Fréttablaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Skuldakreppan á evrusvæðinu undirstrikar hvað frjálsir markaðir með fjármagn geta verið óútreiknanlegir og gallaðir. Grikkland er eitt besta dæmið um þetta. Með aðstoð bandaríska bankans Goldman Sachs fegruðu Grikkir bókhald sitt til að uppfylla Maastricht-
skilyrðin og komast inn í myntsamstarfið um evruna.
Kjör á grískum ríkisskuldabréfum höfðu verið mjög
slæm en stórbötnuðu í einni svipan eftir inngöngu í
myntsamstarfið þrátt fyrir að munurinn á Grikklandi
2001 og 2002 sé í raun og veru enginn. Á einni nóttu
eftir upptöku evru gat Grikkland fjármagnað sig á sömu
kjörum og Þýskaland, sem varð til þess að það varð
gríðarlegt innflæði fjár í grískt hagkerfi. Eftir skulda-
kreppuna versnuðu kjörin hratt. Ávöxtunarkrafa á ríkis-
skuldabréf Portúgals, Ítalíu og Spánar jafnaðist út eftir
2010 en Grikkir voru í sífellt verri stöðu. Skuldakreppan
dýpkaði og þeir hafa ekki bitið úr nálinni með hana.
Eftir að vandinn á evrusvæðinu kom upp hafa alls
kyns spádómar litið dagsins ljós um endalok evrunnar
en engir þeirra hafa ræst. Martin Sandbu færir fyrir því
rök í bókinni Europe's Orphan, að hvorki evran sjálf
né undirstöður hönnunar hennar séu rót vandans á
evrusvæðinu. Þess í stað felist vandamálið í því hvernig
ríkisstjórnir í Evrópu hafi ranglega sett endurgreiðslu
skulda í forgang, fremur en aðgerðir til að örva eftir-
spurn í hagkerfinu. Hagsmunir lánardrottna urðu ofan
á, sem varð til þess að skuldakreppan dýpkaði.
Fyrir 2008 varð gríðarlegt innflæði fjár á Íslandi
í skjóli góðrar lánshæfiseinkunnar bankanna og
ímyndaðrar ríkisábyrgðar. Annað gott dæmi um óút-
reiknanlega hegðun frjálsra markaða. Stjórnvöldum á
Íslandi mistókst að gæta að fjármálastöðugleika með
því að hefta innflæði fjár. Skuldastaða þjóðarbúsins
varð ósjálfbær og löggjafanum var nauðugur einn
kostur að beita neyðarréttinum. Það er engum vafa
undirorpið að neyðarlögin hefðu verið útilokuð í mynt-
samstarfi um evruna. Þær gagnrýnisraddir sem segja að
íslensku bankarnir hefðu ekki fengið að skuldasetja sig
með þessum hætti hefði Ísland verið í ESB og í Evrópska
myntbandalaginu verða býsna veikburða þegar skoðuð
er staða Grikklands og að virtri þeirri staðreynd að
Íslendingar gátu tekið alla þessa peninga að láni með
krónuna sem ráðandi gjaldmiðil í hagkerfinu, ekki evru.
En hvaða lærdóm getum við dregið af skuldakrepp-
unni á evrusvæðinu og okkar eigin vanda? Gylfi Zoëga,
prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands og fulltrúi í
peningastefnunefnd Seðlabankans, sagði í viðtali á
Stöð 2 hinn 20. mars að hægt væri að reka öfluga
peningastefnu með krónu. „Allt þetta tal um að skipta
um myntir til þess að fá einhvern ímyndaðan veruleika
í öðru landi er allt held ég á misskilningi byggt og ekki
gagnlegt. Ástæðan fyrir því að þetta fór illa árið 2008
var fyrst og fremst vegna umgjarðar peningastefnunnar.
Það hvort það var Jón Sigurðsson eða Eiffelturninn á
peningaseðlunum var ekki aðalatriðið heldur umgjörð-
in og hvernig ákvarðanir voru teknar og hvernig við
brugðumst við áhættum. Það að stökkva á milli að taka
upp Kanadadollar einn daginn og evruna hinn daginn.
Allt þetta tal er svo gagnslaust,“ sagði Gylfi í viðtalinu.
Orð að sönnu hjá prófessornum.
Grísland
Það er
engum vafa
undirorpið
að neyðar-
lögin hefðu
verið úti-
lokuð í mynt-
samstarfi um
evruna.
Ég vil hvetja
jafnt foreldra
sem ungt fólk
sem nú
stendur
frammi fyrir
námsvali að
kynna sér
allar þær
fjölbreyttu
starfsgreinar
sem kenndar
eru hér á
landi.
Nú um stundir standa þúsundir ungmenna frammi fyrir því að velja sér námsleið að loknu grunnskólanámi. Með þeirri ákvörðun
eru mörkuð skref í átt að framtíðarstarfinu. Sjaldan
eða aldrei hafa möguleikar ungs fólks til menntunar
verið jafn miklir og í dag. Tækifærin liggja víða. Í
langan tíma hefur straumurinn legið í bóknám, það
er hin hefðbundna leið til stúdentsprófs.
