Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Page 29
DV Fólkið ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 29 NÝ ÞÁTTARÖÐ AF SÖNNUM ÍSLENSKJJ^SAKAMÁLUM FLEIRISONN ISLENSK SAKAMAL ars erum •J: Jil i? I »J I >Jil „This is my life verður flutt í úrslimnum um helgina," segir Páll Óskar Hjálmtýsson sem hefur samið enska út- gáfu af laginu Fullkomið líf eftir Örlyg Smára. „Ég þekki Ógga vel en hann vann með mér að nýju plötunni minni. Ég spurði hann hvort ég mætti spreyta mig á ensku út- gáfúnni og hún small bara svona líka," segir Palli en það eru Friðrik Ómar og Regína Ósk sem syngja lagið. „Við höfum lent í því að kjósa lag á íslensku áfram í keppnina og ekki líkað svo enska útgáfan. Örlygur vildi bara vera heiðarlegur og leyfa fólki að heyra hvernig lag- ið mun hljóma á sviðinu í Belgrad," segir Palli en búið er að útsetja lagið upp á nýtt. „Við pumpuðum þetta upp, gerðum þetta klúbbavænna og tókum út helstu klisjurn- ar.“ Að mati Palla hefur forkeppnin aldrei verið jafn- spennandi og núna. „Ég man ekki eftír jafnspenn- andi keppni og nú. Yfirleitt veit maður nokkurn veg- inn hvaða lag fer áfram," en Palli segir aðalkeppnina standa nú á milli Eurobandsins og Mercedes Club. „Ef ég reyni að vera hludaus held ég hreinlega að þetta sé 50/50 keppni milli þessara tveggja aðila. Það sem mun skera úr um hvor vinnur er frammistaðan í úrslitunum og því ábyrgðin algjörlega á herðum flytjendanna." Palli er þekktur fyrir Eurovision-partí sín en hann verður með eitt slíkt á NASA á laugardaginn. „Eins og vanalega er ég með sérstaka gestí og að þessu sinni koma einmitt fram Eurobandið, Mercedes Club auk Haffa Haff. Síðan tek ég mína helstu slagara," segir Palli að lokum. asgeir@idv.is SINU Hljómsveitin Ný dönsk spilar á Isafirði í fyrsta skiptí í 10 ár þegar sveitin heldur tónleika í Edinborg- arhúsinu 15. mars. Tónleikarnir eru partur af afmælistónleikaröð sveit- arinnar sem fagnaði 20 ára afmæli sínu á síðasta ári. í tilefni af því gaf sveitin einnig út afmælisplötu sem innihélt alla hennar helstu slagara auk tveggja nýrra laga. Söngvar- inn Daníel Ágúst gekk nýverið aftur tiOl liðs við hljómsveitina eftir 12 ára fjarveru og fá því fsfirðingar Ný danska í öllu sínu veldi. Aðeins eru 300 miðar í boði á tónelikana en for- sala miða er hafin á midi.is. BESTANÝJA HLJOMSVEITIN Breska rokktímaritið Pure Rawk stóð fyrir veglegri verð- launahátíð um helgina þar sem ungir og efnilegir rokkarar voru verðlaunaðir í hinum ýmsu flokkum. Tímaritið gefur sig út fyrir að vera tímarit sem fjallar um rokksveitir sem sigla á móti straumnum. íslenska rokksveit- in Sign hlaut verðlaun á hátíð- inni sem besta nýja hljómsveit- in. Sign-meðlimirvoruþó ekki viðstaddir hátfðina og eiga því von á verðlaunagrip í póstinum á næstu dögum. Þess má geta að sveitin var einnig tílnefnd í flokknum um bestu tónleika- ferðina en eins og kunnugt er túraði Sign með goðsagna- kenndu glamrokksveitinni Skid Row á síðasta ári. í pípunum er að gera nýja þáttaröð af Sönnum íslensk- k um sakamálum. Fyrri þáttaraðir voru á dagskrá RÚV ■l árið 2001 og 2002. Viðar Garðarsson hjá kvikmynda- m fyrirtækinu Spark segir samninga nú í fullum jL gangi og ef allt fer vel má búast við nýrri þáttaröð S, snemma2009. „Hún er ekki alveg kom- in í gang, við erum enn í samningsfasa, en það er mjög mikill áhugi," seg- ir Viðar Garðarsson, fram- leiðslustjóri hjá Spark, um nýja þáttaröð af hinum geysi- vinsælu þáttum um sönn ís- lensk sakamál. Gerðar hafa verið tvær þáttaraðir af þáttunum áður, en um er að ræða heimildarþættí, þar sem svæsnustu sakamál ís- landssögunnar eru reifuð. Upp- haflega voru þættimir á dagskrá árin 2001 og 2002, en nú sex árum seinna stendur tíl að gera framhald og er Viðar afar bjartsýnn. „Þetta voru mjög vinsælir þættír á sínum tíma, með 40% áhorf og unnu Eddu- verðaun. Svo ég er frekar bjartsýnn á að samningar náist," en um þessar mundir er verið að semja við sjónvarpsstöðvar um kaup á þættinum og hefur enn ekkert ver- ið neglt fast. „Við buðum RÚV þetta fyrst, enda áttum við langt og gott samstarf við þá. Ann- við opn- fyrir hvaða sjónvarps- stöð sem er." Ekki hafa smáatriði nýju þáttaraðarinnar verið rædd í þaula, en Viðar segir að ákveðið hafi verið að semja ekki við neinn, fyrr en komið verði á hreint hvar þættirnir verða sýnd- ir. „Við viljum fá fólk sem var með okkur í fyrri seríunum, en líka nýtt fólk sem við höfum áhuga á að fá inn. Það er svolít- ið ein af þeim spurningum sem ekki hefur verið fullsvarað," segir Viðar, en ekki hefur verið gefið upp hvort Sigursteinn Másson verði kynnir eins og í fyrri þáttaröðunum tveim. Ef samningar nást innan mánaðar má búast við því að þættimir fari í framleiðslu strax og verði sýndir í janúar eða febrú- ar árið 2009. Meðal þeirra mála sem voru tíl umfjöll- unar í fyrri þáttaröðum má nefna stóra fíkniefnamálið, vatnsberann, stóragerðis- málið, sólbaðsstofunauðgar- ann og fleiri því um lík. Ljóst er að í sakamálasögu íslands er af nógu að taka, sérstaklega í ljósi þess að akurinn hefur verið óplægður undanfarin sex ár. „Við erum þegar komin með 14-15 mál á blað sem eru skoðuð fyrir tíu þættí," segir Viðar að lok- um. dori@dv.is „Við erum þegar kominmeð 14-15 máláblað sem eru skoðuð fyrir tíuþætti IIÐ ENSKA ÚTGÁFU AF LAGINU SIGURSTEINN MÁSSON Ekkierljóst hvort Sigursteinn verði kynnir í næstu seríu, en liann þótti standa sig vel i fyrstu tveimur. ♦ "V r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.