Málfregnir - 01.12.1997, Blaðsíða 19

Málfregnir - 01.12.1997, Blaðsíða 19
dmllusokkur kjáni átvagl aurasál beinasleggja brussa sá sem þykir duglaus eða ómerkilegur sá sem þykir einfaldur í hugsun sá sem þykir borða mikið sá sem þykir vera nískur sú sem þykir vera stórvaxin sú sem þykir vera digur eða haga sér frekjulega Og það mætti hafa sama hátt á gagnvart orðum sem vísa til hluta og fyrirbæra: drusla bfll sem þykir vera (orðinn) lélegur krummaskuð staður sem þykir vera ómerkilegur Skýringarstrengimir gætu í heild eða að hluta til nýst sem leitartæki ef notandinn vill safna saman orðum sem em merkingarlega tengd, og þá ekki aðeins samheitum heldur einnig hliðskipuðum heitum sem eiga sér yfirheiti að samnefnara. Þannig mætti út frá orðinu drusla ná til orða eins og jeppi og trukkur ef þau væm einnig skýrð með yfirheitinu bíll. Enn mætti bæta við skylt orðafar með því að nýta sér aðgang um samsetningaskil eins og gert er í Orðastað þar sem m.a. em orðin bílgarmur, bílskrjóður, bíltík og bílbeygla, og einnig hliðskipuð heiti sem vísa til lögunar og gerðar, pallbíll, skutbíll o.s.frv. Algengast er að setja skilgreiningar fram með þessu sniði, þ.e. með því að tilgreina næsta yfirhugtak (nærhugtak) og einn eða fleiri aðgreina, til aðgreiningar frá yfirhug- takinu og hliðskipuðum hugtökum ef þeim er til að dreifa. Þessi skýringarháttur liggur hvað beinast við þegar um áþreifanlega hluti er að ræða: hnífur áhald til að skera með ... skœri áhald til að klippa með ... Skilgreiningin í Islenskri orðabók er líka nokkum veginn svona en heiti yfirhugtaks- ins er reyndar á reiki. Ef skilgreiningar væru almennt á þennan veg þegar áhöld em annars vegar væri komið enn eitt álitlegt leitartæki við að ná saman hliðskipuðum heitum. Á þennan hátt má leita nýrra leiða og sóknarfæra við gerð skilgreininga og skýr- inga og árangurinn gæti orðið tvíþættur, skýringamar sjálfar yrðu markvissari og reglulegri og efnisatriðin yrðu betur sam- tengd og aðgengilegri. I sumum orðabókum er lögð mikil áhersla á samræmda skil- greiningarorðanotkun, jafnvel þannig að þar komi aðeins til greina lokað mengi orða. Þannig á að tryggja að notendur hnjóti ekki um óþarflega flóknar og erfiðar skilgrein- ingar, þeir rekist ekki á hringskilgreiningar né heldur skýringarorð sem engin lýsing er á í orðabókinni. Þetta er einkum gert í orðabókum sem hugsaðar em fyrir þá sem eru að nema það tungumál sem orðabókin er um. I þessum efnum em íslenskir orða- bókarhöfundar mjög svo óreyndir en þegar hugað verður að samningu orðabóka um íslensku fyrir námsmenn og skólafólk, eða fyrir nýbúa, rætist vonandi úr. Við skulum líta aðeins betur á þá mögu- leika sem felast í samræmdri framsetningu merkingarskýringa og athuga hvort greiða mætti fyrir aðgangi að orðtökunum sem ég var að vandræðast með áðan. Ekki verður betur séð en það geti víða verið raunhæft og árangursríkt. Við getum lagt af stað með því að hugsa okkur eitthvert orðasamband, t.d. orðtakið stökkva upp á nef sér. I Islenskri orðabók er það tilgreint á tveimur stöðum, bæði undir nafnorðinu og sögninni, með sömu skýringu: reiðast snögglega. Leiðin að skyldu orðafari liggur sýnilega ekki um flettiorðin sem því er skipað undir, nafn- orðið nef og sögnina stökkva, en hún gæti hins vegar legið um skýringarorðin, annað- hvort sögnina að reiðast eða, og e.t.v. frekar, um lýsingarorðið, reiður. Skýringuna mætti setja þannig fram: stökkva upp á nefsér verða snögglega reiður 19

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.