Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Page 64
64 FÖSTUDAGUR 22. FEBÚAR 2008
HelgarblaB PV
Við höfum drukkið bjor
jafnlengi og við höfum borðað
brauð. Allt frá því mannkynið
lagði af hjarðmennsku og söfn-
un og hóf fasta búsetu hefur
kunnáttan í að sá fræjum og
brugga bjór haldist í hendur.
V
„Orðin bier (þýska),
beer (enska) og Biére
(franska) eru öll runn-
in frá latneska orðinu
bibere sem þýðir ein-
faldlega„að drekkaT
Elstu dæmi um bruggun bjórs eru
um það bil 5000 ára, frá Súmerum í
Mesópótamíu og Egyptalandi faraó-
anna. Elstu uppskriftina af bjór er að
finna í „Sálmi til gyðjunnar Nikasi"
sem var ristur á súmerska leirtöflu
um það bil 1800 fyrir Krist. í lögum
Hammúrabís, konungs í Babýloníu,
var meðal annars mælt fyrir um að
sá sem seldi útþynntan bjór skyldi
hljóta dauðadóm.
Þegar Evrópumenn hættu hjarð-
lífi og hófu að yrkja jörðina breiddist
út sú kunnátta að brugga ffumstæð-
an mjöð. Forngrikkir og Rómverjar
kusu heldur að gera vín og svo virð-
ist sem Rómverjar hafi talið bjór-
inn lélegan staðgengil vínsins. Þrátt
fyrir þennan hrokafulla þankagang
var bjórinn algengasti drykkurinn
í norðurhluta Rómaríkis, þar sem
vínviður óx ekki.
Orðin Bier (þýska), beer (enska)
og biére (franska) eru öll runnin frá
latneska orðinu bibere sem þýðir
einfaldlega „að drekka". Slavneska
orðið yfir bjór, pivo, hefur sömu
merkingu.
Humalinn vantaði
Við upphaf miðalda var bjór
bruggaður úr korni eða hveiti sem
var látið geijast og oft bragðbætt
með ýmsum ávöxtum eða kryddi.
Það vantaði nefnilega efni, sem síð-
ar varð mikilvægt, humalinn, en
hann barst sfðar til Evrópu úr tveim-
ur ólíkum áttum.
Slavar höfðu með sér humal-
græðlinga þegar þeir komu að aust-
an á tímum þjóðflutninganna miklu
og á sjöundu öld höfðu þeir komið
sér fyrir á svæðinu þar sem nú eru
Bæheimur og Bæjaraland.
Arabar lögðu Spán undir sig á
áttundu öld. Þeir voru góðir vís-
indamenn og ræktuðu humal til
lyfjagerðar vegna róandi áhrifa
hans. I Ijós kom að humallinn bætti
bjórinn. Ef humli var bætt í bjórinn
varð hann bragðbetri og geymslu-
þoliðjókst.
Á níundu öld var fyrst farið að
rækta humal sérstaklega til bjór-
gerðar í núverandi Tékklandi
sem allar götur síðan hefur hald-
£ ið stöðu sinni sem eitt af helstu
bjórffamleiðslusvæðum heims.
4-5 lítrar á dag
Þegar borgir
fóru að mynd-
ast í Evrópu á
Öl Hefur lengi verið
vinsæll drykkur í Evrópu,
enfyrstu dæmin um
bjórgerð eru frá Mesópót-
amíu ((rak) og Egiftalandi.
Brugghús i London 1875.
miðöldumvarðatvinnulífiðsérhæfð-
ara. Víða var bændum bannað að
brugga bjór heima á bæjum sínum
og bjórframleiðsla varð að iðngrein
með þeim fríðindum og höftum
sem því fylgdi.
Margar heimildir eru til um
öldrykkju á miðöldum. Svo virðist
sem neyslan hafi verið mikil, allt
að 4-5 lítrum á dag á mann. Og það
voru ekki bara karlamir sem drukku
á kránum. Maturinn var mjög saltur
á miðöldum og því þurfti fólk að
fá mikinn vökva. Neysluvatnið var
oft lélegt og því varð ölið sá drykkur
sem fólk drakk dagsdaglega, einnig
konurogbörn.
En áfengismagnið var lítið í því
öli sem þannig var drukkið. Oft var
gerður greinarmunur á venjulegu öli
sem líktist léttöli nútímans og sterk-
ara öli sem bmggað var og dmkkið
til hátíðabrigða.
Um aldamótin 1300 uppgötv-
uðu ölgerðarmenn í Bæjaralandi
að ölið varð bragðbetra ef það var
geymt lengur við lágt hitastíg. Þar
sem öl var geymt lengi í köldum
kjöllurum fékk það nafnið geymslu-
öl eða lageröl. Þessi aðferð var við-
höfð í Bæjaralandi og Bæheimi, en
varð ekki algeng annars staðar fyrr
en fjögur hundmð ámm síðar.
