Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Blaðsíða 8
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 Fréttir DV Ríkislögreglustjóri hefur innkallað sérhannaðan bil fíkniefnalögregl- unnar til að flytja leitarhunda. Umhverfisstofnun ályktaði að hunda- búrin væru of lítil til að scháfer-hundar lögreglunnar geti staðið upp- réttir. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn furðar sig á matinu, enda er billinn sérhannaður til flutninga á fíkniefnahundum. „Bílinn leigðum við svo af BALDUR GUÐMUNDSSON bladamadur skrifar: baldunmdv.is „Ég hef aldrei heyrt fyrr að bíllinn væri of lítill fyrir hundana okkar," segir Geir Jón Þórisson, yfirlög- regluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, sem undrast að ríkislögreglustjóri hafi innkallað sérhannaðan bíl lögreglunnar fyrir flutning fíkni- efnahunda. Ástæðan fyrir innköll- uninni er sú að Umhverfisstofnun hefur ályktað að búrin í bílnum séu ekki nógu stór til að þýskir scháfer- hundar lögreglunnar geti staðið þar uppréttir. Bíllinn reyndist vel Geir Jón segir að vandað hafl ver- ið til verka þegar bíll var fenginn til að flytja hundana á milli staða. „Við leituðum til Danmerkur og lögðum til við ríkislögreglustjóra að fenginn yrði eins bíll og þeir hafa notað um árabil. Þeir hafa mjög mikla reynslu af fíkniefnahundum og meðhöndl- un þeirra. Bílinn leigðum við svo af ríkislögreglustjóra og hann reynd- ist okkur afar vel. Því kom það okk- ur í opna skjöldu þegar í ljós kom að við mættum ekld nota bílinn áfram," segir Geir Jón og viðurkennir að þetta komi sér illa þar sem lögreglan þurft nú að notast við ómerkta bíla ríkislögreglustjóra og hann reyndist okkur afar vel. Því kom það okkur í opna skjöldu þegar í Ijós kom að við mætt- um ekki nota bílinn áfram" Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn Undrast tilmæli ríkislögreglustjóra. sem ekki eru hannaðir til að flytja hunda. Tjáir sig ekki um málið Guðmundur Guðjónsson, yf- irlögregluþjónn hjá ríkislögreglu- stjóra, segir að reglur um stærð hundabúra byggist fyrst og fremst á reglum og mati Um- hverfisstofnunar um dýrahald í atvinnu- skyni. Búr þurfi að taka mið af stærð viðkomandi hunds Hann kannast ekki við að far- ið sé framhjá þessum kröf- um. „Embættinu er ekki kunnugt um að notuð séu búr hjá lögreglunni sem uppfylla ekld kröfur í þess- um efnum," segir hann en vill ekki tjá sig um málefni einstakra embætta innan lögreglunnar. Kristín L Árnadóttir, nýskipaður forstjóri Umhverfisstofnunar Segir engar reglur til um stærð hundabúra. Krisun l. Arnaaotur, forstjóri Umhverfis- stofunnar, segiraðríkis- lögreglustjóri hafi óskað eftir því að stofnunin tæki út aðbúnað hunda sem lögreglan á höfuðborgar- svæðinu notar. „I svari okkar 21. desember í fyrra bentum við á þá almennu reglu að ferðabúr eigi að vera nógu rúm til að hundurinn geti annars vegar legiðeðli- lega og hins vegar staðið á fjórum fótum í eðlilegri stellingu með upp- réttan haus án þess að rekast í búrið," segir Kristín og bætir við. „ Það er mat Umhverflsstofnunar að hundabúrin í bifreiðinni sem notuð er séu nægilega stór fyrir springer spaniel- hundana sem lögreglan hefur, en of lítil fýrir þýska fjárhundinn með vísan til ofangreindrar almennrar reglu," segir hún en ítrekar að engin ákvæði séu í reglugerð hvað þetta varðar. Því hafi þetta einungis verið ábending til ríkislögreglustjóra vegna beiðni hans um að taka út aðbúnað hundanna. HUNDARNIROF STÓRIR FYRIRá SÉRHANNAÐ* LÖGREGLUBÍU uOGRKqLa Jinky Young, sjö ára fílippseysk stúlka, saknar fööur síns: Merkti póstkortin„Pabbi" Skákmeistarinn Bobby Fischer sendi sjö ára filippseyskri stúlku, Jinky Young, reglulega póstkort og gjafir. Hann merkti póstkortin iðu- lega „pabbi". Póstkortin eru meðal þeirra gagna sem Samuel Estimo, filippseyskur lögfræðingur, ætlar að leggja fram til að sýna fram á að stúlkan sé dóttir Fischers. „Jinky er fjörug ung stúlka í barnaskóla sem enn hefur ekki náð að átta sig almennilega á því að hennar mikli faðir sé látinn," segir Samuel Estimo, filippseyskur lög- fræðingur, í samtali við DV. Estimo starfar fýrir filippseyskar mæðgur, Marilyn og Jinky Young, og vinnur að því að sanna tilvist dótt- ur Roberts J. Fischer. Hinn látni skáksnillingur lætur eftir sig tölu- verða fjármuni, heimildir DV herma að dánarbúið geymi um það bil 130 milljónir króna, og eru erfða- mál hans óðum að skýrast. Miyoko Watai, japönsk ekkja skákmeistar- ans, hefur farið fram á einkaskipti dánarbúsins og enn sem komið er skortir gögn sem sýna fram á að nokkur annar en hún eigi rétt til arfsins. Sjálf hefur Miyoko lagt fram hjúskaparvottorð til staðfestingar hjúskap þeirra Fischers og vottorð- ið er gefið út af japönskum yfirvöld- um. Lögmaður hennar bíður svars. Lögmaðurinn Estimo er sannfærður um að ná að sýna fram á að Jinky sé dóttir Fischers og þannig hafi hún lagalegan rétt á hlutdeild í arfinum. Hann segist hafa ýmis gögn því til staðfestingar og undirbýr að leggja þau fram hér á landi. Jinky er 7 ára og er í fyrsta bekk grunnskóla. Að sögn Estimos hefur hún alist upp við þá vitund To símií/ .HK SoW' Wc fu<c.pf-V*r ° im v~ft- yw * * . fTV.i’i C+uff<1 ■ | I Bobby Fischer Er sagður eiga sjö ára dóttur á Filippseyjum. að Fischer sé faðir hennar. „Bobby hafði sjálfur viðurkennt hana sem barn sitt. Meðal þess sem staðfestir það eru póstkort sem hann sendi dóttur sinni og með kortunum fylgdu ýmsar gjafir," segir Estimo. trausti@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.