Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
HelgarblaO DV
FYRSTl BÍLLINN
Hér eru Davíð og einkasonur-
inn Þorsteinn ónaegðir með
fyrsta bilhmsemfjbl^kyfdán
eignaðitt. 4
Kjartan Gunnarsson
ÓAÐFINNANLEGUR
„Ég upplifí Davíð sem alveg einstakan og
sérstakan inann að öllu le\
Mín reynsla er sú að hann
er einlægur og heiöarleg-
ur maður sem ekki má
vamm sitt vita í neinu
og vill öllum niönnum
vel. Enda reynir hann
að gera það sem réttast og
sanngjarnast er á hverjum tíma. Hann
er mjög ötlugur og traustur í hverju jiví
sem hann tekur sér fyrir hendur og livar
sem hann er. Samstarf okkar var frábært
enda er hann óaðfinnanlegur í samstarfi.
Hann er skjótur til svars og kemur auga
á margt spaugilegt í tilverunni. Ilúmor-
inn er ekki rikjandi þáttur í lians störfum
því hann er alvarlegur maður sem tekur
viðfangsefni sín föstum tökum. Þó að
menn gegni ábyrgðarmikium störfum
þýðir það ekki að viðkomandi þurfi að
vera leiðinlegir. Sumir virðast halda það
en Davíð liefur sýnt frant á annað. Mig
minnir að Churchill liafi sagt að einungis
þeir seni koma auga á spaugilegar hliðar
tilverunnar geti sinnt ábyrgðarmiklum
og erfiðum störfum. Ég er alveg til i að
taka undir þau orð hvað Davíð varðar."
k
Steingrímur J. Sigfússon
STÓRBROTINN KEPPINAUTUR
„Davíð er eiim af stórbrotnari
og eftirminnilegri keppinaut-
um í pólitílc. Þótt ég geti sagt
inargt um okkar samskipti
í gegnum tíðina er eitt al-
veg víst að ég get aldrei sagt
að þau hafi verið leiðinleg.
Davíð er auðvitað margslung-
inn persónuleiki, á köflum gat hann verið
þungur en á móti annálaður húmoristi.
Orðsnilld hans er mikil og hann kunni
alla Idækina í því að siá andstæðinga sina
út af laginu. Sjálfur hefúr hann upplýst
um sum hrögðin, líkt og smjörklipuað-
ferðina, en í það heila tekið var hann mjög
málefnalegur. Maður skyiijaði vel liinn
mikla vilja Davíðs tii að ráða enda er tví-
mælalaust óhætt að flokka hann sem ráð-
ríkan stjórnmálaforingja."
Halldór Blöndal
LISTAMAÐUR OG HÚMORISTI
„Davíð er hlýr og innilegur maður. Hann
var mjög öruggur leiðtogi sein hafði
mino ct„ rnn «vn :i liA hvprf
hann ætlaði að fara. Hann
er óhræddur að talca
ákvarðanir og vígfnnur
mjög. í mínum liuga var
hann mjög hreinskipt-
inn «tinrnniálnmnðnr «pm
studdi vel við bakið á sínu
fólki. Það skýrir vel hans langa og far-
sæla feril að Davíð er listamaður í eðli
sínu. Tungutak hans er ekki hefðhundiö
og hann er ávallt ferskur í sínuni svör-
um, bæði á Alþingi áður og enn í dag.
Ég tel Davíð einn af mestu húmoristum
sem þjóðin hefur eignast á opinberum
vettvangi og það auðveldaði honum að
sjá nýjar liliöar á erfiðum málu sem virt-
ust komin i hnút. Auðvitað hefur hann
ákt'eðið skap en skaplaus stjórnmála-
maður rís ekki undir nafninu stjórn-
málamaður. Ég þekki engan slíkan sein
náð hefur árangri sem ekki þykknar í
stundum."
Guðni Ágústsson
RÉTTLÁTUR SNILLINGUR
„Ég tel að Davíð búi yfir ríkari réttlætis-
kennd en almenningur hefur yfirleitt hug-
mynd um. Hann er ógleymanlegur sem
vinur og pólitiskur andstæðingur. Hann
er ólíkur olluin heim sem ée
hef starfað með. Davíð hef-
ur þann sterka eiginleika,
hvort sein hann vill eða
vill ekki, að hann nær á
augabragði öllum völdum í
salnum með nærveru sinni.
Hann er hafsjór af skemmti-
legum sögum af ógleymanlegum sam-
ferðarmönnum, frásagnarstillinn er nijög
skemmtilegur. Orð hans stóðu eins og staf-
ur á bók sem er mjög mikilvægur eiginleiki
stjórnmálamanns. Ég tel að leiklistin liafi
hjálpað lionuin oggóöur húmor. Stund-
um varð ótamið skap lians honum fjötur
um fót en maðuriun býr yfir sniliigáfu, jiaö
er engin spurning. Hann ætti auövitað að
sitja viö skriftir en ekki að rísla við vaxta-
hækkanir í Seðlabankanuin."
