Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Blaðsíða 11
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 11
Potomac-forkosningarnar
í dag fara fram forkosningar
í Maryland, Virginíu og Wash-
ington DC. Forkosningarnar eru
kenndar við Potomac-ána sem
rennur í gegnum öll þrjú fylkin. Ef
kannanir ganga eftir mun Barack
Obama eiga góðu gengi að fagna
að kvöldi dags. Fjöldi kjörmanna
sem þau berjast um er eitt hundr-
að sextíu og átta, þar af eru flest-
ir í Virginíu eða áttatíu og þrír og
í Washington DC eru einungis
fimmtán kjörmenn í boði.
í herbúðum Hillary Clinton
horfa menn lengra fram í tím-
ann. 4. mars fara fram forkosn-
ingar í Texas og Ohio og bæði
fylkin státa af góðum fjölda
kjörmanna. Barack Obama var
hins vegar sigurreifur að kvöldi
laugardags þegar hann ávarpaði
flokksmenn í Richmond í Virg-
iníu, en þá sagði hann meðal
annars: „í dag, stóðu kjósendur
allt frá Vesturströndinni til Flóa-
strandarinnar upp til að segja
„Já, við getum þetta""
EIFUR
Barack Obama Vann
mikilvæga sigra um
helgina og minnkaði
forskot Hillary til muna.
Manatuto
Reynt aö ráöa æðstu ráðamenn Austur-Tímor af dögum:
Forsetinn þungt haldinn
Jose Ramos-Horta, forseti Austur-
Tímor, er þungt haldinn eftir morð-
tilræði af hálfu uppreisnarmanna.
Tilræðið var gert í gærmorgun á heim-
ili hans í Dili og var hann skotinn í
kviðinn.
Flogið var með forsetann til
Ástralíu og var honum í gær haldið
sofandi. Einnig var gert tilræði við
Xanana Gusmao forsætisráðherra,
en setið var fyrir bílalest hans. Hann
slapp þó ómeiddur ffá tilræðinu.
Gusmao lýsti yfir neyðarlögum í
landinu í kjölfar tilræðanna sem hann
sagði vera tilraun til valdaráns. Kevin
Rudd, forsætisráðherra Ástralíu, lof-
aði að senda fleiri friðargæsluliða til
landsins og sagði að morðtilraun gegn
lýðræðislegakjömumleiðtogumþess-
arar vinaþjóðar Ástralíu væri sorgleg
þróun.
Forstöðumaður sjúkrahússins í
Darwin, þar sem Ramos-Horta liggur,
sagði að hann væri vongóður um
fullan bata forsetans og ástand hans
væri stöðugt þrátt fyrir að sár hans
væm alvarleg.
Leiðtogi uppreisnarmanna, Alfr-
edo Reinado majór, var ásamt öðmm
uppreisnarmanni drepinn þegar til-
ræðið var gert gegn Ramos-Horta.
Ástralskir friðargæsluliðar hafa séð
um öryggisgæslu í landinu síðan
2006. Þeir vom kallaðir til landsins í
tilraun til að draga úr átökum á milli
lögreglu og hers, sem vom tilkomin
vegna ákvörðunar þáverandi forsæt-
isráðherra, Maris Alkatiri, um að reka
þriðjung hermanna hers landsins. fýrir morð. Hann náði að flýja úr
Alffedo Reinado, fyrrverandi fangelsi og fór til fjalla með mönnum
sjóliðsforingi, var þá talinn ábyrgur sínum og óttast var að ofbeldið ætti
fýrir nokkrum skotárásum og kærður eftir að brjótast út að nýju.
TILRÆÐIVIÐ ÆÐSTU RAÐAMENN AUSTUR-TIMOR
JoseRamos-Horta (t.v) er þungt
haldinn eftir samhæfðar
árásir á æðstu ráðamenn
þjóðarinnar. Byssumenn hliðhollir
Alfredo Reinado, útlægum
leiðtoga uppreisnarmanna
réðust einnig gegn Xanana
Gusmao (t.h.), forsætisráðherra,
en hann beið ekki skaða.
AUSTUR-TlMOR T
Oecussi
'.'■Ain
T MOR
30 mílur
Dili, 7.00: Ramos Horta
forseti skotinn í kviðinn
á heimili sínu.
Reinado majór drepinn
af öryggisvörðum.
Balibar, 7.30:
Setið fyrir
bflalest
Gusmao
Viqueque
Ástralskir friðargæsluliðar: Rúmlega
800 manna lið, á að flölga í 1,000, með
hermönnum og áströlskum alríkislögreglumönnum.
