Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Blaðsíða 15
DV Sport__________'A____________________________________________________________________________________________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 15
ARSENAL VANN ÖRUGGAN SIGUR Á BLACKBURN í ENSKA BOLTANUM OG JÓK FORYSTU SÍNA Á
MANCHESTER UNITED í FIIN/IM STIG. LIÐIN MÆTAST UM NÆSTU HELGI í ENSKA BIKARNUM. BLS. 16
Fjórir leikmenn Bjarnarins í íshokkí hafa fallið á lyQaprófi síðustu tvö ár:
FJÓRIR BIRNIR Á STERUM
Fjórir leikmenn Bjamarins í ís-
hokkí hafa fallið á lyfjaprófi undan-
farin ár. Núna síðast var Hrólfur Gísla-
son dæmdur í tveggja ára bann í öllum
íþróttagreinum innan ÍSÍ fimmtudag-
inn 7. febrúar. Niðurstöður rannsókn-
ar sýnisins sem lyfjaeftirlitið tók af
Hrólfi leiddu í ljós að það innihélt nið-
urbrotsefiii sterans Stanozolol og ster-
ans Drostanolone.
„Það hafa komið upp fjögur mál á
tveimur árum. Þau koma öll úr sama
félaginu og öll úr sama félagsskap inn-
an þess félags," sagði Viðar Garðars-
son, formaður íshokkísambands ís-
lands. „Vonandi er búið að koma í veg
fyrir þetta, því ég veit að félagið hef-
ur verið í samstarfi við ÍSf að reyna
að loka á þetta og koma í veg fyrir að
þetta endurtaki sig. Vonandi skilar það
sér og vonandi er þetta síðasta málið af
þessum toga sem við sjáum í bili."
Hrólfur keppti ekki alls fyrir löngu
á vaxtarræktarmóti og hafði lítið æft
íshokld. 2. desember lék Bjöminn við
Skautafélag Akureyrar og tapaði 12-5
þar sem Hrólfur skoraði þrjú marka
Bjamarins. „Athygli vakti Hrólfur
Gíslason sem skoraði fyrstu þrjú mörk
Bjamarins en hann hefur nú spilað
þrjá leiki í vetur og er nú þegar orðinn
með markahæstu mönnum í deildinni
og hefur meðal annars landað tveimur
hatta-brellum. Það sem gerir árangur
Hrólfs enn eftirtektarverðari er að hann
æfir víst eitthvað mjög lítið, eða jafnvel
ekki neitt heldur spilar aðeins leikina,"
stendur meðal annars í leikskýrslu um
leikinn. •
Hrólfur bytjaði að æfa íshokkí ung-
ur og þótti nokkuð efnilegur. Hann á
að baki noklcra landsleiki með yngri
landsliðum íslands. Hann virðist samt
hafa verið á leið út úr íþróttinni og í
vaxtarrækt. Hann er fjórði leikmaður
Bjamarins sem fellur á lyfjaprófi síð-
ustu ár. Brynjar Freyr Þórðarson féll í
október 2006, Halldór Asmundsson
féll í september sama ár og einn leik-
maður til viðbótar hefur fallið sem
skráður var í Bjöminn.
Gunnar Jónatansson, formaður
Bjamarins, sagði að þeir fjórir leik-
menn sem hafa fallið á lyfjaprófum
hafi ekki tengst neitt öðruvísi en að
þeir hafi verið saman í liði.
„Ég veit ekki til þess að það séu
nein tengsl á milli þessara leikmanna
önnur en þau að þeir hafa fallið á
lyfjaprófi. Ekki mér vitandi allavega.
Þetta er hið versta mál, bæði fyrir þessa
einstakfinga og félagið að þetta skuli
koma upp," sagði Gunnar og bætti
við að Hrólfur sé velkominn aftur eftir
bannið. „Hann er það, það er slæmt að
rrfissa góðan spilara og góðan félaga
og þegar menn em búnir að taka út
sinn dóm em þeir velkomnir í félagið
Fjórir fallnir Fjórir leikmenn Bjarnarins
hafa fallið á lyfjaprófi undanfarin ár.
Myndin tengistfréttinni ekki.
aftur. Þetta er ekkert grín fyrir unga
íþróttamenn, hvaða íþrótt sem menn
taka þátt í, tvö ár eru langur tími."
benni@dv.is