Bændablaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
sem tók til starfa 2009 með breyttum
lögum um raftæki frá 1. janúar það
ár. Þá var innflytjendum gert skylt
að stofna skilakerfi. Í framhaldinu
voru stofnuð tvö slík kerfi 2009,
en með breyttum lögum sem nú
liggja fyrir Alþingi stendur til að
Úrvinnslusjóður yfirtaki skilakerfin.
Markmið með lögunum um
raftæki sem sett voru að frumkvæði
Evrópusambandsins og tóku gildi
á Íslandi 1. janúar 2009, var að
stuðla að nýtingu hráefnanna til
endurvinnslu. Og koma í veg
fyrir að notuð tæki væru send til
þróunarlandanna þar sem þau hafi
skapað umhverfisvandamál.
Sameining skilakerfa
undir einn hatt
„Ég tel þetta mjög til bóta þó ég sé
sjálfur framkvæmdastjóri fyrir öðru
skilakerfinu sem heitir Samskil.
Ég hef reyndar frá upphafi verið
þeirrar skoðunar að þetta ætti heima
inni í Úrvinnslusjóði. Ég tel það
miður að nú sé í sambandi við nýja
úrgangsfrumvarpið verið að ræða
um að gera sérstakt skilakerfi fyrir
rafhlöður og rafgeyma. Að mínu mati
á það að vera hjá Úrvinnslusjóði sem
hefur reynst ákaflega vel. Þar er
sérstakur sjóður fyrir hvert efni sem
lögum samkvæmt verður að standa
undir förgun eða endurvinnslu þeirra.
Þá fjármuni má ekki nota í neitt
annað. Þannig mega peningar sem
innheimtir eru af sölu rafgeyma ekki
notast í endurvinnslu hjólbarða eða
olíumálningar svo eitthvað sé nefnt.“
Óþarfi að flækja málin
að kröfu ESB
„Að mínu mati hefur starfsfólk
Úrvinnslusjóðs staðið sig frábærlega.
Það á að nýta þá þekkingu til að
gera enn betur. Stundum verðum
við nefnilega að spyrna við fótum
gagnvart Evrópusambandinu sem
krefst þess að sett séu upp sérstök
skilakerfi fyrir einstök efni og að
framleiðendur og innflytjendur verði
gerðir ábyrgir. Það er í sjálfu sér gott,
en við erum bara með enn betra og
fullkomnara kerfi hér á landi sem
er Úrvinnslusjóður. Hann eigum við
að nýta betur og kynna á erlendum
vettvangi. Hann getur alveg nýst í
öllum tilfellum og líka svarað fyrir
innflytjenda- og framleiðendaábyrgð,
því að í stjórn hans sitja fulltrúar frá
atvinnulífinu. Það er óþarfi að fara að
flækja kerfið þó Evrópusambandið
krefjist þess.“
Skilagjaldi á raftækjum
haldið í lágmarki
Varðandi skil á þvottavélum og
öðrum raftækjum, þá er skilagjald
sem á þau eru lögð eingöngu hugsuð
til að standa undir kostnað við
móttöku en ekki til endurgreiðslu
líkt og gerist með skil á ónýtum
bílum. Reynt er að hafa gjaldið í
algjöru lágmarki. Vegna skilagjalda
á raftækjum losnar fólk síðan við að
greiða fyrir förgun.
„Móttaka á rafgeymum eru einu
tilvikin sem við greiðum fyrir skil á
hlutum sem innihalda spilliefni. Þó
erum við ekki að borga fyrir einn og
einn geymi, heldur ef fyrirtæki koma
með marga geyma í einu sem þau
hafa safnað saman. Síðan borgum við
auðvitað fyrir verðmæta málma sem
menn skila hingað til endurvinnslu,“
segir Jóhann.
Þetta er allt hráefni en ekki rusl
Hann segir að mikil breyting hafi
orðið til batnaðar varðandi skil á
brotajárni og örðum málum sem
áður var gjarnan urðað víða um land.
„Ég held að slíkt sé nánast horfið
en hins vegar var mikið um slíkt
hér áður fyrr. Manni skilst að víða
séu heilu námurnar af brotajárni
sem búið er að urða þar sem liggja
jafnvel þúsundir tonna. Sem betur fer
hefur þarna orðið mikil framþróun
og við erum farin að standa okkur
mikið betur hér á Íslandi. Þá er fólk
almennt farið að gera sér grein fyrir
nauðsyn þess að endurvinna efni og
spara þar með um leið námavinnslu
og ágang á auðlindir jarðar. Enda
er endurvinnsla alltaf að verða
hagkvæmari og umhverfislega réttari
hugsun. Þetta er allt hráefni en ekki
rusl.
Málmarnir eru bræddir upp aftur
og mótaðir í nýja hluti. Sama er verið
að gera með plastið. Verðið plasti
til endurvinnslu er að vísu full lágt,
en eitthvað er verið að vinna slíkt
hér á landi líka, eins og vegstikur
og staura.“
Mikill fjöldi starfa hefur skapast
í endurvinnslu
„Störf í endurvinnslu eru orðin
gríðarlega mörg á Íslandi og fjölmörg
fyrirtæki starfa við slíkt. Það er verið
að vinna úr gúmmíi, málmum og
verið að vinna lífdísil og margvíslegt
annað. Bara hér hjá Hringrás starfa
um 40 manns og við erum með
starfsmenn á þrem stöðum á landinu
fyrir utan Reykjavík. Hringrás er
með starfsstöðvar á Reyðarfirði og
á Akureyri. Einnig erum við með
athafnasvæði á Skagaströnd, Ísafirði
og í Helguvík. Þá sendum við mikið
menn frá Reykjavík til að vinna úti
á landi við niðurrif á olíutönkum
skipum, byggingum og ýmsum
öðrum mannvirkjum. Jafnvel erum
við að hreinsa upp gamlar lagnir,
girðingar og ýmislegt annað.“
Þá má geta þess að Hringrás á
einnig fyrirtækið Vöku sem sér um
að safna saman ónýtum bílum til
endurvinnslu.
