Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2008, Qupperneq 23
DV Stjörnustrlð
ÞRIÐJUDAGUR l.APRÍL 2008 23
Leikfélag Menntaskólans viö Sund sýnir nú söng-
leikinn Stjörnustríð sem byggður er á fyrstu Star
Wars-myndinni. Stjörnustriðið hefur verið sett
upp í sal tvö í Austurbæ og hafa nemendurnir
siálfir unnið hörðum höndum að öllu tengdu upp-
setningunni en eins og við er að búast liggui mi y-
il vinna að baki slikum söngleik.
Iris Björk
Róberts
er emlægur
Star Wars
aðdáandi.
„Það voru aðallega Halldór Gylfason og Orn
Huginn leikstjórar sem sömdu verkið sem
þróaðist svo bara með okkur nemendun-
um sem komum að sýningunni," segir Ins
Björk Róberts í leikfélagi Menntaskólans við
Sund, Thalíu. , « ,
Nú standa yfir sýningar 1 Austurbæ a
söngleiknum Stjörnustríð sem unninn var
upp úr fyrstu Star Wars-myndinni, A New
Hope. íris segir ástæðuna fyrir því að Star
Wars hafi orðið fyrir valinu hjá leikfelag-
inu einkum vera þá að þau langaði að gera
eitthvað nýtt sem ekki hefði verið sett upp
áður. „Við vildum ekki þetta týpíska, strák-
ur hittir stelpu leikrit heldur eitthvað nýtt og
krefjandi. Svo er Star Wars líka svo góð saga
að það' er búið að vera mjög gaman að setja
þetta upp.“
Allirfáaðverameð
Það eru nemendur við Menntaskólann
við Sund sem starfa í sjálfboðavinnu við að
setja upp leikritiö, hanna búningana, farða,
setja upp ljósin og hljóðið og sjá í rauninni
um allt sem tengist uppsetningunni. „Þetta
gengur þannig fyrir sig hjá okkur að það
er leiklistamámskeið fýrir áramót sem all-
ir geta tekið þátt í og síðan eru prufur fyr-
ir leikritið en það fá allir hlutverk sem wlja
vera með. Ég get líka alveg sagt það að það
er ekkert af hlutverkunum sem er minna
eða stærra en eitthvað annað. Þau eru í raun
öll frekar stór og mjög skemmtileg."
Vandræði með húsnæði
Það hefur hins vegar ekki gengið slysa-
laust að koma Stjörnustríði á fjalirnar að
sögn írisar. „Við lentum í smá vesem með að
redda húsnæði til að setja verkið upp í. Und-
ir eðlilegum kringumstæðum hefði leiknt-
ið átt að vera sýnt í árshátíðarvikunni okk-
ar en þar sem við vorum ekki komin með
neitt húsnæði seinkaði frumsýningunm.
Svo reddaði hann Óli í Austurbæ okkur hus-
W'x'1
I
Lm
Einbeitingin skín úr augum leikarans
Skömmu fyrir frumsýningu.
næði þar í sal tvö í Austurbæ. Við fengum
ekki að fara inn í salinn fýrr en tveim vikum
fyrir frumsýningu því það var verið að sýna
annað verk þar svo það hefur venð unrnð
hörðum höndum bæði dag og nótt að þvi að
setja upp leikmynd og ljós en það reddaðist
nú allt saman og við erum mjög ánægð með
útkomuna í dag."
Heimatilbúin geislasverð
Að sögn Irisar tóku krakkarnir ákvorðun
um það að hafa alla umgjörðina sem ein-
faldasta en jafitffamt flotta. „Búningarnir eru
til dæmis ekkert það flóknir en mjög flotto
samt. Svo bjuggum við til geislasverðin með
því að kaupa sverð og skera ofan af þeim og
setja spýtur þar í staðinn sem yið máluðum
með neon-málningu. Svo er alltaf blacklight
á þegar bardagaatriðin eru í gangi. Við hetð-
um reyndar örugglega ekki getað sett þetta
upp nema með aðstoð nýkjörins ármanns
MS, Karls Sigurðssonar, sem hjálpaði okkur
mikið og sá um ljósahönnunina ásamt Hlym
Daða og Stefáni Jökli."
Einlægur Star Wars-aðdáandi
Ólíkt Star Wars-kvikmyndinni er Stjörnu-
stríð þeirra MS-inga söngleikur og eru alls sjö
þekkt popplög í sýningunni í nýjum buningi.
Gleði á lokaæfingunum Það er ýmislegt
skemmtilegt sem gengur á þegar svona margir y~pnum.
hressir krakkar koma saman.
