Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2008, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 3. APRlL 2008
Ættfræði B>V
TIL
HAMINGJU
IVIEÐ
AFMÆLIÐ
60ARAIDAG
30 ÁRA AFMÆLI
■ Christian Sögaard Bredtoft Furugrund38, Kópavogur
■ Maria Cecilia Brander Mánagötu 1, Reykjanesbær
■ Mariusz Prawdzik BirkitúniS, Garður
■ Robert Zielinski Kjarrhóima 12, Kópavogur
■ Ivar Hermann Unnþórsson Skógarbr. 929, Reykjanesb.
■ Berglind Sigurðardóttir Eyjahrauni28, Þorlákshöfn
■ Sigurður Gunnarsson Njarðargötu47, Reykjavík
■ Agnar Ebeneser Agnarsson Skipagötu 12, Isafjörður
■ Ólafur Ágúst Agnarsson Skipagötu 12, Isafjörður
■ Matthildur Ósk Matthíasdóttir Katrínarlind8, Reykjavík
■ Olga Shcheblykina Blöndubakka 18, Reykjavik
40 ÁRA AFMÆLI
■ Adam Janusz Patrowicz Sveinskoti, Álftanes
■ Muhammad Saleh Hvammseyri, Egilsstaðir
■ Algima Marcinkeviciené Dalsbyggö2, Garðabær
■ Marek Ryszard Gladkowski Akurhvarfí 1, Kópavogur
■ Róbert Sveinn Róbertsson Frostaskjóli 11, Reykjavík
■ Dagný Berglind Jakobsdóttir Berjarima 14, Reykjavik
■ Kristín Erludóttir Laugarnesvegi42, Reykjavik
■ Jóhanna Jóhannsdóttir Arnarsmára 10, Kópavogur
■ Þorbjörg J. Guttormsdóttir Þrastarhöfða 7, Mosfellsbær
■ Jóhanna Hjaltalín Ægisgötu 29, Akureyri
■ Regína Loftsdóttir Laugarnesvegi 74, Reykjavík
■ Kolbrún Sigþórsdóttir Laufási, Hella
■ Eyjólfur Þ Ingvarsson Úthaga 6, Selfoss
50 ÁRA AFMÆLI
■ Andrzej Adam Cybulski Reykjabraut2, Þorlákshöfn
■ Ryszard Miroslaw PosnikSóleyjargötu6,Akranes
■ Ólafur Björn Sveinsson Hraunstíg4, Bakkafjörður
■ Jóhann Sigurfinnur Bogason Skólabraut 1, Seltjarnarn.
■ Haukur Geir Guðnason SuðurásiS, Reykjavík
■ Hulda Lilliendahl Kóngsbakka 16, Reykjavík
■ Sigríður Rúnarsdóttir Árholti20, Húsavík
■ Helgi Már Pálsson Þingvallastræti 12,Akureyri
■ Svanhvít Jakobsdóttir Viðarási 37, Reykjavík
■ Ingiríður Sigurðardóttir Kringlumýri 3, Akureyri
■ Alda Valgarðsdóttir Hraunhólum 7, Garðabær
■ Þórdís Ólafsdóttir Bollasmára 9, Kópavogur
■ Jón Júlíus Hafsteinsson Seljabraut22, Reykjavík
■ Helgi Geir Sigurgeirsson Furugrund 16,Kópavogur
60 ÁRA AFMÆLI
■ Kazimiera Wadolowska Sambyggð 12, Þorlákshöfn
■ Sigríður Jónatansdóttir Unnarbraut 12, Seltjarnarnes
■ Ingólfur I Jónasson Helluvaði 1, Mývatn
■ Helgi Aðalsteinsson Ofanleiti 11, Reykjavík
■ Gunnlaug J.Magnúsdóttir Dofrabergi 1, Hafnarfj.
