Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 Sport DV ÍÞRÓTTAMOLAR AFTUR f KVENNABOLTANN Vfkingur ætlar sér að endurvekja meistaraflokk kvenna fyrir næsta tímabil og verða með aö ári. Félagið sem á að baki þrjá islandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla þurfti eftir mörg erfiðárað leggja niður meistara- flokk kvenna fyrir tímabilið í ár. Nú hins vegar á að rifa konurnar aftur af stað og byggja mikiðá ungum stelþum sem eru að koma (gegnum unglingaflokka félagsins. Leit er hafin að spilandi meistaraflokksþjálfara sem á að taka við liðinu. JÓN ARNÓR AFTUR Á RÓL Körfuknattleiksmaðurinn Jón Arnór Stefánsson lék loks á ný með liði sínu Lottomatica Roma um helgina. Jón sem hefur verið frá vegna meiðsla skoraði sautján stig, gaf eina stoðsendingu ogtóktvöfráköst á þeim þrjátíu og fjórum mfnútum sem hannspilaði. Það dugði því miður ekki til fyrir Roma-menn sem töpuðu fyrir Pierrel Capo d'Orlando með ellefu stigum, 82-71. Roma leiddi i hálfleik, 58-50. Jón Arnór og félagar sitja sem stendur (fjórða sæti deildarinnar með 30 stig eftir 23 leiki. Siena er á toppnum með 42 stig. HELENA FÓR Á KOSTUM Helena Sverrisdóttir og stöllur hennar í TCU-háskólanum lögðu háskóla New Mexico með átta stig mun, 59-51, eftir framlengdan leik. Helena fór gjörsam- lega á kostum í leiknum en hún skoraði tuttugu og fjögurstig, gaf tvær stoðsending- ar og tók niu fráköst.Til viðbótar stal hún tvisvar boltanum og varði tvö skot Hún var með grfðarlega góða nýtingu, hitti úrtíu af fimmtán skotum sfnum í leiknum. Helena var stigahæst á vellinum en þetta var niundi sigurTCU í ellefu leikjum og er það nú komið langleiðina með að tryggja sig áfram í næstu umferð deildarkeppninnar. (DAG Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum. Leikmenn heimsóttir, gömlu stjörnurnar leitaðar uppi og svipmyndir af æðinu fyrir enska boltanum um heim allan. Allar leiktíðir Úrvalsdeildarinnar gerðar upp i hröðum og skemmtilegum þætti. Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin i leikjum síðustu umferðar i Coca Cola deildinni. Svipmyndir frá leik Crystal Palace og Blacburn leiktiðina 1992-1993. Gömlu brýnin leika listir sínar, stjörnur á borð við Matt LeTissier, Glen Hoddle, lan Wright, Paul Gascoigne, Lee Sharpe, Jan Mölby og Peter Beardsley. UK Masters cup er orðin gríðarlega vinsæl mótaröð en þar taka þátt 32 lið skipuð leikmönnum sem gerðu garðinn frægan á árum áður í ensku úrvalsdeildinni. Ensku mörkin - Ný og hraðari utgáfa af þessum vinsæla þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik umferðarinnar eru sýnd frá öllum mögulegum sjónarhornum. gutkörfuna \oka«autan Hver er Svavar Atli Birgisson? „Það er stór spurning, jafnstór og flautukarfan eiginlega." Starf? „Slökkviliðs- og sjúkraflutningamað- ur og svo ökukennari í hlutastarfi." Áhugamál utan körfuboltans? „Svona aðallega áhugi á bílum." Manst þú eftir vandræðalegu atviki innan vallar? „Tvisvar sinnum hef ég orðið vitni af því að félagar mínir hafa skorað sjálfskörfu. í fyrra skiptið var það í mini-boltanum þegar við vorum litl- ir. Þá klúðraði andstæðingurinn víta- skoti og félagi minn tók frákastið og setti boltann ofan í okkar körfu. í hitt skiptið vorum við nú komnir upp í 8. eða 9. flokk þar sem menn eiga nú að vera komnir með smá vit. Eg blak- aði þá boltanum á samherja minn úr uppkasti sem tók bara skotið utan af velli og ofan í en í vitlausta körfu. Sá maður varð svo pirraður að hann sparkaði í vegginn af reiði og slasaði sig." Manst þú eftir vandræðalegu atviki utan vallar? „Ætli það sé ekki betra að eng- inn viti af þeim nema félag- amir." Uppáhaldsbíó- mynd? „Braveheart hefur alltaf staðið manni nær og sú fyrsta sem kemur upp í hug- ann." Uppáhaldsleikari? „Það er enginn sem kallar á mig eitthvað sérstaklega." Uppáhaldshljómsveit eða tónlistarmaður? „Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi Metallica. Fór á tónleikana í Reykja- vík og lá þar í svitabaðinu." Fylgist þú með öðrum íþróttum en körfubolta? „Ég fylgist mjög vel með öllum íþróttum tel ég og hef mikinn áhuga á íþróttum. Fylgist mikið með fót- bolta og er Liverpool-maður þótt ég sé ekki að auglýsa það mikið þessa daganna." Eftirminnilegasta stundin á íþróttaferlinum? „Ætli það sé ekki þegar við unnum Eggjabikarinn hérna um árið." Eftirminnilegasta stundin í einkalífinu? „Það er fæðing sona minna. Á