Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 30. MAl 2008 HelgarblaB PV Konan UMSJÓN; KOLBRÚN PÁLI'NA HELGADÓTTIR kolbrun@dv.is DANSAÐ MEÐ BIRNU Sex vikna dansnámskeið eru um það bil að hefjast hjá margreynda dansaranum Sigrúnu Birnu Blomster- berg. Sigrún sem státar af níu ára reynslu sem dansari, danshöfunundur og danskennari ætlar að kenna fólki nýjustu dansstílana við heitustu lögin og verður ekkert gefið eftir. Námskeiðið sem byrjar 2. júní er fyrir byrj- endur sem og lengra komna og ættu áhugasamir ekki að láta það framhjá sér fara. Skráning fer fram á blom- ster99@gmail.com IÐ ER NYJA SNAKASKINNIÐ „Taskan setur punktinn yfir i-ið þegar kemur að heildarútlitinu og því ekki ónýtt að geta sameinað skjölin, snyrtivör- urnar, peningaveskið, símann og tölvuna í einni glæsilegri tösku,“ segir Fjóla María Ágústsdóttir hönnuður um glæsi- legar tölvutöskur sem hún hannar. „Tölvutaskan er þannig hönnuð að hún nýtist sem veski, skjalataska og tölvutaska. Fólk er í sífellt meira mæli farið að taka tölvurnar með sér hvert sem það fer og ferðatölvur eru sífellt að léttast og minnka. Tölvan er að verða fylgihlutur eins og gems- inn og þá er gott að eiga fallega tölvutösku," segir Fjóla María Ág- ústsdóttir hönnuður um glæsileg- ar tölvutöskur sem hún hannar úr íslensku roði. Fjóla hefur frá unga aldri skapað og hannað skartgripi, mósaíkverk og föt. fslenska roðið fyrir valinu Leið Fjólu lá þó ekki í hönnun- arnám heldur MBA-nám í alþjóða- viðskiptum. „1 náminu spratt upp sú hugmynd að virkja sköpunar- þörf mína og viðskiptamenntun og hanna tölvutöskur en ég sá að úrval- ið af þeim var ekki mikið." Að mati Fjólu voru þær tölvu- töskur sem í boði höfðu verið fyrir íyrir konur of karlalegar og hannað- ar eingöngu með hagkvæmnissjón- armið í huga frekaren fagurfræði- leg. „Mig langaði til að hanna tösku sem væri bæði hagnýt og falleg. fs- lenska roðið varð fyrir valinu sem hráefni í töskurnar en það er ein- stakt efni sem einungis er unnið á fslandi." Stofnaði eigið fyrirtæki Árið 2007 steig Fjóla skrefinu lengra og stofnaði fyrirtækið, Fjol- amariadesign og hófst framleiðsía á einu módeli af tösku aðeins nokkr- um mánuði síðar. „Um haustið 2007 hafði ég náð samningi við ffam- leiðslufýrirtæki í Kína. Framleiðslu- fyrirtækið sérhæfir sig í tölvutösk- um svo að allir öryggisstaðlar eru uppfylltir og þannig tryggt að tölv- an skemmist ekki í töskunni." Fjóla segir móttökurnar hafa farið fram úr sínum björtustu vonum. „Það hef- ur greinilega verið þörf fyrir þetta á markaðnum." f haust mun svo koma ný týpa af töskum frá Fjólu sem höfða á til yngri kynslóðar- innar. „Taskan verður í öðrum gæðahópi og þar af leiðandi ódýrari." Náttúruverndar- sjónarmið Breska verslunar- keðjan House of Fras- er hefur sýnt hönnun Fjólu mikinn áhuga. „House of Fraser er einstaklega hrifið af fiskroðinu og segir roð- ið vera það sem koma skal. Fiskroðið er ekki bara sterkt og gott eins og snáka- skinn heldur náttúruvænt. Krókódíla- og snákaskinn sem hafa mikið verið notuð í hönnun ytra eru skinn af dýrum sem mörg hver eru komin í útrýmingarhættu. fnnkaupastjórar verslunarkeðjunn- ar eru því farnir að horfa meira til fiskroðsins og segja það nýja snáka- skinnið. Ekki hefur þó orðið af samningi á milli Fjólu og keðjunn- ar en tíminn mun leiða í ljós hvað verður. Tölvutöskur Fjólu má nálg- ast í versluninni Kraum í