Fréttablaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 4
SEGLAGERÐIN ÆGIR Þar sem ferðalagið byrjar Korputorg 112 Reykjavík Sími 551 5600 utilegumadurinn.is FERÐAVAGNAR KAUPLEIGA GRÆNIR BÍLAR Opið mán-fös kl. 10-18 - lau-sun kl. 12-16 LMC hjólhýsiG æði og glæsileik i Húsnæðismál Ef leigjandi vill spara sér aurinn borgar sig að leigja í úthverfum Reykjavíkur. Gríðarlegur munur getur verið á leiguverði vest- an og austan við Kringlumýrarbraut, ódýrast er að leigja á Kjalarnesi og í Mosfellsbæ. Til að leigja þriggja herbergja átta- tíu og fimm fermetra íbúð í Reykja- vík vestan Kringlumýrarbrautar og á Seltjarnarnesi þarf par með tvö börn að vera með 747 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði. Parið þarf töluvert lægri ráðstöfunartekjur til að leigja á Kjalarnesi eða í Mos- fellsbæ, eða 692 þúsund krónur. Ef barnlaust par hyggst leigja tveggja herbergja sextíu fermetra íbúð á höfuðborgarsvæðinu þarf það 502 þúsund krónur í ráðstöfunar- tekjur á mánuði til að leigja í vestur- hluta Reykjavíkur, en töluvert minna eða 460 þúsund krónur til að leigja á Kjalarnesi og í Mosfellsbæ. Samkvæmt neysluviðmiðum vel- ferðarráðuneytisins má áætla að par með tvö börn, annað í leikskóla, hitt í grunnskóla og í mötuneyti og gæslu eftir skóla, eyði 554.190 krónum á mánuði án húsnæðiskostnaðar. Barnlaust par eyðir samkvæmt við- miðum 349.302 krónum á mánuði án húsnæðiskostnaðar. Fermetraverðið er langhæst í Reykjavík vestan Kringlumýrar- brautar og á Seltjarnarnesi hvort sem litið er til tveggja eða þriggja her- bergja íbúðar. Ef leigjandi vill spara sér aurinn lækkar leiguverð verulega við það að fara í úthverfi. Lítill munur er á leiguverði í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og svæðum Reykjavíkur sem eru lengra frá miðbænum, til dæmis í Grafarvogi og Breiðholti. Þegar litið er til þriggja herbergja íbúða sést að gríðarlegur munur er á því að leigja í Reykjavík vestan Kringlumýrar- Dýrt að sækja í Vesturbæinn Gríðarlegur munur getur verið á leiguverði vestan og austan við Kringlumýrarbraut. Fermetraverðið er langhæst í Vesturbæ og á Seltjarnarnesi. Að meðaltali er tæplega þrjátíu þúsund króna munur á leiguverði. Heimild: Þjóðskrá Íslands. Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis síðastliðna þrjá mánuði brautar og á Seltjarnarnesi eða milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanes- brautar. Að meðaltali er tæplega þrjá- tíu þúsund króna munur á leiguverði, það munar álíka miklu að búa á Kjal- arnesi og í Mosfellsbæ eða í Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykja- nesbrautar. saeunn@frettabladid.is Alþingi Hægt mjakast í viðræðum stjórnar og stjórnarandstöðu á þingi. Stjórnarandstaðan hefur ekki fengið svör við því hvaða mál þurfi að hjálpa ríkisstjórninni með í gegnum þingið fyrir kosningar og hefur ekki verið svarað um nákvæma dagsetn- ingu alþingiskosninga í haust. Helgi Hjörvar, þingflokksfor- maður Samfylkingarinnar, segir það skjóta skökku við að geta ekki svarað því til hvaða mál þurfi að aðstoða stjórnina með í gegnum þingið. „Þeir gátu hvorki svarað um dag- setningu kosninga né hvaða mál þyrfti að hjálpa þeim með. Maður skyldi ætla að að þeir gætu sagt okkur hvaða mikilvægu mál þetta séu. Ég trúi ekki öðru en að búið verði að svara þessari spurningu fyrir þingfund [í dag]. Það er erfitt að skipuleggja þingstörf ef þeir sem eiga að stjórna vita hvorki hvenær eigi að ljúka þingi eða hvað eigi að taka fyrir,“ segir Helgi. „Við gerum lágmarkskröfu um ákveðinn ramma um þingstörfin, sérstaklega eftir það sem á undan hefur gengið.