Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2008, Qupperneq 11
DV Frittir
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2008 11
s
%
■ps.; 1
í
' „Dýryrði ekki
látið ganga T
gegnum það sem
ég hefþolað"
sagði Sebire.
Dó í trássi við dómsúrskurð
Tveimur dögum eftir úrskurð
fransks dómstóls fannst Chantal
Sebire látin á heimili sínu. Eftir
að úrskurðurinn hafði verið kveð-
inn upp sagðist Sebire ekki ætla að
áfrýja. Hún gaf aftur á móti í skyn
að hún færi hugsanlega til Sviss
eða annars lands þar sem heimilt
er að aðstoða við sjálfsmorð. „Ég
veit hvernig ég get komið höndum
yfir þá hluti sem ég þarf, og ef ég fæ
þá ekki í Frakklandi, fæ ég þá ann-
ars staðar," sagði hún. Krufning
leiddi í ljós að hún hafði innbyrt
banvænan skammt svefnlyfja.
Mál Chantal Sebire vakti mikla
samúð í Þýskalandi og varð upp-
spretta mikillar umræðu, ekki síst
fýrir þær sakir að hún hafði of-
næmi fyrir sterkum verkjalyfjum
eins og morh'ni. Þýska tímaritið
Die Welt sagði meðal annars að
þeim rökum andstæðinga líknar-
dráps, að verkjalyf og nýjar aðferð-
ir við umönnun þjáðra einstakl-
inga gerðu líknardráp óþarft, hefði
verið hnekkt. „Mál Sebire sýndi að
þau eru takmörkunum háð," sagði
Die Welt.
Líknardráp og kristin trú
Die Welt velti einnig upp spum-
ingunni um sjálfsvíg og kristna trú.
Samkvæmt kristinni trú og siðfræði
hafa sjálfsvíg lengi verið fordæmd.
Kaþólska kirkjan fordæmir undan-
tekningarlaust sjálfsvíg, en lúther-
strú sýnir meira umburðarlyndi og
sldlning þar á. Lúthersk trú viður-
kennir að kringumstæðum kunni
að vera þannig háttað að skiljanlegt
sé að fólk velji þann kost að binda
enda á eigið líf. Nægir í því sam-
bandi að horfa til vígvalla á styxj-
aldartímum og þeirra þjáninga
sem hermenn margir hveijir hafa
Chantal Sebire Var með sjaldgæfan
sjúkdóm og svipti sig lífi í trássi við
dómsúrskurð.
þurft að þola, og einnig ef um er
það að ræða að menn fómi sjálfum
sér til bjargar mörgum.
En í meginatriðum lítur krist-
in kirkja þeim augum á málið að
sá sem meðvitað eyðir lífi sínu sé
strangt til tekið liðhlaupi sem neit-
ar að horfast í augu við þær hörðu
prófraunir sem fyrir hann em lagð-
ar. Þar er horft til vegferðar manns-
ins sem pílagrímsgöngu sem eigi
skuli skerast undan.
Á fyrri tímum var afstaða kirkj-
unnar gegn sjálfsvígum svo ein-
dregin að sá sem sekur gerðist um
slíkt var grafinn utan kirkjugarðs
í óvígðri mold og talið að viðkom-
andi hefði að steypt sál sinni í glöt-
un. Að vera grafinn utan ldrkju-
garðs hafði ekki aðeins afleiðingar
gagnvart þeim sem hlaut það hlut-
skipti aukinheldur bjuggu eftirlif-
andi venslamenn í mikilli angist
vegna þess.
1 Die Welt segir: „í augun trú-
aðra kristinna manna er sjálfs-
ákvörðun um eigin dauða brot, til-
raun til að hafa áhrif á sköpunina
sem einungis heyrir undir Guð, en
geta trúaðir raunverulega krafist
þess að trúlausir tileinki sér sjónar-
mið þeirra?"
Múslímar fleiri en kaþólikkar í fyrsta skipti í sögunni:
Krístin trú
fjölmennust
íslamstrúarmenn eru í fyrsta skipti
í sögu mannkyns orðnir fjölmennari
en rómversk-kaþólskir. Þetta kem-
ur fram í L'Osservatore, fréttablaði
Vatikansins. í viðtali við blaðið segir
Vittorio Formenti, sem sér um árbók
Vatikansins, að samkvæmt tölum frá
árinu 2006 væru múslímar 19,2 pró-
sent mannkyns, en kaþólikkar 17,4
prósent.
„í fyrsta skipti í sögunni erum við
ekld lengur í fyrsta sæti; múslímar
hafa skotið okkur ref fyrir rass," sagði
Formenti. Spurður um hugsanleg-
ar ástæður fyrir þessu forskoti sem
múslímar hafa náð sagði Formenti
að orsakirnar væri að finna í samfé-
lagsgerð múslíma. „Á sama tíma og
múslímsk hjón, eins og er alkunna,
halda áfram að eignast mörg börn,
eignast kristið fólk sífellt færri böm,"
sagði Formenti.
