Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008
Neytendur DV
Hægt að spara tíu þúsund á ári:
I Hægl
1ÓDYRAST HJA 0B
136,30
Hægt er að spara tíu þúsund krón-
ur árlega ef eingöngu er keypt bens-
ín á sjálfsafgreiðslustöðvum. ÓB er
með ódýrasta bensínið í dag. 95 okt-
ana bensínlítri kostar þar allt niður í
131,30 krónur ef greitt er með dælu-
lykli. Næstódýrust er Orkan og kost-
ar ódýrasti lítrinn þar 134,20 krónur.
Olís, Skeljungur og N1 eiga það sam-
eiginlegt að vera með hæsta verðið á
bensínlítranum eða 137,90 krónur.
Getum dælt sjálf
„Maður þarf ekkert á þjónustunni
að halda sé maður fullfær um að
dæla bensíni sjálfur," segir Stefán
Ásgrímsson hjá FÍB og mælir
eindregið með því að fólk noti sjá
lfsafgreiðslustöðvarnar fremur en
þjónustustöðvar. „Það er ekki nema
þú vilir fara og láta pússa rúðurnar
eða eitthvað."
Stefán segir að Isiendingar hafi
ekki verið duglegir að tileinka sér að
leitast eftir afslætti, hvort sem það er
af bensíni eða öðrum neysluvörum.
„Það er svo stutt síðan við komum
úr moldarkofunum og okkur finnst
sjálfsagt að borga meira en það
sem hægt er. Fólk ætti að fylgjast
meira með. Oft er verið að auglýsa
aukafslátt þegar eitthvað er að
gerast," segir Stefán.
Besti kosturinn
„Besta lausnin til að koma til móts
við síðustu verðhækkanirnar er að
versla við sjálfsafgreiðslustöðvarn-
ar með dælulykli," segir Albert Þór
Magnússon, framkvæmdastjóri hjá
Atlantsolíu. „1 ofanálag er það ein-
faldleikinn sem fylgir honum sem
staðfestir að hann er besta lausnin.
Mikil ásókn hefur verið í
dælulyklanahjáþeimaðundanförnu
og eykst eflaust enn meira áður en
langt um líður. „Við erum að opna
fleiri víðs vegar um landið. Lyklinum
hefur verið gríðarlega vel tekið og
við erum ánægð að geta boðið upp
á þessa þjónustu," segir Albert og
bætir því við að þessu megi líkja við
það að greiða sérstaklega fyrir að fá
matvörur settar í pokann fyrir mann,
maður þarf ekki á því að halda.
Punktasöfnun og aukakrónur
Hjá ÓB segir Sigurður Pálsson, for-
stöðumaðurmarkaðssviðs, að með dælu-
lykli hjá þeim sé einnig hægt að safna
punktum og aukakrónum og þeir sem
greiða með bensínfrelsi fá þriggja krónu
afslátt .„Það er mjög auðvelt að fá sér lykil.
Þú þarft bara að fara inn á vefeíðuna okk-
ar http://www.ob.is og sækja um. Hann
er sendur heim til þín innan tveggja daga.
Getur virlqað hann strax," segir Sigurður.
Nl Skógarseli
136/40
a