Kröfur um hátt
endurvinnsluhlutfall
Jóhann segir að í gegnum fyrirtækið
fari þúsundir tonna á hverju ári
af málmum, dekkjum og öðru
efni til endurvinnslu. Kröfur um
endurvinnsluhlutfall notaðar hluta
eru stöðugt að aukast. Þannig er
krafa um að endurvinna verði 65%
af gömlu túbusjónvarpstækjunum.
Myndlampinn er tekin úr þeim og
myndbyssan tekin frá, þar sem í þeim
er blý. Glerið úr myndlampanum er
sent utan, þar sem blýið er hreinsað
úr og glerið síðan endurunnið.
Skjáglerið er hreint og gæti nýst til
vegagerðar, í hafnarframkvæmdir
eða sem efni í skrautpússningu utan
á steinhús. Jóhann segir að þar sem
gler er bara bræddur kvartssandur
sem er ódýrt hráefni borgi sig vart
að flytja það utan með skipum
til endurbræðslu. Því þurfi að
finna farveg til að endurnýta það
með einhverjum hætti hér heima.
Það á m.a. við um gler undan
drykkjarvörum.
Krafa um endurvinnslu á
ljósaperum er um 50% nýtingu. Glerið
úr þeim fer til endurvinnslu erlendis
sem og raftæki, bílar og annað sem
þar er tætt í sundur í verksmiðju og
flokkað í sundur með seglum og
öðrum búnaði. Þar sem glerið er
eðlisþyngst fellur það á botninn af
færibandi endurvinnslustöðvanna.
Plast flokkast líka úr og fer í
endurvinnslu en aukaefni eins og tau
úr sætum og annað fer í brennslu í
orkuverum. Varðandi tölvur segir
Jóhann að þær séu skrúfaðar í
sundur þar sem í prentplötunum séu
góðmálmar sem endurunnir eru með
sérstöku aðferðum.
Endurvinnsla á gömlum ísskápum
sem enn innihalda hættulegt freon
er komið til Efnamóttökunnar sem
sér um að tappa af þeim. Þess má
geta að einangrunin í mörgum af
gömlu ísskápunum inniheldur líka
freon. Skáparnir eru síðan pressaðir
og sendir í brennslu. Jóhann segir að
freon sé nú bannað en þess í stað er
nota porpangas sem kælimiðill. Þá
inniheldur einangrunin ekki lengur
hættuleg efni. Nýr ísskápur í dag er
því mjög umhverfisvænn og auðvelt
að nýta í endurvinnslu.
Nýta skip sem hingað koma
fyrir álverin
Til að ná sem hagstæðustum
flutningsgjöldum vegna flutnings á
brotamálmi úr landi eru leigð skip
sem flytja hráefni til Íslands fyrir
álverin og myndu annars fara tóm
út aftur.
„Þannig er okkur að takast að
láta þessa endurvinnslu standa undir
sér og skila þeirri framlegð sem
nauðsynleg er. Varðandi plastið þá
tekur Gámaþjónustan það hjá okkur
og sér um að flytja það úr landi.“
Bændur taki sig á
Jóhanna segir að þó mikið hafa áunnist
í að breyta hugarfari almennings og
stjórnenda í atvinnulífinu varðandi
endurnýtingu á margvíslegum
hlutum, þá þurfi bændur landsins að
taka sig verulega á. Víða um sveitir
liggi vélar, tæki og mannvirki sem
hætt er að nota og valdi verulegri
sjónmengun fyrir vaxandi straum
ferðamanna. Íslendingar megi
ekki láta það spyrjast um sig, og
allar síst bændur sem eru í hágæða
matvælaframleiðslu, að þeir séu
einhverjir umhverfissóðar. Örlítið
breyttur hugsunarháttur samfara
svolítilli framtakssemi geti gjörbreytt
ásýnd sveitanna á skömmum tíma,
öllum til góðs. /HKr.
Hér eru Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, skólastjóri Grunnskólans á Ísa rði, Jóhann Karl Sigurðsson og Ralf Trylla, umhver sfulltrúi hjá Ísafjarðarbæ.
Myndin var tekin þegar skólinn fékk afhent myndskeiðið sem kennslugagn, stand undir rafhlöður og rafhlöðukassa til að gefa nemendum. Mynd / Kubbur
Jóhann Karl ásamt starfsmönnum Hringrásar á athafnasvæði fyrirtækisisins í Klettagörðum. Mynd / Áskell Þórisson
Það þarf að skoða vel hvort hættuleg efni leynist í heimilstækjunum sem
send eru til endurvinnslu erlendis. Mynd / Áskell Þórisson
Endurvinnsluiðnaðurinn er orðinn
umsvifamikil atvinnugrein á Íslandi.
Mynd / ÁÞ
r sér gengnir utningsgámar eru
líka verðmæti. Mynd / ÁÞ