Fréttablaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Ég er bara enn þá að átta mig á því
að við höfum unnið, það er ótrú-
lega mikill heiður að vinna svona
stóra keppni. Þetta var mjög hörð
keppni og við vissum ekki hverju
dómararnir voru að leita eftir og
allir skólar áttu jafna möguleika
á því að vinna,“ segir Elín Sif Hall-
dórsdóttir, söngkona og nemi í
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
en hún, ásamt þeim Guðrúnu
Ólafsdóttur og Hrafnhildi Magneu
Ingólfsdóttur, skipar hljómsveitina
Náttsól, sem bar sigur úr býtum í
Söngkeppni framhaldsskólanna
sem fram fór um síðastliðna helgi.
Hljómsveitin Náttsól var stofn-
uð í fyrra og hafa þær allar sem
ein unnið hörðum höndum að því
að semja sitt eigið efni ásamt því að
taka upp cover-lög eftir íslenskar
söngkonur. Hljómsveitin Nátt-
sól tók einnig þátt í Músíktilraun-
um sem líka fóru fram um helgina
og komst hún alla leið í úrslit.
„Það var mikill sigur fyrir okkur
að komast í úrslit í Músíktil-
raunum, en við erum nýfarnar að
semja okkar eigið efni. Bara það að
semja þrjú lög og koma þeim öllum
í keppnina var frábært, hvað þá
að komast í úrslit. Við einblínum
mikið á þrírödd og lágstemmdan
hljóðfæraleik,“ segir hún ánægð
með árangurinn.
Margir muna þó eftir Elínu Sif
þegar hún söng sig inn í hjörtu
þjóðarinnar með framlagi sínu í
Söngvakeppni sjónvarpsins í fyrra
en þar söng hún frumsamið lag.
„Söngvakeppni sjónvarpsins var
risastór stökkpallur fyrir mig. Ég get
alls ekki sagt að ég sjái eftir því að
hafa tekið þátt þar, þetta var mikil
reynsla og gott að vinna með öllu
því fagfólki sem kemur að keppn-
inni. Í kjölfar keppninnar fékk ég
fullt af tækifærum á hinum ýmsu
sviðum, til dæmis höfðu stelpurnar
Guðrún og Hrafnhildur samband
við mig og buðu mér að koma í
hljómsveitina Náttsól eftir að þær
sáu mig í söngvakeppninni og leik-
stjórinn Baldvin Z hafði líka sam-
band við mig og bauð mér í prufu
fyrir sjónvarpsseríuna Réttur 3. Það
var auðvitað æðislega gaman að
taka þátt í því, ég fékk að leika með
ótrúlega flottum leikurum,“ segir
Elín Sif.
Fram undan hjá Elínu Sif er
áframhaldandi vinna við tónlist
ásamt því að einbeita sér að náminu
og félagslífinu.
„Það er nóg að gera í hljómsveit-
inni, ég ætla að leggja mikla áherslu
á tónlistina núna, en það er samt
aldrei að vita, ef ég fengi annað
tækifæri í leiklistinni myndi ég klár-
lega skoða það,“ segir Elín Sif.
gudrunjona@frettabladid.is
Tóku þátt í
Söngvakeppni
framhaldsskóla og
Músíktilraunum
Hljómsveitin Náttsól frá Menntaskólanum í Hamrahlíð bar sigur úr
býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór um síðustu
helgi. Þær fluttu lagið Hyperballad eftir Björk Guðmundsdóttur.
Elín Sif Halldórsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir og Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir skipa saman hljómsveitina Náttsól.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
það er óTrúlega
Mikill heiður að
vinna Svona STóra keppni.
1 2 . a p r í l 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D a G U rl í f I Ð ∙ f r É T T a B l a Ð I Ð
1
2
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
0
7
-4
3
B
8
1
9
0
7
-4
2
7
C
1
9
0
7
-4
1
4
0
1
9
0
7
-4
0
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
3
2
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K