Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2008, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 1. APR(L 2008
Slðast en ekki slst DV
BÓKSTAFLega
„Ég lagðist bara í hálfgert
þunglyndi yfir páskana
ogsáengabirtu
fram undan."
ValurKristins-
son, yfirmaður
fíkniefnadeildar
tollgæslunnar á
Keflavíkurflugvelli,
missti móðinn þegar
Jóhann R. Benediktsson, lögreglu-
stjóri á Suðurnesjum, tilkynnti að
hann hygðist hætta störfum vegna
hugmynda Björns Bjarnasonar um
breytingar á embætti hans.
„Við viljum
helst gleðja
vinstri
æna sem
ra oftast."
■ Kristján L. Möller samgönguráð-
herra (lok svars síns á Alþingi við
fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur,
þingmanns vinstri grænna, um
grænarsamgöngur
31.mars.
„Vinnutími
er glataður
líftími."
■ Sigurður Harðarson
hjúkrunarfræðingur, betur þekktur
sem Siggi Pönk, um lífið og tilveruna (
24 stundum 29. mars.
„Kalli Bjarni er frábær
strákur þegar hann er
heill heilsu. Hann á mjög
erfitt um þessar mund-
ir og satt oest að segja
t v óttast ég mjög
V^> umlífhans.
. Vonandi
A nærhann
'fJr séruppúr
þessu.
■ Góður félagi Kalla Bjarna, en Idol-
stjarnan fyrrverandi var handtekin á
föstudaginn með 70 grömm af
amfetamíni (fórum sínum.
,JSJiðrí Skaftahlíð situr
svo þögull þorlaus steinn
og skrifar leiðara í boði
Baugsfeðga, hafandi ný-
svikið þá með orðhengils-
hætti íþeirra eigin blaði."
■ Hallgrímur Helgason í pistli slnum
Valdið er laust (Fréttablaðinu. En
Hallgrímur er kominn í skotskóna.
„Ekki ólíkir í
útliti."
■ Eggert
Þorleiffson leikari,
(DV, en hann
segist Kkjast
persónu sinni, Haraldi
í Stóra planinu, (útliti en ekki meira.
„Ég er viss um að þetta
takist núna, það er engin
leið að þær nái mér emr
þetta. Forskotið er það
mikið."
Ásdls Rán
Gunnarsdóttir
fyrirsæta á visir.is.
Ásdís mun að
öllum líkindum
komast í raunveru-
leikaþátt í Ástralíu.
„Margir hafa sopið hveljur
þegar ég hef sagt þeim
að Rod Stewart sé einn af
mínum uppáhaldsrokk-
tónlistarmönnum. Þeir
þekkja þá ekki plöturnar
sem við Daníel Ág-
úst höfum hlust-
aðá."
■ Egill Helgason á
bloggi sínu en hann
fann hauk í horni þegar
upp komst að
Daníel Ágúst væri
aðdáandi Rods
Stewart.
GEIRAÐGERÐALAUS
KÓNGUR í RÍKISÍNU
Sturla Jónsson atvinnurek
andi er í forsvari fýrir mótmæli
vörubílstjóra sem eru óánægðir með
vökulögin og álögur ríkisins á
eldsneyti.
Hver er maðurinn?
„Sturla Jónsson, maður í þágu
fólksins."
Hvað drífur þig áfram?
„Mikil réttlætiskennd og viljinn
til þess að hafa ofan í mig og á. Ég
er á því að menn eignist peninga á
heiðarlegum hátt, án þess að það
bitni á öðrum."
Hvaðan ert þú?
„Ég er úr Deildartunguætt í föð-
urætt en úr móðurætt er ég af Hóls-
fjöllum. Ég er frændi samherja-
manna."
Átt þú stóra fjölskyldu?
„Já, gríðarlega stóra. Eitthvað á
fimmta hundrað manns er skylt mér
á einn eða annan hátt."
Hver eru þín áhugamál?
„Lífið sjálft."
Hvert er draumastarfið þitt?
„Það væri draumur að geta haft
það jafnnáðugt og Geir H. Haarde
forsætisráðherra sem situr aðgerða-
laus eins og kóngur í ríki sínu og
hugsar ekki um annað en sjálfan
sig."
Ætlar þú til útlanda í sumar?
„Nei, maður þarf að reyna að láta
vélarnar snúast á þeim krepputím-
um sem nú ríkja. Skynsemin seg-
ir mér að fara frekar út að vetri til,
þegar skammdegið og kuldinn herja
á landið. Ég reyni því oftast að fara
út þegar dimmast er á landinu."
Hvar myndir þú vilja búa,
ef ekki á (slandi?
„Bandaríkjunum. Þar er gott að
vera enda hef ég margoft komið
þangað."
Hvernig finnst þér mótmælin
hafa heppnast hingað til?
„Hvað almenning varðar hafa
þau tekist gríðarlega vel. Ég er hins
vegar elcki jafnánægður með við-
brögð ráðamanna."
