Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Blaðsíða 60
60 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008
Fókus DV
«C
<
■*
CONFLICT: **
DENIEDOPS
UkJ fl^^~ Skotleikur/Hasarleikur
PS3
TÖLVULEIKUR
þegar maður spilar ásamt félaga,
en þegar maður spilar einn lendir
maður oftar en ekki í því að þurfa
að hlaupa fram og til baka með
gæjana, sem er fáránlegt. Grafíkin
í leiknum er ekki góð og alls ekki
á pari við það sem komið hefur á
Playstation 3 undanfarið. f raun er
eins og leikurinn komi nokkrum
árum of seint, því fyrir einhverjum
Andspænis
verölainni
Leikfélag Menntaskólans við
Hamrahlíð frumsýndi um liðna
helgi leikritið Elntak í leikstjórn
Stefáns Halls Stefánssonar og
Vignis Rafns Valþórssonar.
Viðfangsefni verksins er einstald-
ingurinn andspænis veröldinni
og hvort tilvera okkar hafi eitt-
hvert vægi hér á jörðinni. Notast
er við svokallaða „devised" eða
samsetta aðferð sem felur í sér að
í upphafl ferlisins er hvorki hand-
rit né hlutverk, einungis hug-
myndaflug leikara og leikstjóra.
f gegnum tíðina hafa ótal margir
þjóðþekktir einstaklingar stigið
sín fýrstu spor í leikritum leikfé-
lags MH, þar á meðal Karl Ágúst
Úlfsson, Benedikt Erlingsson,
Halldóra Geirharðsdóttir, Ilmur
Kristjánsdóttir og Björn Thors.
Næstu sýningar eru í kvöld, föstu-
dag og laugardag. Nánari upplýs-
. ingar á nfmh.is
Englar í dúr
Myndverkamaðurinn gjess opnaði
sýningu sína Englar í dúr í Gallerí
Hún & Hún á Skólavörðustíg um síð-
ustu helgi. Gjess er eitt af birtingar-
formum Guðjóns Sigvaldasonar leik-
stjóra en þetta er tólfta einkasýning
hans. Guðjón hefur einnig tekið þátt
í nokkrum samsýningum og hannað
fjölmargar leikmyndir. Guðjón vinn-
ur myndverk sín í olíupastel á dag-
blaðapappír, prentaðan sem óprent-
aðan. Sýningin stendur fram í apríl.
SÝNING UM GUNNAR
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÖTTIR menntamálaráðherra opnar sýninguna GUNNAR
GUNNARSSON 0G DANMÖRK í Þjóðarbókhlöðunni í dag kl. 12. Við opnunina flytur JÓN YNGVI
JÓHANNSSON, sem nú vinnur að ritun ævisögu Gunnars, stutt erindi um óbirta sögulega
skáldsögu. Þá munu erfingjar skáldsins afhenda Landsbókasafni síðustu gögn frá
fjölskyldunni til varðveislu (handritadeild safnsins. Dagskránni lýkur klukkan 13.15.
Götumyndir
Rósa Sigrún Jónsdóttir opnar á
morgun sýningu sína Götumyndir
í Start Art, Laugavegi 12b. Þar vinn-
ur hún með mismunandi efni og
miðla en tilurð verkanna er að finna
í þeirri veröld sem opnast fólki við
að skoða staði á korti, aftur og aftur.
Rósa Sigrún útskrifaðist frá Listahá-
skóla fslands árið 2001 og hefur tek-
ið þátt í margvíslegum listverkefn-
um síðan. Opnunin verður klukkan
17 en sýningin stendur til 2. apríl.
