Málfregnir - 01.12.1997, Blaðsíða 4

Málfregnir - 01.12.1997, Blaðsíða 4
H, r| —► E, e. Dæmi: Elektra (’H^ÉKipa), Medea (Mf)8eia). I nöfnum er endingin -ri oft umrituð með a (aðlögun): 'E^.évr| = Helena. 0, 0 -► Þ,þ(T, t) Þetta hljóð mun hafa verið borið fram sem [th] í forngrísku (attísku), þ.e. líkt og t í taka. Eðlilegt er þó að umrita 0, 0 sem Þ, þ í upphafi orða enda er hefð fyrir því: Þeba (©fjþat), Þrakía (0pcxKT|). Einnig hefur tíðkast að rita þ fyrir 0 inni í nöfnum og orðum af grískum uppruna: Aþena (’A0ijvri), íþaka (’lOátcrp, kaþólskur (sbr. Ka0oAtKÓq), KorinþalKórinþa (Kóptv0oq). Stundum er ritað t fyrir 0 inni í orðum, t.d. í katólskur og Korinta (ætíð svo í Biblíunni), iðulega fyrir latnesk áhrif. I, t -* I, i; / í; J, j Erfitt er að búa til reglu um dreifingu þessara bókstafa. Þó virðist mega gera ráð fyrir að 1) á undan sérhljóða sé oftast nær haft /, í: Akademía CAmSrniia), en J, j í undantekn- ingartilfellum, t.d. iðulega í upphafi orða: Jókasta (’IOKáaxri), en sjá þó Ion O'Icov); 2) ýmist er I, t umritað sem I, i eða /, í á undan samhljóðum, t.d. Evripídes (E'uptTclSriq), Hippo- lýtos ('l7t7tó>.OToq). Sjá athugasemd um broddstafi aftarlega í þessum kafla. K, k -► K, k Dæmi: Klytœmnestra (KXnxatpv- éaxpa), Korinta (Kóptv0o<;). A, X -► L, l Dæmi: Leto (Ar)xa)), Lesbos (AéaPoq). M, p —► M, m Dæmi: Maraþon (Mapa0cóv), Men- ander eða Menandros (Mévavðpo;). N, v —► N, n Dæmi: Níl (Neí/toq), Níoba (Ntópri). X,x Hefð er fyrir að umrita E, ^ sem X, x, líka í upphafi orða, þótt engin íslensk orð hefjist á x: Xanþippa (Eav0LTt7trp, Xerxes (Eép^ri;). O, 0 —► O, o, Ó, ó Munurinn á grísku O, o og Q, co felst í lengd (O, o er stutt en Q, co er langt). Ekki er eðlilegt að láta þennan mun koma fram sem O, o andspænis Ó, ó í umritun á íslensku. E.t.v. er eðlilegast að umrita bæði hljóðin sem O, o nema þar sem hefðin segir annað eða íslenskur framburður virðist krefjast þess eða verða eðlilegri fyrir vikið. Dæmi: Hómer C’Opppo;), Herodótos ('HpóSoxoq). Sjá athugasemd um broddstafi aftarlega í þessum kafla. n, 7t -► P, p Dæmi: Platon eða Platón (nXárcov), Pyþagóras (noOayópat;). P, p —► R, r I upphafi forngrískra nafna er 'P (áblásið r) ýmist umritað sem Hr-, Rh- eða einungis R-: Rhea, Hrea, Rea ('Péa). Ablásið r fínnst einnig inni í orðum og er þá ýmist umritað sem r eða rh: Pyrrhos (ITúþpo;). Hefðin hefur fest ritun margra nafna í sessi, svo sem Ródos ('PóSoq). X, a, q -* S, s Dæmi: Sókrates (XcoKpátrn;), Sparta (X7táprr|). a, ; eru lágstafir, ; notað í enda orðs en a annars staðar. T, 1 -> T,t Dæmi: Teiresías (Tetpeaía;), Trója (Tpoía). Y, t) -» Y, y, Ý, ý3 ^ Nokkuð hefur tíðkast á síðustu árum að umrita o með i, í (t.d. Aíaxóíkoc -'Æskílos). Vinnuhópur sá sem tók þessar reglur saman mælir ekki með þeim rithætti. 4

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.