Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2008 Fréttir DV ÞETTA HELST - ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST ÍVIKUNNI LÖGGATEKUR PILT HÁLSTAKI Myndband af harðri fram- göngu lögreglumanns gagnvart unglingspilti vakti mikla athygli í vikunni. Lögreglumanninum var vikið úr starfi tímabundið á með- an mái hans er rannsakað. Lög- reglumaðurinn sem sést á mynd- bandinu heitir Sigurður Pétur Ólafsson og lauk námi í lögreglu- skólanum fyrir nokkrum árum með þriðju hæstu einkunn allra nemenda, eða 8,39 í meðaleink- unn. Þeir sem DV náði tali af og þekkja til Sigurðar Péturs segja sér hafa brugðið mjög. Gamall vinnufélagi Sigurðar Péturs segir hann mikinn rólyndismann sem aldrei hafi verið þekktur fyrir ofbeldi eða æsing. Fyrrverandi skólafélagi segir hann vera kurteisan og koma vel fyrir. ; SGUROUR PETUR ÖLAfSS0N TOK UNGUNÖ KVERKATAKt toppnemi ILOGREGLU ISKÓLA * EtHgöur d«afancrúður uHrlkfll*gL“i«glr móðlrin NAKINN NÁGRANNI Stunainn á leið úrTívolí SS VARNARLAUS GEGN NÖKTUM NÁGRANNAL FJOLSKYLDAN GETUR EKKERT GERT jA, EG GERÐI ÞETTA," SEGIRHANN ÆB _______________w FÁÐU FIT-KOSTNAÐINNTILBAKi Fjögurra manna fjölskylda í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði hefúr þurft að glíma við nágranna sem áreitt hefur konuna um nokkurt skeið. Síðasta mánudag stóð ná- granninn nakinn í dyragættinni í íbúðinni sinni og fitlaði við sig þegar konan var á leið til vinnu. Lögreglan hefur tekið skýrslu af nágrannanum, sem segist vera alveg hættur að gera þetta. Eigin- maður konunnar viðurkennir að hann óttist um öryggi fjölskyldu sinnar með þennan mann bú- settan í blokkinni. „Ég er búinn að hitta hann eftir þetta og hellti mér alveg yfir hann. Honum brá greinilega og lofaði að hann myndi aldrei gera þetta aftur." GUNNARWATHNEIVANDA 0 LOFAÐI TVÖFALDRI V AV0XTUNV& Gunnar Stefán Wathne, hefur verið kærður í Bandaríkjunum fýrir að hafa svikið fé út úr konu með því að telja hana á að fjárfesta í fasteign í Moskvu. Hann lofaði henni að fjárfestingin myndi tvöfaldast á tveimur mán- uðum. Fyrirtækið Wathne Corp., sem móðursystir hans, Berg- Ijót Wathne, er í forsvari fyrir, er einnig kært vegna fjársvikanna. Gunnar bíður enn dóms vegna ákæru á hendur honum um að hafa þvættað rúmlega 200 millj- ónir króna. Konan segir Gunnar Stefán hafa lofað henni að ef hún fjárfesti fyrir 150 þúsund Bandarfkjadollara, sem samsvarar tæplega 11 milljónum króna, í rússneskri fasteign myndi fjárfesting hennar tvöfaldast að verðmæti á tveggja mánaða fresti. HANN ER ENGINN BÓFI Jónas Gunnarsson var dæmdur í fimm mán- aða fangelsi fyrir að hafa í tvígang stolið sér til matar í febrúar síðast- liðnum. Jónas stal meðal annars bollasúpu í 10-11 fýrir . 250 krónur. Hann er sviptur fjár- ræði og sjálfræði og hefur átt við geðræn vandamál að stríða um langt skeið. „Ég held að hann sé ekki sakhæfúr, hann er geðveik- ur og hefur verið um langt skeið. Ég hélt að slíkir menn væru ekki lokaðir inni í fangelsi," sagði Halldóra Gvmnarsdóttir, systir hans, í viðtali við DV. „Ég hef áhyggjur af honum því hann er enginn bófi." Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir erfitt að tjá sig um einstök mál. „Stundum getur það hins vegar verið þannig að menn geri sér sjálfir grein fýrir eðli málsins til að fara í fangelsi, en í flestum tilvikum er það betra að þeir fái að fara á ákveðnar deildir." GEÐSJUKUR í FANGELSI FYRIRSÓPU isulfyrtiiúiumlkiíinur HITTMALIÐ Sigurður Helgi Guðjónsson. formaður Húseig- endafélagsins, hefur marga fjöruna sopið á löngum starfsferli sín- um. Hann hefur um árabil reynt að miðla málum og finna lausnir á nágrannaerjum af ýmsum toga. Hann segir hér frá deilumáli sem á sér fáar hliðstæður. BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is Sigurður Helgi Guðjónsson Hefur í áraraðir reynt að miðia málum í nágrannadeilum Ráðþrota maður frá Isafirði hafði samband við Húseigendafélag- ið fyrir nokkrum árum og bar sig illa. Hann hafði um nokkurt skeið þurft að horfa upp á dónaleg, ögr- andi og meiðandi orð og teikningar á bílskúrsvegg nágranna síns. Þessi ófögnuður blasti við úr stofu- og eld- húsglugga mannsins sem vildi vita hvort nágrannar mættu mála hvaða viðbjóð sem er á veggina sína. Fóm- arlambið skulum við hér nefna Jón. Svívirðingar og hótanir „Jón tók fram að