Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 30. MA[ 2008
Fréttir DV
SA\DKOR\
■ Prince Rajkomar, leikmaður
Breiðabliks, er kominn á nýjan
bíl. Sá er ekkert slor, hvítur Range
Rover eins og forstjóramir eiga.
Bíllinn kostar frá 8 milljónum
nýr og upp í
20 milljón-
ir, allt eftir
aukahlumm
og búnaði.
Breiðablik er
skipað mörg-
um ungum
og efriilegum
leikmönnum
sem enn búa á hótel mömmu og
eiga Suzuki Swift eða áiíka náms-
mannabQa. Þegar Prinsinn kem-
ur snúa merm sér við.
■ Menn hjá Heklu eru ekki par
hrifnir þessa dagana. Astæð-
an er að frægasti Audi Q7-bíll
landsins, bíll útvarpsstjórans Páls
Magnússonar, var alltaf að bila.
Er það hræðilegt afspurnar þegar
lúxusbílar bila strax á fyrsta ári
sínu. Audi
Q7erflagg-
skip Heklu,
langdýrasti
bfllinn en nýr
getur hann
kostað það
sama og gott
einbýlishús,
allt eftir ósk-
um eigandans. Mikið var skrifað
og rætt um bfl Páls enda fara 72
afnotagjöld landans í að borga
af bflnum. Sem reyndist svo eldd
þola frægðina.
■ Bob Dylan trekkti margan
manninn að. Ekki voru allir par
hrifnir af frammistöðu hans og
sögðu þetta
mesta pen-
ingaplott í
kreppunni.
Egill Helga-
sonvar
mættur og
tók nokkur
loftgítarsóló
ásamt sínum
manni. Björgvin Halldórsson
var þar einnig og var með kfld.
Sagan segir að hann hafi farið í
þriðja lagi.
■ Það vakti athygli næturgesta í
miðborginni á mánudaginn að
þar var mættur einn landsliðs-
maðurí
knattspymu
tveimur
dögumfyrir
landsleik-
inngegn
Wales. Var
þar Theó-
dór Elmar
Bjarnason
mættur hress og kátur. Theó-
dór var ekki í byrjunarliðinu
á miðvikudaginn heldur kom
inn á sem varamaður. Töluverð
umræða var í þjóðfélaginu um
drykkjuskap landsliðsmanna eftir
að nokkrir skriðu út um glugga
til að geta fengið sér í tána fyrir
nokkrum árum.
■ Enn bætist við fórnarlömb nýs
ritstjóra Morgunblaðsins, Ólafs
Stephensen. Hjálmar Jóns-
son, fram-
kvæmdastjóri
Blaðamanna-
félags Islands
og blaða-
maður, og
Hjörtur
Gíslason,
sem skrifað
hefur sjáv-
arútvegsfréttir bættustíhóp
manna sem Ólafur hefúr losað
sig við. Ólafur ætlar að frfska upp
á Moggann og mun Björn Vignir
Sigurpálsson láta af starfi frétta-
stjóra og fara á vefinn. Ágúst Ingi
Jónsson og Sigtryggur Slgtryggs-
son verða fúlltrúar ritstjóra og þá
var einn reynslumesti íþrótta-
fréttaritari landsins, Sigmundur
Ó. Steinarsson, láúnn fara.
í gær var fjórmenningunum í hraösendingarmálinu svokallaöa birt ákæra. Annþór
Kristján Karlsson, sem kom í Héraðsdóm Reykjavíkur í fylgd fangavarða, neitar sök í
málinu. Mönnunum er gefið að sök að hafa lagt á ráðin um að flytja inn til landsins 5,36
kíló af amfetamíni og 594 grömm af kókaíni frá Þýskalandi með hraðsendingarfyrir-
tækinu UPS. Létt var yfir Annþóri í dómsal þó fangaverðir fylgdu honum hvert fótmál.
Annþór Kristján Karlsson neitar að
hafa átt nokkurn þátt í innflutningi
á rúmlega 5,36 kflóum af amfetam-
íni og 594 grömmum af kókaíni frá
Þýskalandi, en upp komst um mál-
ið í nóvember á sfðasta ári. Ákæra
gegn Annþóri og þremur öðrum
mönnum var þingfest fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Mönnun-
um er gefið að sök að hafa staðið
að innflutningi á efnunum í þeim
úlgangi að selja þau, en fíkniefn-
in voru flutt til landsins með hrað-
sendingarfyrirtækinu UPS. Toll-
gæslan á Keflavíkurflugvelli fann
efnin 15. nóvember síðastliðinn í
bifreið fyrirtækisins utan við hús-
næði þess á Keflavíkurflugvelli.
Annþór er ákærður fyrir að hafa
lagt á ráðin um innflutninginn með
Ara Gunnarssyni og hugðist taka
við þeim hér á landi. Hann er sagð-
ur hafa miðlað upplýsingum milli
Ara og óþekkts sendanda efnanna
í Þýskalandi um hvernig sendingin
ætú að fara ffam. Annþór er sagður
hafa greitt honum samtals rúmlega
tvær milljónir króna í þóknun.
Starfsmaður neitar sök
Ari Gunnarsson er ákærður fyr-
ir að hafa komið skilaboðum á milli
Jóhannesar Páls Gunnarssonar og
Annþórs um hvernig best væri að
haga sendingu efnanna þannig að
þau kæmust úl skila. f ákærunni
segir að hann hafi ætlað að sjá úl
þess að Annþór gæú nálgast þau
hér á landi. Ari játaði sök í málinu
fyrir dómara.
