Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2008, Side 17
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRlL 2008 17
Snæfell er komið í undanúrslit eftir 80-66 sigur á Njarðvíkingum í Fjárhúsinu í Stykk-
ishólmi. Sigurinn var aldrei í hættu því Njarðvíkingar gerðu of mikið af byrjendamis-
tökum og komust aldrei í takt við leikinn. Snæfell vann einvígið sannfærandi 2-0
Kampakátir Snæfellingar
fögnuðu sigri á Njarðvlk vel í
eftir leik liðanna.
í
KAUPOir
BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON
blaöamadur skrifar: benni@dv.is
Snæfellingar eru komnir í undanúr-
slit úrslitakeppninar eftir sannfær-
andi 14 stiga sigur á Njarðvíkingum
80-66. Hólmarar unnu því einvígið
2-0 nokkuð sannfærandi.
Njarðvíkingar urðu fyrir miklu
áfalli fyrir einvígið því Friðrik Stef-
ánsson gat ekki leikið með. Friðrik
byrjaði alla leiki Njarðvíkur liðsins
og skildi einfaldlega eftir sig of stórt
skarð sem aðrir leikmenn náðu eng-
an veginn ekki að fylla. Snæfellingar
léku grimma vörn í gær sem skilaði
sér í því að Njarðvík skoraði aðeins
66 stig, sem er ekki mjög mikið á
skala Njarðvíkur.
Snæfellingar byrjuðu leikinn af
miklum krafti, rifu hvert frákastið
niður á fætur öðru og kafsigldu gest-
ina til að byrja með. Komust í 14-6 en
þá kom smá kraftur í gestina. Náðu
að minnkamuninn ogvarstaðan 18-
12 eftir fyrsta leikhluta.
Njarðvíkingar söknuðu Friðriks
Stefánssonar mikið í ffáköstunum
en þeir hófu annan leikhluta af fít-
ónskrafti með troðslu Damons Ba-
ily. Skömmu síðar kom risinn Egill
Jónasson með einhverja óvæntustu
körfu leiksins, hann vippaði sér fyr-
ir utan þriggja stiga línuna og negldi
einu stykki þriggja stiga niður. Sann-
arlega ekki á hverjum degi sem Egill
tekur upp á slíkri iðju en skotið var
fallegt og leit vel út allan tímann.
Snæfellingar höfðu þó alltaf frum-
kvæðið og voru ávallt á undan. Þegar
menn gengu til búningsherbergja að
hlusta á hálfleiksræður þjálfara sinna
var staðan 37-30 fyrir heimamenn.
Stóru mennirnir Hlynur Bærings-
son og Sigurður Þorvaldsson voru
sterkir í fyrri hálfleik og voru með
átta stig hvor og slatta af ffáköstum.
Hjá gestunum var Brenton Birm-
ingham mikið í boltanum og leitaði
uppi samherja sína. Hins vegar var
nýtnin ekkert til að hrópa húrra fyr-
ir og nokkrir leikmenn að gera byrj-
endamistök.
Mistök á mistök ofan
Og mistökin héldu áffam í þriðja
og fjórða leikhluta. Skot gestanna litu
hreinlega illa út, voru tekin á erfiðum
stöðum og í erfiðum færum. Njarð-
víkingar hreyfðu sig lítið án boítans
og stundum hentu þeir boltanum
bara út af. Það var helst Guðmundur
Jónsson sem gladdi augað en hann
setti nokkur falleg stig niður. Snæ-
fell var þó alltaf með undirtökin með
Justin Shouse í broddi fylkingar sem
besta mann. Shouse leiddi sóknarlín-
una af miklum myndarskap og fann
félaga sína ótt og títt.
Anders Katholm setti tvo þrista
niður í upphafi fjórða leikhluta og gaf
tóninn sem koma skyldi. Þegar svo
Magni Hafsteinsson stal boltanum og
Hörður Vilhjálmsson fékk á sig ásetn-
ingsvillu í kjölfarið var allur vindur
úr gesmnum. Þeir vissu að þeir væru
komnir í sumarffí.
Sverrir Sverrisson tók síðasta skot
gestanna nánast frá miðju, gjörsam-
lega glórulaust skot, heimamenn
brunuðu í sókn og Shouse sendi
glæsilega sendingu, trúlega falleg-
ustu sendingu kvöldsins, á Sigurð
Þorvaldsson sem tróð viðstöðulaust.
Glæsileg karfa sem lengi verður í
minnum höfð. Minnti á NBA og á vel
heima í topp 10 tilþrifúm næturinnar
á NBA-sjónvarpsstöðinni. 80-66 urðu
lolcatölur og Njarðvíkingar komnir í
frí. Snæfells hins vegar bíða undanúr-
slit en gegn hverjum er ekki vitað.