Kristnir enn fleiri
Enn eiga múslímar langt í land
með að jafna samanlagðan fjölda
kristinna í heiminum, en þeir em
um þrjátíu og þrjú prósent mann-
kyns. Vittorio Fermonti sagði að
Suður-Ameríka væri helsta vígi
kaþólsku kirkjunnar í dag og sagði
að á meginlandi Ameríku byggi
hátt í helmingur mannkyns. Ferm-
onti impraði á fækkun í stétt kaþ-
ólskra presta, og sagði að stétt
nunna stæði frammi fyrir hrikalegri
fækkun.
Að mati Vatikansins er fjöldi
kaþólikka í heiminum um 1,13
milljarðar, en samkvæmt tölum
sem Sameinuðu þjóðirnar hafa
fengið frá múslímskum löndum er
fjöldi múslíma um 1,3 milljarðar.
1 Róm er stærsta moska í Evr-
ópu. Hún var opnuð 1995 og reist
fyrir fé frá múslímskum löndum,
mestmegnis Sádí-Arabíu. Það skýt-
ur skökku við í ljósi þess að yfirvöld
í Sádí-Arabíu banna iðkun kristinn-
ar trúar, en íhuga að leyfa byggingu
kirkju sem hluta af samningaum-
leitunum sem miða að því að koma
á stjórnmálasambandi.
Starfsmenn Arkar Zoe náðaðir af forseta Tsjad:
Stuttur þrælkunardómur
Forseti Afríkuríkisins Tsjad hefur
náðað sex hjálparstarfsmenn frönsku
hjálparsamtakanna Örk Zoe sem
dæmdir voru til átta ára þrælkunar-
vinnu 26. desember síðastliðinn. Þeim
var gefið að sök að hafa 25. október
gert tilraun til að ræna eitt hundrað
og þremur tsjadneskum bömum sem
ætiunin var að flytja til Evrópu með
flugvél. Upp komst um málið þegar
verið var að flytja bömin um borð í
flugvélina. Hestum bamanna átti að
koma í hendur fósturforeldra í Evr-
ópu.
Hjálparstarfsmennimir sögðu á
sínum tfrna að um væri að ræða mun-
aðarlaus böm frá átakasvæðum í Darf-
úr-héraði í Súdan og ætlunin hefði ver-
ið að bjarga þeim frá illum örlögum.
Rannsókn málsins leiddi hins vegar í
ljós að stærstur hluti bamanna var frá
tsjadneskum þorpum við iandamæri
TækninstríðirBretum
Nýjasta álma Heathrow-flugvallar
var opnuð síðastíiðinn fimmtudag.
Þessi skrautfjöður átti að vera tákn
um tæknilega fullkomnun og hafði
verið beðið af mikilli eftirvænt-
ingu, en óhætt er að segja að tækn-
in hafi strítt Bretum þar á bæ. Hátt
í þrjú hundruð flugferðum hefur
verið aflýst og á milli fimmtán og
tuttugu þúsund töskum hefur verið
hrúgað upp í flugstöð 5.
Að sögn starfsmanna var það far-
angurskerfið sem orsakaði vanda-
málið sem hefur valdið breska
flugfélaginu British Airways mikl-
um álitshnekki. Afköst í nýju álm-
unni eru einungis um áttatíu og sjö
prósent af því sem eðlilegt ætti að
vera og var í gær varað við frekari
truflun á starfseminni.
Starfsmenn Arkar Zoe Þegar dómur-
inn var kveðinn upp (desember.
landsins og áttu flest í það minnsta
annað foreldrið á lífi.
Afplánun í Frakklandi
í desember komust frönsk og tsjad-
nesk stjómvöld að samkomulagi um
að hjálparstarfsmennimir myndu af-
plána dóminn í Frakklandi. Áður hafði
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti
samið um lausn flugáhafiiaminnar
og tveggja franskra ljósmyndara sem
vom á vegum hjáiparsamtakanna.
Hogið var með þau í fylgd Frakklands-
forseta til Frakklands.
Lítill vafi var talinn leika á því að for-
seti Tsjads myndi náða sexmenning-
ana eftir að Frakklandsforseti bland-
aði sér í málið. Idriss Déby ku eiga
Frökkum að þakka að hann heldur um
stjómartauma Tsjad, því franska rflds-
stjómin studdi Déby þegar skæruliðar
létu til skarar skríða í N'Djamena, höf-
uðborg Chad í febrúar.
Lögfræðingar sexmenninganna
segja að þeir verði látnir lausir um leið
og búið er að ganga frá pappírum þar
að lútandi.
Birkiaska
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
ö
BETUSAN
Minnistöflur
FOSFOSER
MEMORY
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239