Aðalstræti, Apple búðinni og Epal í Leifsstöð. koma skal Fjóla vinnur eingöngu % með íslenska fiskroðið. AFBRVÐISEMI Öll upplifum við afbrýðisemi á einhverjum tímapunkti í lífinu. Því miður getur hún farið illilega úr böndunum og eyðilagt ann- ars gott samband. En hvernig getum við vitað hvort við séum að missa tökin á tilfinningunni afbrýði? Á heimasíðunni femin.is má finna marga fróðlega pistía um málefhi sem þessi. ■ Hvað erafbrýði? Afbrýðisemi í ástarlífinu er ein af sterkustu og óþægilegustu tilfinningum sem við getum upplifað. Þú telur að það sé einhver sem hái baráttu um athygli elskhuga þíns. Það getur verið önnur manneskja eða jafnvel vinna eða áhugamál makans sem storkar þér svona. ■ Ef þú þjáist af afbrýði Hugsaðu um það hvað veldur þessari tilfinningu. ■ Ertu ósanngjörn/gjarn? Ef þú býrð með manneskjunni sem vekur með þér þessari afbrýði eða mjög nálægt, og manneskjan er nær aldrei heima eða með þér, ertu í réttmætri stöðu að ræða þetta opinskátt og segja að þú kjósir að verja meiri tíma saman. ■ Ef manneskjan ver miklum tíma með þér spyrðu sjálfa/n þig hversu sann- gjörn/gjarn þú ert. Því það er hárfín llna á milli þess að vilja verja tlma með einhverjum og stjórna þeim hinum sama. Ef sú er raunin skaltu ekki sitja heima og vorkenna þér þegar þið eruð ekki saman. Farðu út, finndu þér áhugamál, og sinntu þvf til að dreifa huganum og láta ekki afbrýðisemina ná völdum yfir þér. Og mundu, að það getur enginn sett eignarhald sitt á aðra manneskju! ■ Ef þú hefur aldrei haft ástæðu til að telja að makinn sé þér ótrúr verðurðu að horfa framan í sjálfa/n þig og viður- kenna fyrir þér að þú þjáist af ofsóknar- brjálæði og þú mátt ekki láta það bitna á makanum þínum. Margir hafa gaman af saklausu daðri en f flestum tilfellum er ekkert illt meint með því. Ef daðrið skekur þig skaltu reyna að útskýra það varlega fyrir maka þínum og ekki gera stórmál úr þvf eða hóta honum öllu illu. Afbrýði má oft rekja til óöryggis og hinir afbrýðisömu óttast það mest að makinn fari frá þeim. Ef það er engin haldgóð ástæða fýrir afbrýðiseminni geturðu fælt makann burtu frá þér með látunum (þér og röflinu. ■ Ef makinn hefur verið þér ótrúr og virðist ekki hafa breyst mikið og fer ekki leynt með áhuga sinn á öðrum, sem setur þig í afar óþægilega stöðu, er kannski tími til að snúa honum baki og jafnvel fara að horfa í kringum þig. ■ Ef makinn er afbrýðisamur út í þig ■ Ef þú hefur hagað þér svo sæmd er að, en makinn þinn er samt sem áður afbrýðisamur, kann ástæðan að vera sú að hann þurfi meiri athygli frá þér og að upplifa það að hann sé þinn. Merki um að afbrýðisemi sé að fara úr böndunum er meðal annars: hann hringir (þig í farsímann þegar þú ert fjarri til að athuga hvar þú ert og hvernig þér reiðir af, hann hlustar á samtöl þín við aðra í símanum, hann bannar þér að klæðast fötum sem þú lítur vel út í hann fer í gegnum töskuna þína til að leita að sönnunum um að þú sért honum ótrú/r ■ Þeir sem verða gagnteknir af heift af völdum afbrýði og án nokkurrar sýnilegrar ástæðu, þurfa vafalaust á faglegri aðstoð að halda, sér í lagi ef þeir verða árásargjarnir. Ef þeir neita slíkri aðstoð, forðaðu þér úr sambandinu - það er harla ólíklegt að sá hinn sami muni breytast (sama hversu mikið hann/ hún lofarendurbótum) og þú gætir verið að setja þitt eigið öryggi í hættu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.