■ Hafsteinn O Þorsteinsson Hraunbæ 156, Reykjavik
h Halldór Georgsson Síreksstöðum, Vopnafjörður
■ Kai Storgaard Hringbraut46, Reykjavík
70 ÁRA AFMÆLI
■ Jón Hjálmarsson Ásfelli2, Akranes
■ Perla Hjartardóttir Túngötu 13, Eskifjörður
■ Guðmundur Pálsson Flúðaseli 78, Reykjavik
■ Elvar Kristjónsson Vogatungu 95a, Kópavogur
■ Bjarni Böðvarsson Þinghóli, Hvolsvöllur
75 ÁRAAFMÆLI
■ Kristbjörg Sigurbjörnsdóttir Bogahllðó, Reykjavík
80 ÁRA AFMÆLI
■ Erla Jónsdóttir Birkihæð4, Garðabær
■ Hallgerður Sigurgeirsdóttir Grandavegi47, Reykjavík
■ Áslaug Jónsdóttir Dalbraut 16, Reykjavík
■ Jórunn Ásta Hannesdóttir Arnarsmára 22, Kópavogur
■ Guðni Albert Guðnason Eyrarvegi 7, Flateyri
■ Valgeir Sighvatsson Noröurgarði 3, Reykjanesbær
EINARSVEINSSON
FYRRV. FORSTJÓRI SJÓVÁR-ALMENNRATRYGGINGA HF.
Einar Sveinsson, fyrrv. forstjóri Sjóvár-Al-
mennra trygginga hf., er sextugur í dag.
STARFSFERILL
Einar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í
foreldrahúsum að Miklubraut 52. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1968 og var við nám við
DTH og HÍ næstu árin. Einar hófstörfhjá Sjó-
vátryggingafélagi íslands hf. 1972. Frá 1984
var hann framkvæmdastjóri félagsins sem ffá
1989 varð Sjóvá-Almennar og gegndi hann
forstjórastöðu til ársins 2004. Einar vann þvf
við vátryggingar í 32 ár og var forstjóri félags-
ins í 20 ár.
Einar var formaður Verslunarráðs íslands
1992-96. Frá 1991 sat hann í stjórn íslands-
banka, síðar Glitnis, og var formaður 2004 til
2007. Auk þess hefur Einar setið í stjórnum
fjölmargra fyrirtækja, einkum tengdum fjár-
málum, sjávarútvegi og flutningum.
FJÖLSKYLDA
Eiginkona Einars er Birna Hrólfsdóttir, f.
4.2. 1948, grunnskólakennari. Hún er dóttir
Hrólfs Benediktssonar, f. 23.8. 1910, d. 16.9.
1976, prentsmiðjustjóra og eiganda Offset-
prents í Reykjavflc, og k.h., Ástu Guðmunds-
dóttur, f. 31.3.1917, d. 27. 5. 2003, húsmóður
í Reykjavík.
Börn Einars og Birnu eru Ásta Sigríður, f.
16.9. 1971, B.Sc. í hagfræði og MBA, gift Jóni
Birgi Jónssyni, M.Sc. í stærðfræði. Þeirra börn
eru Einar Örn Jónsson, f. 3.7. 1997, Krist-
ín María, f. 12.12. 2001, og Helga Margrét, f.
6.11.2004, en þau eru búsett í London. Hrólf-
ur, f. 12.11. 1974, læknir, kvæntur Aðalbjörgu
Björgvinsdóttur lækni. Þeirra börn eru Björg-
vin, f. 3.12. 1998, og Birna, f. 10.04. 2001. Þau
eru búsett í Gautaborg. Benedikt, f. 22.10.
1981, laganemi við Hf, í sambúð með Birgittu
Haukdal Brynjarsdóttur tónlistarmanni.
Systkini Einars eru Benedikt, f. 31.7.1938,
hrl., búsettur í Garðabæ; Ingimundur, f. 21.4.
1942, arkitekt í Reykjavík; Guðrún, f. 25.10.
1944, lögfræðingur og bóndi á Þorgrímsstöð-
um.
Foreldrar Einars voru Sveinn Benedikts-
son, f. 12.5.1905, d. 12.2.1979, framkvæmda-
stjóri í Reykjavík, og k.h., Helga Ingimundar-
dóttir, f. 23.12.1914, d. 20.1 2008, húsmóðirí
Reykjavík.
ÆTT
Meðal föðursystldna Einars má nefna Pét-
ur, alþm., bankastjóra og sendiherra, föður
Ólafar dómstjóra sem lést 20.3. 2008; Bjarna
forsætisráðherra, föður Björns dómsmála-
ráðherra; Kristjönu, móður Halldórs Blöndal,
fyrrum forseta Alþingis; Ólöfu menntaskóla-
kennara, móður Guðrúnar Guðjónsdóttur
kennara, og Guðrúnu, móður Benedikts Jó-
hannessonar stærðfræðings. Sveinn var son-
ur Benedikts alþingisforseta Sveinssonar,
gestgjafa á Húsavík, bróður Björns, afa Guð-
mundar Benediktssonar, fyrrv. ráðuneytis-
stjóra. Sveinn var sonur Magnúsar, snikkara
á Víkingavatni, Gottskálkssonar, bróður Guð-
mundar, afa Jóns Trausta.
Móðir Sveins var Guðrún Pétursdótt-
ir, útvegsb. í Engey, Kristinssonar, útvegsb.
þar, Magnússonar. Móðir Péturs var Guðrún
Pétursdóttir, systir Guðfinnu, ömmu Bjarna
Jónssonar vígslubiskups.
Helga var dóttir Ingimundar, b. í Kaldár-
holti í Holtum, Benediktssonar, ráðsmanns
á Breiðabólstað í Fljótshlíð, Diðrikssonar,
b. á Skeggjastöðum, bróður Sveins, afa Ein-
ars Benediktssonar skálds. Diðrik var son-
ur Benedikts, pr. í Hraungerði, Sveinssonar.
Móðir Benedilás var Anna, systir Jóns Eiríks-
sonar konferensráðs. Móðir Ingimundar var
Kristín Þórðardóttir af Víkingslækjarætt, syst-
ir Guðlaugar, móður Jóns Ólafssonar banka-
stjóra.
Móðir Helgu var Ingveldur Einarsdóttir,
b. á Hæli, Gestssonar, afa Steinþórs, alþm. á
Hæli, föður Gests skattstjóra. Amma Helgu
var Steinunn, systir Guðrúnar, langömmu
Ingibjargar, móður Davíðs Oddssonar seðla-
bankastjóra. Steinunn var dóttir Vigfúsar
Thorarensen, sýslumanns á Borðeyri. Móð-
ir Vigfúsar var Guðrún Vigfúsdóttir, sýslu-
manns á Hlíðarenda í Fljótshlíð, Þórarins-
sonar og Steinunnar Bjarnadóttur landlæknis
Pálssonar.
Elín Ólafsdóttir
HÁRGREIÐSLUMEISTARI og nemi að BIFRÖST
Elín fæddist í
Reykjavík en ólst upp í
Mosfellsbænum fyrstu
árin og síðan í Skaga-
firði. Hún var í Varmár-
skóla í Mosfellssveit,
Grunnskólanum á
Hofsósi og í Varmahh'ð-
arskóla. Hún stundaði
síðan nám við Iðnskól-
ann í Hafnarfirði og
lauk þaðan sveinsprófi
í hárgreiðslu 1998, öðl-
aðist meistararéttindi
árið 2000 og stundar nú
nám á frumgreinadeild
við háskólann á Bifföst.
Elín vann í fiski á unglings-
árunum, var hárgreiðslumeist-
ari á stofum í Reykjavík og við
Borgarleikhúsið 1998-2002, og
starfrækti eigin hárgreiðslustofu
á Lambanesi í Fljótum 2003-
2007.
FJÖLSKYLDA
Dóttir Elínar er
Embla Sól Óðinsdóttir,
f. 21.11. 2004.
Albróðir Elínar
er Guðjón Ólafsson,
f. 1980, stálsmiður í
Reykjavík.
Hálfsystur Elínar,
sammæðra, eru Stef-
anía Gunnarsdóttir, f.
1992; Fanney Gunnars-
dóttir, f. 1993; Bjarney
Gunnarsdóttir, f. 1999.
Hálfbræður Elínar,
samfeðra, eru Aron Ól-
afsson, f. 1994; Axel Ólafsson,
f. 2000.
Foreldrar Elínar eru Ólafur
Árnason, f. 1957, þjónustufull-
trúi hjá Brimborg, og Hólm-
fríður Bergþóra Pétursdóttir,
f. 1958, bóndi og húsffeyja að
Stóra-Holti í Fljótum.
Ólína Freysteinsdóttir
VERKEFNASTJÓRI RANNSÓKNA- OG ÞRÓUNARMIÐSTÖÐVAR HA
Ólína fæddist í Nes-
kaupstað og ólst þar
upp. Hún var í Bama-
skólanum í Neskaup-
stað, laukprófi sem
snyrtiff æðingur frá FB
1992 og lauk BA prófi
í nútfrnafræði við HA
2005.
Ólína var búsett í
Reykjavík 1986-92 en
flutti þá til Akureyr-
ar þar sem hún hefur
átt heima síðan. Hún
stundaði fiskvinnslu í
Neskaupstað á ungl-
ingsárunum, starfaði í apótekinu
í Neskaupstað og við kynningu á
snyrtivörum, vann á snyrtistof-
um á Akureyri og var jafnfr amt
kynningarstjóri fyrir Norðaustur-
land á Karen Herzog-snyrtivör-
um um skeið. Ólína vann fyrir
HA við vaxtasamning Eyjafjarð-
ar 2006-2008 en hefur
verið verkefriastjóri
rannsókna fyrir HA frá
síðustu áramótum.
FJÖLSKYLDA
Eiginmaður Ólínu er
Viðar Ólafsson, f. 12.5.
1966, kerfisfræðingur
hjá HugurAx.
Böm ÓlínuogVið-
ars em Freyja, f. 25.11.
1989; Freysteinn, f. 6.4.
1994; Heiða Ragney, f.
10.10.1995. Foreldrar
Ólínu em Freysteinn
Þórarinsson, f. 26.12.1935, fyrrv.
verkstjóri í Neskaupstað, og
Steinunn Stefánsdóttir, f. 19.10.
1936, húsmóðir. I tilefni dagsins
mun Ólína þeysast um landið til
að sýna stuðning sinn við ráða-
menn og olíufélög vegna sann-
gjams eldsneytisverðs.
Regína Loftsdóttir er fertug í dag:
Fáum okkur kannski feita köku
„Ég er eiginlega búin að bíða eftir þess-
um tímamótum. Ég vil samt ekki segja af
hveiju því það er eiginlega of persónulegt,"
segir Regína Loftsdóttir, afmæiisbam dags-
ins, sem er fertug í dag. „Ég er því mjög
ánægð með þetta. Vonandi fer ég núna líka
aðeins að þroskast."
Regína ætlar út að borða með bömunum
sínum tveimur í tilefni dagsins. „Ég veit ekki
hvert við fömm, bara eftir því hvað okkur
langar.í. Kannski fáum við okkur feita köku
eða eitthvað svoleiðis. Ég er annars ekkert
fyrir það að halda aftnælisveislur. Það em
eiginlega allir í kringum mig sem vilja það,
en ekki ég. Ég bara er ekki þessi sviðsljós-
stýpa."
Regína segir að veisla hafi verið haldin
þegar hún varð þrítug. „Þá átti ég mann sem
hélt afmælisveislu. Það var mjög gaman eftir
á, en það var alveg nóg."
Aðspurð hvort Regínu langi í eitthvað sér-
stakt í afmælisgjöf stendur ekki á svari. „Mig
langar í töng tÚ að strekkja striga á blind-
ramma," segir hún en Regína er myndlistar-
kona. „Ég held að ég fái hana frá stráknum
mínum. Hann veit af þessu og hvar töngin
fæst og allt."
Frá dóttur sinni, sem er átta ára, er Reg-
ína nú þegar búin að fá litla dótafallhlíf sem
sú htla bjó til sjálf. „Ég ætla nefnilega að fara
í fallhh'farstökk seinna á árinu," segir Regína.
„Ég er búin að tilkynna það svo mörgum að
ég get ekki bakkað með það."
kristjanh@dv.is
Regína Loftsdóttir Fékk dótafallhlíf í
afmælisgjöffrá dóttursinni því Regína
ætlar í fatlhlífarstökk seinna á árinu.