Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
PIRAMIDAOÐIR
ÍSLENDINGAR
íslendingar, líkt og svo fjölmargir aðrir, hafa lent í klónum á píramídasvindlurum og tapað milljónum.
Talið er að fórnarlömb píramídasvindlara á íslandi nemi tugum þúsunda. Sumir hafa tapað litlu, sumir
aleigunni. Klækirnir eru Qölbreyttir, allt frá því að leysa út milljarð til að aðstoða afríska prinsinn til
loforða um einstaka Qölföldun á peningum. Allt eru þetta leiðir sem geta ekki klikkað. Eða hvað?
íslendingar vilja verða ríkir. Það
endurspeglast helst í þeim fjöl-
mörgu píramídasvindlum sem hafa
komið upp hér á íslandi en píramíd-
afyrirtældn hafa blekkt tugþúsundir
íslendinga sem var lofað eða gefið
vilyrði fyrir skjótfengnum gróða.
Talið er að fyrsta vel heppn-
aða píramídasvindlið hafi bitn-
að á sárafátækum íbúum Albaníu
árið 1996. Hin rúmenska Maksude
Kademi bauð þá upp á svokallað
Ponzi-svindl þar sem fólki var lof-
að helmingsgróða á örskömmum
tíma. Albaníubúar bitu á agnið,
stuttu síðar voru tvær og hálf millj-
ón manna búnar að leggja allt sitt fé
f hugmyndina. f kjölfarið hófu þrjú
önnur píramídafyrirtæki göngu sína
og öilum gekk þeim vel. Hinu nýja
viðskiptatækifæri, sem var loksins
á færi hins venjulega manns, var
tekið fegins hendi. Talið er að um
70 prósent þjóðarinnar hafi lagt fé
sitt í píramídasvindlið. Flestir töp-
uðu öllu. f kjölfarið hrundi hið veik-
byggða efnahagskerfi Albaníu. Eftir
sat venjulegt fólk með sárt ennið.
Aðeins ári síðar var píramída-
svindlið búið að sigra heiminn. Á
fslandi fór hver húsmóðirin á eftir
annarri að halda kynningarfundi í
stofunni heima. Meðal þeirra fyrstu
var Herbaiife.
Herbalife-óðar húsmæður
Árið 1997 var Herbalife búið að slá
í gegn á íslandi. Enn þann dag í dag
verslar fólk með Herbalife og lofar
því að kílóin hrynji af líkamanum
sé þess neytt. Uppbygging
Herbalifes er fjölþrepa. Fólk fær þá
tekjur af næsta einstaklingi fyrir
neðan og svo framvegis. Séu menn
nógu snöggir að stökkva á Herba-
life geta þeir haft ansi vel upp úr
viðskiptunum. Mánaðartekjur
þeirra söluhæstu í upphafi gátu
numið allt að þremur milljónum
króna. Þeir sem seldu íaukavinnu
þénuðu nokkur þúsund krónur.
Einn af upphafsmönnum Her-
balife á íslandi var næringarfræð-
ingurinn Jón Óttar Ragnarsson sem
sagði f viðtali við DV árið 2003 að
hann yrði fyrir áfalii í hvert sinn sem
hann sæi þann aukna fjölda fólks
sem væri orðið of feitt á íslandi. Þar
af leiðandi væru vinsældir Herbalife
miklar og stöðugar en ennþá heyr-
ist af fólki að sýsla með megrunar-
lyfið góða.
Gullæði heltekur
Ari eftir að Herba-
life-æðið greip
sig hjá húsmæðr-
unum kom
nýtt og ferskt
fýrirtælö
á markaðinn. Núna voru það ekki
heilsuvörurnar sem heiliuðu, held-
ur gull. Fyrirtækið GoldQuest lof-
aði áhugasömum gullgröfurum 350
þúsund krónum í laun á dag innan
fimm ára. Gallinn var þó að fyrst
þurfti að punga út 50 til 80 þúsund
krónum. Fyrirtækið sérhæfði sig í
framleiðslu og sölu á 24 karata gull-
munum sem og úrum og ýmsu öðru
skarti.
Einn af forsprökkum fyrirtækis-
ins, Sigurður örn Leósson, sagði í
viðtali á sínum tíma að honum þætti
það ákaflega dapurt að GoldQuest
væri nefnt í sömu andrá og píram-
ídafýrirtæki. Þá vildi hann meina að
GoldQuest væri ekkert annað eða
meira en hvert annað sölufýrirtæki.
