Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 Sport DV ICE EXPRESS DEILD KARLA |R - KR 87-83 Stig (R: Nate Brown 21, Hreggviður S. Magnússon 18, Sveinbjörn Claessen 13, Tahirou Sani 10, Ólafur J. Sigurðsson 8, Steinar Arason 8, Ómar Ö. Sævarsson 7, Eiríkur S. Önundarson 4 Stig KR: Joshua Helm 20, Helgi Már Magnússon 17, Brynjar Þór Björnsson 15, JJ Sola 10, Avi Fogel 10, Fannar Ólafsson 5, Darri Hilmarsson 4 Grindavík - Fjölnir 87-83 Stigahæstir UMFG: Páll A. Vilbergsson 29, Jonathan Griffin 29, Adam Darboe 11, Þorleifur Ólafsson 9, Stigahæstir Fjölnis: Anthony Drejaj 23, Sean Knitter 18, Staðan Lið L u T Skor St 1. Keflavlk 18 15 3 1643:1474 30 2. UMFG 18 14 4 1664:1561 28 3. KR 18 14 4 1624:1516 28 4. Snæfell 18 10 8 1562:1491 20 5. Skallag. 18 10 8 1507:1489 20 6. UMFN 18 10 8 1615:1465 20 7. (R 18 8 10 1548:1536 16 8. Tindast. 18 7 11 1555:1654 14 9. Þór A. 18 7 11 1563:1716 14 10. Stjarnan 18 6 12 1481:1562 12 11.Fjölnir 18 4 14 1411:1580 8 12. Hamar 18 3 15 1381:1510 6 Pedersen til Liverpool Síðasta sumar virtist oft á tíðum einungis tímaspursmál hvenær norski vinstri kantmaðurinn Morten Gamst Pedersen myndi ganga í raðir Liverpool. Mark Hughesog Blackburn fengu hannsamttilað vera áfram og Liverpool keypti hollenska undrabarnið Ryan Babel. Eftir slæmt gengi Liverpool að undanförnu og nú síðast bikarmartröðina er strax farið að spá í hvaða leikmenn verða næstir á Anfield og er þar nafn Pedersens komið upp á borðið.Talið er að Liverpool treysti Babel ekki til að taka við vinstri kantinum strax og Morten Gamst verði fenginn til að leysa þá stöðu. Hlustar á stuðningsmennina Nýkjörinn forseti Derby, Tom Glick, hefur lofað þv( að hlusta á stuðnings- menn liðsins á hans valdatíma hjá félaginu. Eftir að amerísku félögin General Sports og Entertainment Group keyptu félagið fékk Glick það starf að gerast forseti. Derby er í engum vafa um hvað blði félagsins á næstu leiktíð. Þeir eru vel meðvitaðir um að fall er nánast öruggt og vilja heyra hvað allir, þar á meðal stuðningsmennimir, hafa að segja. Markmið Derby er að láta slæmt úrvalsdeildargengi ekki hafa áhrif á framtíðaráform félagsins. Tekur við Coventry í dag Breski miðillinnThe Guardian greinirfrá því að Chrís Coleman muni taka við liði Coventry (dag. Coleman, sem var rekinn frá Fulham, snýr því aftur í enskan fótbolta eftir stuttaviðkomuá Spáni. Hann tók við liði Real Zaragosa en gekk lítið og lenti fljótlega upp á kantvið stjórnarmenn liðsins. Coventry hefúr Ktið gengið í ár og var stjórinn, lan Dowie, rekinn eftir að hann og stjórn Coventry kom sérekki saman um mörg mál. Coleman vará sínum tíma yngsti þjálfari (úrvalsdeild- inni en hann þurfti að hætta knatt- spyrnuiðkun um aldurfram vegna meiðsla. Sigur á Inter bætir ekki upp fyrir Bamsley Jamie Carragher sagði að þó Liverpool vinni Inter (Meistaradeildinni í kvöld komi sá sigur ekki (staðinn fyrir tapið gegn Bamsley um helgina.