tví- bura sem eru tveggja og hálfs árs. Það er fátt sem toppar það." Hvernig var tilfinningin að sjá boltann hitta ofan í körfuna á meðan lokaflautan gall? „Það er eig- inlega ekki hægt að lýsa því. Til- finningin var frábær. Þórs- ararnir stálu báðum stigunum af okkur hérna á Sauðárkróki þegar þeir fengu tvö vítaskot þegar aðeins brot úr sek- úndu var eftir og við höfðum ekki tíma til að svara íyrir okkur. Nú náð- um við fram hefndum og tilfinning- in alveg ólýsanleg. Veturinn er búinn að vera erfiður og þetta skot var ljósið í myrkrinu." Hversu mikilvægur er þessi sigurtil að losa ykkur alveg frá fallsvæðinu? „Hann var gríðar- lega mikilvægur upp á það að gera því það er nú ekki mik- ill möguleiki að við föllum úr þessu. Ef við notum þetta svo okkur í hag gætum við komist í úrslitakeppnina." Er stefnan sett á úrslitakeppn- ina úr þessu? „Ég get alveg sagt það að við sett- umst niður á laugardaginn þar sem var tekinn ákvörðun að menn ættu að sýna það gegn Þór hvaða stefnu menn vildu taka. Hvort við ætíuðum að vera að einhverju dútíi eða hvort við ætíuðum að fara í úrslitakeppn- ina. Þjálfarinn setti það í hendurn- ar á okkur og við áttum einfaldlega að svara kallinu. Ég tel að við höfum náð að sýna hvað við viljum en svo er spurning hvað verður í ffamhaldinu. Við höfúm samt ekkert rætt saman eftir leik enda menn ennþá í sigur- vímu. Við tökum það spjall í kvöld [í gær] eða á morgun [í dag] þegar menn eru komnir niður á jörðina. Það þýðir lítið að tala við menn strax eftir leiki, þá er nú fátt sagt af viti." Hvernig er stemningin fyrir körfubolta á Sauðárkróki þessa dagana? „Hún hefur verið upp og ofan í vetur. Auðvitað er áhugi í bæn- um en meðan árangurinn er ekki betri en hann er mæta fáir á leik- ina. Það virðast samt allir hafa skoðun á liðinu þannig þetta er ennþá í undirmeðvitund- inni á fólki. Það er vonandi að fleiri fara að mæta ef við skorum fleiri flautu- körfur. Úrslitakeppnin er lykilatriði íýrir okkur upp á það að kveikja almennilega áhuganníbæn- um aftur." tomas@dv.is .í»yW\\BU9»sson: SV ftiirT\ndastó\s» erhet)aW'9a<' Kötfybo'®' rt.Fyrif 'nnaíh) ? ora st\ga'r'æSt'’ utsinnarLbJdið *ota» Gilberto er ekki sáttur viö Nani fyrir selstilburöina í stórleik liðanna: Gilberto varar Nani við Gilberto hefúr varað Nani við því að niðulægja lið. Það sé honum fýrir bestu.Nanilékséraðeinsmeðboltann í leik Manchester United og Arsenal þar sem Manchester niðurlægði Arsenal 4-0 í enska bikamum Arsenal-mönnum fannst Nani ekki sýna næga virðingu með því að halda boltanum á lofti með höfðinu og taka létt dansspor. Báðum stjórunum, sir Alex Ferguson og Arsene Wenger, fannst að Nani hefði farið yfir strikið. Arsenal svaraði með því að sparka oft og fast í Nani það sem eftir lifði leiks. „Það var mikilvægt fýrir okkur að missa ekki stjóm á skapi okkar og bjóða hættunni heim. Hugsanlega hefðum við misst annan mann af velli við að sparka í Nani," sagði Gilberto. „Ég talaði við hann og sagði að þetta væri ekki nauðsynlegt því hann gæti fengið slæmt spark í kjölfarið. f svona leik þar sem spennan er mikil á miffi leikmanna er nauðsynlegt að aflir haldi ró sinni. Ég hef reynt að einbeita mér að leiknum og hvet alla samherja mína til að gera slíkt hið sama og beijast fyrir liðið." William Gaflas var sá eini sem náði að sparka í Nani og var heppinn að sleppa við rauða spjaldið. Gilberto sagði einnig að Arsenal muni koma til baka eftír tapið. „Auðvitað getum við komið tif baka. Sjáum bara hvað gerðist hjá Manchester United. Þeir áttu slakan dag gegn Manchester City og þeir vom sterldr á mótí okkur. Það sama gildir fýrir okkur. Við munum koma til baka, jafnvel sterkari en áður. Við byrjum á Meistaradeildinni á mótí AC Milan á miðvikudag því við viljum ekki missa af tækifærum þetta tímabil. Ef við ætíum að vinna títla þetta tímabilið, sem við allir viljum, verðum við að koma til baka. FA-bikarinn er okkur öllum mikil- vægur og það em mildl vonbrigði að detta úr leik en við þurfum að ein- beita okkur að Milan sem er á morg- un. Það er einnig mikilvægt að við lít- um á stöðu okkar í deildinni. Þar emm við fimm stígum á undan, staða sem er okkur í hag. Ef við lærum af okkar mistökum oglátum ekki ffammistöðu laugardagsins endurtaka sig hef ég engar áhyggjur af framhaldinu," sagði Brassinn geðþekki. benni@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.