Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 Norðurland >V „Það er svolítið inn í dag að leita uppi ættingja sína," segir Valgeir Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Vesturfarasetursins á Hofsósi. Setr- ið var sett á laggirnar fyrir tólf árum og hefur það hlutverk meðal annars að vera þjónustustofnun fyrir fólk af íslenskum ættum í Norður-Am- eríku. „Við erum að segja sögu þessa fólks sem yfirgaf fsland í leit að betra lífi. Og við erum stöðugt að vinna í því að hjálpa fólki að finna ættingja sína á íslandi og svo á hinn veginn líka," segir Valgeir og bætir við að það sé aragrúi fólks sem leitist eftir þessu. „Þetta er mikið til fólk sem er að skipuleggja ferðir annaðhvort til Ameríku eða íslands. f tengslum við undirbúning ferðarinnar hefur það samband við okkur og fær okkur til að frnna skyldmenni. Þetta er mik- ið sport." Að sögn Valgeirs hefur starfsfólk Vesturfarasetursins haft uppi á fjölmörgum ættingjum þeirra sem leita til þeirra. „Þetta er náttúrlega ekki náskylt lengur, þetta eru orðnir býsna margir ættliðir, en engu að síður er ógurlega gaman að þessu." Hinar ýmsu sýningar Hinar ýmsu sýningar eru hluti af reglubundinni starfsemi set- ursins. „Sýningarnar segja sögu tiltekinna svæða. Núna er til dæm- is sýning í gangi sem fjallar um Norður-Dakóta. Svo er hérna auðvitað stór yfirlitssýning sem nær yfir heildarmálefnið og ljós- myndasýning með um fjögur hundruð ljósmyndum af fólki sem fluttist búferlum vestur um haf," segir Valgeir og bætir við að nú sé unnið að undirbúningi stórrar sýningar frá vesturströnd Kanada og Bandaríkjanna. Hún verður ekki opnuð á alveg næstu mánuðum þar sem það tekur langan tíma að undirbúa hana. Á næsta ári er svo ætlunin að hafa sérstakan dag sem tileinkaður verður fólki af íslenskum ættum í Norður-Ameríku. Vesturfarasetrið á Hofsósi var sett á laggirnar fyrir tólf árum og hefur verið mikil lyfti- stöng fyrir bæjarfélagið og nærsveitir. SPORTAÐFINNA Valgeir Þorvaldsson segir að starfsfólk setursins sé stöðugt að vinna (því að hjálpa fólki vestanhafs að finna ættingja sfna á íslandi, og á hinn veginn. 8 til 10 þúsund gestir á ári Vesturfarasetrið er opið allan árs- ins hring en á veturna er það eftir samkomulagi. Valgeir segir að með- altalsaðsóknin á ári sé um átta til tíu þúsund manns, mest á sumrin. „Alltaf þegar nýjar sýningar eru opnaðar kemur náttúrlega toppur og í kringum einhverja sérstaka viðburði. Það þarf því stöðugt að vera á tánum með þetta. Og þetta eru bæði íslend- ingar og údendingar sem sækja safn- ið," segir Valgeir og bætir við aðspurð- ur að skiptingin þar sé um það bil til helminga. „Þetta er öflugur segull fýr- ir svæðið og ég held að það hljóti að skipta rnáli." kristjanh@dv.is Tólf ára Vesturfarasetrið var sett á laggirnar árið 1996 og er því tólf ára gamalt. Það sést hér lengst til vinstri á