Hann stendur nú fyrir Finanza For-
ex sem DV fjallaði um í gær.
Öllum viðskiptavinum GoldQu-
est bauðst engu að sfður að aðstoða
GoldQuest að afla nýrra viðskipta-
vina eftir ákveðnu kerfi og hljóta
þóknun fyrir eftir flóknu kerfi. Það
er álitamál hvort líta beri á fýrirtæk-
ið sem fjölþrepa- eða píramídafyr-
irtæki. Löglærðir menn hafa gert
úttekt á GoldQuest bæði hér og er-
lendis án þess að finna neitt athuga-
vert.
Undraverður Waves-úði
Sama ár og gullmerkið skein úr
augum bjartsýnna einstaklinga kom
nýtt lyf á markaðinn. Það var bæti-
efnaúðinn Waves. Þeir sem kynntu
efnið sögðu það jaðra við að vera
nokkurs konar töfraúði sem gæti
læknað höfuðverk, tannpínu, háls-
bólgu og slæman hósta - og ekki
bara það, heldur átti sársaukinn
að hverfa á tveimur mínútum slétt-
um. Einn af þeim sem kynntu hinn
undraverða Waves-úða á sínum
tíma var útvarpsmaðurinn Heim-
ir Karlsson en sjálfur sagðist hann
geta staðfest persónulega að úðinn
virkaði sem skyldi.
Ahuginn reyndist það mikill að
selt var inn á kynningarfund sem
haldinn var vegna undraúð-
ans. Rúmlega 500 manns
greiddu aðgangseyrinn.
Skömmu síðar höfðu
yfir eitt þúsund ís-
lendingar keypt
sig inn í Wa-
ves-sölu-
kerfið
fyrir
samtals 100 milljónir króna. Þeir
bjartsýnustu fyrir allt að 200 þús-
und. Nokkrum mánuðum síðar
bannaði Lyfjaeftirlitið allar sex teg-
undirnar af úðanum. Fimm vegna
þess að þær innihéldu óleyfileg efni
og eina vegna lélega merkinga.
Einar Vilhjálmsson, fyrrverandi
spjótkastari, hafði lengst manna trú
á Waves og stofnaði nýtt félag, fs-
öldur, þegar það fýrra gaf upp önd-
ina. Allt kom þó fyrir ekki og yfir
þúsund íslendingar sáu aldrei pen-
ingana sína aftur.
Nígeríumenn netvæðast
Það var einnig árið 1998, sem
virðist hafa verið nokkurs konar
gullöld píramídasvindlanna, sem
grandalausir íslendingar fóru að fá
heldur ffamandi pósta á netföngin
sín. Oftar en ekki voru þetta
persónuleg bréf frá hershöfðingjum
og konungbornum einstaklingum
inni í myrkviðum Afríku. f þessum
bréfum voru viðtakendur beðnir
um að koma háum fjárhæðum
undan valdagráðugum konungum
eða einræðisherrum. Um var
að ræða millifærslur, þeir sem
hjálpuðu máttu búast við tugum
milljóna fyrir greiðann. Þessir
einstaklingar, sem börðust við þessi
undarlegu vandræði, reyndust
vera Nígeríumenn. Þeir báðu um
bankaupplýsingar viðkomandi
og tæmdu svo reikningana. f eitt
skipti komu Nígeríusvindlararnir til
íslands en þeir voru allir handteknir
og dæmdir fýrir tilraun til fjársvika.
Þá sem orðið hafa ríkir vegna
þessa má telja á fingr-
um handalauss
manns. Banka-
upplýsing-
arnar sem
fórnar-
lömbin senda áleiðis eru notaðar til
að tæma reikninginn en þó ekki fyrr
en búið er að óska eftir smávægi-
legu peningaframlagi til að koma
lagi á viðskiptin.
Fleiri þúsund manns víðs vegar
á Vesturlöndum hafa misst aleiguna
vegna þátttöku sinnar, þar á meðal
einhverjir tugir íslendinga. A hverju
ári fær efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra til sín kærur og kvartanir
vegna bréfanna.