“ Guðlaugur Þór Þórðarson segir nú unnið að því að sigta út þau mál sem þurfi að verða að lögum í vor og í sumar áður en gengið er til kosninga. „Á meðan sú vinna er í gangi er ekki hægt að svara fyrirspurn minnihlut- ans um kosningar eða fjölda mála. Næstu dagar fara í það að skoða þessi mál og vinna þau í samvinnu flokkanna í ríkisstjórn og í samtölum við stjórnarandstöðuna,“ segir Guð- laugur Þór. Ríkisstjórnin kom saman í gær til fyrsta fundar og voru þar þrjú mál rædd. Þar ræddi Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra Panama- skjölin og viðbrögð stjórnvalda við þeim. Bjarni var einn þeirra sem var nefndur í umræddum skjölum, og innanríkisráðherra, Ólöf Nordal. – sa Mynduðu stjórn um mikilvæg málefni en vita ekki hver þau eru stjórnmál Dagskrágerðarmaður- inn Margrét Blöndal hefur óskað eftir leyfi frá störfum hjá RÚV til þess að starfa sem kosningastjóri í komandi forsetakosningum. Þetta staðfestir hún í samtali við Frétta- blaðið. Margrét var ekki tilbúin til þess að staðfesta fyrir hvaða fram- bjóðanda hún starfaði en sagði hann þó vera „virkilega góðan kandídat“. – þh Margrét Blöndal ráðin kosningastjóri Margrét Blöndal útvarpskona stjórnmál  Tónninn í erlendum fjölmiðlum varð jákvæðari þegar leið á umfjöllun um tengsl forsætis- ráðherra við Wintris, ekki síst þegar fjallað var um mótmæli á Austur- velli og þegar ný ríkisstjórn tók við. Þetta kemur fram í samantekt utan- ríkisráðuneytisins um fjölmiðlaum- fjöllunina og áhrif hennar á orðspor og ímynd Íslands sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir, nýr utanríkisráð- herra, kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun. Mat ráðuneytisins er „að til skemmri tíma litið hafi ímynd og ásýnd Íslands á alþjóðavettvangi ekki beðið umtalsverðan hnekki þrátt fyrir talsverða ágjöf“. – skh, þea Jákvæðari eftir brotthvarfið EfnAHAgsmál Á verðlagi dagsins í dag kostaði Apollo-áætlunin, eða það að koma fólki til tungls- ins, sem nemur tuttugu og fimm földum fjárlögum Íslands. Það gerir um 17.000 milljarða íslenskra króna. Kostnaðurinn dreifðist yfir ára- tug og nemur 3,4 prósentum af fjárlögum Bandaríkjanna í ár og fimmtungi útgjalda þeirra til hern- aðar á ári. Menn hafa ekki farið til tungls- ins síðan árið 1972. Ekki er sami áhugi og áður á að fara til tungls- ins vegna þess að ekki er pólitískur vilji til þess. Þar að auki er mun dýrara að senda fólk til tungsins en vélmenni. Þetta segir Björn Berg Gunnars- son, fræðslustjóri VÍB. Hann ásamt Sævari Helga Bragasyni, formanni Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnar- ness, heldur fyrirlestur um fjármál NASA og ESA og framtíðina í geim- ferðum. – sg Tunglförin kostaði 17 þúsund milljarða Kostnaðurinn við Apollo-áætlunina dreifðist yfir tólf ár að sögn Björns Bergs. FréttABlAðið/AFP Við gerum lág- markskröfu um ákveðinn ramma um þing- störfin, sérstaklega eftir það sem á undan hefur gengið. Helgi Hjörvar, þing- flokksformaður Samfylkingarinnar Næstu dagar fara í það að skoða þessi mál og vinna þau í samvinnu flokkanna í ríkisstjórn. Guðlaugur Þór Þórðarson, varafor- maður þingflokks Sjálfstæðisflokksins 747.000 krónur þarf par að vera með í ráðstöfunartekjur á mánuði til að leigja vestan Kringlumýrarbrautar og á Seltjarnarnesi. Hvað þarf par í ráðstöfunartekjur til að legja á höfuðborgarsvæðinu? tveggja herbergja 60 fermetra íbúð þriggja herbergja 85 fermetra íbúð 501.842kr 746.658kr 490.002kr 719.373kr 479.982kr 712.063kr 480.682kr 711.525kr 480.482kr 714.641kr 479.982kr 714.075kr 460.422kr 692.103kr Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnesi Kópavogur Garðabær og Hafnarˆörður Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur Breiðholt Kjalarnes og Mosfellsbær Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar ✿ Hvað þarf par að hafa í ráðstöfunartekjur á mánuði til að eiga fyrir leigu? n Tveggja herbergja 60 fermetra íbúð n Þriggja herbergja 85 fermetra íbúð Samkvæmt neysluviðmiðum velferðarráðuneytisins má áætla að par með tvö börn, annað í leikskóla, hitt í grunn- skóla og í mötuneyti og gæslu eftir skóla, eyði 554.190 krónum á mánuði án húsnæðis- kostnaðar. Barnlaust par eyðir samkvæmt viðmiðum 349.302 krónum á mánuði án húsnæðis- kostnaðar. lilja Dögg Alfreðsdóttir utan- ríkisráðherra 1 2 . A p r í l 2 0 1 6 þ r i ð j U D A g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t A B l A ð i ð 1 2 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :2 1 F B 0 3 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 0 7 -4 8 A 8 1 9 0 7 -4 7 6 C 1 9 0 7 -4 6 3 0 1 9 0 7 -4 4 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 3 2 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.