Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2008, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 1.APRÍL 2008
Fréttir ÐV
■A. .
DV
FRÉTTIR
Áþriðja tugvara-
þingmanna
Alma Lísa Jóhannsdóttir tók
sæti á Alþingi í gær og leysir af
hólmi Atla Gíslason. Þetta er í
fýrsta skipti sem Alma Lísa tek-
ur sæti á Alþingi og undirritaði
hún því drengskapareið sinn að
stjómarskránni við upphaf þing-
fundar.
Nú þegar tæpt ár er liðið frá
því kosið var til Alþingis hafa 24
varaþingmenn tekið sæti á Al-
þingi í lengri eða skemmri tíma.
Þingmenn em 63 talsins og því
fer nærri að hátt í fjörutíu prósent
þingmanna hafi kallað inn vara-
mann fyrir sig síðan þing kom
fyrst saman efdr síðustu þing-
kosningar. Til að hægt sé að kalla
inn varamann verða þingmenn
að vera frá störfum í tvær vikur.
Geirhlaut að vita
Ákvörðunin um starfslok
Magnúsar Péturssonar sem
forstjóra Landspítalans getur
ekki hafa verið tekin án vitn-
eskju Geirs H. Haarde forsætis-
ráðherra. Þetta sagði Valgerð-
ur Sverrisdóttir, varaformaður
Framsóknarflokksins, á Alþingi
í gær.
Valgerður vildi ræða starfslok
Magnúsar og spurði forsætis-
ráðherra út í málið. Geir sagði
Valgerði vita vel að málið heyrði
ekki undir sig þegar hún spurði
hann út í starfslokin. Þá sagði
hann það dylgjur hjá Valgerði
að hann hefði eitthvað haft með
brotthvarfið að gera.
Veikirvinstrimenn
Tveir þingmenn úr Norðvest-
urkjördæmi urðu að kalla inn
varaþingmenn sína á Alþingi í
gær vegna heilsubrests.
Jón Bjarnason, þingmaður
vinstri-grænna, á við veikindi
að stríða og getur því ekki verið
við þingstörf á næstunni. Hann
kallaði því Ingibjörgu Ingu Guð-
mundsdóttur, varaþingmann
sinn, til starfa í sinn
stað.
Annar þing-
maður sem varð að
kalla inn varamann
er Karl V. Matthías-
son, þingmaður
Samfylkingarinn-
ar. Hann þarf að
gangast undir
aðgerð og kall-
aðiþvíönnu
Kristínu
Gunnars-
dótturá
þing
fyrir
sig.
LEIÐRÉTTING
I frétt sem birtist í gær og
sagði frá húsleit lögregiunn-
ar í hesthúsi á Selfossi var
ranghermt að búfjáreftirlits-
maður hefði verið með íiför u i t
lögreglu við leitina. Hann
tengdist ekki málinu á annan
hátt en að hann óskaði einu
sinni eftir því að fá að skoða
hesta í umsjá Óla Péturs. Fyrir
tilviljun var héraðsdýralæknir
staddur með honum á áama
tíma. Hann kom ekki nálægt
húsleitinni að neinu leyti. Það
leiðréttist hér með.
Ekkjan Vilborg Reynisdóttir fékk dæmdar tæpar sex milljónir í skaðabætur vegna
andláts eiginmanns sins, Gísla Viðars Harðarsonar slökkviliðsmanns. Hann lést á
hlaupabretti en starfið dró hann til dauða. Gisli var einn reyndasti og best menntaði
sjúkraflutningamaður íslands.
