Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2007, Qupperneq 21
DV Umræöa
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER2007 21
Finnur Ingólfsson athafna-
maður fær mínusinn að
þessu sinni. Sveitarstjórinn i
Skeiða- og Gnúpverjahreppi brást
undrandi við beiðni hans um
heimtröð að sveitasetri sinu.
SPÖRMNGIN
ÆTLAR ÞÚ AÐ SÆKJA
UM SVEITARSTYRK?
„Það hafði ég ekki hugsað mérenda
myndi ég væntanlega bara leggja
veginn sjálfur. Við eigum til þess
ágætis tæki og tól. Mér finnst að
Finnur ætti að kaupa sér dráttarvél og
gera þetta sjálfur. Þetta er mjög góð
líkamsrækt," segir Steíngrímur J.
Sigfússon,formaðurvinstri grænna,
en fjölskylda hans á býli að Gunnars-
stöðum ÍÞistilfirði.
Finnur Ingólfsson, fyrrverandi
seðlabankastjóri, sótti um sveitarstyrk
til að leggja veg að býli sínu (Skeiða-
og Gnúpverjahreppi en var hafnað.
60ÁRA
DANÍELG. BJÖRNSSON,
Þórðarsveigi 30, Reykjavík.
GÍSLIMÁR HELGASON,
Hátúni iOa, Reykjavík.
HALLDÓRA JENNY GÍSLADÓTTIR,
Staðarseli 5, Reykjavík.
JÓN EINARÁRNASON,
Skáiagerði 1, Akureyri.
KRISTÍNINDRIÐADÓTTIR,
ICELAúDAIR
UtflMM wm) KSÍ
MYiVDIIV
_ ... runíáÉÉtíí^m'3^.
Slegið á létta strengi Þórir Hákonarson, Geir Þorsteinsson og Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari voru
léttir í lundu á blaðamannafundi KSÍ í gær þegar fyrsti landsliðshópur Ólafs var kynntur. DV-MYNDAsgeir
Getur vináttan villt
• •
monnum syn
„Tengingin við Baugsmálið í grein minni i DV var
aðeinssú að Haraldur Johannessen ríkislögreglu-
stjóri greindi frá samskiptum við Björn um tiltekna
lögreglurannsókn. Vegna þeirra ummæla vökn-
uðu óhjákvæmilega spurningar um önnur mál og
á hvaða grundvelli slíkt samráð hvíldi."
HREINN LOFTSSON
stjórnarformadur skrifar
í grein minni í DV föstudaginn 9.
nóvember sl. lýsti ég þeirri skoðun
að dómsmálaráðherra ætti ekki
að vera með afskipti af einstökum
lögregluaðgerðum. Krafan um hlut-
lægni og fagmennsku væri sífellt að
þyngjast í réttarkerfinu. Akveðin fag-
leg íjarlægð væri t.d. nauðsynleg milli
dómsmálaráðherra og ríkislögreglu-
stjóra. Náin persónuleg vinátta
getur villt mönnum sýn ef ekki er
varlega farið. Þessi skoðun beinist
ekki aðeins að Birni Bjarnasyni. f
úrskurði Persónuverndar frá því
5. júní 2003 er varðar Falun Gong
segir að dómsmálaráðherra fari
ekki með lögregluvald. Hann hefði
því ekki haft heimild til að miðla
upplýsingum til Flugleiða um félaga
í samtökunum. Þetta var áður en
Björn Bjarnason tók við lyklavöldum
í dómsmálaráðuneytinu. Ég var þá og
er enn sammála þessari niðurstöðu
stofnunarinnar.
f svari við grein minni á heimasíðu
sinni 11. nóvember sl. segir Björn
Bjarnason að hann hafl ekki að-
eins verið upplýstur fyrirffam um
„smyglmálið" á Fáskrúðsfirði held-
ur hafi hann einnig haft afskipti af
aðgerðum er vörðuðu yfirvofandi
komu Hell's Angels til landsins. Þessi
nýjasta upplýsingagjöf ráðherrans
gerir lítið annað en að staðfesta að
samskiptarásin er til staðar og hún er
greinilegavirk. Hefurhún verið svona
virk í fleiri málum á síðari árum? Það
er spurningin og þá í hvaða mæli og í
hvaða málum.
Tengingin við Baugsmálið í grein
minni í DV var aðeins sú að Haraldur
Johannessen ríkislögreglustjóri
greindi frá samskiptum við Bjöm um
tiltekna lögreglurannsókn. Vegna
þeirra ummæla vöknuðu
óhjákvæmilega spurningar um önnur
mál og á hvaða grundvelli slíkt samráð
hvíldi. Meint afskiptasemi Björns
Bjarnasonar af Baugsmálinu hefiír t.d.
verið kærð til Mannréttindadómstóls
Evrópu. f greininni lýsti ég þeim
reglum sem gilda á þessu sviði að
lögum og tel að mikið sé í húfi að bæði
stjórnmálamenn og embættismenn
þekki sín takmörk í þessu tilliti.