Áfram rokk og ról
„Þeir komast inn í leikinn á for-
sendum sem við ætluðum að koma
í veg fyrir, að láta þá skjóta úr horn-
inu og ef þeir hefðu hitt þar myndu
þeir vinna okkur. En fyrir utan smá
kafla var þetta alltaf öruggt hjá okk-
ur," sagði Hlynur Bæringsson, fyrir-
liði Snæfells. „Þeir eru miklu veikari
inni í teig en við þótt Jói hafi staðið
sig vel en Frikki er það mikilvægur að
það skildi eftir sig of stórt skarð.
Frildd er góður vinur minn og ég
óska honum góðs bata. Hins vegar
var ég voðalega feginn að losna við
hann. Hann er stór og mikill og það er
þreytandi að berjast við hann.Ég væri
alveg til í ef eitthvað léleg lið væri eftir
en það er víst ekki svo. En við ætíum
að vinna rest," bætti Hlynur við.
„Það er alltaf hundleiðinlegt að
detta út," sagði Teitur Örlygsson,
þjálfari Njarðvíldnga, súr í bragði.
„Það má alveg segja að við höfum
mætt ofjörlum okkar en við erum
með haug af mistökum í olckar leik
og þessi mistök eru nokkuð sem við
þurfum að laga.
Það voru allt of margar feilsend-
ingar sem þurfti ekki. Þegar það er
svona er ómögulegt að vinna þetta
lið. Það er það sterkt," sagði Teitur og
bætti við að hann væri ekki viss um
hvort hann yrði áfram með liðið.
Sigurður Þorvaldsson fékk smá
gulrót í lok leiks en hann var út-
nefndur íþróttamaður Stykldshólms.
„Það er gaman að þessu, alltaf gam-
an að fá viðurkenningu og ekki verra
að það sé eftir sigurleik. Það hefði
verið ömurlegt að taka við þessu ef
við hefðum tapað og það kom í raun
aldrei til greina.
Þeir komu aðeins til baka í síð-
ari hálfleik sem við vissum að þeir
myndu gera. En ég var aldrei mjög
hræddur. Þeir minnkuðu muninn í
56-53 en þá fékk ég einhverja tilfinn-
ingu um að slæmi kaflinn væri búinn
og það gekk eftir.
Við spiluðum mjög fína vörn og
þetta var kannski ljótur leikur á að
horfa en við gerðum okkar í vörn-
inni. Við byrjum næstu viðureign á
útivelli en við fáum fleiri sénsa til
að stela útileik en í þessari seríu
þannig að þetta verður áfram rokk
og ról."
Nítján ára Serbi heillar stórliðin í Evrópu:
NÝSTJARNA í FÆÐINGU
„Hann er kannski 10 milljóna
evra (1,2 milljarðar lcróna) virði í dag
en það er elcki langt í að hann verði
25 milljóna evra (3 milljarðar króna)
virði." Þetta voru orð Gertjans Ver-
beek, þjálfara Heerenveen, um nítj-
án ára serbneska ungstirnið Miralem
Sulejmani í samtali við blaðamenn
eftir tapleik liðsins gegn Ajax um
helgina. Þessi nítján ára piltur skor-
aði annað mark Heerenveen, lagði
upp hitt, skaut tvisvar í tréverkið og
kom sér í þrjú önnur færi í 4-2 tapi
sinna manna.
Þessi marksækni stráksins hefur
heillað marga en ekld einungis hef-
ur hann leikið alla þrjátíu og fimm
leiki Heerenveen á tímabilinu held-
ur hefur hann einnig skorað fimmt-
án mörk. „Ég er að hætta í sumar og
vonandi fær félagið góðan þjálfara
sem getur hjálpað Mickey [Miralem]
að þróast sem leikmaður. Þeir reyna
eflaust að halda honum en það verð-
ur erfitt," sagði Gertjan einnig og
bætti við. „Ef ég væri í Ajax myndi ég
vita allt um strákinn."
Þessi orð um Ajax voru ekki úr
lausu lofti gripin en í stúkunni á
leiknum var verðandi þjálfari Ajax,
Marco Van Basten, að fylgjast með
stráknum. Gertjan bætti við að það
væru ekki einungis Ajax og PSV sem
hefðu efni á pilti en útsendari frá
Chelsea var einnig í stúkunni. Talið
er að Chelsea ætli að kaupa Miralem
í sumar og lána hann strax til PSV
Eindhoven lílct og það gerði við Bras-
ilíumanninn Alex árið 2004.
