Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008
Sport DV
Cole íhugar aA haetta
Andy Cole ætlar að ákveða eftir
tímabilið hvort hann leggi skóna á
hilluna. Hinn 36 ára Cole er á samningi
hjá Sunderland
en hefur verið að
láni hjá Burnley
síðan íjanúar.„Ég
hafði aldrei
spilaðvið
Burnley áðurog í
hreinskilni vissi
ég ekki hvar liðið
var. En ég talaði
við stjórann,
Owen Coyle, og hann sannfærði mig
um að liðið vildi spila fótbolta og hann
vildi fá mig til að leiða framlínuna. Það
var nóg til að sannfæra mig. Ég vil enda
á góðu nótunum. Þegar tímabilinu lýkur
mun ég ákveða hvort ég hendi inn hvíta
handklæðinu eða ekki." Cole byrjaði
ferilinn hjá Arsenal, fór þaðan til
Newcastle þar sem hann sló í gegn og
var keypturtil Manchester United. Hann
hefur einnig spilað með Bristol City,
Blackburn, Fulham, ManchesterCity,
Portsmouth, Birmingham og
Sunderland.
Green var bara mefi húmor
Robert Green, markvörður West Ham,
segir að áletrun hans i lófanum á
markmannshönskunum gegn
Birmingham hafi
verið léttur
brandari. (
lófanum á
hönskunum stóð
„England
number 6" og
segirGreen að
þetta hafi bara
verið léttspaug.
Margir undrast
að Green fái ekki landsliðssæti eftir
góða frammistöðu að undanförnu.
„Framleiðandi hanskanna minna var
með létt spaug á minn kostnað, þetta
var ekkert meint gegn vali Fabios
Capello. Ef eitthvað var þetta meint
gegn mér sjálfum. Auðvitað vona ég
eftir landsliðssæti einhvern daginn en
þangað til einbeiti ég mér bara að West
Ham."
Neville ekki að hætta
Gary Neville, fyrirliði Manchester
United, óttaðist
aðferlinum væri
lokið en segir nú
að hann sé ekki á
þeim buxunum
að hætta. Hann
hefurekki leikið
meðaðalliði
Manchester
United í ellefu
mánuði. Neville
verður 33 ára síðar í mánuðinum.„Eðli
málsins samkvæmttalarfólk um framtíð
mína. Ég hef verið lengi frá en ég er þess
fullviss að ég muni ná að komast til
baka.„Nú er ég byrjaður að æfa á fullu
og þegar ég næ fullu formi verð ég eins
góður og áður" segir Gary Neville.
ENSKI
Arsenal - Blackburn 2-0
Philipe Senderos (4.), Emmanuel
Adebayor (92.)
Staðan
Lið L u J T M St
1. Arsenal 26 19 6 1 54:18 63
2. Man.Utd 26 18 4 4 50:14 58
3. Chelsea 26 16 7 3 38:17 55
4. Everton 26 14 5 7 41:23 47
5. Liverpool 25 11 11 3 40:17 44
6. Aston Villa26 12 8 6 48:34 44
7. Man.City 26 12 8 6 34:29 44
8. Portsm 26 11 8 7 36:26 41
9. Blackburn 26 10 9 7 32:32 39
lO.WestH 25 10 7 8 30:23 37
ll.Totten 26 8 8 10 48:41 32
12. Middle 26 7 8 11 23:38 29
13. Newcas 26 7 7 12 29:47 28
14. Sunderl 26 7 5 14 26:45 26
15. Bolton 26 6 7 13 26:35 25
16. Wigan 26 6 5 15 24:42 23
17. Birming 26 5 7 14 25:38 22
18. Reading 26 6 4 16 30:53 22
19. Fulham 26 3 10 13 25:44 19
20. Derby 26 1 6 19 13:55 9
Markahæstir:
Ronaldo Man Utd 19
Adebayor Arsenal 18
Keane Tottenham 12
Torres Liverpool 12
Anelka Chelsea 11
Arsenal náði í gær fimm stiga forystu í ensku deildinni með sigri á Blackburn 2-0.
