Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 Ættfræði DV Anna Steinunn Jónasdóttir HÁSKÓLANEMI f REYKJANESBÆ Anna Steinunn fæddist í Reykjavík en ólst upp í Njarðvík. Hún var í Grunn- skóla Njarðvíkur, stundaði síðan nám við Fjölbrauta- skóla Suðurnesja, lauk stúdentsprófi þaðan 1998, lauk námi hjá Brunavarna- skólanum árið 2000, lauk EMT-prófi á sjúkrabíl hjá Rauða krossinum 2000, lauk prófum fr á Viðskipta- og tölvuskólanum 2001 og er nú að ljúka námi í stjórnmálafræði við HÍ. Anna Steinunn starfaði hjá Vam- arliðinu í Keflavík af og til ffá ungl- ingsárunum. Þar starfaði hún m.a. við Slökkvilið Keflavíkurflugvallar og varð þá fyrsta íslenska konan til að gegna slíku starfi. Hún >■ vann einnig við fjármála- deild Vamarliðsins um skeið. Anna Steinunn er vara- bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæð- isflokkinn í Reykjanesbæ og situr í íþrótta- og tómstunda- nefnd Reykjanesbæjar. Eiginmaður Önnu Stein- unnar er Ólafur Bjömsson, f. 13.4.1983, viðskiptafræð- ingur. Foreldrar Önnu Stein- unnar em Jónas Jóhann- esson, f. 29.9.1955, skipasmiður í Reykjanesbæ, og Erla Hildur Jóns- dóttir, f. 27.11.1959, sjúkraliði. Dóra Vilhelmsdóttir kennari er fimmtug í dag: Hver aldur hefur sinn sjarma „Ég verð nú að viðurkenna að ég er nú ekkert sérstaklega mikið af- mælisbarn í mér," segir Dóra Vi- helmsdóttir, afmælisbarn dagsins, þegar DV náði af henni tali. „En ég ætla að bjóða börnunum mínum og tengdabörnunum mínum út að borða á Lofteiðir." Dóra segist ekki vera dugleg við að halda upp á afmælisdaga sína. „Ég hélt reyndar smá veislu þegar ég varð fertug. Þá bjó ég á Húsavík og því var lítíð um skyldfólk mitt. Ég bauð því vinum og kunningjum heim." Það er misjafnt hvernig afmælis- dagar leggjast í fólk en Dóra er ein af þeim sem líta þessa daga jákvæðum augum. „Það hefur hver aldur sinn sjarma," segir Dóra ákveðin. „Ég er í saumaklúbbi með nokkrum kon- um sem eru jafngamlar mér og við höfum nú svolítíð velt því fyrir okk- ur hvað gerist þegar maður verður fimmtugur. En það er allt á léttu nót- unum." Þó svo að Dóra ætli ekki að halda veislu í tilefni dagsins ætla þær vin- konurnar í saumaklúbbnum að fagna áfanganum með svolítið sér- stökum hætti. „Við ætíum að taka frá einn dag á árinu og þá ætlum við að láta dekra við okkur. Þetta finnst okkur tilvalið í stað þess að gefa hver annarri afmælisgjafir." Dóra segist ekki eiga von á að fá mikið af gjöfum. „Þegar maður er kominn á þenn- an aldur vantar mann ekkert og því væri ég frekar til í að fá einn tíma í handsnyrtingu heldur en enn einn hlutinn," segir Dóra á léttu nótunum. DV óskar Dóru innilega til hamingju með daginn. Dóra Vilhelmsdóttir Ætlar að bjóða fjölskyldunni út að boröa í tilefni dagsins. HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ Þorgeir Guðfinnsson BIFVÉLAVIRKI HJÁ BIFREIÐUM OG LANDBÚNAÐARVÉLUM Þorgeir fæddist í Vest- mannaeyjum og ólst þar upp og var þar búsettur til tvítugsaldurs er hann flutti til Reykjavíkur. Hann var í Bamaskóla Vest- mannaeyja, stundaði síðan nám í einn vetur við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum, stímd- aði nám við Iðnskólann