Pictures: Associated Press
© GRAPHIC NEWS
Vopnaöir menn rændu fjórum málverkum í Ziirich í Sviss:
Metin á ellefu milljarða
Eitt stærsta Ustaverkarán síðustu
tuttugu ára var framið í Zúrich í Sviss
á sunnudaginn. Þá rændi hópur
vopnaðra manna listaverkum, sem
metin eru á hátt í ellefu milljarða
íslenskra króna, af Emil Buehrle-
listasafriinu. Ræningjamir hótuðu
öryggisverði með byssum og höfðu
á brott með sér málverk frönsku
impressjónistanna Cezanne, Degas,
Van Gogh og Monet.
Verkin sem um ræðir eru Popp-
ies near Vetheuil eftir Claude Monet,
Count Lepic and his Daughters eftír
Edgar Degas, Chesmut in Bloom eft-
ir Vincent Van Gogh og Boy in a Red
Jacket eftír Paul Cezanne. Svissneska
lögreglan sagði ránið stórbrotíð, en
ræningjamir sem vora dökkklæddir
og með grímu fyrir andlitínu komu á
safrtíð hálffi klukkustund fyrir lokun.
Annað rán tveimur dögum fyrr
Ekki er vitað af hverju þessi mái-
verk urðu fyrir valinu hjá ræningjun-
um, en safriið hýsir um tvö hundrað
verk Buehrle-safnsins, aðallega verk
Sendiráðið vaktað
Norska sendiráðinu í Kabúl í Afg-
anistan var lokað í gær og starfs-
menn þess fluttir á ótílgreindan stað.
Þetta var gert í kjölfar hryðjuverka-
hótunar á sunnudaginn. Ekki liggur
ljóst fýrir hvenær sendiráðið verð-
ur opnað á ný. Utanríkisráðuneyti
Noregs hefur hvorki upplýst hvers
eðlis hótunin var nákvæmlega, né
með hvaða hætti henni var komið á
framfæri.
Norskir ráðamenn líta greinilega
þannig á að starfsmenn sendiráðsins
séu ekki þeir einu sem era í hættu
í Kabúl því neyðaraðstoð norsku
kirkjunnar hefur einnig lokað skrif-
stofum sínum þar.
Málverk Monets Eitt fjögurra
málverka sem var rænt.
impressjónista og meðal þeirra verka
era ekki færri en sjö verk eftír hvom
Van Gogh og Cezanne og firnm verk
eftir Monet. Emil Georg Buehrle var
iðnjöfur og andaðist árið 1956 og
hafði byggt safnið upp síðan á fjórða
áramg síðustu aldar. Þrátt fýrir að Bu-
ehrle hafi verið sakaður um að hafa
selt nasistum vopn meðan heims-
styrjöldin síðari stóð yfir, sem og að
Meira en hálf milljón á vergangi
Sameinuðu þjóðirnar telja að fjöldi
þess fólks sem er á vergangi vegna
átakanna í Kenía sé mun meiri
en áður hefur verið talið. Að mati
stofnunarinnar hafa allt að sex
hundruð þúsund manns neyðst
til að yfirgefa heimili sitt vegna
ástandsins sem hefur ríkt síðan í lok
desember. John Holmes, yfirmaður
neyðarhjálpar Sameinuðu þjóð-
anna, segir að um þrjú hundruð
þúsund manns hafist við í þeim
þrjú hundruð búðum sem komið
hefur verið upp og svipaður fjöldi
haldi sennilega til hjá vinum og ætt-
ingjum. Fjöldi látinna er talinn vera
komin yfir eitt þúsund.
hafa keypt af nasistum listaverk sem
þeir höfðu slegið eign sinni á, er safn
hans talið eitt merkilegasta einka-
safit í Evrópu og er það hýst í glæsi-
legrivilluíZúrich.
Ekki eru nema tveir dagar síðan
tvefrnur málverkum eftír Picassó var
stolið úr menningarmiðstöð skammt
fyrir utan Zúrich. Lögreglan hefúr
engar vísbendingar í því ráni.
Maharishi kvaddur
Tugir þúsunda voru viðstaddir
útför Maharishis Mahes Yogi sem
fram fór í Allahabad í Indlandi í
gær. Fyrir tilviljun bar athöfnina
upp á sama tíma og árlega
pílagrímahátíð hindúa á svæðinu.
Rósablöðum sem varpað var úr
þyrlu rigndi yflr lík Maharishis þar
sem það lá á stórum viðarkesti
og ættingjar hans báru eld að
kestinum. Syrgjendur hvaðanæva
úr heiminum klingdu bjöllum,
börðu trumbur og sungu sálma.
Lögregluvörður fullkomnaði hið
óreiðukennda hljómfall með
því að skjóta af rifflum sínum í
virðingarskyni.