Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2008, Blaðsíða 15
PV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRlL 2008 15
Þriðjudagur 1. apríl 2008
Benedikt Guðmundssyni, þjálfara íslandsmeistara KR í körfuknattleik, var létt eftir sigur á ÍR.
EKKITILBÚNIR í SUMARFRÍ
Benedikt Guðmundssyni, þjálf-
ara íslandsmeistara KR, var gríðar-
lega létt eftir nauman sigur liðsins
á fR í átta liða úrslitum Iceland Ex-
press-deildarinnar. Þar með tryggði
liðið sér oddaleik sem fram fer á
fimmtudag um sæti í undanúrslit-
um.
„Ég myndi segja að þetta væri
karaktersigur. Við vorum einfaldlega
ekki tilbúnir til þess að fara í sumar-
frí,” sagði Benedikt Guðmundsson,
þjálfari KR, eftir sigurleik gegn ÍR í
átta liða úrslitum Iceland Express-
deildar karla í körfubolta í gær.
KR-ingar unnu þá leik tvö í ein-
víginu, 86-80, eftir framlengdan leik
þar sem ÍR-ingar leiddu bróðurpart-
inn af leiknum. „Þetta leit ekki vel
út á tímabili fyrir okkur en þá fórum
við að gera breytingar. Við skiptum
um varnir og reyndum nýja hlutí
sem virkuðu. Þetta var ósköp svip-
að og í fyrsta leiknum þar sem okk-
ur vantaði þriggja stíga skot og víta-
hittni. Um leið og það fór að detta
inn kom þetta hjá okkur.
Ég veit ekki hvað við ldikkuðum á
mörgum vítum í dag. Það fóru þret-
tán forgörðum í fyrsta leiknum og
þetta var eitthvað svipað. Ég var
alltaf að bíða eftir því að við færum
að setja stóru skotín niður og þau
fóru að detta undir lokin,” sagði
Benedikt sem hafði varað alla við
að þetta yrði ekki auðveld sería fyr-
ir meistarana.
„Ég hef aUtaf talað um að þetta
yrði stórhættuleg sería fyrir okkur
enda ÍR-liðið mjög gott lið. Þetta
lið á ekkert að vera í sjöunda sæti
í deildinni, það á að minnsta kosti
að vera í topp fimm,” sagði Bene-
dikt að lokum.
tomas@dv.is
Benedikt Guðmundsson Þjálfari KR var sigurreifur í leikslok.