Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008
Noröurland DV
LENGRIFLUGBRAUT
KOSTAR MILUARÐ
Úboð vegna lengingar flugbrautar á Akureyri eru hafin. Verkið mun kosta 1,3 milljarða í heild sinni. Flugbrautin lengist
um tæpan hálfan kílómetra og gefur því þunghlöðnum fraktvélum og farþegaþotum færi á að hefja sig á loft frá höf-
uðstað Norðurlands. Sigurður Hermannsson flugvallarstjóri segir miklar vonir bundnár við framkvæmdina.
Flugbrautin lengd Flugbrautin á Akureyri
verður lengd um 460 metra til suðurs.
„í KRINGUM HELGARNAR ER FLOGIÐ ALLT AÐ
FJÓRTÁN SINNUM YFIR DAGINN TIL AKUREYRAR."
Rflciskaup auglýstu á dögunum
útboð á jarðvinnu við lengingu flug-
brautarinnar á Akureyri. Flugbrautin
verður lengd um 460 metra til suðurs,
inn í botn Eyjaíjarðar og er áætlað að
framkvæmdin í heild sinni komi til
með að kosta 1,3 milljarða króna.
„Mesta breytingin við þessa ieng-
ingu liggur í því að þyngri og stærri
flugvélar koma til með að geta tekið á
loft frá Akureyri. Brautarlengdin hef-
ur minna að segja þegar kemur að
lendingum, þótt hún skipti vissulega
máli," segir Sigurður Hermannsson,
flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli.
Ný tækifæri
„Menn gera sér vonir um að með
þessari lengingu á flugbrautinni
skapist ný sóknarfæri, bæði í
útflutningi og ferðaþjónustu," heldur
Sigurðuráffam.Hannbendirásífellda
aukningu á ferðamannastraumnum
til Akureyrar, einnig yfir
vetrarmánuðina. „1 kringum helgarn-
ar er flogið allt að fjórtán sinnum yfir
daginn til Akureyrar frá Reykjavík.
Þetta eru því hæglega í kringum
eitt þúsund manns sem fara um
Akureyrarflugvöll á einum slíkum
degi," segir Sigurður.
Sigurður segir að í þessum hópi
sé að finna alla flóruna að ferðalöng-
um, fólk í viðskiptaerindum, ferða-
menn, erlenda og innlenda, fólk á
leið í leikhús og á skíði.
750 metra lenging
Gert er ráð fýrir að framkvæmdir
við lengingu brautarinnar hefjist
þegar á miðju sumri og þeim verði
lokið um mitt næsta ár. Oryggissvæði
við báða brautarendana verða
stækkuð og gert verður við eldri
hiuta brautarinnar. „Fyrir utan
þetta verður aðflugsbúnaðurinn
endurnýjaður" segir Sigurður. f jarð-
vinnu við lengingu brautarinnar
þarf að afla 180 þúsund rúmmetra af
jarðvegi í undirbyggingu og fyllingar.
Grafa þarf um hundrað þúsund
rúmmetra af efni og útbúa hátt í
sjö kílómetra af lagnaskurðum. Að
meðtöldum öryggissvæðunum við
brautarendana lengist flugbrautin
því um sex hundruð metra til suðurs
og 150 metra til norðurs.
Þurfa stærri flugstöð
„Það næsta sem blasir við okkur
er að stækka flugstöðina, til þess að
anna þessari auknu umferð," segir
Sigurður. Þegar hafa verið útbúin ný
bílastæði sem jafnan eru nánast full.
„Tilboð í framkvæmdir við jarð-
vinnu verða opnuð 8. apríl næst-
komandi. Malbikunarframkvæmdir
verða svo boðnar út sérstaklega.
Þær eru að fara í útboð núna alveg
á næstu dögum," segr Sigurður. „Ef
allt þetta gengur upp verður nýja
flugbrautin tekin í notkun í lok júlí á
næsta ári."
Nýtt ferjulægi smíðað í Dalvíkurhöfn
Nýtt ferjulægi verður útbúið í Dalvík-
urhöfn til þess að þjóna Grímseyjar-
ferjunni Sæfara. „Þetta ferjulægi verð-
ur útbúið þannig að hægt verði að aka
bílum um borð í ferjuna. Þetta verður
til þess að ferjan mun eiga sinn fasta
samastað á Dalvík, en gamla Sæfara
hefur verið lagt á ýmsum stöðum við
höfhina," segir Sigurður Áss Grétars-
son, forstöðumaður hafnasviðs hjá
Siglingastofnun.
„Það er verið að undirbúa útboð
fyrir efni til þess að gera nýja ferju-
lægið. Það mun reyndar taka hátt í sex
mánuði að afla efnisins. Við eigum
svo von á því að bjóða út sjálft verkið
í sumar og að því verði lokið fljótlega á
haustmánuðum," segir Sigurður.
Um miðjan janúar var nýju ferjunni
siglt á hálfu afli frá Hafnarfirði til Ak-
ureyrar til áffamhaldandi viðgerða í
slippnum. Um miðjan febrúar var ferj-
an sjósett á nýjan leik, en unnið er að
lokafrágangi innanborðs. Slippurinn
á Akureyri átti lægsta tilboðið í þessar
síðustu endurbætur á ferjunni, rétt um
þrettán milljónir króna. Nokkrar tafir
hafa orðið á afhendingu varahluta til
Akureyrar
Nýi Sæfari liggur nú í Akureyrar-
höfn á slippsvæðinu. Ferjan er nán-
ast tilbúin til notkunar og verður send
í tilraunasiglingar á allra næstu dög-
um. G. Pétur Matthíasson, upplýsinga-
fulltrúi hjá Vegagerðinni, segir að ekki
hafi verið ákveðið hvenær ferjan verð-
ur endanlega tekin í notkun á siglinga-
leiðinni milli Dalvíkur og Grímseyjar.
Á meðan beðið er eftir nýrri ferju sigl-
ir gamli Sæfari á sinni venjubundnu
áædun.
Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fýr-
ir því að ferjan yrði tilbúin vorið 2006.
Verkinu seinkaði um tvö ár og fór
kostnaöur hundruð milljóna fram úr
áætlun.
Nýi Sæfari Nýja ferjan
liggur i höfn á Akureyri
þar sem lokahönd er lögð
á endurbætur.
ifeBBBB/
S/EFARI
ta
■I