Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Side 55
DV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2008 55
BIRKIR ÍVAR (HAUKA Landsliðsmarkvörðurinn í handknattleik, Birkir
(var Guðmundsson, hefur ákveðið að snúa heim úr atvinnumennsku
og ganga til liðs við sitt gamla félag, Hauka. Hann gerir þriggja ára
samning við (slandsmeistarana. Birkir gekk til liðs við TUS N-Lúbbecke
2006 og hefur leikið með þeim síðustu tvö tímabil. Birkir hefur verið
einn af landsliðsmarkvörðum (slands undanfarin ár en hann er nú í
hópi íslenska landsliðsins sem tekur þátt í forkeppni ólympíuleikanna
um helgina. Haukar hafa nú styrkt sig töluvert fyrir komandi keppnis-
tímabil en einnig hafa þeirfengið til sínTryggva Haraldsson, Hafstein
Ingason, Einar Jónsson og samið aftur við Elías Halldórsson.
BRAUTIN (VALENCIA HEILLAR Formúlu 1 -brautin í Valencia hefurfengiðmik-
ið lof frá aðstandendum Formúlunnar en hún þykir einkar vel gerð. í Valencia
verður götukappakstur eins (Mónakó þar sem götum er lokað til þess að gera
braut. Fyrir utan að vera mjög skemmtileg aksturs þykir hún einkar örugg sem
er nokkuð sem Formúlan hamrar á við allar sínar brautir. „Það er verið að vinna
brautina af miklum myndarskap.Vel erfarið ofan í hvert smáatriði til að tryggja
gæði fyrir áhorfendur og öryggi ökuþóra," sagði forsvarsmaður keppninnar.
LESTUNUNA SPORTIÐA DV.IS!
SCUNTHORPE UNITED ÁRIÐ 1989
Schunthorpe er klárlega ekki lið sem oft
kemst í fréttimar. Hins vegar verður að segjast
að það verðskuldar það með þennan bleika
búning og auglýsinguna Pleasure Island.
COVENTRY ÁRIÐ 1998
Áhangendur Coventry hreinlega
neituðu að koma á völlinn þetta
árið. Ævintýralega Ijótur litur sem
einna helst minnir á kjötstykki.
TOTTENHAM ÁRIÐ 1985 Erfitt að
klúðra hvítum búningi. Þeim hjá
Tottenham tókst það þó árið 1985.
CRYSTAL PALACE ÁRIÐ 1992
Svo virðist sem búningatískan á 10.
áratugnum hafi ekki verið upp á
marga fiska. Búningur Crystal
Palace er gott dæmi um það,
WEST HAM ÁRIÐ 1990
Demantamynstrið var vinsælt i
upphafi 10 áratugarins. Þessi
búningur hefur allt til brunns að
bera til þess að gera Ijótan
búning, útlit, litog snið.
SKOSKA LANDSLIÐIÐ 2002
Skotar eru þekktir fyrir sína bláu
búninga en skörtuðu þessum á
tímabili, við litinn fögnuð
stuðningsmannanna.
CHELSEA ÁRIÐ 1993 Dimitry
Karin, markvörður Chelsea, var
ekki alveg að dansa þegar hann
skartaði þessum buningi
ÞÝSKALAND 1991 Heims-
meistararnir 1990 buðu upp
á þennan einstaklega illa
heppnaða búning árið eftir.
FABER
BOCHUM ÁRIÐ 1996 Alltof
mikið af litum í einum búningi.
Regnboginn í búningnum er ekki
alveg að gera sig að áliti gagnrýn-
anda DV.
KAMERUN ARIÐ 2004 Alþjóða
Knattspyrnusambandið
hreinlega bannaði búningana.
DV kann þeim bestu þakkir fyrir.
NORWICH ÁRIÐ 1994 Grænn
kragi, skræpótt mynstur. Minnir
helst á lestarslys.