Slagsmálaatriði aeft (Stjörnustríði er slegist
með geislasverðum og fleiri undarlegum
mmm
1
M
m*
Leikhópurinn úr Stjörnustríði Halldór
Gylfason og Orri Huginn leikstýrðu verkinu sem
sýnt er í Austurbæ.
„Albert tónlistarstjóri setti lögin í mjög speis-
aðan rafbúning en það eru lög eftir til dæm-
is Megas og Dr. Spock og lögin Back in Black
eftir AC/DC og Helter Skelter sem Bítlamir
g Sjálf segist íris vera mikill aðdáandi Star
Wars-myndanna og hafi því fagnað því vel
«I
Raddböndin þanin Alls eru sungin sjö þekkt
popp- og rokklög í sýningunni.
þegar ákveðið var að setja upp umtalaðan
söngleik. „Það má eiginlega alveg segja að ég
sé Star Wars-nörd. Ég ætti kanski ekkert að
vera að segja ffá því neitt en ég átti til dæm-
is einn búninginn sem notaður er í sýnmg-
unni. Ég fékk mömmu mína til að sauma á
mig Obi-Wan Kenobi-búning fyrir eitthvað
grímuball þegar ég var yngri. Svo var bún-
ingnum skipt í tvennt í sýningunm. Obi er
ennþá með skikkjuna en Yoda fékk að vera í
afgangnumafbúningnum."
Sýningar á Stjörnustríði standa yfir til m-
unda apríl en allar nánari upplýsingar um
leikritið og sýningartíma er að finna á heima-
síðunni stjomustrid.com. kmta@dv.is
I^LfanHarTsoícreðaHans'óíaTsöngteikmirn S^tjörnustríð^ogfetórTfót^orílarrisons'Ford
• jr mt _ __ _ _ —_ — m m m ■ MH ■ K MF 1 ■P* I
eika í íslensku leikriti
Taylor Theodore Selsback er skiptinemi
frá Minneapolis í Bandaríkjunum og hefur
verið á íslandi síðustu átta mánuðina. Hann
fer með hlutverk Hans Óla í uppsetnmgu
Menntaskólans við Sund á Stjömustríði.
Taylor talar furðugóða íslensku miðaðvið
tímann sem hann hefur dvalið á Islandi og
óskar eftir því að blaðamaður taki bara við-
talið við sig á íslensku. „Ég er búinn að fara
pínulítið á einhver íslenskunámskeið en
annars hef ég bara lært íslenskuna sjálfur. Eg
kom til íslands fýrir tveimur árum með fjol-
skyldunni minni og heillaðist af landinu. Svo
ákvað ég að koma hingað í skiptinám þvi mig
langaði að fara á einhvem stað sem væri frá-
brugðinn," segir Taylor.
Hann segir það hafa venð mjog góð-
an tíma að leika í leikritinu og ekkert allt of
strembið að leika í leikriti á íslensku. „Það
var kannski pínulítið erfitt fyrst en siðan
hefur þetta bara verið mjög gaman. Eg tala
reyndar líka á ensku í leikritinu og syng tvo
d
Taylor Theodore Selsback hefur búið á (slandi
siðastliðna átta mánuði og talar mjög goða
íslensku.
löa Annars vegar Helter Skelter og hins veg-
ar Friends-lagið, I'U Be There For You, en
með öðruvísi texta."
Aðspurður hvað hafi verið skemmtileg-
ast við þátttökuna í Stjörnustríði svarar Tayl-
or. „Það er gaman að hitta skemmttlegt fólk,
æfingarnar og svo eftirpartíin sem em allt-
af mjög skemmtileg. Mér finnst líka algjor
sniUd að það sé verið að setja upp songleik
úrStarWars."
Taylor fer aftur heim ttl Bandaríkjanna
í júní eftir ársdvöl á landinu en hann hefur
búið hér hjá íslenskri fjölskyldu. „Ég bý hjá
æðislegri fjölskyldu og er búinn að bralla ým-
islegt á Islandi. í frítímanum tjilla ég og fer i
bfltúr og hef farið í sumarbústað og skoðað
landið. Ég mæli alveg með því við vini mína
heima í Minneapolis að fara í svona skipti-
nám til íslands. Mér finnst miklu skemmu-
legra á fslandi og kem jafnvel hingað aftur tíl
að fara í háskóla." ,
Að lokum er skemmtilegt að segja fra þvi
að Taylor fagnar átján ára afmæli sínu í dag
og óskum við honum að sjálfsögðu til ham-
ingju með daginn. krista@dv.is
I