Bændablaðið - 16.04.2014, Qupperneq 1
8. tölublað 2014 miðvikudagur 16. apríl Blað nr. 417 20. árg. Upplag 31.000
Sauðfjárbændur fjölmenntu til Reykjavíkur á dögunum til þess að halda aðalfund og árshátíð. Af því tilefni var slegið upp rúningskeppni á Kex-hostel þar sem
sex þaulvanir rúningsmenn kepptu um Gullklippurnar. Hér má sjá Bergþóru Guðnadóttur, hönnuð og eiganda Farmers Market, reyna sig með vélklippurnar
undir styrkri leiðsögn Jóns Eyjólfssonar frá Kópareykjum. Farmers Market er einn stærsti kaupandi ullar hér á landi og vinnur fjölbreyttar vörur sem seldar
eru um allan heim. Það þótti því vel við hæfi að Bergþóra lærði réttu handtökin við rúninginn. – Nánar um Gullklippurnar á bls. 7. Mynd / TB
Kaupfélag Skagfirðinga:
Stofnar sölu- og dreifingarfyrirtæki í Rússlandi
– Um er að ræða þjónustu við dýra veitingastaði þar sem hátt verð fæst fyrir íslenskt lambakjöt
Kaupfélag Skagfirðinga (KS)
hyggst á næstunni setja á fót
fyrirtæki úti í St. Pétursborg í
Rússlandi sem mun markaðs-
setja íslenskt lambakjöt á
Rússlandsmarkað. Um er að ræða
þjónustu við dýra veitingastaði
og fæst hátt verð fyrir vöruna.
Þegar fram í sækir má búast við
að fyrirtækið gæti markaðssett
ýmsa aðra íslenska matvöru og
dreift henni í Rússlandi.
Að sögn Ágústs Andréssonar,
forstöðumanns Kjötafurðastöðvar
Kaupfélags Skagfirðinga, hefur KS
farið fyrir vinnu við markaðssetningu
á íslensku lambakjöti í Rússlandi
síðustu þrjú ár.
„Þetta er mjög kröfuharður
markaður. Þetta eru sum af dýrustu
veitingahúsum í Rússlandi og þar
með í heiminum. Það er ofsalega
mikill áhugi á vörunni en kaupendur
eru fremur litlir og eru oft ekki með
innkaupaþjónustu, vöruhótel eða
annað þvíumlíkt. Við höfum náð
umtalsverðum árangri í kynningu
en minni í sölu vegna þessa. Við
höfum reynt núna í þrjú ár að finna
samstarfsaðila á dreifingarmarkaði
í Rússlandi en þeir hafa ekki treyst
sér til að taka við vöru í því magni
sem við þurfum að flytja út til að
það séu hagkvæmir flutningar.
Við þurfum að flytja vöruna út í
gámavís. Því var það niðurstaðan í
lok síðasta árs að kanna möguleika
á að koma okkur fyrir þarna úti með
eigið fyrirtæki.“
Langt og strangt ferli
KS er í samstarfi við hjónin Sigurjón
Bjarnason og Katerinu Gerasimova
um stofnun fyrirtækisins, sem ber
heitið Icecorpo. Katerina er frá
St. Pétursborg og er með mikla
þekkingu og tengingar þar út
að sögn Ágústs. „Þetta er skref
sem við sáum okkur knúin til
að taka og er þannig hugsað að
Icecorpo muni veita íslenskum
útflytjendum þjónustu, selja og
dreifa vöru. Fyrst og fremst verða
það matvæli í upphafi, þá horfum
við til lambakjötsins, en einnig að
það kanni gagnkvæm viðskipti milli
landanna. Þetta ferli er langt og
strangt, því fylgir mikil skriffinnska
og pappírsvinna, en við vonumst til
að fyrirtækið verði komið á koppinn
í lok þessa mánaðar eða í byrjun
þess næsta.“
Sótt á dýran markað
Ekki er ný saga að kjöt sé flutt út
til Rússlands frá Íslandi en nýjungin
er sú að nú er verið að sækja inn á
mjög dýran markað. „Við höfum
áratugareynslu af sölu á ódýrara
kjöti inn á Rússlandsmarkað,
hrossakjöti og ærkjöti til að mynda.
Það eru ódýrir markaðir sem geta
tekið við miklu magni en þetta
nýja verkefni er annars eðlis. Við
byggðum auðvitað á fyrri reynslu
og þeim tengingum sem við höfum
skapað. Það hefur hjálpað mikið
til.“
Mikil tækifæri í Rússlandi
Ágúst segir menn sjá fyrir sér að
fyrirtækið muni geta markaðssett
og dreift ýmsum öðrum
framleiðsluvörum. Til að mynda séu
gríðarlegir möguleikar í útflutningi
á bleikju á þessum markaði. Áður
þurfi hins vegar að ganga frá
vottunarmálum svo hægt sé að
flyta eldisfisk á Rússlandsmarkað.
Þá séu möguleikar á útflutningi
mjólkurvara fyrir hendi, hægt væri
að flytja út súkkulaði, íslenskan
bjór og vatn, svo dæmi séu tekin.
„Það er mjög mikill vilji fyrir
viðskiptum við Ísland af hálfu
Rússa. Því ætti að forðast að
blanda saman viðskiptasamningum
við afstöðu til milliríkjadeilna
eða stöðu mannréttindamála í
viðkomandi ríkjum. Slíkt á ekki
heima á þeim vettvangi, þó sjálfsagt
sé að taka afstöðu til þeirra mála í
annarri umræðu,“ segir Ágúst. /fr
Ágúst Andrésson. Mynd / HKr.
Mér leiddust heldur fjósverkin
22
Langan tíma tekur að rækta skóg
og krefst mikillar þolinmæði
24 46
Skemmtum okkur vel
á æfingum
Hvalveiðar skaða
lambakjötssölu
Hvalveiðar Íslendinga ollu
því að íslenskt lambakjöt var
ekki auglýst í Whole Foods
verslununum í Bandaríkjunum
á síðasta ári. Fyrir vikið gengu
markmið um söluaukningu frá
árinu 2012 ekki eftir. Beita
þurfti töluverðum fortölum
til þess að koma í veg fyrir
að verslanirnar kipptu ekki
alfarið að sér höndunum
hvað varðar sölu á íslensku
lambakjöti.
Árið 2012 voru 200 tonn
af íslensku lambakjöti flutt út
á Bandaríkjamarkað og hafði
útflutningur farið stigvaxandi
árin á undan. Stefnt var að því að
flytja út 250 tonn af lambakjöti
á Bandaríkjamarkað árið 2013
en þær áætlanir gengu ekki upp.
Þrátt fyrir að kjötið væri ekki
auglýst hélst salan frá árinu áður
og seldust um 200 tonn í fyrra.
– Sjá frétt á bls. 4
/fr
Hvalur á skurðarplaninu í
hvalstöðinni Hval rði.