Blackburn kom á Emirates til að verjast og ætlaði aðeins að ná í eitt stig. Liðið þorði
varla fram yfir miðju og sótti aldrei á fleiri en tveimur mönnum. Liðið reyndi eftir
fremsta megni að drepa allan hraða í leiknum og minnti helst á Arsenal-liðið sem
George Graham stýrði á sínum tíma en þá var sungið „Boring boring Arsenal“. Sá
söngur átti við Blackburn í gær.
r
BENEDIKT BOAS HINRIKSSON
bladamaður skrifar: benni@dv.is
Arsenal vann Blackburn 2-0 þar
sem Blackburn kom til þess að verj-
ast og reyna að drepa allan hraða í
leiknuni. Það tókst megnið af leikn-
um en Arsenal-liðið er ótrúlegt. Þol-
inmæði þess er mögnuð og liðið beið
þolinmótt eftir sínum tækifærum.
Það nýtti tvö færi, eitt í hvorum hálf-
leik.
Arsenal byrjaði af miklum móð
og ljóst að það átti að drepa alla
baráttu Blackburn strax í fæðingu.
Það tókst. Philippe Senderos skor-
aði eina mark fýrri hálfleiksins með
góðum skalla. Eduardo da Silva tók
hornspyrnu og Benni McCarthy sem
á einhvern óskiljanlegan hátt átti að
dekka Svisslendinginn gerði það afar
illa og Senderos skallaði auðveldlega
í netið.
Eftir markið róaðist leikurinn mik-
ið bæði á vellinum og í stúkunni.
„Það má heyra saumnál detta," sagði
Hörður Magnússon sem lýsti leikn-
um beint frá Emirates-vellinum.
Arsenal hefur verið í ffábæru formi
undanfarið og framherjinn magnaði
Emmanuel Adebayor hefur verið ið-
inn við kolann í markaskorun. Nán-
ast í hvert sinn sem hann hefur heiðr-
að grasið með nærveru sinni hefur
hann náð að skora mark. Það breytt-
ist ekki í gær. Jens Lehman heiðraði
einnig grasið með sinni nærveru og
var á milli stanga Arsenal í fjarveru
hins meidda Manuels Almunia. Lítið
reyndi á Lehman í fyrri hálfleiknum.
Hann greip sína bolta en þurfti ekki
að hafa miklar áhyggjur af sóknarleik
Blackburn sem var tilviljunarkenndur
og í raun slakur. Mathieu Flamini fékk
síðan sannkallað dauðafæri þegar
hann slapp óvænt einn í gegn en Brad
Friedel var vandanum vaxinn. 1-0 í
hálfleik sem fer seint í metabækurnar
fýrir skemmtilegheit.
Síðari hálfleikurinn
skömminni skárri
Síðari hálfleikur byrjaði með miklu
fjöri. David Bentley þrumaði úr auka-
spyrnu sem Lehman átti í erfiðleikum
með og Alexander Hleb bauð upp á
skot í stöngina. Skömmu síðar brun-
aðiAdebayorffamhjávarnarmönnum
Blackburn eins og að drekka vatn en
skot hans var varið af Friedel. Eft-
ir það róaðist leikurinn og fór í sama
far og í fyrri hálfleik. Blackbum reyndi
háar spyrnur í átt að Santa Cruz sem
Gallas og Senderos hlógu að. Arsenal
hélt boltanum innan liðsins en skap-
aði sér engin dauðafæri. Þannig var í
raun saga leiksins.
Loksins þegar Arsenal skaut að
' t'-BÉiÉi.lflÉiÍ Æ
marki þegar rúmur hálftími var eft-
ir skapaðist hætta. Liðið vill iðulega
spila yfir marklínuna í stað þess að
láta vaða á markið. Fabregas þmm-
aði að marki en boltinn fór ffamhjá.
Hleb reyndi einnig en skot hans með
vinstri fór beint á Friedel. Aftur reyndi
Fabregas en nú skóflaði hann bolt-
anum yfir. Þegar skammt var eftir af
leiknum skoraði svo Adebayor sitt 19.
mark í deildinni. Þetta var jafnframt
12. mark hans í níu leikjum. Tók ffá-
bærlega við boltanum inn í teig og
skoraði fallegt mark.
Ef fólk vill sofna yfir sjónvarpinu
er gott að taka leikinn í endursýningu
en hann verður sýndur á föstudaginn
klukkan 23.45 á Sýn2. Vonandi verður
það eina endursýningin.
