Málfregnir - 01.12.1997, Blaðsíða 13

Málfregnir - 01.12.1997, Blaðsíða 13
meðan á gerð orðabókarinnar stóð en það hefur einnig gildi sem sjálfstætt yfirlit og er til glöggvunar fyrir notendur þegar flett er upp á einstökum heitum í bókinni. 2.3. Tegundaflokkun orðabóka Einn veigamesti efnisflokkurinn í þessu kerfi er sá sem hér hefur númerið 41000 og yfirskriftina Allmenn ordbokstypologi, þ.e. tegundaflokkun almennra orðabóka. Hann greinist svo aftur í eina 5 flokka sem hver um sig greinist í tvo eða fleiri undirflokka. Um þessa flokka og einstakar orðabókar- tegundir, sem undir þá falla, er svo fjallað í samfellu í inngangi orðabókarinnar þar sem alls eru nefndar til sögunnar u.þ.b. 70 einstakar tegundir. Þriðja stig umfjöllunar- innar er svo sjálf orðabókarlýsingin þar sem hver tegund er skilgreind sem hugtak og vísað er til tengdra hugtaka en einnig til viðeigandi efnisgreinar í inngangi og flokk- unamúmers. Við þetta allt bætist svo sam- bærileg greinargerð um sérhæfðar orða- bækur þar sem flokkamir eru að vísu færri en tegundafjöldinn í heild er álíka mikill. Öll sú fjölbreytni, sem hér birtist, er til marks um margþætt og fjölbreytilegt hlut- verk orðabóka og hversu mikilvægt er að höfundar og orðabókarfræðingar geri sér skýra grein fyrir því hveiju sinni, skilgreini og útskýri hvaða hlutverk nýrri orðabók er ætlað, við hvaða aðstæður hún nýtist best, svo að notendum verði einnig ljóst hvar hún á síður við og aðrar orðabækur myndu nýt- ast betur. Þetta kann að þykja óraunsæ krafa til íslenskra orðabóka, þær geti aldrei orðið svo fjölbreyttar sem skyldi og ekki verði hjá því komist að þær sameini mörg og jafnvel ólík hlutverk. Það er vissulega rétt að vissu marki, sérhæfðar orðabækur um íslensku verða seint svo fjölbreyttar sem um mál stórþjóða sem búa að rótgróinni orða- bókarhefð, en jafnvel almennum orðabók- um, jafnt einmála sem tvímála, eru takmörk sett að þessu leyti þótt oft gæti tilhneigingar til þess að sannfæra notendur um hið gagn- stæða þegar orðabók er sleppt á markaðinn. Við þær aðstæður vegur almenn lýsing, sem fyrst og fremst er ætlað að vekja tiltrú og traust, oft þyngra en vönduð lýsing á megin- hlutverki og einkennum bókarinnar. Almennar orðabækur um íslensku eru, eins og við vitum, sárafáar, og við slíkar aðstæður fer ekki hjá þvf að þeim séu ætluð fleiri hlutverk en þær geta risið undir. Þetta á sérstaklega við um þá einu einmála orða- bók sem til er að dreifa, íslenska orðabók, sem upphaflega var kennd við Menningar- sjóð. Með þetta í huga er ef til vill ekki úr vegi að staldra við nokkur veigamikil flokk- unarmörk orðabókartegunda og leiða hugann að íslenskum orðabókum í því samhengi. 2.3.1 Uppflettiorðabœkur og lestrarorða- bœkur Ég nefndi símaskrána í upphafi sem óbeina viðmiðun við orðabækur, og þann einfalda samanburð má hafa til hliðsjónar þegar litið er til þeirrar tvískiptingar orðabóka sem felst í hugtökunum uppflettiorðabók annars vegar og lestrarorðabók hins vegar. Hug- tökin vísa til tvenns konar notkunar. Annars vegar eru orðabækur með því sniði að þær henta þeim best sem vilja ganga rakleitt að tilteknu atriði, afmörkuðum upplýsingum sem veita svar við þeirri spurningu sem var tilefni notkunarinnar. Hins vegar eru orða- bækur þar sem framsetningin miðast við eða gefur færi á að afla sér víðtækari vitneskju með samfelldum lestri eða heyja sér fróðleik af einhverju tagi. Hér eru línumar þó sjaldn- ast fullkomlega skýrar. Flestar orðabækur eiga að geta dugað til tiltölulega beinnar uppflettingar og það kann þá að vera styrkur þeirra fremur en veikleiki að notandinn geti með hægu móti fengið gleggri upplýsingar en hann hafði beinlínis vænst. Margar sam- heitaorðabækur hafa t.d. einkenni beggja þessara tegunda. En einkenni dæmigerðra lestrarorðabóka felast gjama í að skýringar eru blandnar tilgátum og hugleiðingum, eins og við sjáum dæmi um í íslenskri orðsifja- bók Asgeirs Blöndals Magnússonar og í 13

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.