MIKLIR VINIR Davíð segir að vinátta hans og George W. Bush, forseta Bandarlkjanna, hafi gert það aö
verkum aö herþotum varnarliösins var haldið lengur hér á landi en til stóð.
grasrótarinnar og gömlu flokkseigendanna
og flokkurinn er enn sagður klofinn í tvennt
þegar kemur að málefhum borgarstjórnar.
Lið Geirs og Davíðs takast á og borgarstjórn-
arflokkurinn hefur verið óstarfhæfúr sökum
innanflokksdeilna. Or röðum sjálfstæðis-
manna heyrast þær raddir að lausatök forystu
flokksins hafi birst mjög ákveðið síðustu mán-
uði og að slíkt hefði aldrei átt sér stað í for-
ystutíð Davíðs.
Elskar landið sitt
„Hugur hans til lands síns sést vel á tak-
mörkuðum áhuga hans á að starfa lengi er-
lendis," segir Runólfur, bróðir Davíðs.
Viðmælendur DV úr hópi vina og ættingja
tala allir um ættjarðarást Davíðs og að hún
hafi birst í störfum hans. Þannig hafi hann
beitt sér fyrir betra samfélagi og sumir við-
mælendanna ganga svo langt að segja hann
hafa gerbreytt íslensku samfélagi, til hins
betra. Ást hans á fósturjörðinni er einnig sögð
birtast í þeirri staðreynd að Davíð hefur aldrei
sýnt því neinn áhuga að starfa eða búa á er-
lendri grundu. Þá er viðmælendum tíðrætt
um mannkærleika Davíðs. Hann hafi Davíð
sýnt óhikað á erfiðum stundum.
„Mér er það minnisstæðast á ferli Davíðs
sem forsætisráðherra öll framkoma hans er
hörmuleg snjóflóð dundu yfir fyrir vestan. Þá
kom afskaplega vel ffam hinn mikli mann-
kærleikur hans og auðmýkt gagnvart örlögum
fólks," segir Kjartan.
Stutt í jólasveininn
Hannes segir vin sinn hafa verið tilbúinn
að leggja allt að veði á ferli sínum. Hann seg-
ir ísland hafa gerbreyst til hins betra í stjórn-
málatfð Davíðs og enn hafi það ekki verið
metið sem skyldi. „Davíð er djarfur en hann
er ekki fífldjarfur. Hann er ákaflega hrein-
skilinn og kom í forsætisráðherratíð sinni oft
í sjónvarpið og sagði sína skoðun umbúða-
laust. Um Ieið kann hann, svo að orðalag
Snorra Sturlusonar sé notað, að mæla svo
slétt að allir hyggja það satt er hann segir,"
segir Hannes.
Davíð stjórnaði landinu með innsæi og
kímnigáfu að vopni. Hann hefur einnig vak-
ið ómælda athygli sem smásagnahöfundur,
leikskáld og textahöfundur. Hvert sem litið er
má heyra á vinum, ættingjum og samstarfs-
mönnum Davíðs að glaðværð og glettni séu
einkennismerki þessa sigursæla stjórnmála-
leiðtoga. Árangur hans er ótvíræður og í gegn-
um tíðina hefúr hann lagt mikið af mörkum
tíl ýmissa félagsmála. Davíð virðist óhræddur
við hvaða verkefni sem er og eitt slíkra verk-
efna seðlabankastjórans var að leika jólasvein
er hann var fátækur námsmaður.
„Ég hef alltaf þurft að hafa magavöðvana í
formi þegar við hittumst því hann reytír af sér
brandarana. Hann sér svo sannarlega spaugi-
legu hliðarnar. Hann er eiginlega eini maður-
inn sem ég þekki sem er í dulargervi 11 mán-
uði ársins og er svo hann sjálfúr í desember,"
segir Runólfur, bróðir Davíðs. trausti@dv.is
stjórnarandstaðan á þingi var ósátt við hversu
mörg mál voru afgreidd. Þáverandi þingfor-
seti, Salóme Þorkelsdóttir, var tilbúin með
ræðu sína um nýafstaðinn þingvetur en hún
komst aldrei að. Eftir þó nokkurt málþóf
stjórnarandstöðunnar stökk Davíð upp í reiði
sinni og sieit þinginu án þess að hefðbundin
þingslit gætu farið fram. Hann las upp forseta-
bréfið og rak menn einfaldlega heim til sín.
Stórt skap
Sögusagnir eru um að eftir hin skraut-
legu þingslit hafi Davíð verið langt niðri eftir
moldviðrið á þinginu og að félagar hans hafi
hvatt hann til að taka sér eilítið frí í kjölfarið.
„Hann er ekki skaplaus. Ég varð hins vegar
aldrei var við að skapsmunir væru að þvæl-
ast fyrir honum, þvert á móti tel ég að öflug
sannfæringin sé einn af mestu styrkleikum
hans," segir Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
Eftír kosningarnar 1991 myndaði Davíð
rfkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks
á mettíma og hefur hún iðulega verið kölluð
Viðeyjarstjórnin. í næstu kosningum, 1995,
náði ríkisstjórnin veikum meirihluta enda
hafði Alþýðuflokkurinn klofnað á leiðinni.