„Það er alltaf ffábær stemning á Anfield á Evrópu- kvöldi og það breytistekkertVið verðum að fara að launa stuðnings- mönnunum með góðri ffammistöðu. Stuðningsmennimir eru tilbúnir og við verðum að vera það líka. Að vinna Inter bætir ekki upp fyrir að tapa fyrir Barnsley eins og við gerðum. En það myndi gefa hópnum mikið sjálfstraust að vinna þótt við vitum að það verði erfitt." ÍR vann frábæran sigur á íslandsmeisturum KR, 87-73, í Iceland Express-deild karla í körfubolta í Seljaskóla í gærkvöldi. Með sigrinum tóku ÍR-ingar sjöunda sætið í deild- inni föstum tökum og eru aðeins Qórum stigum á eftir Njarðvík. KR er nú tveimur stig- um á eftir Keflavík sem situr í toppsætinu TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON bladamadur skiifar: tomas@dv.is ji „Menn eiga ekld að vera með einhverja töffarastæla þegar í leikinn er komið. Það á að mæta klár. Eftir góða sigra undanfarið fannst mér einfaldlega vanmat í gangi hjá mínum mönnum," sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, við DV eftír leik ÍR og KR í gær en það voru orð að sönnu. ÍR gerði þá Keflavík mikinn greiða þegar það lagði íslandsmeistara KR, 87-83, við mikinn fögnuð stuðningsmanna sinna í Seljaskóla í gærkvöldi. iR-ingar mættu mjög ferskir til leiks og náðu fljótt ágætri forystu, 14-7. KR jafnaði þó leikinn en ÍR tók þá aðra rispu og leiddi eftír fyrsta leikhluta, 24-23. Þetta varð svo saga leiksins. KR virtist alltaf ætla að síga fram úr auðveldlega en heimamenn gáfu gjörsamlega ekkert eftir og leyfðu KR aldrei að mjatla fram úr eins og þeir gera svo vel. í stöðunni 28-34 fyrir KR var einmitt eitt þannig augnablik í leiknum að allt virtíst snúast KR í hag. Hreggviður Magnússon skoraði þá glæsilegan þrist og Nate Brown stal svo boltanum af KR þegar það hóf leik aftur og skoraði auðveldlega. Það var ekki í fyrsta og eina skiptið sem Nate átti eftir að gera það í leiknum en KR-menn misstu boltann oft á ævintýralega klaufalegan hátt. „Það sem fór með okkur í dag voru þessir töpuðu boltar. ÍR skorar örugglega tuttugu stíg þegar við gjörsamlega réttum boltann í hendurnar á þeim og þeir bruna upp og skora. Við erum betri en þetta og við eigum ekkert að henda boltanum frá okkur trekk í trekk," sagði Benedikt. ÍR hélt í trúna iR leiddi í hálfleik með sex stígum, 46-40 og seinni hálfleikurinn var jafrtspennandi. í þriðja leikhluta komst KR í fimm stiga forystu, 57- 62, og fslandsmeistarabragurinn kominn yfir það. Þetta virtíst oft á tíðum mjög auðvelt fyrir KR en þegar fR-ingar neituðu að leggjast undir Vesturbæjarhraðlestina fór það að fara í taugamar á KR-ingum. Dómaramir, sem áttu ekki góðan dag verður að segjast, fóm mikið í taugamar á þeim og þá ekki síður allir töpuðu boltamir. Fyrir lokafjórðunginn leiddi KR með einu stigi, 66-67, og síðastí leikhlutinn var frábær. Dugnaður ÍR var til mikillar fyrirmyndar og viljinn og gleðin barst upp á pallana til áhorfenda sem smddu sína stráka til ftílls. Með hverri mínútu varð trúin meiri og öskrin og lætin urðu hærri. fR skoraði fyrstu fjögur stígin í fjórða leikhluta og tóku þriggja stiga forystu, 70-67, og létu hana aldrei af hendi. Heimamenn svömðu hveiju kallinu á fætur öðm og þó tuminn, Tahirou Sani, færi snemma út af með fimm villur, kom maður í manns stað. Liðsheildin á endanum