Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Side 45
DV Sport
FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 45
hlekkur í Snæfellsliðinu.
minnst út úr húsi þessa dagana. Það
er samt eðlilegt enda kominn tími á að
við vinnum eitthvað. Við höfum verið
með gott lið í mörg ár án þess að vinna
titil og nú er tíminn kominn.
Það væri mjög sterkt fyrir okkur að
vinna bikarinn því við getum tekið það
með okkur inn í deildina og úrslita-
keppnina. Þetta blóðbragð og tiliinn-
ingin í að vinna titil er nokkuð sem
getur hjálpað okkur mikið og gæti ver-
ið það sem hefur upp á vantað hingað
til.
Þetta er samt leikur Fjölnis því það
er ekki líklegt að þeir haldi sér í deild-
inni og því gæti bikarsigur sldpt sköp-
um fyrir þá upp á tímabil og við þurf-
um að passa okkur á því. Ég fagna því
samt að við séum sigurstranglegri aðil-
inn. Síðast þegar ég fór í úrslit var búist
við að við myndum tapa og það rætt-
ist. Ef maður er sigurstranglegri aðil-
innþýðir það að
þú ert betra liðið. Þá er leikurinn í þín-
um höndum og ég vil frekar hafa það
þannig," segir Hlynur Bæringsson.
Bikaúrslitaleikur kvenna
Igor Beljanski er þjálfari kvennaliðs
Grindavíkur og leikur samhliða með
karlaliðinu. Hann hlakkar til að koma í
Höllina en þetta er fyrsta reynsla hans
af bikarúrslitaleik. „Eg er ungur þjálfari
og þetta er fyrsta reynsla mín af því að
þjálfa lið í meistaraiflokki. Ég reyni að
nýta mér reynslu mína frá þeim þjálf-
urum sem ég hef haft í gegnum tíðina
og að mínu mati stend ég mig vel. Ég
hef undirbúið mig vel undir þennan
leik en ég reyni að halda því fyrir mig
í bili því við eigum erfiðan leik í kvöld,"
segir Beljanski en þegar viðtalið var
tekið átti Grindavík leik um kvöldið
gegn Keflavík. Sá leikur endaði með
sigri Keflavíkur, 106-101, eftir fram-
lengdan leik.
„Vonandi verður liðið mitt tilbú-
ið á sunnudaginn eftir þennan erfiða
leik á móti Keflavík. Það er alltaf and-
lega krefjandi að spila tvo stórleiki í
röð en við verðum meðvituð um það.
Eftir leikinn á móti Keflavík í bikarnum
spiluðum við illa í næsta leik gegn KR.
Við verðum að læra af því og vera til-
búin gegn Haukum á sunnudag.
Finn ekki fyrir pressu
Sjálfur hef ég ekki spilað í úrslitaleik
bikarsins. Ég spilaði í úrslitum íslands-
mótsins í fyrra þannig að ég þekki það
að spila til úrslita," segir Igor sem spil-
aði með Njarðvík í fyrra gegn KR í úr-
slitum íslandsmótsins.
„Bikarinn er allt öðruvísi, einn leik-
ur og allt getur gerst. Við þekkjum
Hauka vel, þær eru ungar, hæfileika-
ríkar og stórar. 1 þeim þremur leikjum
sem við höfum leikið við þær höfúm
við unnið tvo en tapað einum. Því býst
ég við jöfnum leik. Við þurfum á okkar
allra besta að halda til að vinna.
Hann er sáttur við leik liðs síns.
„Leikur okkar er alltaf að verða betri. í
mínu liði er góð blanda yngri og eldri
leikmanna. Liðið er að bæta sig í vörn-
inni sem er afar mikilvægt fyrir lið sem
ætlar að ná árangri og ég er ánægður
með ffamganginn.
Fyrir leikinn telja margir Grindavík
sigurstranglegri enda liðið í öðru sæti í
deildinni en Haukar í fjórða sæti. „Ég
finn ekki fyrir pressu þótt ég viti af því
að fólk búist frekar við sigri okkar. Mitt
hlutverk er að tala við leikmennina
og segja þeim að spila sinn leik. Við
megum ekki vera taugaveikluð og það
skiptir engu hvað fjölmiðlar segja, við
verðum bara að leika okkar leik."