Tómas Kristjánsson er ákærð-
ur fyrir að hafa lagt á ráðin um
innflutninginn með Jóhannesi og
notað sér aðstöðu sína sem starfs-
maður harðsendingarfyrirtældsins
UPS á Keflavfkurflugvelli úl þess
að miðla til hans upplýsingum um
hvernig best væri að haga sendingu
og móttöku efnanna. Tómas neitaði
fyrir héraðsdómi að hafa átt nokk-
urn þátt í málinu.
Jóhannes Páll er ákærður fyrir að
hafa lagt á ráðin um innflutnginn
og miðlað upplýsingum milli máls-
aðila um hvernig best væri að flytja
efnin inn. Þá upplýsú hann Ara
um að efnin hefðu verið haldlögð.
Mennirnir hafa allir setið í gæslu-
varðhaldi á meðan rannsókn máls-
ins stenduryfir en Tómas hefur set-
ið í gæsluvarðhaldi síðan í janúar.
Létt yfir Annþóri
Sakborningarnir mættu all-
ir fyrir dómara við þingfestingu
málsins í gær. Annþór, sem komst
í fréttirnar í vor fyrir að strjúka
úr haldi lögreglunnar, kom í hér-
aðsdóm í fylgd nokkurra fanga-
varða. Annþór var ekki hafður í
handjárnum, en fangelsismála-
yfirvöldum er heimilt að gera
það telji þau ástæðu til. Nokkuð
létt var yfir honum og faðmaði
hann meðal annars ónefndan fé-
laga sinn vel þegar sá kom til þess
að fylgjast með málinu í dómsal.
Annþór gaf sér auk þess tíma til
þess að heilsa blaðamanni sem
sat við hliðina á honum.
Hjá Fangelsismálastofnun
eru fastmótaðar regiur í gildi um
flutning fanga frá Litla-Hrauni,
en ekki fengust upplýsingar um
hvort sérstakur viðbúnaður hafi
verið hafður í dómsal í gær. Hins
vegar er það almennt svo að pass-
að er betur upp á þá fanga sem
hafa strokið eða reynt að strjúka.
Fangaverðirnir fylgdu Annþóri
hvert fótmál, en ekki var að sjá að
nokkuð fararsnið væri á honum.
Aðalmeðferð í málinu gegn fjór-
menningunum fer fram á þriðju-
daginn.
SKALDIÐ SKRIFAR
BLOÐRUFROSKARIBORGINNI
KRISTJAN HREINSSON SKALO SKRIFAR.
„Öll varþessi lílfiid vidhöfd vegna jiess eins aó ekkifékkst fjönnjólk ikaffid.
Hvað ætli þeir eigi nú sameigin-
legt Gfsli Marteinn Baldursson
og Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson? Þegar stórt er spurt verð-
ur fátt um svör.
Ég varð vitni að því um daginn er þrír borg-
arfulltrúar komu inn á kaffihús hér í borg.
Þetta var á stað sem nefnist Te og kaffi og er
f verslun Pennans f Austurstræti og gestirn-
ir gáskafullu voru þau Hanna Birna Krist-
jánsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og
Gísli Marteinn Baldursson. Þessu fólki er
náttúrlega tamt að eiga staðinn þegar það
sér sér fært að líta upp frá aumingjaleikn-
um f ráðhúsinu. Og f þetta skipti var engin
undantekning gerð frá meginreglu sýndar-
mennskunnar. Gfsli Marteinn bókstaflega
réðst að afgreiðslumanni með óhróðri og
aumingjalegum blammeringum. öll var
þessi úlfúð viðhöfð vegna þess eins að ekki
fékkst fjörmjólk f kaffið. í framhaldinu
kvörtuðu þau þrjú einsog vannærðir vesa-
lingar og sögðu verðlag kaffihússins með
þeim hætti að ekki væri bjóðandi nokkr-
um manni. (Að vfsu gleymdu þau að tíunda
það hvaða stjórnmálaflokkur ber ábyrgð á
ástandinu. En það er nú önnur saga.)
Þessi þriggja krakka klíka ætti að skamm-
ast sín í eitt skipti fyrir öll og í raun og veru
á ég heimtingu á því sem borgarbúi að slfk
andans ofurmenni, sem sitja í fínum emb-
ættum, hagi sér allavega sæmilega á op-
inberum stöðum, en séu ekki að blása sig
út einsog blöðrufroskar. Og reyndar á ég
heimtingu á því að embættismenn sem við-
hafa svo skítlegt eðli á veitingahúsum borg-
arinnar biðjist afsökunar.
Það er ekki nóg með að þessi ungmenni
bjóði okkur borgarbúum stjórnunarhætti
sem varla gerast verri - tafsandi borgar-
stjóri sem dregur að sér hottintotta og hálf-
menni og hefur ekki annað að segja en: Við
látum verkin tala - heldur þurfum við í of-
análag að þola skftkast frá þessum skríl.
Já, ffflaleikurinn hefði ekki náð frekari
fullkomnun nema krakkarnir þrír hefðu
kallað til, þá spaugilegu sprelligosana
Jobba og Óla Maggadon.
Ef frafár veraldar á að spretta frá umræðu
um mjólk þurfum við fyrst að fá á hreint
hvort mjólkin er búbót eða bagalegt eitur.
Vísa dagsins er aftur á móti svona:
Það er Ijóst að þettafólk
þyrfti að vera i straffi
og cetti aðfá sérfíflamjólk
Jyrir mat og kaffi.