Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2007, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2007, Blaðsíða 22
'*2 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2007 Fákus DV Upplestura' Súfistanum f tilefni af 200 ára afmæli Jónasar Hallgrímssonar á fösmdaginn stendur bókaforlagið Bjartur fyrir upplestrarkvöldi á Súfistanum í kvöld klukkan hálfníu. Þar munu þrjár konur, tvær skáldkonur og einn þýðandi, lesa upp úr nýjum bókum. Þórdís Bjömsdóttir les upp úr nýútkominni bók sinni, Saga af bláu sumri, Kristín Svava Tómasdóttir les upp úr ljóðabókinni Blótgælur og Elísa Björg Þorsteinsdóttir les upp úr þýðingu sinni á þýsku metsölubókinni Mæling heimsins eftír Daniel Kehlmann. Þórðarvaka á Café Sólon Skáldafélagið Nykur stendur fýrir ljóðakvöldi á effi hæð Café Sólons kl. 20 í kvöld til heiðurs Þórði Helgasyni, dósent og ljóðskáldi, sem varð sextugur 5. nóvember. Þórður var Nykri innan handar þegar félagið steig sín fyrsm skref árið 1995, auk þess sem hann hefur liðsinnt fjölmörgum ljóðskáldum og rithöfundum í gegnum árin. Á meðal þeirra skálda sem lesa upp úr verkum sínum í kvöld eru Andri Snær Magnason, Davíð Stefánsson, Emil Hjörvar Petersen, Ingunn Snædal, Sigurbjörg Þrastardóttir og Þórður Helgason sjálfur. f hléi spilar hljómsveitín Malneirophrenia epíska og svala tóna fyrir gestí kvöldsins. Tilboð á veitingum, aðgangur ókeypis og allir lj óðaunnendur velkomnir. ÍSíðasta PotA er-bókin á íslensku Sjöunda og síðasta bókin um galdrastrákinn Harry Potter, Harry Potter og dauðadjásnin, kemur út í íslenskri þýðingu Helgu Haraldsdóttur á morgun. Bókin kom út á ensku í júh'. Harry og félagar þurfa að takast á hendur stórt verkefni í þessari síðusm bók. Þeirra bíður sú þraut að finna og eyða helkrossum hins mikla Volde- morts. Ástsælar persónur týna lítí og aðrar em ekki allar þar sem þær em séðar. Útgáfuhátíðir verða haldnar í Eymundsson um allt land og í Bókabúð Máfs og menningar á Laugavegi á morgun milli klukkan 14 og 16. . Hinn ástsæli barnabókahöfundur Astrid Lindgren hefði orðið hundrað ára í dag, hefði hún lifað. Eins og flestir vita er Lindgren höfundur ódauðlegra persóna eins og Línu Langsokks, Bróður míns Ljónshjarta, Elsku Míós míns og Ronju ræningjadóttur en bækur hennar voru þýddar á 85 tungumál og gefnar út í fleiri en hundrað löndum. Lindgren lést árið 2002 en þremur árum seinna voru söguhandrit úr hennar eigu sett á heimsminjaskrá UNESCO og eru þau varðveitt í Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi. Ógleymanlegt að hitta Lindgren „Ég sá hana í fyrsta skipti í boði hjá Vigdísi Finnbogadóttur forseta þegar kvikmyndin um Ronju ræningjadóttur var ffumsýnd hér á landi á áttunda áratugnum," segir Guðrún Helgadóttir sem kynntist Lindgren lítillega á sínum tíma. „Við töluðum nú ekkert mikið saman þá en síðan fór ég sem forseti Alþingis í opinbera heimsókn til Sví- þjóðar 1990. Þá var ég spurð hvort það væri ein- hver Svíi sem mig langaði sérstaklega til að hitta," útskýrir Guðrún og segist hafa verið fljót að nefna Lindgren. Þá hafi henni verið sagt að skáldkon- an sænska tæki aldrei á móti gestum, enda gerði hún þá ekkert annað. „En svo var hringt í mig og sagt að hún vildi gjarnan fá mig í heimsókn suður í Furusund þar sem voru hennar æskuslóðir," seg- ir Guðrún og fór hún þangað ásamt Þórði Einars- syni, þáverandi sendiherra í Svíþjóð. „Þar áttum við dagstund sem verður okkur áreiðanlega ógleymanleg alla tíð. Auðvitað eltu okkur blaðamenn og voru að reyna að ná mynd- um af okkur. Lindgren var farin