skilaði ÍR-ingum sanngjömum sigri á fslandsmeisturunum, 87-83, og klárt að það er mikið spunnið í Breiðholtspilta nái þeir að stilla saman strengi fyrir úrslitakeppnina með mannskapinn sem þeir hafa. Barátta og dugnaður Jón Amar Ingvarsson, þjálfari ÍR, var að vonum kátur í bragði þegar DV talaði við hann eftír leik. „Þetta var hörkuleikur hjá mínum strákum. Við lögðum upp með að spila hraðan bolta og halda uppi miklu tempói því það hentar okkur vel. Þannig lagað spilaðist leikurinn svolítið eftir okkar eyra. Það var samt á endanum dugnaðurinn og baráttan sem skiluðu sigrinum. Við spiluðum ekki eins vel og ég hefði viljað undir lokin í sókninni en vamarlega gerðum við vel. Það er nú alltaf þannig að ef vömin er í lagi er allt hægt," sagði Jón. Kollegi hans hjá KR, Benedikt Guðmundsson, var ómyrkari í máli. „Þetta er erfitt því maður venst aldrei því að tapa. Mér fannst fR-ingarnir einhverjumkaflaþarsemviðmyndum einfaldlega vilja þetta meira í dag. kláraleildnnsemkomsvoaldrei,"sagði Það var eins og við biðum alltaf eftír Benediktvið DV eftirleik. Súr og svekktur Joshua Helm gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftirtapið. Dregið var í 8 liða úrslit ensku bikarkeppninnar: Ellefu úrvalsdeildarlið í röð Eftir að dregið var í 8 liða úr- slit ensku bikarkeppninnar í gær er ljóst að eitt lið úr neðri deildum Englands verður í undanúrslitum. Bristol Rovers sem leikur í þriðju efstu deild mætir WBA sem leikur í næstefstu deild. Annað hvort þeirra liða fær því að upplifa það ævintýri að leika á hlutlausum velli með öll augu Bretlands á sér. Chelsea ferðast til Barnsley og mætir þar heimamönnum sem slógu út Liverpool í síðustu umferð. Barnsley-menn höfðu líklega ósk- að sér auðveldari mótherja og verð- ur að teljast líklegt að bikarævintýri þeirra sé úti. Middlesbrough mætir Sheffi- eld United aftur en sigurvegarinn úr þeirri viðureign mætir Cardfif á heimavelli. Boro og Sheffield áttust við í hripleiðinlegum leik um helg- ina sem endaði með markalausu jafntefli á Bramall Lane, heimavelli Sheffield. Seinni leikurinn verður á Árbakkavelli í Middlesbrough. Stórleikur 8 liða úrslitanna verð- ur á Old Trafford þar sem Manchest- er United mætir Portsmouth. Sir Alex Ferguson lýsti mikilli undrun sinni þegar Man. United dróst gegn Arsenal í síðustu umferð. Það var DRÁTTURINN Leikið verður 8. - 9. mars Man United - Portsmouth Barnsley - Chelsea Bristol R.-WBA Middlesbr/Sheffield - Cardiff þá í tíunda skiptið í röð sem Eng- landsmeistararnir drógust gegn úr- valsdeildarliði. Þetta er því í ellefta skiptið sem það gerist. „Það var nú alveg týpískt að við skyldum dragast gegn úrvalsdeildarliði eins og venjulega. Við fengum þó heimaleiksem skiptir öllu máli. Við erum búnir að eiga tvo frábæra heimaleiki gegn Tottenham og Arsenal í bikarnum og vonandi verður framhald á því," sagði sir Alex Ferguson eftir dráttinn. Man. United mætti Portsmouth í bikarnum í fyrra og sigraði 2-1 á heimavelli. tomas@dv.is Hermann Hreiðarsson Fer á Old Trafford í 8 liða úrslitum ensku bikar- keppninnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.