Davíð myndaði því ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks. Sjálfstæðisflokk-
urinn bætti við sig fýlgi í þingkosningunum
1999 þótt flokkurinn hefði haft stjórnarfor-
ystu í átta ár. f kosningunum 2003 tapaði Sjálf-
stæðisflokkurinn hins vegar talsverðu fýlgi.
Þrátt fyrir það hélt ríkisstjórnin þingmeiri-
hluta sínum og sömdu stjórnarflokkarnir um
að halda samstarfinu áfram. Ákveðið var að
Halldór Ásgrímsson tæki við stöðu forsætis-
ráðherra eftír eitt og hálft ár og Davíð settist
þá í stól utanríkisráðherra. Þá komu upp hin
erfiðu veikindi sem leiddu til þess að Davíð
ákvað að draga sig út úr pólitík. Geir H. Haar-
de, sem verið hafði varaformaður flokksins
og hafði líka tekið við af Davíð sem inspector
scholae í MR, var kjörinn formaður Sjálfstæð-
isflokksins og tók við stöðu utanríkisráðherra.
Davíð var skipaður aðalbankastjóri Seðla-
banka íslands 25. október 2005 og þar starfar
hann í dag.
„Bláa höndin" og Jónarnir
Samskipti Davíðs og ýmissa frammá-
manna í viðskiptalífinu hafa oft verið stirð.
Hann og Jón Ólafsson athafnamaður elduðu
lengi grátt silfur og síðar tók Davíð upp á því
að deila við annan Jón, að þessu sinni við Jón
Ásgeir Jóhannesson, starfandi stjórnarfor-
mann Baugs. Davíð hefur lýst yfir vanþókn-
un sinni á fákeppni á matvöru- og fjölmiðla-
markaði. Hann beitti sér fyrir umdeildu
fjölmiðlafrumvarpi árið 2004 sem varð til
þess að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Is-
Iands, beitti í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins
neitunarvaldi sínu. Báðir Jónarnir hafa sak-
að Sjálfstæðisflokkinn og Davíð um óeðlileg
afskiptí af fyrirtækjum sínum.
Hallgrímur Helgason rithöfundur kom
af stað heitinu „Bláa höndin" og átti þar við
Davíð. Hann lét að því liggja að Davíð ætti
þátt í því að hrundið var af stað viðamik-
illi lögreglurannsókn, og síðar dómsmáli og
skattrannsókn, á hendur Baugi.
Fjandskapur Davíðs í garð einstakra at-
hafnamanna varð Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur utanríkisráðherra einnig að umræðu-
efni í aðdraganda þingkosninga árið 2003.
Stuðningsmenn Davíðs hafa hins vegar ver-
ið ötulir við að vísa á bug fullyrðingum um
þátt Davíðs f ofangreindum málum. Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra hefur líklega
verið hvað duglegastur í vörnum.
Dómarar Davíðs
Sem seðlabankastjóri hefur Davíð verið
talsmaður óvinsælla ákvarðana Seðlabanka
Islands um hækkanir á stýrivöxtum vegna
verðbólguþrýstings á íslenskt efnahagslíf
undanfarin misseri. Hann hefur verið gagn-
rýndur nokkuð af talsmönnum viðskiptalífs-
ins en sjálfúr hefur hann vísað ábyrgðinni að
mestu á slælega efnahagsstjórn ríkisstjórnar-
innar.
Síðustu mánuði hefur seðlabankastjór-
inn slæðst inn í samfélagsumræðuna vegna
umdeildrar skipunar sonar hans, Þorsteins, í
embætti héraðsdómara. í kjölfarið hefúr ver-
ið bent á náin tengsl Davíðs við fjölda héraðs-
dómara og dómara í Hæstarétti. DV fjallaði
meðal annars um hlutfall dómara sem tengj-
ast honum og kom þá í ljós að áttundi hver
dómari hér á landi tengist honum með ein-
um eða öðrum hættí. Flestír eru þeir ættingj-
ar Davíðs en þar er líka að finna nána vini og
spilafélaga. Þessi tengsl hafa skapað umræðu
um sjálfstæði íslenskra dómstóla og velt upp
þeirri spurningu hvort þeir séu nægjanlega
óháðir framkvæmdarvaldinu.
Klofinn flokkur
Stríðandi fylkingar innan Sjálfstæðisflokks-
ins hafa verið áberandi undanfarna mánuði
og urðu þær borgarstjórnarflokki hans og Vil-
hjálmi Þ. Vilhjálmssyni borgarstjóra að falli
í haust. Heimildir DV herma að í hatrammri
deilu undanfarið hafa tvær fylkingar í Sjálf-
stæðisflokknum togast á, armur Davíðs og
armur Geirs H. Haarde forsætísráðherra.
Geir er legið á hálsi að hafa ekki hrifsað tíl
sín völdin að fullu er Davíð dró sig út úr pól-
itíkinni og hann á í vandræðum með gömlu
valdaklíkuna í flokknum. Baráttan er á milli