Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 Norðurland DV Hallarekstur lögreglunnar QGREGLAN Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðár- króki, glímir við hallarekstur og starfsmanna- vanda hjá lögregluembættinu í Skagafirði. Hann er með áform uppi um það hvernig endar megi ná saman. Hann segir bjartari daga fram undan, því brátt muni takast að fullmanna lögregluliðið á Sauðárkróki. Lögregluembættið á Sauðárkróki glímir nú við fj ögurra og hálfrar millj - óna króna fjárlagagat í rekstrinum. Björn Mikaelsson yfirlögregluþjónn kýs að nefna hallann fortíðarvanda. Hann vinnur nú að því að finna leið- ir til þess að kljúfa vandann og koma lögreglunni í Skagafirði á þurrt land í peningamálum. Allt síðasta ár var embættið und- irmannað. Það hefúr kallað á mikla yfirvinnu að hálfu þeirra lögreglu- manna sem starfa á Sauðárkróki. Lögreglan á Sauðárkróki fær árlega fjárveitingu upp á áttatíu milljón- ir króna. Nálægt 67 milljónir fara í launakostnað. Björn segir að óvæntir úgjaldaliðir eins og nýjir einkennis- búningar og nýtt talstöðvakerfi hafi reynst þungir í taumi. Fortíðarvandi á Króknum „Jú, við höfum kallað þetta for- tíðarvanda. Við leitum núna log- andi ljósi að leiðum til þess að spara við okkur í rekstrinum með það að markmiði að þessi halli verði ekki nema tvær miljónir í lok ársins," seg- ir Björn. Sparnaðaraðgerðirnar fel- ast meðal annars í svokölluðu álags- stýrðu vaktakerfi, sem virkar þannig að færri lögregluþjónar eru á vakt í upphafi hverrar viku. Svo fjölgar í lið- inu eftir því sem líður á vikuna. „Mér sýnist að við getum sparað töluvert af yfirvinnutímum með þessu móti," segir Björn. Björn ætlar einnig að draga úr notkun lögreglubílanna í sparnað- arskyni. „Þetta reynum við að gera þannig að það komi ekki niður á eftirlitinu. Það er til að mynda vel hægt að sinna hraðamælingum og öðru eftirliti með ökumönnum jafn- vel þótt bíllinn sé ekki á fullri ferð." Björn segir að með þessu móti sé vel hugsanlegt að spara upp undir hálfa milljónyfir árið. „ÞESSIVANDI ER EKKI BUNDINN VIÐ SKAGAFJÖRÐINN, HELDUR ER ÞETTA ÞEKKT VANDAMÁL." Búningar og talstöðvar Nýir lögreglubúningar voru tekn- ir í notkun á árinu og við það féll tals- verður kostnaður á lögregluembætti landsins. „Þessi nýi galli, sem reynd- ar er ekki kominn í fulla notkun, mun kosta okkur ríflega eina milljón á ári, næstu tvö til þrjú árin að líkindum, svona á meðan þetta er að komast á koppinn allt saman," segir Björn. Lögregla á Islandi hefur smám saman tekið í notkun nýtt samskipta- kerfi, með svokölluðum Tetra-tal- stöðvum. „Það voru talsverð útgjöld hjá okkur eins og hjá öðrum emb- ættum þegar Tetra-talstöðvakerfið var tekið í notkun. Tetra-væðingin kostaði okkur í kring um eina millj- ón króna á síðasta ári," heldur Björn áfram. Það hefur því margt lagst á eitt til þess að stækka fjárlagagat lögregl- unnar á Sauðárkróki. Starfsmannavandinn Starfsmannavandi Sauðárkróks- lögreglunnar hefur orðið tilefni til vangaveltna og fréttaflutnings á liðn- um mánuðum. „Það eru alls níu stöðugildi hérna hjá okkur. Við átt- um í talsverðum vandræðum með að manna þessar stöður, alveg ffá ársbyrjun á síðasta ári," segir Björn. Hann segir að ítrekað hafi verið auglýst eftir fólki til starfa en enginn hafi sótt um. „Þessi vandi er ekki bundinn við Skagafjörðinn, heldur er þetta þekkt vandamál, líka hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu," ISlSSífc.: segir Björn. Hann bendir þó á að allt horfi þetta til betri vegar, því ffá og með næstu mánaðamótum Yfirlögregluþjónninn Björn Mikaelsson stendur í ströngu þessa dagana og leggur til sparnaðarleiðir til þess að fjárhagur lögreglunnar í Skagafirði komist á rétt ról. ammmmmmBm verði aðeins ein staða eftir ómönnuð. „Þegar við verðum búnir að fullmanna í liðinu mun yfirvinnustundum fækka enn ffekar, sem hjálpar okkur í aðhaldinu." sigtryggur@dv.is Landsins mesta úrval afullar og silkifatnaði Ullsem ekki stingur Mikið úrval afmjúkum og sætum ullar- og silkifatnaði fyrir börn. Full búð afnýjum vörum Nýjir eigendursama góða varan Nærfatnaður fyrir útivistina. Skíði, golf, vélsleða, veiði og m fl. Hitavermar, Angora, Silki, Merino. Einnig mikið úrval af brjóstagjafarfatnaði. 1 SILkBODy Hlíðasmára 14,201 Kop s: 544-4344 Opið mán-fös 11 -18, lau 11 -17 NA TTURULÆKNINGABUÐIN ULL OG SILKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.