Barátta Gilberto Silva og Stephen
Warnock eigast hér við.
Sendetos (4.}, Adebayor (92.)
55% MEÐ BOLTANN 45%
15 SKOTAÐMARKI 8
7 SKOTAMARK 1
2 RANGSTÖÐUR 5
7 HORNSPYRNUR 5
6 AUKASPYRNUR 12
1 GULSPJÖID
0 RAUÐ SPJÖLD
AH0RFENDUR: 60.049
SRSENAL
Lehmann,Sagna,6allas,
Senderos, Clichy, Fabregas,
Flamini, Silva, Hleb, Adebayor,
Eduardo.
ELACKBURN
Friedel, Emerton, Ooijer (Rigters
80), Khizanishvili, Wamock,
0 Kerimoglu (Mokoena 77),
Bentley, Reid, McCarthy (Roberts
77), Bemer, Santa Cruz.
MAÐUR LEIKSINS
Brad Friedel, Bladcbum
Harry Redknapp gæti ekki verið ánægðari með Lassana Diarra:
Lofsöngur Harrys
Arið 2005 keypti Jose Morinho,
þáverandi knattspymustjóri Chelsea,
til liðsins tvímgan Frakka að nafni
Lassana Diarra. Diarra hafði leik-
ið síðustu tvö árin á undan því með
Le Havre í frönsku deildinni og hafði
leikið tuttugu og níu leiki fyrir það lið
áður en hann hélt til Lundúna. Dvöl-
in hjá Chelsea var ekki löng og ekki
heldur Arsenal. Hann var keyptur til
Portsmouth í janúarglugganum og
Harry Redknapp, stjóri Portsmouth,
gæti ekki verið ánægðari.
„Hann er mjög sérstakur kar-
akter og einstaldega hæfileikaríkur
leikmaður," er með því fáa sem Red-
knapp hefur sagt um leikmanninn.
Diarra lék aðeins þrettán leiki fyr-
ir Chelsea á tveimur árum og hefði
það ekki verið fyrir bakvarðavand-
ræði Chelsea á síðasta tímabili hefði
hann líklega gleymst. Þar sem Paulo
Fereira og Kalid Boularouz gjörsam-
lega gátu ekkert í bakverðinum fékk
Diarra tækifærið og var hrósað fyrir
að geta Ieyst þá stöðu en það var ekki
mikið meira en það.
Vegna þessa litla spilatíma kom
mikið á óvart þegar tilkynnt var fyr-
ir tímabilið að Arsene Wenger hefði
fest kaup á Frakkanum til Arsenal.
Það þótti þó mun eðlilegra að hann
væri hjá Arsenal þar sem Wenger
hefur verið duglegur að gefa ungum
mönnum tækifæri en í tilfelli Diarra
varð raunin ekki sú. Hann tók aðeins
þátt í sjö leikjum fyrir Arsenal áður
en Redknapp pungaði út rúmum sjö
hundruð milljónum fyrir drenginn.
Diarra lék vel í sínum fyrsta leik
gegn Derby og skoraði svo sigur-
markið gegn Bolton um helgina í
sínum öðrum leik fyrir Portsmouth.
Redknapp gat ekki orða bundist þeg-
ar hann var spurður um strákinn eftir
leik. „Hann getur farið alla leið þessi
drengur. Hann er gríðarlega einbeitt-
ur og á eftir að þjóna oklcur vel. Fólk
vill meina að hann sé svipaður leik-
maður og Claude Makalele en hann
býður upp á svo miklu meira. Diarra
getur líka brunað fram og tekið þátt í
sókninni af einstakri snilld.
Hann kemur líka heiðarlega ífam
og hefur sagt að hann langi lengra.
Sumir leikmenn kyssa merkið strax í
fyrsta leik og eru svo farnir við fyrsta
gylliboð. Diarra er búinn að segja að
hann langi að spila með stórklúbbi í
framtíðinni og ef hann kemst þang-
að frá oklcur verð ég mjög ánægð-
ur. Menn verða nú að hafa metnað
annars tæki það því nú ekld að spila
þessa íþrótt."
Alla leið á toppinn Diarra ætlar að
spila með Barcelona, AC Milan eða Real
Madrid áður en ferlinum lýkur.