að sjá afar illa þegar þetta var og þegar ég studdi hana inn í húsið leit hún allt í einu við og sagði: „Guðrún litla, kannski komumst við í blöðin,"" segir Guð- rún og hlær dátt. „Hún var alveg dásamleg. Og fluggreind og ótrúlega skemmtileg kona." Aðspurð hvernig stóð á því að Lindgren sam- þykkti að hitta hana segir Guðrún að hin sænska skáldsystir hennar hafi eitthvað munað eftir samfundum þeirra á íslandi um árið. Svo hafi hún meðal annars lesið Jón Odd og Jón Bjarna og Ástarsögu úr fjöllunum og fundist þær stór- góðar, en Guðrún vill samt lítið láta hafa eftir sér um það. Vildi hafa skrifað Ronju Guðrún hefur lesið allar bækur Lindgren upp til agna og segist hafa elskað þær frá byrjun. „Ég er óskaplega lítið öfundsjúk manneskja, en ég öfund- aði hana af einu. Ég vildi að ég hefði skrifað Ronju ræningjadóttur. Það er fantagóð bók. En annars eru þær hver annarri betri þessar bækur hennar. Ég barðist enda fyrir því í mörg ár, innan Norður- landaráðs og víðar, að hún yrði tilnefnd til nóbels- verðlauna því þessi kona gladdi örugglega fleiri sál- ir í heiminum heldur en nokJorr annar rithöfundur á síðustu öld. Og eina ástæðan fyrir því að hún var aldrei tilnetíid er sú að hún skrifaði fyrir böm. Hvað heldurðu að það séu margir nóbelsverðlaunahöf- undar gleymdir? Hún Astrid Lindgren gleymist ekki. Það er alveg ljóst." kristjanh@dv.is Old er liðm 1 dag siðan skald- konan Astrid Lindgren fædd- ist í Vimmerby í Svíþjóð. Bæk- ur hennar voru þýddar á 85 tungumál og gefnar út í fleiri en hundrað löndum. ■ 1 : SÚLAN AFHENT SÚLAN, MENNINGARVERÐLAUN REYKJANESBÆJAR, verður afhent við formlega athöfn í Bíósal Duushúsa í dag. Að venju verða veittar tvær viðurkenningar, annars vegar til hóps eða einstaklings sem unnið hefur vel að menningarmálum í bæjarfélag- inu og hins vegar til fýrirtækis sem stutt hefur við menningarlíf bæjarins með fjárstyrk eða með öðrum hætti. Athöfnin hefst kl. 18. ALLT í HÆGAGANGI ISKYMDI Þar sem áður spruttu sóleyjar og hundasúrur eru nú risin bensínstöð, verslun og skyndibitastaðir. Vegna aldurs og fyrri starfa er ég ekki ein þeirra sem leggja í vana sinn að rölta inn á skyndibitastaði á kvöldmatar- tíma, en geri þó undantekningu af og tíl. Af öllum stöðum borgarinnar valdi ég gömlu umferðareyjuna mína þar sem ég tíndi sóleyjar forðum. Subway skyldi það vera. Var hissa þegar ég sá að engin var biðröðin en skýringin kom fljótlega í ljós. Tilboð mánaðarins, sex tommu bátur, hljómaði bara vel, verðið ekki nema 299 krónur og sagt að væri úrvals hráefni. „Hvernig brauð viltu?" „Oregano." „Það er búið." Bað um aðra tegund. Það voru tveir brauðhleifar til svo ég sæi. Miðað við hægaganginn í hreyfingum afgreiðslustúlkunnar prísaði ég mig sæla að ætla ekki að fá neitt flóknara en tilboðið hljóðaði upp á. „Sósu?" „Já, takk, ostasósu" (búin að lesa sms-ið um það sem mér myndi henta). "Fleira?” „Já, takk, pipar og salt." Stúlkan var ung, hreinleg og kurteis, leit út nákvæmlega eins og Silvía Nótt og þegar tíminn hafði liðið allt of hægt og allt of lengi var ég viss um að ég væri í falinni myndavél. Leit um öxl - og sá bið- röð sem náði að kössunum þar sem fólk borgar bensínið. Var alsæl að hafa ekki þurft að borga í stöðu- mæli þennan dag og vera með þrjá hundrað krónu peninga á mér. f þakkarskyni fyrir að sleppa út með minn hálfa tilboðsbát gaf ég N1 krónu fyrir. En báturinn var góður, meira að segja mjög góður. ANNA KRISTINE fórá Subway vid Hrinqbraut. HRAÐI: ★ ★ VEITINGAR VIÐMÓT: UMHVERFI:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.