málarinn hefði lengst af verið hinn prúðasti. Þeir hafi raunar verið ágætis félagar þar til hann hafi fengið þá flugu í höfuðið að Jón ætti vingott við konuna hans," segir Sigurður og bætir við: „Hann sagði að það væm liins vegar ýkjur og nánast úr lausu lofti gripið, eða þannig. Fram að þessu hafði gafl- inn verið einlitur og ekki sært blygð- unarsemi neins. Jón sagði hins veg- ar að nú væru þar hæðnisleg og klúr skilaboð, dónalegar myndir og teikn- ingar. Þar væm hreinar svívirðingar, dónaskapur, klám og jaftivel dulbún- ar hótanir," rifjar Sigurður upp. Jón sagðist þess fullviss að þetta beind- ist allt ljóst og leynt að sér vegna áð- umefnda ranghugmynda nágrann- ans. Þessar teikningar yllu fjölskyldu sinni mikilli armæðu og hugarvíli. Konan sín væri buguð og eyðilögð og tengdaforeldrarnir gætu ekki leng- ur komið í heimsókn. „Hann bar sig afar illa og sagði að ókunnugt fólk væri farið að koma í skoðunarferðir og hefði af því gaman," segir Sigurð- Siðferðileg hundahreinsun Jón hafði að eigin sögn ítrekað rætt við listrænan nágranna sinn og reynt að koma fýrir hann vitinu, reynt að fá hann til að mála yfir við- bjóðinn. „Hann neitaði því og sagði að hórkörlum væri bara hollt að fá siðferðislega hundahreinsun og vera minntir á boðorðin og brot á þeim. Hann réði því sjálfúr hvar og með hvaða hætti hann tjái sig og spyrði hvorki kóng né prest um það," segir Sigurður. Biblíutilvitnanir á bílskúrsvegg Sigurður segir það gamla sögu og nýja að áhrif og áreiti sé háð því sem fer fram í huga þess er horfir og les. Það þurfi alltaf einhvern til að túlka hlutina, en góð og gild boðorð séu ein og sér ekki gerð til að særa, jafnvel þótt þeim fýlgi myndskreyt- ingar. Það sem vekur ógeð og óhug getur öðrum verið til ánægju og ynd- isauka. „Þeir sem hafa misjafnt mjöl í sínu hjónapokahomi horfa á slíkt og túlka með angist, kvöl og pínu meðan við hinir erum sælir og sátt- ir við guð og menn," segir Sigurður en hann mat það svo að erfitt væri að fá biblíutilvitnanir á bílskúrsgafli bannaðar með lagalegum aðferðum, jafrivel þótt þau kunni að koma mjög illa við einhverja, eins og þessi. Hann sagðist þó hafa sett spumingarmerki um heilsu fólks sem skreytti hús sín með djöflamyndum eða dulbúnum hótunum. Ýmis úrræði Þrátt fýrir eðli málsins segir Sig- urður að nágranninn, sem taldi sig verða fyrir þessum svívirðilegu árás- um, hefði getað nýtt sér ýmis lagaúr- ræði. „Þarna gat verið um hegning- arlagabrot að ræða sem kæra má til lögreglu. Hótanir em refsiverðar. í svívirðingum, hvort heldur em í orð- um eða myndum, geta falist æm- meiðingar. Einnig kemur til álita hvort þarna hafi verið brotið gegn blygðunarsemi með lostugu athæfi. Þá kann að hafa verið brotið gegn Frá (safirði Hér má sjá myndirnar umræddu. „Hann neitaði því og sagði að hórkörlum væri bara hollt að fá siðferð- islega hundahreinsun og vera minntir á boð- orðin og brot á þeim." klámákvæði hegningarlaga en það er eins og alþjóð veit bæði loðið og teygjanlegt," segir Sigurður og bæt- ir því við að hugsanlega hefði mátt skoða hvort þessar teikningar gætu verið refsiverðar sem guðlast. Þá hefði þetta einnig getað verið brot á byggingarlöggj öfinni, ef byggingar- yfirvöld teldu údit hússins til óprýði. „Sá sem þurfti að horfa upp á þenn- an ófögnuð og líða við það vítiskval- ir hefði líka getað gripið til úrræða einkaréttareðlis á gmndvelli reglna um grenndarrétt. Farið í einkamál og krafist þess að gleðigjafinn málaði yfir ósköpin eða allavega þau mestu, ef til vill að viðlögðum dagsektum," segir Sigurður. Taka lögin í sínar hendur? Jóni lék einnig forvimi á að vita hvort hann ætti sjálfur að gerast lag- anna vörður. Sigurður segir það ekki vænlegt. „Telji menn á sér brotíð ber þeim að snúa sér til réttra yfir- valda og grípa til þeirra lagalegu úr- ræða sem í lög em skrifuð og fara í hvívetna eftir forskriftum laga í því efni. Þótt menn eigi rétt og réttur sér á þeim brotinn mega þeir ekki taka lögin í sínar hendur og fram- fýlgja þeim. Þjóðfélag sem leyfði slíkt myndi fljótíega loga í illindum þar sem hver væri dómari í sinni sök," segir Sigurður léttur í bragði en deilurnar sem að ofan em raktar leystust á þann hátt að annar aðil- inn sá sæng sína út breidda og flutti á brott. wmæ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.