Mark Ashley Wells
Einhver frægasti píramída-
svindlarinn sem hingað hefur kom-
ið er án efa Mark Ashley Wells. Sióð-
in eftir hann er sviðin en talið er að
hann hafi komist af landi brott með
hundrað milljónir króna. Hann
virðist vera svo mikill svindlari að
hann borgaði ekki einu sinni lög-
fræðingnum sínum sem varði hann
í einkamáli sem höfðað var á hend-
ur Wells hér á landi.
Fyrsta æðið sem Mark kom á var
píramídabólan Sprinkle Network.
Árið 2003 voru það frændur okk-
ar í Noregi sem lögðu allt sitt fé í
gróðabrallið með þeim afleiðingum
að Mark flúði land. Eftir sátu hinir
norsku með sárt ennið og enn var
smugan fjölnýtt af ailra þjóða kvik-
indum.
f kjölfarið kemur Mark til fslands
þar sem hann sannfærði íslendinga
um að fjárfesta í Aquanetwork. Að
sjálfsögðu gátu menn hagnast gríð-
arlega á örstuttum tíma. Úr varð að
íslendingar töpuðu um hundrað
milljónum króna. Ein kona, Lesley
Patricia Ágústsdóttir, fór í einka-
mál við Mark í Héraðsdómi Reykja-
víkur. Hún vann málið og átti að
fá 2,7 milljónir króna til baka.
Þær fékk hún aldrei. Mark
var farinn af landi brott
áður. Jafnvel verjandi
Marks sat uppi
með lögfræði-
kostnað-
Píramídar verða flóknir
í dag eru einstaklingar orðnir
nokkuð sjóaðir í píramídasvindlun-
um. f kjölfarið hafa fjárglæframenn
hannað flóknari, og enn meira
sannfærandi píramídafléttur. Nú
eru Forex-gjaldeyrisviðskiptafyrir-
tækin vinsælust. Þá er sýslað með
gjaldeyri og mönnum gefið vilyrði
um gríðarlega ávöxtun á fé sínu á
örstuttum tíma. Um er að ræða allt
að 20 prósenta ávöxtun á mánuði.
Til gamans má geta að einn rík-
asti maður veraldar, og sá færasti
í gjaldeyrisviðskiptum, Warren
Buffet, sem stundar slfk viðskipti
er með meðalávöxtunina 22 pró-
sent á ári. Þá ávaxtar galdeyrisdeild
Glitnis pund sitt um ríflega þrjátíu
prósent á ári. Þó ekkert sé ólöglegt
við viðskiptin má finna fjölmargar
heimasíðu á netinu þar sem varað
er við Forex og vilyrðum um skjótan
gróða. Þeir sem hafa lengsta reynslu
af fjármálum segja ekkert slíkt til
sem heitir skjótur gróði. Fjármála-
eftirlitið hefur á sínu borði viðvar-
anir vegna slíks fyrirtækis.
Ponzi-svindlið
Píramídafyrirtæki eru ekki ólög-
leg á íslandi. Þau eru það aftur á
móti í fjölmörgum löndum eins og
Bandaríkjunum, Bretlandi, Malas-
íu, Noregi, fran og svo framvegis.
Enginn hefur beinlínis verið
dæmdur fyrir píramídasvindl hér á
landi, ef undanskildir eru Nígeríu-
búarnir sem voru handteknir árið
2006. En skaðinn er ljós. Fjölmarg-
ir fslendingar sem og milljónir aðrir
hafa tapað gífurlegum upphæðum
á slíkum ævintýrum. Sumir oftar en
einu sinni í fleiri en einu píramída-
svindli.
Samkvæmt lýsingu á píramída-
fyrirtækjum er ávallt lofað ótrúlegri
ávöxtun. Það er oftar en ekki kennt
við einhvern ffægasta svindlara
allra tíma'i Bandaríkjunum, Charl-
es Ponzi. Hann var ítalskur innflytj-
andi en hann lést árið 1949. Hann
varð frægastur fyrir að lofa fólki
ótrúlegri ávöxtun fyrir lítinn pening.
Svo virðist sem heimsbúar falli enn
fyrir ríflega fimmtíu ára gömlum
brellum hans.
mn
wzm
um
Vilt þu leysa ut milljarð? Oll píramidasvindl eiga það sameiginlegt að
einstaklingum er lofað ríkidæmi á örstuttum tíma. Þó píramídasvindlin séu
ný af nálinni er engu að síður búið að stunda þau í yfirfimmtiu ár.
rsrnmuœ