myndinni. Vesturfarar Um fjögur hundruð Ijósmyndiraffólki sem fluttist búferlum vestur um haf er að finna á setrinu. ^7Tr’"B | íj A 1 i 4i': W ■■r m n * ^ ‘ íh k_ l | iin Toyota Land Cruiser 100 VX. 11/01,ekinn 84 þ km. Sjsk, disel, sumar- og vetrardekk topp- lúga.TEMS, einn eigandi. Verð 4.150.000 kr. Raðnúmer: 205025 Toyota Land Cruiser 100 VX. 10/02, ekinn 103 þ km. Sjsk, disel, dráttarkúla, 7 manna. Verð 5.050.000 kr. Raðnúmer: 113555 Toyota Land Cruiser 120 LX. 07/06, ekinn 20 þ km. Sjsk, disel, 35','dráttarkúla, kastaragrind, spoiler ofl. Verð 5.650.000 kr. Raðnúmer: 113460 Toyota LandCruiser 100 VX. 04/01,ekinn 163 þ km. Sjsk, disel, 35" DVD, topplúga, dráttarkúla, 2 dekkjagangar ofl ofl. Verð 4.450.000 kr. Raðnúmer: 113377 Toyota Land Cruiser 120 GX. 06/06, ekinn 44 þ km. Sjsk, disel, dráttarkúla, ný vetrardekk. Verð 5.140.000 kr. Raðnúmer: 151118 Toyota Land Cruiser 120 VX. 09/07, ekinn 62 þ km. Sjsk, disel, dráttarkúla, spól- og skriðvörn, 8 manna.Verð 4.790.000 kr. Raðnúmer: 205034 Lexus RX 300.10/02 ekinn 82 þ km. Sjsk, leður, dráttarkúla, 201 hö.Verð 2.890.000 kr. Raðnúmer: 131023 Toyota Hilux D/C 3.0.09/07, ekinn 7 þ km. Sjsk, disel, 33jj hús,filmur, dráttarkúla, hraðastillir. Verð 4.200.000 kr. Raðnúmer: 161428 Lexus RX 300 EXE. 02/05, ekinn 22 þ km. Sjsk, sóllúga, spól- og skriðvörn, dráttarkúla, leður. Verð 4.690.000 kr. Raðnúmer: 151245 Lexus RX 400h. 09/05, ekinn 54 þ km. Sjsk, hybrid, Xenon, dráttarkúla, nálægðarskynjarar ofl. Verð 5.790.000 kr. Raðnúmer: 113458 Lexus RX 300 Luxury. 11/02, ekinn 110 þ km. Sjsk, sumar- og vetrardekk, spoiler, dráttarkúla, spól- og skriðvörn ofl. Verð 2.690.000 kr. Raðnúmer: 204822 MMC Pajero DID 3.2.12/00, ekinn 150 þ km. Sjsk,disel,sumar-og vetrardekk,aukafelgur, dráttarkúla, filmur. Verð 2.390.000 kr. Raðnúmer: 205086 Toyota Corolla Verso. 12/06, ekinn 32 þ km. Bsk,7 manna,spól-og skriðvörn,dráttarkúla. Verð 2.390.000 kr. Raðnúmer: 151212 ToyotaRav4VX.01/08,ekinn 1 þkm.Sjsk, leður, dráttarkúla, hraðastillir, lyklalaust aðgengi.Verð 4.150.000 kr. Raðnúmer: 151234 Toyota Avensis Sol 1.8.07/07, ekinn 3 þ km. Sjsk, spól- og skriðvörn,cd-magasín,álfelgur. Verð 2.760.000 kr. Raðnúmer: 204471 Renault Megane Senic 1.6.05/05, ekinn 52 þ km. Sjsk, rafmagn í rúðum og speglum. Skipti á dýrari eða ódýrari.Verð 1.790.000 kr. Raðnúmer: 161211 Nissan Patrol GR Luxury.06/06, ekinn 33 þ km. Sjsk, disel, 33” leður, dráttarkúla. Verð 4.590.000 kr. Raðnúmer: 161402 Yamaha RS Vector MM 151" 2006 ekinn 600 km.V. handar inngjöf, 120 hp. Eins og nýr. Verð 970.000 kr. Raðnúmer: 203698 Polaris IQ 600 Fusion Dragon.2006 ekinn 1 þ km.48 mm belti,skrúfur,WE demparar, handahlífar. Vel með farinn. Verð 890.000 kr Raðnúmer: 204994 TOYOTA Toyota Akmeyii Ð.ililmsnesi 1 603 Akmeyii Simi 4604300 www.toyotaakuieyil.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.