Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Síða 31
PV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 31
HEIMSFRÆGAR
HAGAMÝS 1
Árið 1997 skutust haga-
mýsnarÓskarogHelga ;
upp á stjörnuhimininn líkt
og stjörnuparið David og
Victoria Beckham. Mýsnar
fóru með aðalhlutverkið '
í heimildarmynd l'orfmns * úgðttj
Guðnasonar, Hagamús -
með lífið í lúkunum. Um var að
ræða gríðarlega dramatíska náttúrulífsmynd um
hagamúsakærustuparið Óskar og Helgu í sínu
náttúrulega umhverfi. Myndin hlaut gríðarlega góðar
viðtökur og var sýnd í yfir hundrað löndum, svo
mýsnar öðluðust heimsfrægð fýrir stórleik sinn.
Bassi er án efa frægasti fíkniefnahundur íslands fyrr og síðar. Hann
er ekki bara frægur fyrir ótrúlega næmi sína og hæfileika í starfi
heldur fylgdi hann tollgæsiunni um allt land þegar forvarnarátak
hennar hófst um áramótin 1999-2000. Bassi kom til landsins
vorið 1997 enþað var umsjónarmaðurhans ogþjálfari, Þorsteinn
Haukur Þorsteinsson, sem sótti hann til Danmerkur. Mikla athygli
vakti þegar Bassi fékk fullt hús stiga í stóru prófi sem hann fór í
aðeins 18 mánaða. Bassi lést í upphafi síðasta árs eftir að hafa átt
viðburðaríka ævi svo ekki sé meira sagt. Eins og segir á heimasiðu
tollgæslunnar er sennilega enginn hundur í íslandssögunni sem
hefurverið faðmaður og elskaður af jafnmörgum og Bassi.
LIFANDI DAUÐUR
Hundurinn Lúkas vakti mikla athygli á síðasta . ^
ári eftir að eigandi hans Kristjana Svansdóttir
tilkynnti að honum hefði verið rænt á bíiadög-
um á Akureyri. 1 kjölfarið var Helga Rafni Brynj- '/\
arssyni kennt um að hafa drepið hundinn á
hrottalegan hátt. Bloggheimar loguðu og Helgi ///,,
Rafn þorði ekki að fara út úr húsi sökum hót- (i>:
ana. Haldin var minningarathöfn fyrir hundinn, 'AU
bæði í Reykjavík og á Akureyri. Þrátt fyrir allt J'i
þetta fannst hundurinn og reyndist vera á lífi jfíg.
eftir allt saman. |K
NÁGRANNINN
DRAP LADYQUEEN
Arið 2001 átti sér stað sá skelfilegi atburður í kjölfar
nágrannadeilu að hundur var drepinn á hrottaleg-
an hátt. Nágranni einn var orðinn eitthvað þreyttur
á henni Lady Queen sem bjó í næstu íbúð við hann.
Dag einn tók hann málin í sínar hendur og með
svarta hanska réðst nágranninn á eiganda Lady Qu-
een, kýldi hana í magann og tók af henni hundinn.
Nágranninn tók í hundinn, sló honum utan í vegg,
fór inn til sín og lokaði dyrunum. Þegar inn var kom
ið festi nágranninn ól tíkurinnar við hurðarhún þar
sem hún svo kafnaði stuttu síðar. _
Þaö eru ótal mörg dýr sem eiga sér sérstakan stað í þjóðarsál-
inni og ákvað DV að rifja upp þau frægustu. Háhyrningurinn
Keikó skýst vafalitið upp í huga margra þegar hugsað er um
fræg dýr. Nautið Guttormur náði að trekkja að þúsundir i
Húsdýragarðinn en hann var frægur fyrir að vera geðgóður
og feitur. Hundurinn Lúkas er flestum ferskur í minni enda
stutt síðan að ungum Akureyringi var kennt um að hafa drep-
ið hundinn á hrottalegan hátt.
HVELLUR I HOFÐA
Fyrsti hundurinn sem þjálfaður var til sprengjuleitar á
Islandi árið 1986 hét Hvellur og var í eigu Einars Þór-
arinssonar, þáverandi víkingasveitarmanns. 1 lann og
Þorsteinn Hraundal lögreglumaður þjálfuðu hundinn
og þegar Reagan og Gorbatsjev komu til landsins vegna
leiðtogafundarins í Iiöfða var Hvellur sendur á undan til
að þefa uppi sprengjur sem hugsanlegir tilræðismenn
STORKURINN
SEM STORMUR-
INN FEYKTI
Það var stormur sem íeykti
storkinum Styrmi til Islands
haustið 2002. Styrmir var
fangaður í Breiöadal. Siv
Friðleifsdóttir stóð fyrir því
að Náttúrufræðistofnun
fangaði hann en storkurinn
hefði að öðrum kosti mjög
líklega drepist úr hungri
og kulda. Styrmir dvaldi í
Húsdýragarðinum í tæpt ár.
í september árið 2003 var
smíðað sérstakt búr undir
Styrmi og flogið með hann til
Kaupmannahafnar og hon-
um þaðan ekið til Svíþjóðar
í storkabú á Skáni þar sem
hann hefur vonandi fundið
sér maka.
GÝMIR FRÁ VINDHEIMUM
Árið 1994 átti sér stað atvik á Landsmóti hestamanna
sem var í manna minnum í langan tíma og er enn.
Það var þegar fákurinn Gýmir frá Vindheimum var <tð
keppa og fór úr kjúkulið þannig að hófurinn fór undat
fatti. Hesturinn hljóp áfram á tættum fætinum og olli