Kristján Hrafn Guðmundsson
talar um íslenska kvikmyndagerð.
KALLIÐ ÞAÐ KLISJU en svakalega
er mikil gróska í íslenskri
kvikmyndagerð. Og ekki bara
gróska heldur líka gæði. Myndir
eins og '79 á stöðinni og
Útlaginn þóttu ægilega flottar
og góðar á sínum tíma, og mig
minnir að ég hafi haft helvíti
gaman af þeim þegar ég sá þær
fyrir alllöngu. En ég er nokkuð
hræddur um að þær myndu
blikna allverulega í samanburði
við það besta sem íslenskir
kvikmyndagerðarmenn eru að
gera í dag. Skiljanlega, segja
væntanlega margir.
FJÖLMARGAR íslenskar myndir
sem frumsýndar hafa verið á
síðustu fimm
til tíu árum eru
einstaklega
vel úr garði
gerðar. Englar
alheimsins,
Nói albinói,
101 Reykjavík,
Kaldaljós og
Mýrin eru þar
á meðal, svo einhverjar séu
nefndar. Þá er að sjálfsögðu
ónefnd Börn náttúrunnar
sem gerð var nokkru fyrir
tíma nefndra mynda. Nýjustu
meistaraverkin eru svo Börn og
Foreldrar Ragnars Bragasonar
og kraftaverkafólksins í
Vesturporti. Þvílíkar myndir!
Og það segir sitt um gæði
þeirra mynda sem er verið
að gera hér á landi þessi
misserin að hvorug þeirra var
valin sem framlag íslands til
Öskarsverðlaunanna. Síðari
myndin sópaði hins vegar inn
Eddunum á sunnudaginn eins
og frægt er orðið.
OGÞAÐERU EKKI einungis
leiknu myndirnar sem sífellt
verða betri heldur virðist það
sama vera að eiga sér stað í
heimildarmyndageiranum.
Myndir eins og Lalli
Jones og Hlemmur voru
afbragð, og bara á þessu
ári hafa verið frumsýndar
tvær framúrskarandi
heimildamyndir, Syndir
feðranna og Heima, þó
kannski megi deila um hversu
„íslensk" sú síðarnefnda
er. Og nú er svo væntanleg
heimildarmynd úr smiðju
brautryðjendakvikmynda-
gerðarmannsins Friðriks Þórs
Friðrikssonar sem spennandi
verður að sjá hvernig verður.
AFMÆLISBÖRN DAGSINS
MIÐVIKUDAGURINN 14. NÓVEMBER 2007
Grænutungu 7, Kópavogur. ÞÓRUNN ÞÓRMUNDSDÓTTIR, HJÖRLEIFUR MAR HARALDSS0N, RAGNAR HÓLM GUNNARSS0N,
RANNVEIG HESTNES, Þrastarima 15, Selfoss. Óðinsgötu 14a, Reykjavík. Grenimei 15, Reykjavík.
Eyrargötu 6, ísafjörður. 40ÁRA HJÖRVAR HARÐARSON, RÓSA SVEINSDÓTTIR,
SESSEUA SNÆVARR, BERGUR ÞÓR BJÖRNSS0N, Reynivöllum 10, Selfoss. Lómasölum 27, Kópavogur. Básbryggju 15, Reykjavfk.
Laufásvegi 47, Reykjavík. HRUND GAUTADÓTTIR, RÚNAR GEIR BJÖRNSS0N,
SIGURÞÓR BJARNASON, DAGBJÖRT LARA RAGNARSDÓTTIR, Brekkuhlíð 16, Hafnarfjörður. Kristnibraut 101, Reykjavík. Háagerði 65, Reykjavlk.
Grettisgötu 38b, Reykjavík. JÓN ÞÓR BJÖRGVINSS0N, SVANA HANSDÓTTIR,
50ÁRA D0R0TA BEDNAROWICZ, Móatúni 1, Tálknafjörður. Noröurtúni 23, Egilsstaðir. Bústaðavegi 103, Reykjavlk.
KRISTINN PÉTUR MAGNÚSS0N, RAGNA DAGBJÖRT DAVfÐSDÓTTIR, ÚLFAR JÓNSS0N,
Skriðustekk 16, Reykjavík. HELGIJÓNSSON, Stekkholti 4, Selfoss. Bjarkarási 26, Garðabær. Hraunkambi 7, Hafnarfjörður.