Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008
Fókus DV
ÍKVÖLD
HEIMSMET
FÁVITINNIBÆJARBÍÓI
Kvikmyndasafn [slands sýnir myndina Fávitann í leikstjórn Rússans IVAN PYRJEV í Bæjarbíói í kvöld.
Myndin, sem er frá árinu 1958, er gerð eftir samnefndri skáldsögu FJ0D0RS DOSTOJEVSKÍ en
aðalpersónan, Myshkin fursti, er einn frægasti kristsgervingur bókmenntasögunnar og kannski
geðfelldasta sögupersóna Dostojevskls. Sýningin hefst klukkan 20 og er miðaverð 500 KRÓNUR.
Þjóðlagarokk
Tónlistarfólkið Rúnar og Elín spilar
á Organ í kvöld klukkan 22. Um er
að ræða nokkurs konar „folk rock"-
tónlist, sem gæti útlagst sem þjóð-
lagarokk, og er samsett af kassagítar,
tveimur röddum og fiðlu sem Berg-
ljót Hjartardóttir spilar á. Síðastliðin
þrjú ár hafa Rúnar og Elín dvalið í
Kína og flutt tónlist sína fyrir þús-
undir þarlendra. Þessa dagana eru
þau að leggja lokahönd á nýjustu
plötuna sína, The Long Road Home,
og verður efni hennar flutt í fyrsta
sinn á íslandi á Organ í kvöld.
Rithöfundur
velur málverk
Myndlistarsýningin Ljósbrot var
opnuð í Artóteki Borgarbókasafns
á 1. hæð Grófarhúss um nýliðna
helgi. Á sýningunni eru listaverk
sem Kristín Marja Baldursdótt-
ir rithöfundur valdi eftir lista-
menn í Artótekinu. Kristín Marja
er landskunn fyrir ritstörf sín og
hefur meðal annars verið gerð
kvikmynd eftir bók hennar Máva-
hlátri. Listamenn sem eiga verk á
sýningunni eru Aðalheiður Val-
geirsdóttir, Björg Þorsteinsdóttir,
Bryndís Brynjarsdóttir, Guðbjörg
Lind Jónsdóttir og Valgerður
Hauksdóttir. Sýningin stendur til
9. mars.
ívanov
framlengdur
Vegna mikillar aðsóknar hefur ver-
ið ákveðið að framlengja sýninga-
tímabilið á fvanov eftir Tsjekhov í
leikgerð Baltasars Kormáks á Stóra
sviði Þjóðleikhússins. Sýningin er
orðin ein vinsælasta Tsjekhov-sýn-
ingin í íslensku leikhúsi frá upphafi
en þegar hafa um átta þúsund gestir
séð sýninguna. Fyrir löngu er orðið
uppselt á allar sýningar í febrúar
en áætlað var að sýningum lyki 24.
febrúar. Bætt verður við aukasýn-
ingum í mars og er áhugasömum
bent á að tryggja sér miða í tíma á
vef leikhússins eða með því að hafa
samband við miðasölu.
Það eru fáar persónur í kvikmynda-
sögunni sem hafa náð jafnmiklum
vinsældum og hinn grjótharði
Rambo. Ég held að það sé óhætt að
segja að John Rambo sé frægasta
stríðshetja hvíta tjaldsins fyrr og
síðar og það var því með mikilli eftir-
væntingu sem ég lagði leið mína í
Laugarásbíó á sunnudaginn var.
Sylvester Stallone, sem leikur að
sjálfsögðu Rambo, leikstýrir þess-
ari fjórðu mynd um kappann sjálf-
ur. Rambo hefur legið í dvala allt
frá Rambo III árið 1988 þegar hann
barðist gegn Rússunum í Afganist-
an. Nú, 20 árum síðar, er Rambo
staddur í Taílandi þar sem hann
lifir fábrotnu lífi í einsemd. Hópur
trúboða sem er á ferð um svæðið
leitar til Rambo eftir hjálp með að
komast inn í Búrma en hann vill
ekkert með það hafa. Rambo varar
trúboðana við því hræðilega ástandi
sem ríki í Búrma og reynir að fá þá
til að snúa aftur heim. Þar slátrar
herinn fólki Keran-þjóðflokksins
miskunnarlaust til að reyna að ná
til frelsisbaráttuhermanna.
Þegar Sarah nokkur sem er
leikin af Julie Benz sannfærir
Rambo um að þau fari sama hvað.
gerist ákveður hann að sigla með
þau upp ána. Það er skemmst frá
því að segja að það endar ekki vel
og Rambo neyðist til að snúa aftur
til að bjarga þeim sem eftir eru.