Ajax er einnig talið mjög líldegt að
næla í strákinn en Marco Van Bast-
en hefur lofað breytingum hjá Ajax
í sumar. Basten vill bæta Miralem í
sóknarlínu sína og styðja þar við Úr-
úgvæann Luis Suárez og Klaas-Jan verið á förum og það einnig til Chels-
Huntelaar en sá síðastnefndi gæti ea. tomas@dv.is
MEISTARA-
DFILDIN
m k CHAMPIONS
'J 1 LEACUE
ÖSKRAÐIAF GLEÐi
„Þegarég heyrði að við myndum mæta
Manchester United aftur (átta liða
úrslitum steytti ég hnefum og öskraði af
gleði," sagði fram-
herji Roma,
Mirko Vucinic,
við Channel 4
fyrir leik Roma og
Manchester
United í meistara-
deildinni í kvöld.
Vucinic getur
ekki beðið eftir
því að koma fram
hefndum eftir 7-1 tapið á sama stað í
keppninni í fyrra. Serbneski framherjinn
er þó í framlínunni á kostnað Frances-
cosTotti sem missir af fyrri leiknum
vegna meiðsla.„Það er hryllilegt að
missa af þessum leik og ég hreinlega trúi
ekki að ég þurfi að vera í stúkunni á
meðan hann er spilaður," sagðiTotti á
blaðamannafundi. Roma er í smá
vandræðum í vörninni en Brasilíumaður-
inn Juan glímir við meiðsli en hann
missti af síðasta leik liðsins (deildinni.
Gamli Everton-maðurinn Matteo
Ferrari er þó í startholunum og mun
byrja leikinn nái landi hans sér ekki af
meiðslunum.
MARGIRTÆPIR HJÁ UNITED
Michael Carrick, Rlo Ferdinand,
Patrice Evra og Ryan Giggs ferðuðust
allir með Manchester United til Rómar
þar sem þeir munu leika gegn Roma í
átta liða úrslitum meistaradeildar
Evrópu. Fyrstu þrír voru allir (byrjunarliði
United um
helgina gegn
Aston Villa en var
öllum skipt út af
á sama tíma. Sir
Alex Ferguson
hefur látið það í
veðri vaka að
þessir menn séu
tæpirásamt
markverðinum
Edwin Van Der Saar sem lék ekki gegn
Villa. Ferdinand og Van Der Saar voru
einnig tæpir fyrir leik United gegn
Liverpool um þar síðustu helgi en léku
báðir. Enn fremur hefur sir Alex varað
Roma-menn við Wayne Rooney.„Það
má ekki gleymast hversu frábær
markaskorari Rooney er. Flann komst á
bragðið um helgina með tveimur
mörkum og ég get alveg séð hann skora
núna (sex til sjö leikjum í röð. Þetta
verður svakalega erfiður leikur en (því
formi sem við erum í núna getum við
sigrað alla," segir Ferguson.
RIIJKARD VERÐUR REKINN
Barcelona-goðsögnin, Josep Guardiola,
hefur verið settur í biðstöðu eftir því að
taka við aðalliði félagsins. Joan Laporta,
forseti Barcelona, og aðrirstjórnarmenn
hafa verið bálreiðir yfir gengi liðsins á
timabilinuogfór
mælirinn ansi
nálægt því að
fyllast eftir 3-2
tapiðgegn Betis
um helgina þar
sem Barca leiddi
2-0. Það ertalið
öruggtaðtakist
Rijkaard ekki að
koma Barcelona
(undanúrslitin þar sem það mun mæta
Roma eða Manchester United verði
hann rekinn á staðnum. Laporta muni
þá skipa Pep Guardiola sem þjálfara
liðsins út tímabilið áður en nýr maður
verði ráðinn. Rijkaard segist sjálfur engar
áhyggjur hafa af sinni stöðu og segist
engar útskýringar geta gefið á ótrúlegu
tapi sinna manna gegn Betis um
helgina. (leiknum sást í enn eitt skiptið
hæfnisleysi Rijkaards sem þjálfara þar
sem hann sat aðgerðalaus á meðan Real
Betis hirti öll stigin af Barcelona á
fimmtán mínútum.
GETUM SLEGIÐ
ÚT BARCELONA
Mirfco Slomfca, þjálfari Schalke, hefur
biðlað til sinna manna um að hamra vel
járnið meðan það er heitt og nýta sér
slæma frammistöðu Barcelona um
helgina. Þjálfarinn trúir þv( að hans
menn geti vel slegið Spánverjana út úr
keppninni og tryggt sér þannig
farseðilinn (undanúrslitin.„Þeir hafa
fengið á sig tólf mörk í fimmtán sfðustu
leikjum. Það er mikið ef maður miðar við
önnur stórlið. Ef það er einhvern tíma
tími til að slá út Barcelona er það núna,"
segir Slomka.