SVEITABALL
ÁNASA
Góðir skotleikir hafa dunið á
tölvuleikjaunnendum upp á síð-
kastið. Þá er ég helst að tala um leiki
á borð við Call of Duty eða Halo, sem
eru svo góðir að aðrir leikir blikna í
samanburði og ef horft er tíu ár aft-
ur í tímann er ótrúlegt hverju þess-
ir menn hafa áorkað í þeirri list að
gera gott ofbeldi enn betra. Leikur-
inn Conflict: Denied Ops kemur á
hræðilegum tíma. Því hann bætir
akkúrat engu við þessa fyrrnefndu
leiki, og skilur mann eiginlega eft-
ir með óbragð í munninum, vilji
maður fara að bera saman. Leikur-
inn er svokallaður Co Ops-leikur,
þar sem leikmenn stjórna tveimur
náungum. Leikurinn er mun betri
árum hefði Denied Ops þótt guðs-
gjöf. Söguþráðurinn er alveg jafn-
óspennandi og restin af leiknum,
en leikmenn stjórna CIA-mönnum
sem þurfa að klekkja á alþjóðleg-
um hryðjaverkamönnum. Spilun-
in hins vegar verður af og til nokk-
uð skemmtileg. Sérstaklega þar
sem hægt er að rústa gjörsamlega
öllu í leiknum. Stórir skotbardagar
geta því orðið skemmtilegir, en þá
er eins mikið kaos og hægt er að
hugsa sér í einum leik. Denied Ops
er ekki góður skotleikur, en gæti þó
glatt þá allra ofbeldissjúkustu. Per-
sónulega ætla ég að bíða eftir Army
of Two fyrir sveitt co op session
með félögunum. Dóri dna
Conflict: Denied Ops
Svona la-la skotleikur.
stúlka sem á eftir að láta í sér heyra
meira. Ég hugsa að ég myndi kaupa
plötuna hennar.
Húsið tekið að fyllast og stemn-
ingin að verða rafmögnuð. Biðin
eftir Hjálmum. Með þremur plöt-
um hafa þeir sungið sig inn í þjóð-
ina. Dyggur stuðningshópur sem
lætur sjá sig á öllum tónleikum var
mættur. Þegar þeir loksins mættu
og þægilegir tónar fóru að hljóma
fylltist dansgólfið. Ótrúlegt hvað líf-
ið verður alltaf auðvelt þegar mað-
ur heyrir í þeim. Allt rennur svo vel
í gegn. Breytingar á bandinu hafa
bara verið til góðs. Flís- strákarnir
smella inn og gaman var að sjá líf-
lega sviðsframkomu hjá Davíð Þór,
þrátt fyrir að það passaði kannski
ekki inn. Steini söng eins og engill
eins og alltaf. Bjórinn var á tilboði
og lífið var fullkomið.
Hljómsveitin spilaði í heila þrjá
tíma og er hægt að fullyrða að hún
hafi spilað fyrir allan peninginn.
Fátt er leiðinlegra en hljómsveit
sem spilar of stutt. Stemningin í
húsinu var eins og á sveitaballi. Ég
hefði átt að mæta í gúmmískón-
um í stað stígvélanna, þá hefði ég
dansað meira.
Hjálmar sungu sig inn í hjarta
mitt á laugardaginn og mun ég ekki
láta mig vanta á næsta giggi. Það er
á hreinu.
asdis@dv.is
Bjórdagurinn 1. mars og stefn-
an var tekin á NASA. Ástæðan var
Hjálmar. Tilhlökkunin var gríð-
arleg þar sem ég missti af síðustu
tónleikum þeirra í nóvember. Ég
var búin að ákveða að ég skyldi
ekki missa af þessum. Var mætt
nógu snemma til að ná mér borði
en uppgötvaði svo að það yrði erf-
itt að sitja við tóna þeirra. Upphit-
unaratriðið byrjaði í kringum mið-
nætti og var það ung stúlka sem
kallar sig Dísa. Dísa heitir Brynd-
ís Jakobsdóttir og er dóttir Stuð-
mannanna Ragnhildar Gísladóttur
og Jakobs Frímanns Magnússonar.
Það var því ekki annars að vænta
en að hún kynni eitthvað. Stúlkan
HJÁLMAR ★★★★'^
&DÍSA
NASA 1. mars 2008
TONLEIKAR
birtist með sítt hárið greitt fram og
minnti örlítið á Janis Joplin heitna.
Lögin hennar og söngur minntu
einnig á hana. Með magnaða
sviðsframkomu og gott sjálfstraust
náði hún að heilla flesta í kringum
mig. Ef Dísa hefur samið öll lögin
sín sjálf hefur hún staðfest það að
hún er dóttir foreldra sinna sem
hafa í gegnum tíðina farið algjör-
lega sínar eigin leiðir. Dísa er ung