í Reykjavík, lærði þar bifvéla- virkjun og lauk prófum í þeirri grein 1993. Þorgeir vann við fisk- vinnslu á unglingsárunum eins og flestir unglingar í Vestmannaeyjum. Hann hóf störf hjá Bifreiðum og landbúnaðarvélum 1993 og hefur starfað þar síðan. FJÖLSKYLDA Eiginkona Þorgeirs er Guðrún Þórey Ingólfsdótt- ir, f. 2.5.1964, hjúkrunar- fræðingur við Landspítalann - Háskólasjúkrahús. Synir Þorgeirs og Guðrún- ar Þóreyjar em Guðfinnur Þorgeirsson, f. 14.1.1994; Ingólfur Amar Þorgeirsson, f. 6.12.1996. Foreldrar Þorgeirs em Guðfinnur Þorgeirsson, f. 27.10.1926, lengst af skipstjóri í Vest- mannaeyjum, og k.h. Valgerður Helga Eyjólfsdóttir, f. 4.7.1934, húsmóðir og verkakona í Vestmannaeyjum. 30 ÁRA AFMÆLI ■ Agata Iwona Platek Hringbraut 30, Reykjavlk ■ Xuewen Zhong Gnoðarvogi 24, Reykjavlk ■ Miroslav Sapina Túngötu3, Grindavík ■ Krzysztof Uscio Langanesvegi 5, Þórshöfn ■ Jón Heiðar Andrésson Blómvallagötu 2, Reykjavík ■ Dagný Hrönn Sigríðardóttir Hvammsgerði 10, Reykjavik ■ Guðrún Magnúsdóttir Nesbala 1, Seitjarnarnesi ■ Birgir Björn Sævarsson Hrauntungu 22, Hafnarfirði ■ Viðar Pálsson Hjaltabakka 16, Reykjavík 40 ÁRA AFMÆLI ■ AnzelaTsistjakova Níelsson Jórufelli 4, Reykjavík ■ Svandís Hallbjörnsdóttir Höll, Borgarnesi ■ Marta Magnúsdóttir Reykjavlkurvegi 16b, Hafnarfírði ■ Margrét Auður Þórólfsdóttir Hábergi 16, Reykjavík ■ Jóhanna Helga Halldórsdóttir Kjarrhólma 30, Kópavogi ■ Helga Björg Jónasardóttir Nesvegi 125, Seltjarnarnesi ■ Svanhvít Skúladóttir Hrlsateigi 30, Reykjavlk ■ Gunnlaugur ÞórÆvarsson ÆgisvöHum 5, Reykjanesbæ 50 ÁRA AFMÆLI ■ Guðbirna K Þórðardóttir Vatnsnesvegi 34, Reykjanesbæ ■ Dóra Vilhelmsdóttir Suðurhólum 20, Reykjavlk ■ Guðrún Halla Jónsdóttir Skólagarði 12, Húsavlk ■ Björn Grétarsson Arnartanga 15, Mosfellsbæ ■ Kristján Guðmundur Jóakimsson UrðarvegiSl, Isafírði ■ Hörður Hjartarson Túngötu 14, Seyðisfírði ■ Ómar Stefán Guðmundsson Dalskógum 6, Egilsstöðum ■ Sigurpáll Bergsson Skógarhæð 6, Garðabæ ■ Jónína Gíslína Daníelsdóttir Vlðigrund 13, Sauðárkróki ■ Kristján Þór Sigfússon Reynilundi4, Garðabæ ■ Erling Ruben Gigja Vogaseli3, Reykjavlk 60 ÁRA AFMÆLI ■ Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Norðurvör 10, Grindavlk ■ Guðbjörg Rósants Stefánsdóttir Stífluseli 1, Reykjavlk ■ Jensína S Guðmundsdóttir Hraunbæ4, Reykjavlk ■ Sigrún Jónatansdóttir Frostafold 34, Reykjavlk • Þórunn Þórhallsdóttir Hrauntúni, Garðabæ 70 ÁRA AFMÆLI ■ Erla Jóhanna Þórðardóttir Vlkurbakka 6, Reykjavlk ■ Svanhildur P Þorbjörnsdóttir Sléttahrauni 32, HafnarTjirði ■ Elsa Svandís Valentinusdóttir Silfurgötu 26, Stykkishólmi ■ Erlendur Sigurðsson Sæunnargötu 11, Borgarnesi ■ Stefán Gylfi Valdimarsson Háaleitisbraut41, Reykjavlk 75 ÁRA AFMÆLI ■ Hrefna Lárusdóttir Strikinu 12, Garðabæ ■ Solveig M. Þorbjarnardóttir Breiðuvlk 15, Reykjavlk ■ Auður Birna Egilson Grund2, Akureyri ■ Baldur Ingvarsson Bólstaðarhllö 46, Reykjavlk ■ Helga Þ Jónsdóttir Hagamel12, Reykjavík ■ Ólaffa Lárusdóttir Sæviðarsundi 4, Reykjavlk AFMÆLISBARN DAGSINS BIRGIR SIGURJ0NSS0N FRAMKVÆMDASTJÓRI í HAFNARFIRÐI Birgir Sigurjónsson framkvæmda- stjóri er sjötugur í dag. STARFSFERILL Birgir