Hvað er viðunandi að
olíuverð sé hátt?
„Ef við miðum okkur við Banda-
ríkin, sem eru umsvifamikil í olíu-
viðskiptum, ætti lítrinn ekki að kosta
meira en svona 75 krónur."
m
■
■
Eru kröfurnar raunhæfar?
„Já, þær eru raunhæfar."
Hversu lengi munuð
þið mótmæla?
„Fólk mun mótmæla þangað til
ráðamenn framkvæma hlutina. Fólk
vill ekki að þetta fari í nefnd.“
Hafið þiðfengið
mikinn stuðning?
„Níutíu og fimm prósent þjóð-
arinnar styðja við bakið á okkur í þess-
um mótmælum. Þessi mótmæli eru
í þeirra þágu og fólk styður sjálft sig
gegn álögum ríkisins."
Hvað er næst á dagskrá?
„Við munum halda áfram að beijast
við ríkið. Ég hvet alla landsmenn til að
taka þátt í mótmælunum á Austurvelli
í dag og sýna sjálfum sér stuðning."
SANDKORN
■ Geiri Ólafssyni stórsöngv-
ara er fleira til lista lagt en að
syngja. Geir reynir nú fyrir sér
sem umboðsmaður og hans
fyrsti skjól-
stæðingur
er Birg-
ir Gunn-
arsson,
eða Biggi
Gunn eins
og hann er
einnig kall-
aður. Biggi
sendi nýlega frá sér plötuna I
Was Younger Than en á henni
syngur Biggi gamla íslenska
slagara með enskum texta og
heftir vakið athygli vestanhafs.
■ Þeir sem fylgjast með Manna-
veiðum á RUV vita nú að bank-
inn Glitnir er flæktur inn í sögu-
þráðinn. Eitt fórnarlambanna
starfaði hjá bankanum og einn
þeirra grunuðu er í brúnni.
Glöggir hafa væptaniega tekið
eftir því að Glitnir er einn styrkt-
araðila þáttarins, en það er tek-
ið fram í bæði byrjun og lokin.
Ótrúleg tilviljun, kannski ekki.
Spurt er, getur hver sem er keypt
sig í söguþráðinn?
■ Þessu tengt; spennuþætt-
ir í sjónvarpi eru mikið í um-
ræðunni þessa dagana eftir
að Pressan var sýnd á Stöð 2
fyrr í vetur og Mannaveiðar
fylgdu svo
í kjölfarið.
Danir hafa
stundað
slíka þátta-
gerð í fjölda
ára eins og
íslendingar
hafa fengið
að kynn-
ast og látið afar vel af. Dönsku
fræðimennirnir Gunhild Agg-
er og Ib Bondebjerg halda
fyrirlesturinn Dansldr sjón-
varpsþættir, hver er galdurinn?
í Háskóla íslands í dag klukkan
16.30. Þar fjalla þeir meðal
annars um einkenni danskra
sjónvarpsþátta og að hve
miklu leyti þeir endurspegla
danskan veruleika. Fyrirlestur-
inn fer fram í stofu 222 í Aðal-
byggingu skólans.
Stóra planiö var aðsóknarmesta mynd helgarinnar sem leið:
Tæplega 6.000 á Stóra planið
„Þetta er bara prýðileg byrjun og
gott að fólk tekur vel í þetta," seg-
ir Ólafur Jóhannesson en myndin
hans Stóra planið fékk góða að-
sókn um helgina og var aðsókn-
armesta myndin. Frá föstudegi
til sunnudags lögðu 5.872 manns
leið sína á myndina sem er fyrsta
leikna myndin sem Ólafur leikstýr-
ir. „Ég hef þá reglu í lífinu varðandi
þetta eins og ástarsambönd. Það
er ágætt að hafa væntingar nálægt
núllinu," segir Ólafur glettinn þeg-
ar hann er spurður hvort tölurnar
hafi staðist væntingar hans.
Tekjur myndarinnar á þessari
ffumsýningarhelgi voru 5.983.200
krónur sem verður að teljast
nokkuð gott. Myndin í öðru sæti
um helgina var Vantage Point
með þeim Dennis Quaid, Forest
Whitaker og Matthew Fox úr Lost
í aðalhlutverkum. Hún þénaði
1.619.900 krónur en 2.068 lögðu
leið sína á hana.
Þessar fyrstu aðsóknartölur
Stóra plansins gefa góð fyrirheit
en það er langt í land ef myndin
ætlar að stjaka við Brúðguman-
um sem er aðsóknarmesta mynd-
in hér heima það sem af er árinu.
Hún hefur þénað yfir 45 milljón-
ir króna sem er meira en Astrópía
gerði á síðasta ári en hún var tekju-
hæst 2007.
asgeir@dv.is
Benedikt Erlingsson og Ólafur
Jóhannesson Stóra planið þénaði
tæpar sex milljónir á sinni fyrstu helgi.