Honum Kkar lífið vel í Grindavík.
„Ég hélt að Grindavík væri stærri bær
en það er ótúlegt hve stór körfubolti
er í bæjarfélaginu. Ég er mjög ánægð-
ur með það því fólkið fylgist með af at-
hygli og heilsar manni úti á götu.
Það er ákskorun fyrir mig að þjálfa
kvennalið. Ég tel að það sé alltaf erfið-
ara að þjálfa konur. Þær eru kröfuharð-
ari og þú þarft að finna rétta aðferð til
þess að nálgast þær í þjálfúninni. En
það gengur vel og við náum vel sam-
an. Þetta er liðsíþrótt og okkur gengur
vel að ná upp liðsanda saman. Von-
andi náum við að sýna það í bikarúr-
slitunum. Við höfum yfirleitt náð að
sýna okkar besta í bikarkeppninni og
að sjálfsögðu ædum við okkur sigur úr
leiknum við Hauka."
Jovana Lilja Stefánsdóttir fyrirliði
Grindavíkur segir tilhlökkun í hópn-
um fyrir bikarúrslitaleikmn. „Það er
mjög góð stemning í hópnum og auð-
vitað er spenningur fyrir því að mæta
í Höllina. Við erum með þó nokkra
leikmenn sem hafa spilað bikarúr-
slitaleik og einnig eru margir leik-
menn vanir því að spila úrslita-
leiki í yngri flokkunum.
Við byrjuðum tímabilið ekki al-
veg nógu vel og það tók nokkum
tíma að ná nýju
Könunum inn
í leik okkar.
Ég hef fulla
trú á
mmmm :i-T .'.phkh|
Hlynur Bæringsson þarf !4)
að leiða Snæfell til sigurs.
Hefur tapað tvisvar
Báðurvillsigurísínum
þriðja bikarúrslitaleik.
EKki gleyma Sigga Sigurður
Þorvaldsson er mikilvægur
Yngvi Gunnlaugsson
Þarf að halda bikarnum í
: Hafnarfirðinum.
því að okkur takist að sigra og ef við
náum upp góðri vöm getum við staðið
okkur vel. Við hugsum ekkert um það
þótt aðrir telji okkur sigurstranglegri.
Allt slíkt tal ícemur frá fjölmiðlum og
við ætlum bara að einbeita okkur að
okkar leik."
Undirbúningurinn hefðbundinn
„Það er svaka tilhlökkun hjá okk-
ur, ekki spurning," sagði Yngvi Gunn-
laugsson, þjálfari Hauka, um hvernig
honum lýst á stóra daginn. „Það var
svolítið óþægilegt að eiga leik á mið-
vikudag við Val því við hefðum viljað
byrja undirbúning okkar á mánudag-
inn. En svona er mótafyrirkomulagið
og það verður að hafa sinn gang. Við
hóftim undirbúning um leið og leikur-
inn við Val kláraðist og við einblínum
bara á sunnudaginn."
Aðspurður hvernig hann ætli að
haga undirbúningi liðsins fyrir leik-
inn stóra, hvort hann ætli að fara með
sitt lið út úr bænum sagðist Yngvi ekki
ætla að gera það enda flestar í liðinu
sem búa enn í foreldrahúsum og því
sé allt til alls á Hótel mömmu. „Þetta
verður bara hefðbundið hjá okkur.
Stelpumar borða vel heima hjá sér og
ég hef ekki áhyggjur af því hvenær þær
fara í rúmið eða borði ekki hollt. Við
reyndum frekar að nýta laugardaginn
og kannski sunnudagsmorgun til að
ná endanlegri samþjöppun í hópinn."
Leið Hauka í úrslitaleikinn hefur
verið sannfærandi en allir leikir liðs-
ins fóru fram á Ásvöllum. „I sannleika
sagt fórum við auðveldu leiðina mið-
að við stöðu bæði Hamars og Fjölnis.
Fyrirff am var búist við að við myndum
klára þau lið sem við og gerðum og það
má kannsld segja að leikjaprógramm-
ið okkar hafi ekki verið eins þétt og hjá
Grindavík. Að sama skapi má segja að
bæði lið hafi notið góðs af því að hafa
fengið heimaleiki í gegnum bikarinn.
