Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2008, Síða 7
DV Frittir
ÞRIÐJUDAGUR l.APRlL 2008 7
„Flestallar vörur í okkar samfélagi
eru fjármagnaðar með lánum."
- •. ,.
íslenska ríkið tekur um 72 krónur af hverjum seldum bensín- og olíulítra. Tekjur rík-
isins af eldsneytiskaupum almennings nema nærri 24 milljörðum króna árlega.
Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri eldsneytis hjá Nl, visar þvi á bug að fyrirtækið
selji bensin úr birgðum sínum á óeðlilega háu verði.
fslendingar dæla að lágmarki
i 320 milljónum lítra af
eldsneyti árlega Tekjur rlkisins
af eldsneytissölu nema um 24
milljörðum króna.
RIKIÐTEKUR72
KRÓNURAF LÍTRA
-
BALDUR GUÐMUNDSSON
blodamadur iknfar baldutMiv.u
Þótt bensínlítrinn kosti um 150
krónur, kostar hann aðeins 78
krónur áður en ríkið leggur álögur
sínar á hann.
Ríkið leggur 32,95 krónur á
hvern seldan bensínlítra vegna
vegamála. Annað vörugjald, sem
óháð er vegamálum, nemur 9,28
krónum á lítra að viðbættu flutn-
ingsjöfnunargjaldi sem nemur
0,36 aurum á hvern lítra. að sögn
Loks innheimtir ríkið 24,5 pró-
senta virðisaukaskatt af heildar-
gjaldinu. Að viðbættu innkaups-
verði og álagningu olíufélaganna
fæst það gjald sem íslendingar
greiða fyrir lítra af bensíni. Með-
alverð á bensíni er núna um 150
krónur. Af þeirri upphæð tekur
ríkið því um 72 krónur.
Tæpir 15 milljarðar
FÍB sagði árið 2006 að gróflega
mætti gera ráð fyrir að um 200
milljónir lítra af bensíni seljist ár-
lega á íslandi. Samkvæmt útreikn-
ingunum hér að ofan fær ríkið því
um 14,6 milljarða íslenskra króna
af bensínviðskipmm íslendinga.
Þó ber að hafa í huga að bílaeign
íslendinga hefur aukist töluvert
frá því í hitteðfyrra. Þessari skatt-
lagningu ríkisins hafa vörubíl-
stjórar mótmælt harðlega und-
anfarna daga, en klukkan 16 í dag
hafa vörubílstjórar efnt til fjölda-
mótmæla við Austurvöll, þar sem
álögum ríkisins á bensín verður
mótmælt áfram.
VERÐÞRÓUN A SJÁLFSAFGREIÐLUBENSÍNI
FRÁ JANÚAR 2005 TIL 1. APRlL 2008
MEÐALVERÐ í MÁNUÐI
Bensínverð hefur hækkað um rúmar
50 krónur á rúmum þremur árum.
Verðið er f sögulegu hámarki.
HEIMILD: FfB
149 kr.
139 kr.
129 kr.
119kr.
109 kr.
99 kr.
2005
2006
2007
2008
9 milljarðar fyrir dísilolíu
Ríkið tekur einnig sinn skerf af
sölu á dísilolíu hér á landi. Sér-
stakt olíugjald er 41 króna á lítra.
Flutningsjöfnunargjald er 0,72
aurar á hvern lítra auk þess sem
24,5 prósenta virðisaukaskattur
leggst á dísilolíuverðið. Algengt
verð á dísilolíulítranum er nú 156
krónur. Ríkið tekur af þeirri upp-
hæð um 72,4 krónur. FÍB sagði í
hitteðfyrra að íslendingar keyptu
um 120 milljónir lítra af dísilol-
íu. Sú tala hefur líklega hækkað
töluvert, en miðað við hana hef-
ur íslenska ríkið tæpa 9 milljarða
í tekjur af dísilolíusölu. Varlega
áætíað nema tekjur ríkisins af
sölu á dísilolíu og bensíni því um
24 milljörðum.
Meira fyrirvaskinn
Samkvæmt upplýsingum frá
FÍB hafa föst gjöld á bensín og
olíu haldist óbreytt undanfarin
þrjú ár. Tekjur ríkisins af bensín-
sölu hafa þó aukist vegna þess að
bensínlítrinn hefur hækkað hratt
undanfarin misseri. Fyrir ári var
kostnaðarverð hvers bensínlítra
um 31 króna. Nú kostar lítrinn
hins vegar um 48 krónur og því
hafa tekjur ríkisins af virðisauka-
skatti á bensíni aukist, þó önnur
gjöld hafl lækkað hlutfallslega.