Porteröl og pilsner
Sautjánda öldin var krepputími
í Evrópu og þýsku og bæheimsku
landsvæðin urðu sérlega illa úti þar
sem allt athafnalíf hafði staðnað í
þrjátíu ára stríðinu. Á Bretlands-
eyjum stigu menn á hinn bóginn
fyrstu skrefin í þá átt að gera landið
að fyrsta iðnvædda ríki heims. Þar
hófu menn að brugga dökkt öl
með sérlega miklum humli og
geyma það í viðarámum.
Það þurfti fjármagn
til að geyma öl og því
spmttu ffam stórar
ölgerðir. Nýja breska
HVAR ER DRUKKIÐ MEST
Allt frá timum Rómaveldis hafa
verið skýr skil á milli öldrykkjuþjóða
og víndrykkjuþjóða. Eftirfarandi tölur
frá árinu 2004 sýna að skilin eru enn
við lýði: ftalir og Frakkar eru hófsamir
og drekka 30 og 35 lítra á mann á
ári. Ekki kemur á óvart að Danir
drekka mest Norðurlandaþjóða, eða
96 lítra, en Svíar, Norðmenn og
(slendingar lepja um 50 lítra á ári
hver þjóð. Þjóðverjar, (rar og
Englendingar drekka rúmlega 100
lítra en Tékkar tróna á toppnum og
drekka 160 lítra á ári.Tékkar hafa allt
frá því þeir hófu humalrækt á 9. öld
varið bjórmenningu sína með
einkennisorðunum„því meira - þeim
mun skemmtilegra".
ölið var kallað porteröl og á átjándu
öld varð það að tískudrykk um alla
Norður-Evrópu. Alfred Guinness
stofnaði hina ffægu ölgerð sína í
Dublin á írlandi árið 1759.
Iðnvæðingin og framfarir í tækni
og vísindum leiddu til þróunar í öl-
gerð. Lagerölið náði miklum vin-
sældum á fimmta áratug nítjándu
aldar og þegar menn í tékknesku
borginni Pilsen tóku einmitt þá að
brugga ljóst rafgulleitt öl sló það í
gegn svo um munaði. Ljósa ölið
varð víðast hvar vinsælla en hið
dökka.
æfr MILLJÓNIR LÍTRA Á . .
HEiMSINS STÆRSTU HATIÐ
I Á sextán dögum drekka (búar
Bæjaralands ásamt gestum, sem
koma gagngert alls staðar að úr
heiminum, yfir sex milljónir Ktra af
bjór við undirleik líflegrar
umpabumpa-tónlistar. Og
Októberhátíðin hefst þegar (
september. Uppruna hátiðarinnar,
sem hefur verið kölluð stærsta hátíð
heimsins, má rekja til brúðkaups
Lúðvíks prins af Bæjaralandi og
Theresu prinsessu af Sachen-
Hilburghausen áriö 1810.
Brúðkaupinu varfagnað með því aö halda mik-
ið veðhlaup 17. október. Veðhlaupið varð að
árlegum viðburðl en breyttist fljótlega i
skemmtihátið með keiluspili, hringekjum og
dansi. Þótt við tengjum hátíðina nú til dags
freyðandi bjórog mikilli drykkju var það í
raun ekki fyrr en árið 1880 að sala á öli var
leyfðá hátlðinni.
Októberhátiðinni hefur verið aflýst nokkrum
sinnum/meðal annars vegna kólerufaraldra
og styrjalda. Þó hefur verið hægt að
halda hina rniklu hátíö (Bæjaralandi á
hverju ári frá 1950. (ár verður hátiðin
haldin frá 22. september til 7. október. -_
www.oktoberfest.de
Egypsk leirstytta
Frá 2450-2290 f.Kr, sýnir
konu sem bruggaröl.
m
Lítil ölgerðarhús hverfa
Á tuttugustu öldinni varð
þróunin lengi vel sú að stór
ölgerðarfyrirtæki báru hærri
hlut í samkeppni við litlu öl-
gerðarhúsin og öltegundirnar
urðu hver annarri líkar. En undir
lok aldarinnar tók fólk að snúast
gegn þessari þróun. Þá varð það
tíska hjá upplýstu fólki í stórborg-
■ . um að prófa mismunandi bjórteg-
undir og mörg lítil og staðbundin
"i ölgerðarhús hófu aftur að brugga
, gamla bjórinn. Mestallt öl er þó
, ennbruggaðístórumverksmiðjum
um allan heim. Sumar af stærstu
ölgerðum heims er nú að finna í
Bandaríkjunum, Suður-Ameríku
--y ogAsíu.
EFTIRSÖRUGriberg
Brit með leyfí tímaritsins Sagan öll.
Málverkið Síðasti dropinn
Eftir Jan Havicksz Steen frá 17. öld.