SLÖKKVILIÐSEKKJA
FÆR SKAÐABÆTUR
VALUR GRETTISSON
blaðamadur skrifat valuravdyjs
„Þetta er tímamótadómur," seg-
ir Guðni Á. Haraldsson, lögmaður
ekkjunnar Vilborgar Reynisdótt-
ur, en henni og bömum hennar
voru dæmdar tæpar sex milljónir
í skaðabætur vegna fráfalls Gísla
Viðars Harðarsonar slökkviliðs-
manns. Hann lét lífið í septem-
ber árið 2005 eftir að ósæðin hafði
rifnað við hjartað sem leiddi til
innvortis blæðinga. Héraðsdóm-
ur Reykjaness telur Bmnavarnir
Suðurnesja bera ábyrgð á andláti
Gísla þar sem trúnaðarlæknir vissi
að mörk blóðþrýstings væm of há
hjá honum. Engu að síður stund-
aði hann reykköfun og útköll sem
reyndu gríðarlega á líkamlegt og
andlegt atgervi.
Dó á brettinu
Það var í september árið 2005
sem Gísli var við þjálfún á hlaupa-
bretti á Suðurnesjum. Eftir að
hann hafði hlaupið í dálitla stund
hné hann niður. Tveimur tímum
síðar var hann úrskurðaður látinn.
í ljós kom að ósæðin hafði rifnað
við hjarta sem leiddi til innvort-
is blæðinga. Slíkt mun vera afar
sjaldgæft samkvæmt dómskvödd-
um læknum en þeir mátu ástand
Gísla. Tryggingafélagið neitaði að
borga fjölskyldu Gísla bætur vegna
þess að ekki var um eiginlegt slys
að ræða. I kjölfarið ákvað ekkja
Gísla, Vilborg Reynisdóttir, að leita
réttar síns fyrir dómstólum en hún
var sannfærð um að starfið hefði
dregið Gísla til dauða.
Veikur í reykköfun
í dómsorði kemur fram að trún-
aðarlæknir hafi verið meðvitað-
ur um háan blóðþrýsting Gísla.
Engu að síður stundaði Gísli starf
sem er mjög streituvaldandi, bæði
á líkama og sál. Hann tók þátt í
reykköfunarnámskeiði í Svíþjóð
stuttu áður en hann lét lífið og þá
fór hann einnig í fjölmörg útköll
ásamt öðrum slökkviliðsmönnum.
Hann gegndi þá starfi varðstjóra
slökkviliðs Suðurnesja. Samkvæmt
dómsorði var læknum Brunavama
Suðurnesja skylt að grípa til viðeig-
andi ráðstafana eftir að ljóst varð
að hann væri með of háan blóð-
þrýsting.
Enginn nýgræðingur
Engu að síður segir í dómi að
Gísli hafi ekki verið neinn aukvisi
„Þetta eru mjög við-
unandi málalok"
þegar að slökkvistörfum kom.
Hann var einn þaulreyndasti og
best menntaði sjúkraflutninga-
maður fslands. Að mati Bruna-
varna Suðurnesja var skilningur
hans á eigin ástandi algjör og hann
hefði getað vitað hvað gæti
gerst. Hann hafi treyst sér
til þess sem hann gat
en enginn hafi
búist við þeim
afleiðingum
sem ástand
hans hafði.
Þetta var slys
sem lítið var
hægt að gera
í, að mati Bmna-
vama. Dómur tekur
mark á þessum rök-
um og því fær ekkjan
Vilborg tæpar sex millj-
ónir í skaðabætur en
ekki níu lfkt og krafist
var í upphafi.
segir dóminn langþráða viður-
kenningu á sjónarmiðum ekkjunn-
ar sem lengi hefur reynt að fá botn í
málið, eða síðan 2005.
Vilborg vildi ekki tjá sig um
dóminn.
Málskostnaður Vilborgar sem
hljóðar upp á rúmar tvær milljón-
ir fellur niður en um gjafsókn er að
ræða í þessu máli.
Viðunandi málalok
„Þetta eru mjög viðun-
andi málalok," segir Guðni Á.
Haraldsson hæstaréttarlög-
maður sem sótti málið
fyrir Vilborgu.
Hann -^^^fl
■
Gisli asamt fjölskyldu Eiglnkona Gísla,
Vílborg Reynisdóttir, barðist í langan tima
fyrir því að fá viðurkennt fyrir dómi að
starf Gísla hafi dregið hann til dauða.