Gjöld á dísilolíu hafa einnig verið
óbreytt undanfarin ár. Olían hefur
hins vegar hækkað úr 29 krónum í
61 á einu ári. Auknar virðisauka-
tekjur ríkisins á lítra vegna þessa
eru um 7 krónur.
Ekki meiri hagnaður
Oh'ufélögin hafa legið undir
ámæli vegna þess hve hratt elds-
neytisverð hækki, þrátt fyrir að
engin oh'uskip séu sjáanleg við
hafnir landsins. Þau græði á því að
selja íslendingum eldsneyti á há-
marksverði, jafnvel þótt þau hafi
fyrir löngu keypt eldsneytið, þegar
verðið var lægra. Magnús Asgeirs-
son, innkaupastjóri eldsneytis hjá
Nl, segir tekjur fyrirtækisins ekíd
hafa aukist þrátt fyrir að bensín-
verð hafi hækkað. „Flestallar vör-
ur í okkar samfélagi eru fjármagn-
aðar með lánum. Sama gildir um
eldsneytið. Það er mjög sérstakt ef
menn geta staðgreitt farm af olíu •
sí svona. Eins og allir aðrir borg-
um við því hærri upphæð af lán-
um okkar, þegar króna veikist.
Oftast er olía keypt inn á svoköll-
uðu mánaðarmeðaltali, þannig að
við högnumst ekki á því þó heims-
markaðsverð á eldsneýií breytist '
hratt. Þótt olían sé til í birgðum er
lán á móti olíunni," segir Magnús.
Ófrágengið
dánarbú
„Það er ekkert að frétta," segir
Arni Vilhjálmsson, lögfræðingur
Miyoko Watai, japanskrar ekkju
Bobbys Fischer. Ami bíður enn
afgreiðslu embættis sýslumanns
í Reykjavík um einkaskipti dán-
arbús skákmeistarans til handa
skjólstæðingi sínum. Skiptaleyf-
ið hefur enn ekki verið gefið út
og telur Arni líklegt að það sé á
meðan beðið er gagna frá lög-
manni meintrar dóttur Fischers.
„Það er enn beðið eftir frekari
gögnum frá filippseyska lögfræð-
ingnum. Þau hafa ekki verið lögð
fram enda tel ég hann ekki hafa
nein slík gögn," segir Arni.
Dýrara að
hringja úr landi
Landsmenn mega eiga von
á því að greiða meira fýrir ut-
anlandssímtölin sín hér eftir
en hingað til. Síminn tilkynnti
í gær um hækkun millilanda-
símatala og er ástæðan sú
hversu mjög gengi krónunnar
hefur fallið að undanförnu.
Stjórnendur Símans
ákváðu jafnhliða verðhækk-
uninni að verðið skyldi endur-
skoðað í hverjum mánuði. Því
getur verðið breyst eftir því
sem aðstæður breytast.
FLGrouptapar
á Finnair
FL Group, sem áttí fyrir ári
nær fjórðung hlutabréfa í finnska
flugfélaginu Finnair seldi í gær
síðustu hlutabréf sín í félag-
inu. Fyrir viðskiptin í gær átti FL
Group 12,69 prósent hlutafjár
í Finnair en seldi þau fýrir 13,6
milljarða króna. Bréfin eru seld á
lægra verði en þau voru keypt og
nemur tap FL Group á viðsldpt-
unum með bréfin 1,7 milljörðum
króna.
Salan er til að styrkja stöðu
fýrirtækisins og minnka vægi
eignarhluta í skráðum félögum
sem ekki eru fjármála-, trygg-
inga- og fasteignafélög.
Umhverfisdagar
íHáskólanum
Umhverfisdagar Háskóla ís-
lands hefjast í dag og standa fram
á fimmtudag. Þetta er í fyrsta
skipti sem boðið er upp á slíka
dagskrá í Háskólanum.
Tilgangur daganna er að auka
umhverfisvitund meðal stúd-
enta og starfsfólks skólans og
verður áherslan á þessum fýrstu
umhverfisdögum lögð á endur-
vinnslu og neyslu.
Aðstandendur umhverfisdaga
eru Gaia - félag meistaranémá í
umhverfis- og auðlindafræðum,
Stúdentaráð Háskóla fslands og
Stofnun Sæmundar fróða um
sjálfbæra þróun við Hí.