Mig langar að vekja athygli þína lesandi góður á
því að hægt er að taka stúdentspróf en ná sér á sama
tíma í starfsréttindi sem eru alþjóðleg og opna
möguleika til spennandi og skemmtilegra starfa.
Í dag er hægur vandi að flétta saman iðnnámi og
stúdentsprófi á sama tíma. Ímyndið ykkur hversu
mikið forskot sá einstaklingur hefur sem kemur út
úr framhaldsskóla tvítugur með bæði stúdentspróf
og iðnmenntun í handraðanum. Atvinnumögu-
leikar þess einstaklings aukast til mikilla muna.
Atvinnurekendur hafa tekið höndum saman um
eflingu vinnustaðanáms og hafa nú tæplega 200
fyrirtæki innan Samtaka iðnaðarins staðfest sátt-
mála þess efnis að auðvelda á ungu fólki að komast
á samning.
Það eru gríðarlega spennandi hlutir að gerast í
atvinnulífinu nú um stundir. Mikil nýsköpun og
gróska. Tækninni fleygir fram á öllum sviðum sem
gerir það að verkum að eðli margra starfa í iðnaði
hafa gjörbreyst. Atvinnulífið þarf á ungu og öflugu
fólki að halda. Við þurfum að fá hæfileikaríka ein-
staklinga í okkar raðir sem geta sameinað hugvit
sitt og verkvit. Þannig manneskju eru allir vegir
færir.
Við leyfum okkur að fullyrða að fólk sem stendur
sig vel í iðnnámi fái starf að loknu námi og það sem
meira er, það mun fá góð og vel launuð störf. Ég vil
hvetja jafnt foreldra sem ungt fólk sem nú stendur
frammi fyrir námsvali að kynna sér allar þær fjöl-
breyttu starfsgreinar sem kenndar eru hér á landi.
Á næstunni fá foreldrar og nemendur í 9. bekk upp-
lýsingar sendar frá Samtökum iðnaðarins sem sýna
möguleika sem bjóðast. Atvinnulífið mun taka vel á
móti ungu fólki sem velur sér iðngrein.
Hvað viltu læra?
Guðrún
Hafsteinsdóttir
formaður
Samtaka
iðnaðarins
Opinn kynningarfundur
ÁRLEGUR FUNDUR UM UMHVERFISMÁL Á GRUNDARTANGA
Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar um niðurstöður
eftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga fimmtudaginn 14. apríl
í félagsheimilinu Miðgarði kl 13:30.
DAGSKRÁ
SETNING FUNDARINS
- Hallfreður Vilhjálmsson frá
Hvalfjarðarsveit, fundarstjóri
KYNNING Á BREYTTU
FUNDAFYRIRKOMULAGI
- Sigríður Kristjánsdóttir frá
Umhverfisstofnun
NIÐURSTÖÐUR EFTIRLITS OG
UMHVERFISVÖKTUNAR
- Halla Einarsdóttir frá
Umhverfisstofnun
ERINDI
- Einar Friðgeir Björnsson frá Norðuráli
ERINDI
- Sigurjón Svavarsson frá Elkem
NIÐURSTÖÐUR
UMHVERFISVÖKTUNAR
- Eva Yngvadóttir frá Eflu
UMRÆÐUR Í LOK FUNDAR
Nánari upplýsingar á umhverfisstofnun.is
Leikhús fáránleikans
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
sendi flokksfélögum sínum í
Framsóknarflokknum bréf í gær
um Wintris-málið og síðustu daga
í pólitík. Þar segir hann að and-
stæðingar sínir vilji hvorki heyra
né skilja sannleikann um fjármál
hans. Allir skattar hafi verið
greiddir af eignum Wintris. En
fréttastofur 365 og RÚV koma að
tómum kofanum þegar beðið er
um CFC-skýrslur félagsins, árs-
reikninga þess og upplýsingar um
hversu mikið félagið hafði upp
úr kröfum í bú föllnu bankanna.
Gríska harmleikjaskáldið
Sófókles sagði eitt sinn: „Sann-
leikurinn fer aldrei neinar króka-
leiðir“ og líka: „Engum ber heilagri
skylda til að vera löghlýðinn en
þeim sem setur lögin.“
Óskrifað blað
Andri Snær Magnason rithöf-
undur bauð sig fram til forseta í
gær. Hann hafði raunar ætlað að
stíga fram fyrr, en Wintris-vikan
var ekki heppilegur tími til að
stela sviðsljósinu. Rithöfundurinn
Þorgrímur Þráinsson er hættur
við forsetaframboð en eitt af hans
helstu afrekum á ritvellinum
er sjálfshjálparbókin Hvernig
gerirðu konuna þína hamingju-
sama. Þá er aðeins viðeigandi að
næsti rithöfundur á framboðs-
listanum sé Andri. Það er ekki
amalegt fyrir forseta lands að hafa
skrifað bókina Draumalandið
– sjálfshjálparbók handa hræddri
þjóð. snaeros@frettabladid.is
1 2 . a p r í l 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D a G U r12 s k o Ð U n ∙ F r É T T a B l a Ð I Ð
SKOÐUN
1
2
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
0
7
-5
2
8
8
1
9
0
7
-5
1
4
C
1
9
0
7
-5
0
1
0
1
9
0
7
-4
E
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
3
2
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K