Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2008, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 1. APR(L2008
Sport DV
ICE EXPRESS KK 8-LIÐA
Snæfell - Njarðvfk 80-66
Stig Snæfells: Justin Shouse 18,Slobodan
Subaslc 14,Hlynur E Bæringsson 12, Sig-
urður Þorvaldsson 10, Anders Katholm 8
Jón Ólafur Jónsson 7, Ingvaldur M Haf-
steinsson 6
Stig Njarðvlkur: Damon Baily 21,Brenton
Birmingham 12,Guðmundur Jónsson 11
Egill Jónasson 11.Sverrir Sverrisson 4,
Jóhann Ólafsson 4, Hörður Vilhjálmsson 3
Snæfell sigraði einvlgiö 2-0
(R - KR 86-80
Stig (R: Nate Brown 25,Tahirou Sani 18,
Sveinbjörn Claessen 16, Hreggviður
Magnússon 15, Ólafur Sigurðsson 3, Ómar
Sævarsson 3.
Stig KR: Avl Fogel 22, Josuah Helm 15,
FannarÓlafsson 12, Pálmi Sigurgeirs-
son 9.
Jafnterleinvlginu 1-1
SÆNSKI
Sundsvall - Helsingborg 0-3
Hannes Þ. Sigurðsson, Ari Freyr Skúlason
og Sverrir Garðarsson léku alllr með
Sundsvall. Ólafur Ingi Skúlason sat á vara-
mannabekknum I hjá Helsingborg.
Ljungskille - Hammarby 0-1
Örebro-Trelleborg 1-0
Malmö-IFKGautaborg 1-1
Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson
voru báðir í byrjunarliði Gautaborgar.
L U J T Mörk Stig
1. Helsingb 1 1 0 0 3:0 3
2. Djurgard 1 1 0 0 2:1 3
3. Örebro 1 1 0 0 1:0 3
4. Hammar 1 1 0 0 1:0 3
5. Halmsta 1 1 0 0 1:0 3
6. Gautab 1 0 1 0 1:1 1
7. Malmö 1 0 1 0 1:1 1
8. GAIS 1 0 1 0 1:1 1
9. Elfsborg 1 0 1 0 1:1 1
10.AIK 1 0 1 0 0:0 1
II.Kalmar 1 0 1 0 0:0 1
12. Norrkö 1 0 0 1 1:2 0
13.Trelleb 1 0 0 1 0:1 0
14. Gefle 1 0 0 1 0:1 0
15. Ljungs 1 0 0 1 0:1 0
16. Sundsv 1 0 0 1 0:3 0
NORSKI
Rosenborg - Lyn 2-1
Indriði Sigurðsson og Thedór Elmar Bjar-
nason voru báðlr í byrjunarliði Lyn.
L u J T Mörk Stig
I.Brann 1 1 0 0 4:2 3
2. Bodo/GI 1 1 0 0 2:0 3
3. Rosenb 1 1 0 0 2:1 3
4Válereng 1 1 0 0 1:0 3
5. Viking 1 1 0 0 1:0 3
6. Lilleström 1 0 1 0 1:1 1
7.Tromsö 1 0 1 0 1:1 1
8. Molde 1 0 1 0 0:0 1
9. Stabæk 1 0 1 0 0:0 1
10. Álasund 1 0 0 1 0:1 0
11. Strömsg 1 0 0 1 0:1 0
12. Lyn 1 0 0 0 1:2 0
13. Fredriks 1 0 0 1 2:4 0
14. Hamark 1 0 0 1 0:2 0
DANSKI
Viborg - FC Köbenhavn 2-3
Rúrik Gislason kom inn á f lið Viborg á 76.
minútu.
L u J T Mörk Stig
1. AaB 22 14 4 4 42:29 46
2. FCK 22 12 7 3 32:16 43
3. Midtjylla 22 11 5 6 31:25 38
4. Horsens 22 9 7 6 29:27 34
5.0B 21 7 11 3 30:17 32
6. Nordsjæl 22 8 8 6 32:28 32
7. Esbjerg 22 9 4 9 42:35 31
8. Randers 22 8 6 8 27:19 30
9. Brondby 22 7 6 9 28:30 27
10.AGF 22 5 5 12 20:31 20
11. Viborg 22 4 2 16 19:48 14
12. Lyngby 21 2 5 14 20:47 11
NÚGETURÞÚ LESIÐ
DVÁDV.IS DVer
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr. á
mánuði
Islandsmeistarar KR tryggðu sér
oddaleik í einvígi sínu gegn ÍR í átta
liða úrslitum Iceland Express-deild-
ar karla með 86-80 sigri í Seljaskóla
í gær. Framlengingu þurfti
til að knýja fram úrslitin.
-
Á fulla ferð í oddaleik “
Joshua Helm sækir að
körfunni.
REYKJAVÍKURISARNIR
BERJAST í ODDALEIK
TOMAS ÞOR ÞORÐARSON
bladamadai sLrifar tomas("'(1v is
Oddaleik þarf til að útídjá rimmu KR
og ÍR í 8 liða úrslitum Iceland Ex-
press-deildar karla í körfubolta. Eftir
að hafa tapað fyrsta leiknum nokkuð
örugglega á heimavelli í leik 1 unnu
íslandsmeistarar KR 86-80 sigur á ÍR
eftir íramlengingu í gær.
KR byrjaði mun betur og sigldi
lygnan sjó framan af fyrri hálfleik.
Gestimir virtust lítið þurfa að hafa fyr-
ir forystunni en þeir leiddu eftir fyrsta
leikhluta með fjórum stigum, 19-23.
Undir niðri hjá ÍR blundaði þó
alltaf hinn gríðarlegi góði sóknarleik-
ur sem tryggði þeim sigurinn í Vest-
urbænum og þegar nær dró hálf-
leiksflautunni fóru ÍR-ingar að síga á.