Gisli viðar Harðarson Einn
reyndasti sjúkraflutningsmaður
íslands lést á hlaupabrettinu.
Kaupþing veitir forgang og afslátt hjá Heilsuverndarstöðinni:
Eins og
„Þetta kom mér á óvart. Mér finnst
þetta sorglegt dæmi um hvernig fer
þegar heilsa fólks er gerð að versl-
unarvöru," segir Álfheiður Ingadóttir,
þingmaður vinstri grænna í heilbrigð-
isnefiid Alþingis, um að meðlimir í
vildarþjónustu Kaupþings fá tuttugu
prósenta afslátt af Velferðarþjónustu
Heilsuvemdarstöðvarinnar í Reykja-
vík, auk þess að njóta forgangs. „Þetta
er lýsandi fyrir hvað géfist þegar heil-
brigðisþjónusta er undirorpin kaup-
skap og menn fara að líta á hana sem
hverja aðra vöm líkt og tyggjókúlur
eða mjólkurpott," segir hún.
Heilsuvemdarstöðin er fyrirtæki
•. í einkarekstri. í heilbrigðisþjónustu,
sem hét áður Inpro. Á vef Heilsu-
vemdarstöðvarinnar segir að Kaup-
þing hafi sýnt frábært frumkvæði
með því aö veita félögum í Vexti, vild-
hverönnurmarkaðsv
arþjónustu bankans, auðvelt aðgengi
að þjónustu og ráðgjöf á öllum stigum
meðferðar. Auk þess segir: „Velferð-
arþjónustan veitir einstakiingum og
starfsfólki fyrirtækja forgang að stór-
um hópi sérfræðinga," en í þjónust-
unni felst meðal annars sálfræðiráð-
gjöf, áfallahjálp, heilsufarsskoðun og
ráðgjöf geðlæknis.
Benedikt Sigurðssyni, upplýsinga-
fulltrúa Kaupþings, þykir undarlegt að
spyrða nafri bankans við hugmynd-
ir um einkarekstur í heilbrigðisþjón-
ustu. Hann bendir á að það sé alsiða
að bankar bjóði viðsldptavinum sín-
um afsláttarkjör hjá ýmsum aðilum.
„Þessi tenging við heilsuvernd er hins
vegar nýmæli og því reka sumir upp
stóraugu."
Aðspurður hvort ekki sé eðlis-
munur á því að veita viðskiptavinum
afslátt af bensíni eða matvöm ann-
ars vegar lfkt og hefúr lengi tt'ðkast hjá
bönkunum, og heilbrigðisþjónustu
hins vegar segist Benedikt ekki taka
afstöðu til þess: „Þetta er bara hluti
af því sem viðsldptavinum stendur
til boða og þeim er algjörlega í sjálfs-
vald sett hvort þeir nýta sér afsláttinn
eða ekki. Þeir þurfa samt sem áður að
greiða fyrir velferðarþjónustuna."
Hann ítrekar að viðskiptavinir
Kaupþings fái þama enga þjónustu
umfram það sem aðrir geta keypt sér
en öllum er ffjáls aðgangur að þjón-
ustu Heilsuvemdarstöðvarinnar.
Teitur Guðmundsson, sviðsstjóri
forvarnarsviðs Heilsuvemdarstöðv-
arinnar, tekur fyrir að þarna sé verið
að blanda saman bankaviðskiptum
og heilbrigðisþjónustu: „Þetta er bara
eins og hver önnur markaðsvara sem
þeir bjóða
viðskipta-
vinumsín-
um. Ég sé
ekkert sið-
ferðislega
rangt við að
koma við-
skiptavin-
um Kaup-
þings í tengsl
við góða heil-
brigðisþjón-
ustu."
Hlynntur einkarekstri Guðlaugur
Þór Þórðarson hefur lítið gert nema
dekrað við einkarekstur frá því hann
tók við, að mati Álfheiðar Ingadóttur.