víðtækt vandamálið væri
sagðist hann ekki telja að um marga
ólöglega innflytjendurværi að ræða
í viðkvæmum störfum. Hann lagði
áherslu á að um væri að ræða störf
á mjög breiðum vettvangi, allt frá
yfirumsjón dyravörslu á nætur-
klúbbum til öryggisvörslu í verslun-
armiðstöðvum.
Legið á upplýsingum
Þótt þessar upplýsingar séu
að koma upp á yfirborðið núna
fullyrða íhaldsmenn að vimeskja
um vandamálið hefði legið fýrir hjá
ríkisstjóminni í júlí. David Cameron
sagðiað alltbentí tílþess að upplýsing-
ar þar að lútandi hefðu ekki verið
Komiö hefur í ljós aö ekki er allt sem
skyldi i Bretlandi þegar horft er til
ólöglegra innflytjenda. Vitaö var aö
ólöglegir innflytjendur stunduðu vinnu
en í ljós hefur komið að mikill fjöldi
þeirra vinnur viö öryggisstörf og sumir
hafa fengið vinnu hjá hinu opinbera.
ÓLÖGLEGIR ÍÖRYGGIS!