fæddist á Víðimelnum í Reykja- vík og ólst upp í foreldrahúsum í Vest- urbænum. Hann lærði rafeindavirkj- un hjá Póstí og síma og hóf síðan störf hjá tæknideild Pósts og síma þar sem hann starfaði tíl 1988. Birgir var verk- stjóri og fulltrúi hjá tæknideild Pósts og síma en 1978 varð hann yfirdeild- arstjóri þar og gegndi því starfi til 1988. Þá stofnaði hann, ásamt öðmm, eigið fyrirtæki, Effco, sem hann starf- aði við tíl 1997. Hann hefur síðan rek- ið sitt einkafyrirtæki, Isrör. Birgir er mikill hestamaður og áhugamaður um fornbíla. FJÖLSKYLDA Kona Birgis var Ragnhildur Sigríður, f. 9.3. 1939, dóttir Eggerts Ólafssonar lýsismatsmanns og Ragnhildar Gott- skálksdóttur. Birgir og Ragnhildur skildu. Börn Birgis og Ragnhildar Sigríðar em Hilda Gerd, f. 6.9. 1956, þýðandi á Stöð 2; Birgir örn, f. 4.7.1959, múr- arameistari, búsettur í Gnúpverja- hreppi; Ragnhildur Sigríður, f. 21.7. 1960, aðstoðarskólastjóri á Flúðum; Eggert Sigurjón, f. 2.8. 1972, sálfræð- ingur í Reykjavík. Núverandi eiginkona Birgis er Hólmfríður Valdimarsdóttir, f. 22.11. 1947, auglýsingateiknari og bókari. Hún er dóttir Valdimars Kristínsson, bónda á Núpi í Dýrafirði sem er lát- inn, og k.h. Áslaugar Sólbjartar Jóns- dóttur húsfreyju. Dætur Hólmfríðar frá því áður em Guðrún Lilja, f. 25.5. 1979, húsmóðir á Akranesi; Soffi'a Sólveig, f. 4.8.1989, nemi. Systkini Birgis: Hallvarður, f. 1946, bifreiðastjóri hjá Landsvirkjun; Helga María, f. 1952, stuðningsfulltrúi í Reykjavílc Foreldrar Birgis vom Sigurjón Hallvarðsson, f. 16.7. 1905, d. 30.10. 1987, skrifstofustjóri lögreglustjóra- embættísins, og k.h. Gerd Hallvarðs- son, f. 13.8. 1913, d. 2.2. 1992, hús- móðir. ÆTT Föðursystkini Birgis: Jónatan hæsta- réttardómari, faðir Halldórs, fyrrv. forstjóra Landsvirkjunar; Jón sýslu- maður, faðir Bjarna Braga, fýrrv. að- stoðarbankastjóra Seðlabankans; Einvarður, starfsmannastjóri Lands- bankans og Seðlabankans, faðir Hall- varðs, fyrrv. ríkissaksóknara og Jó- hanns, fyrrv. alþm.; Guðbjörg sem lengi starfaði hjá Ölgerð Egils Skalla- grímssonar og Ásdís. Hálfsystkin Sigurjóns: Hulda Guðmundsdótt- ir, húsmóðir í Reykjavík, og Kristján Guðmundsson leigubílstjóri. Föðurforeldrar Birgis vom Hall- varður, b. í Skutulsey á Mýrum Ein- varðsson og Sigríður Jónsdóttir. Hallvarður var sonur Einvarðs, b. í Skutulsey og Hítarnesi Einarssonar og Halldóm Stefánsdóttur. Foreldrar Einvarðs vom Einar Sigurðsson, b. í Miðhúsum í Álftaneshreppi, og Vig- dís Sigurðardóttir en foreldrar Hall- dóm vom Stefán Hallbjömsson, b. í Skutulsey, ogÞómýSnorradóttír. For- eldrar Sigríðar vom Jón, b. á Skiphyl Jónsson og Guðbjörg Þorkelsdóttír. Foreldrar Jóns voru Jón Jónsson, b. í Haukatungu, og Guðríður Benedikts- dóttír, en foreldrar Guðbjargar vom Þorkell Jónsson, b. í Einarsnesi í Borg- arhreppi, og Guðríður Þorvaldsdóttir. Móðursystkini Birgis: Leifúr Múll- er, heildsali í Reykjavík, og Tony Múll- er Guðjónsson, húsmóðir í Hafnar- firði. Móðurforeldrar Birgis vom L.H. Múller, kaupmaður í Reykjavík og stofnandi Skíðafélags Reykjavíkur, og Marie Bertelsen. Þau vom bæði norsk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.