Nate Brown fór fyrir ÍR-liðinu en leik-
stjómandinn snjalli var stórkostíegur
í leiknum.
Hann ásamt Hreggviði Magnús-
syni var einnig frábær hjá ÍR leiddu
Breiðholtspilta til baka eftir að hafa
verið undir með átta stigum, 22-30,
sném ÍR-ingar blaðinu við og leiddu í
hálfleik með einu stigi, 39-38.
ÍR tók völdin
Þriðji leikhluti var ÍR-inga en
heimamenn spiluðu hreint frábær-
lega í honum. Nate Brown var óstöðv-
andi og lét sér fátt um finnast að negla
niðurþristum afmargra metra færi og
þá var Hreggviður áfram góður und-
ir körfunni. Fleiri heimamenn lögðu
árar í ár eins og Sveinbjörn Claessen
sem skoraði oft mikilvægar körfur.
Fyrir lokaleikhlutann vom heima-
menn úr Breiðholti fimm stigum yfir,
60-55, og gífurlegur uggur var í leik-
mönnum KR sem létu allt fara í taug-
arnar á sér og þá sérstaklega dómar-
ana.
Nate klúðraði flautukörfu
Allt annað var að sjá til KR-liðsins
í lokaleikhlutanum þar sem það spil-
aði eins og sannir meistarar. Smátt
og smátt söxuðu þeir niður forskot
heimamanna og á endanum tókst
þeim að jafna leikinn 70-70. ÍR-ingar
enduðu með að fara í lokasókn þegar
sex sekúndur eftir í stöðunni 72-72 og
lögðu upp í eitt skot fyrir Nate Brown
þar sem hann hefði getað fullkomnað
leik sinn. Nate komst alia leið upp að
körfunni á þessum sex sekúndum en
klúðraði sniðskoti um leið og flautan
gall og þurfti því að grípa til framleng-
ingar.
Meistararnir stóðust pressuna
I framlengingunni var það KR
sem bar sigur úr býtum með gríðar-
lega mikilvægum körfum undir lokin.
Hvorugt liðið hitti vel í framlenging-
unni til að byrja með en Pálmi Sigur-
geirsson setti niður gífurlega góðan
þrist þegar lítið var eftir og í raun gerði
út um leikinn.
86-80 stiga sigur KR en Hregg-
viður Magnússon, leikmaður ÍR, var
ekkert að svekkja sig eftir leik. ,,KR
sýndi að það er mjög öflugt lið og
af hverju þeir eru íslandsmeistarar
þarna undir lokin. Við erum yfir all-
an leikinn en þeir ná að setja saman
gríðarlega góðar körfur undir lokin
og kláruðu þetta þannig,” sagði stóri
maðurinn en er hvergi banginn fyrir
oddaleikinn.
„Við erum nú búnir að vera yfir
mestallan tímann í báðum leikjun-
um og það er óþarfi að breyta því.
Við munum halda því áfram og
klára þetta einvígi í síðasta leikn-
um,” sagði Hreggviður ákveðinn.
Alex Ferguson er sigurviss fyrir leik gegn Roma í 8 liöa úrslitum Meistaradeildarinnar:
VITUMVIÐ HVERJU Á AÐ BÚAST
Alex Ferguson, framkvæmda-
stjóri Manchester United, er fullur
sjálfstrausts fyrir leikinn gegn Roma
í Meistaradeildinni í kvöld. Lið-
in mættust í sömu keppni á síðustu
leiktíð og Manchester United fór illa
með Roma þegar liðið vann Roma
samanlagt 8-2 í tveimur leikjum.
„Roma-liðið hefur bætt sig á þess-
ari leiktíð en við höfum þegar leikið
gegn því tvisvar og vitum við hverju
við getum búist," segir Ferguson en
liðin mættust tvívegis í riðlakeppni
Meistaradeildarinnar fyrir áramót.
„Þetta verður ekki auðvelt en við
erum í góðu formi eins og stendur og
ekkert því til fyrirstöðu að við höid-
um því áfram," segir Ferguson en
hans menn léku afar vel í 4-0 sigri á
Aston Villa um helgina.
I þeim leik skoraði Wayne Roon-
ey tvö mörk en hann hefur ekki skor-
að jafnmikið og væntingar stóðu til
á leiktíðinni þótt hann hafi leikið
vel. Rooney hefur aðeins skorað eitt
mark í Meistaradeildinni það sem af
er leiktíðar og hann iðar í skinninu
að skora fleiri. „Þetta verður risaleik-
ur fyrir okkur og við undirbjuggum
okkur vel fyrir hann með sigrinum
um helgina. Þetta er leikur sem all-
ir knattspyrnumenn vilja taka þátt í,"
segir Rooney.
Luciano Spalletti, þjálfari Róm-
verja, er hvergi banginn þrátt fyr-
ir að lið hans hafi tapað illa fýrir
Manchester United í sömu keppni
fyrir ári. „Líkt og ávallt munum við
nálgast þennan leik með ró í huga.
Vissulega eru þetta sérstakir leildr
og við þurfum á einhverju sérstöku
að halda frá leikmönnunum," segir
Spalletti.
í kvöld fer einnig fram leikur
Barcelona og Schalke. Hvorugu lið-
inu hefur gengið sem skyldi í deild-
arkeppninni og góður árangur í
Meistaradeildinni gæti bjargað starfi
þeirra. FrankRijkaard, þjálfari Barce-
lona, lýsti frammistöðu sinna manna
í síðari hálfleik gegn Betis sem „óút-
skýranlegri", en liðið var tveimur
mörkum yfir í leikhléi en tapaði svo
3-2. vidar@dv.is