Það endurspeglar hvað það er mikil-
vægt að fá heimaleikinn, sérstaklega
fyrir Grindavík sem vinnur Keflavík og
KR."
Fyrir tímabilið missti Haukaliðið
tvo máttarstólpa liðsins. Helena Sverr-
isdóttir, besta körfuboltadrottning Is-
lands, fór til Bandaríkjanna í nám og
bk Páfina Guðlaugsdóttir skipti yfir
í Keflavík. Að auki hætti Ágúst
Björgvinsson sem þjálfari eft-
ir farsælt starf og Yngvi tók við.
Það er því mjög sterkt að liðið sé
komið alla leið í bikarúrslit hvað
sem raular og tautar. „Ég held að
fyrirfram hafi spáin í byrjun vetrar
verið óraunhæf. Haukar voru svo-
lítið óskrifað blað og það var ekki
hægt að dæma liðið af fyrstu
tveimur leikjunum á tíma-
bilinu við Keflavík, í
Meistarar meist-
aranna og
Powerade-
bikamum.
Við erum með gott lið og góðan en
ungan hóp eins og Grindvíkingar. En á
móti kemur að þær stelpur sem hafa
spilað flestar mínútur hjá þeim eru
reynslumeiri en mínar stelpur. Á móti
kemur að í báðum fiðum eru leikmenn
sem hafa verið fslandsmeistarar í yngri
flokkum þótt það kannski telji ekki á
sunnudag. En það segir að þarna eru
leikmenn sem hafa farið í stóru leik-
ina. Þó þeir hafi ekki verið jafristórir og
á sunnudag."
Vita hvað þarf til
Margir af leikmönnum Hauka
þekkja sigurtilfinninguna vel og voru
hluti af liðinu í fyrra sem unnu fimm
titía af fimm mögulegum. „Við erum
svo heppnar að Kristrún, fyrirfiði okk-
ar, var máttarstólpi í liðinu sem kom
Haukum upp árið 2005 og hún hefur
verið í baráttunni undanfarin ár. Hún
ásamt fleirum leikmönnum vita alveg
hverju þær eiga von á og út í hvað þær
eru að fara."
Haukar léku við Valskonur á mið-
vikudagskvöldið og töpuðu með 6
stígum, 61-67. „Ég hef brýnt það fyr-
ir mínum leikmönnum að einbeita
sér að einum leik í einu. Þessir leikir á
miðvikudag koma niður á báðum lið-
um, Grindavík er að beijast við Kefla-
vík um toppsætíð og ég held að leik-
imir koma út á jöfnu." Þó svo að Yngvi
hafi ekki verið farinn að undirbúa sitt
fið fyrir átökinásunnudag viðurkennir
hann þó að hann sjálfur sé fyrir löngu
farinn að undirbúa sig.
„Það er ekki nýlunda að fara að
spila við Grindavík. Við höfum spilað
við þær þrisvar sinnum í vetur. Tapað
tvisvar en unnið einu sinni í Grindavík.
Þó svo að við höfum ekki spilað okkar
besta leik á mótí þeim þekkjumvið lið-
ið mjög vel. Ég þekki liðið vel og þótt
ég sé ekki farinn að undirbúa liðið er
ég löngu farinn að undirbúa mig sjálf-
ur. Ég sá fyrri hálfleildnn hjá Grindavík
á mótí Val og þar voru þær mjög slakar.
Einn slakastí hálfleikur sem ég hef séð
fiðið spila en svo er maður með þetta
ávídeói."
I bikarúrslitaleik dúkkar oft upp
óvænta hetjan, þessi ás sem þjálfarinn
hefur geymt í erminni. Yngvi segir að
það sé tíl hjarta, spaði, tígull og jafn-
vel laufaás í Haukafiðinu. „Ég á fullt af
stelpum sem geta allt eins sprungið út
í þessum leik. Verður maður ekki svo-
fitíð að treysta á þetta óvænta," sagði
Yngvi Gunnlaugs-
son, þjálf-
ari Hauka,
bjartsýnn.