Árið 1990 staðfesti Guinness
að Rambo III væri ofbeldisfyllsta
mynd til þess tíma og ég held að það
met hafi nú verið slegið. Rambo-
myndirnar áttu einnig metið sem
ofbeldisfyllsta myndaröðin með
2,59 morð á mínútu samanlagt. Ætli
sú tala sé ekki komin upp í 5 morð á
mínútu.
Stríðssenurnar í myndinni eru
ótrúlega kraftmiklar og blóðugar.
Ekki nóg með það heldur eru þær
góðar. Spennan og blóðbaðið eru
hreint ótrúleg á köflum og maður
trúir því varla að hægt sé að sýna
svona marga deyja á jafnskömmum
tíma og raun ber vitni.
Hvorki handrit myndarinnar
né leikarar hennar munu vinna til
neinna verðlauna en hún stendur
fyrir sínu. Þetta er bara Rambo-
mynd og hún skilar nákvæmlega því
sem slík mynd á að skila. Blóðbaði og
einum eitilhörðum Sly Stallone. Það
Harðasti maður f heimi
Það er enginn meiri nagli
en John Rambo!
RAMBO ★★★
LEIKSTJÓRN: Sylvester Stallone
AÐALHLUTVERK: Sylvester Stallone,
Julie Benz, Paul Schulze, Matthew
Marsden, Graham McTavish.
Rambo erhröð og öflug
stíðsmynd þar sem
vélbyssan erlátin tala
I stað orða.
BIODOMUR
er ekki beint farið djúpt í persónu
Rambos enda er hann ekki mjög
flókinn gæi. Stallone reynir hins
vegar að sýna áhorfandanum hversu
þjakaður af samviskubiti Rambo er
eftir öll morðin en á sama tíma að
það sé nákvæmlega það sem hann er.
Hreinræktuð stríðsvél og morðingi.
Orðrómur er uppi um Rambó fimm
og að hún eigi að gerast í Afríku. Ég
vona svo sannarlega að við fáum að
sjá massaða gamalmennið í hlutverki
Rambos enn á ný.
Ásgeir Jónsson
í SKYNDI
RAUÐA MYLLAN ROKKAR!
Persónulega finnst mér
einstaklega erfitt að ætla að fara
eitthvert og fá mér að borða í
Reykjavík. Heiðarlegan og góðan
hádegis- eða kvöldmat í ódýrari
kantinum er undarlega erfitt að
finna í höfuðborginni. Meira að
segja það að ætla bara að fá sér
virkilega góða pitsu sem kostar
ekki þrjú þúsund og fimm hundruð
krónum er þrautin þyngri. Nú hef
ég hins vegar fundið mér minn
uppáhaldsstað. Það fer ekki mikið
fyrir kaffihúsinu/pitseríunni
Moulin Rouge á Skólavörðustíg
14 og í rauninni labbaði ég þar
framhjá á hverjum degi án þess
að það hvarflaði að mér að fara
þangað inn. Þegar ég loksins villtist
þangað inn í örvæntingarfullri leit
minni að einhverju ætilegu, fékk
ég eina bestu pitsu sem ég hef
lengi bragðað á íslandi. Stökkur
botn, djúsí sósa og brakandi ferskt
grænmeti einkenndu þessa fyrstu
upplifun mína af Moulin Rouge. Ég
hef nokkrum sinnum bæði sótt pitsu
þar og borðað á staðnum og aldrei
orðið fyrir vonbrigðum. Það er alltaf
mjög snyrtilegt inni á staðnum og
huggulegt að sitja þar, þjónustan er
góð og tónlistin ljúf. Verðið er betra
en á mörgum öðrum stöðum með
miklu verri mat (verðið á pitsunum
er frá rúmlega þúsund krónum
upp í tæplega tvö þúsund og fimm
hundruð krónur) og ég sannfærðist
endanlega um að þetta væri orðið
uppáhaldsstaðurinn minn þegar
ég fór þangað um síðustu helgi.
Matseðillinn hefur stækkað, nú er
einnig boðið upp á speltpitsur fyrir
þá sem það kjósa, gómsæt salöt og
dýrindis pönnukökur í eftirmat. Það
er reyndar ekki selt áfengi á Moulin
Rouge sem gæti verið galli fyrir þá
sem það kjósa á laugardagskvöldi
en ég er allavega alveg til í að fórna
hvítvínsglasinu fyrir heiðarlegan,
vel gerðan mat eins og er boðið
upp á á Moulin Rouge.
KRISTA HALL
fór ó Moulin Rouge
HRAÐl: ★★
VEITINGAR
VIÐMÓT:
UMHVERFI: