Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2008, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2008, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 3. APRlL 2008 Fréttir DV Biblían Kaþólska kirkjan í Noregi glímir við mikinn fjárhags- vanda. Ohætt er aö segja að kaþ- ólska kirkjan standi frammi fyrir erfiöu vandamáli. Meö tilkomu fjölda farandverkamanna frá Austur-Evrópu hefur söfnuöinum vaxiö svo fiskur um hrygg aö færri komast til messu en vilja. Á sama tíma stendur kaþólska kirkjan frammi fyrir gríðarlegum fjár- skorti, sem stendur henni verulesa fvrir brifum. r: v. KIRKJ KOLBEINN ÞORSTEINSSON bladamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Að kirkjugestum flölgi hefur löngum verið gleðiefni presta og trúarstofn- ana. Kaþólska kirkjan í Noregi hefur undanfarið átt því láni að fagna og norska dagblaðið Dagsavisen drap á þessa þróun fyrir skömmu. Orsakir þróunarinnar í Noregi má rekja til þess gífurlega fjölda far- andverkamanna frá Austur-Evrópu, sér í lagi frá Póilandi, og Eystra- saltslöndunum sem komið hefur til landsins undanfarin ár. En böggull fylgir skammrifi því kaþólska kirkj- an í Noregi stendur frammi fyr- ir miklum fjárskorti, kirkjur eru of fáar og of litlar og álag á prestum er mikið. í Sankti Ólafskirkju í Ósló eru haldnar messur frá morgni til kvölds hvern sunnudag. Fjórar messur á pólsku og ellefu messur á norsku, ensku, króatísku, spænsku, víetnömsku og fyrir Filippseyinga. Á hefðbundnum sunnudegi taka um fimm þúsund manns þátt í messu- haldi í Sankti Ólafskirkju og kirkjan fyrir margt löngu orðin of lítil til að bera þann fjölda. Pólverjar að baki fjölgun inni Til að fá sæti þurfa kirkjugestir að mæta snemma, allt að hálftíma áður en messa hefst, og að skrópa er ekki fysilegur kostur að mati Pól- verja. Pólverjar eru meðal duglegustuþjóðaíEvrópu I þegar kemur að kirkju- sókn. Níutíu prósent, um þrjátíu sex milljónir, íbúa Póllands eru kaþólikkar og tveir þriðju hlutar þeirra sækja messu hvem einasta sunnudag. í þeirra huga er kirkjan ekki aðeins stað- ur fyrir skriftir og sáluhjálp heldur einnig mikilvægur þáttur í félagslífi þar sem fólk hittist og vandamál eru leyst. Hjónin Isabela Polinska og Pavel vom á meðal kirkju- gesta þegar blaðamaður Dagsavisen kynnti sér málið. „Frá blautu bamsbeini erum við alin upp við að sækja messu hvern sunnudag. Fyr- ir okkur sem nýinnflutta inn- flytjendur til Noregs hefur kirkjusókn fengið nýja vídd. Þegar við erum hér finnum við til sterkra tengsla við fjöl- skyldur okkar heima í Póllandi," sagði Isabela Polinska. Prestar fluttir inn Kaþólska ldrkjan í Noregi er við að kikna undan þeim mikla fjölda farandverkamanna sem streymt hafa til landsins frá Austur-Evr- ópu eftir að Evrópska efnahags- svæðið var stækkað til austur 2004. Á hefðbundnum sunnudegi taka um fímm þúsund manns þátt í messuhaldi í Sankti Ólafskirkju og kirkjan fyrir margt löngu orðin oflítil til að bera þann fjölda. Skráðum kaþólikkum hefur fjölgað um fjömtíu prósent síðan þá, en talið er að á milli eitt hundrað þúsund og eitt hundr- að og tuttugu þúsund Pólverja séu í landinu. Fimmtán pólskir prestar em á launaskrá og af þeim hafa átta verið fluttir inn frá Póllandi síðan 2004. En Pólverjar em ekki eina þjóðin sem sótt hefur til Noregs, því orðrómurinn um góð atvinnutækifæri hefur laðað að fleiri austurevr- ópskar þjóðir, til dæmis Slóvena og Litháa. Um tuttugu þúsund Litháar em búsettir í Noregi, en enn um sinn verða þeir að láta sér nægja guðs- þjónustu á öðm tungu- máli en þeirra eigin. Kassinn tómur í höfuðstöðvum kaþólsku kirkjunn- ar í Ósló situr Thuan Cong Pham fjármálastjóri og reyn- ir af fremsta megni að henda reiður á fjárhag kirkjunnar. Pham er útlærður hagfræðingur frá Viðskiptaháskóla Noregs, og sem slíkum vel ljóst mikilvægi þess að trúsamfélög njóti fjárhagslegs jafn- vægis. „Getur kirkja orðið gjaldþrota? Ég vona sannarlega ekki,“ sagði Pham í viðtali við Dagsavisen. En hættumerkin em skýr; eiginfjár- staðan er bágborin og staflinn af ógreiddum reikningum fer sífellt stækkandi. Að sögn Pham var údit- ið sérstaklega svart upp úr áramót- um, en kirkjunni var bjargað fyr- ir horn með skammtímaláni upp á rúmlega þrjátíu og sjö milljónir ís- lenskra láóna, en kirkjan er veru- lega skuldsett með yfir þrjú hundr- uð milljóna lán á baldnu. Thuan Cong Pham segir að í versta falli geti kröfuhafar gengið að fasteign- um kirkjunnar. Að páfinn í Róm sitji á ómetan- legum verðmætum í formi lista- verka og fasteigna breytir ekki miklu fyrir undirsáta hans í Nor- egi. Sankti Péturskirkjan í Róm og Sixtínska kapellan em ómetanleg- ar, en tryggðar fyrir eina evru hvor um sig. Pham sagði að orðrómurinn um gífurleg auðæfi kaþólsku kirkjunnar væri mýta sem hann vildi geta kveð- ið í kútinn. „Við eigum enga leynda sjóði og fáum engar millifærslur frá Vatfkaninu," sagði Pham.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.