Bændablaðið - 16.04.2014, Side 23
23Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
Byggingarstofnunarinnar, frá því
að hún var stofnsett árið 1990, eru
rúmlega ellefuhundruð. Það eru allt
frá einföldum vélageymslum og upp
í hátæknifjós, bæði viðbyggingar
og nýbyggingar. Ég hef verið svo
heppinn að hafa með mér góða
samstarfsfélaga þessi ár. Sigurður
Sigvaldason verkfræðingur
starfaði með mér fyrstu árin sem
burðarvirkishönnuður, síðan Davíð
Arnljótsson, Sigurður Björnsson og
nú síðast Sæmundur Óskarsson.“
Mikilvæg þjónusta fyrir bændur
Sú þjónusta sem Byggingaþjónustan
hefur boðið bændum upp á hefur
skipt miklu máli í íslenskum
landbúnaði að mati Magnúsar.
„Ég tel að þetta hafi verið
gríðarlega mikilvæg þjónusta fyrir
íslenska bændur. Það er nú einu sinni
þannig að þegar menn ákveða að
byggja upp fyrir framtíðar búrekstur
eru þeir að leggja í gríðarlega mikla
fjárfestingu og því afar mikilvægt
að vel takist til. Við höfum alla tíð
haft yfir að ráða mikilli þekkingu
og miklum upplýsingum um
landbúnaðarbyggingar, tækni í
húsum og samspil þar á milli auk
vinnuhagræðingar og aðbúnað
gripa. Það hefur að mínu mati verið
mjög mikilvægt fyrir bændur að
geta sótt þessa þekkingu til okkar
og fengið hér allar teikningar á
einum stað.“
Framkvæmdir sem skiluðu
bullandi mínus
All nokkuð dró úr eftirspurn eftir
þjónustu byggingaþjónustunnar
eftir efnahagshrunið. Árin þar
á undan hafi hins vegar verið
gífurlega mikið að gera.
„Eftirspurnin minnkaði töluvert
eftir bankahrunið en á árunum
2002 og fram til ársins 2007 var
gríðarleg eftirspurn eftir okkar
þjónustu. Á þeim tíma var ekkert
vandamál fyrir bændur að fá lán til
framkvæmda, þeir voru nánast eltir
uppi og spurðir hversu mikið þeir
vildu fá. Síðan tóku bankastofnanir
bara veð í jörðunum. Framkvæmdir
voru því kannski sumar hverjar
ekki byggðar á nægilega öruggum
rekstraráætlunum. Það er hins
vegar afar mikilvægt þegar menn
ætla að fjárfesta í búskap að menn
greini reksturinn til framtíðar
rækilega. Hvernig á að standa undir
fjárfestingunni, skilar hún arði eða
mun dæmið bara koma út í bullandi
mínus? Sums staðar var það því
miður þannig.“
Ráðgjöf reyndist heilladrjúg
Þegar Magnús fór í heimsóknir
til bænda sem voru að hugsa um
framkvæmdir á þessum tíma fékk
hann iðulega héraðsráðunauta til að
koma með sér í slíkar heimsóknir.
„Þeir þekktu betur aðstæður
bændanna og komu inn í málið á
forstiginu og við gátum leiðbeint
mönnum. Ég er tvímælalaust
þeirrar skoðunar að það hafi í
einhverjum tilfellum komið í veg
fyrir að bændur reistu sér hurðarás
um öxl í framkvæmdum. Þessir
ráðunautar höfðu flestir starfað um
árabil á svæðinu, þekktu bændur,
þeirra búskap og getu þeirra til að
standa undir fjárfestingum. Það var
hlustað á okkur þegar við komum í
þessar ferðir og ég tel að í mörgum
tilfellum hafi okkar ráðgjöf reynst
bændum heilladrjúg að þessu leyti.“
Verður ekki verklaus
Þrátt fyrir að Magnús hætti nú
störfum hjá Bændasamtökunum
segir hann það fjarri lagi að hann
verði verklaus. Hann og Marta
keyptu árið 2001 jörðina Neistastaði
í Flóahreppi og hafa þau stundað
skógrækt þar af miklum móð í
samstarfi við Suðurlandsskóga auk
þess að vera með góða aðstöðu fyrir
hross en Magnús er hestamaður
mikill. Þau hjón byggðu sér þar
fallegt bjálkahús og segist Magnús
eiga von á því að dvelja enn meira á
Neistastöðum nú eftir að hann lætur
af starfi. Þá gefist meiri tími fyrir
hestaferðir og skíðamennsku en
þau hjón eru skíðafólk gott og hafa
gjarnan farið í skíðaferðir í Alpana
að vetrum.
„Það má svo vel vera að ég
reyni að fara að sveifla golfkylfu.
Ég hef aðeins gert það og hef
gaman að og sérstaklega hefur
konan gaman að því. Það kemur
því sterklega til greina að ég reyni
að mennta mig meira í því svo
ég fari að geta eitthvað enda er
aðstaða til golfiðkunar í Mosfellsbæ
geysilega góð með tvo golfvelli við
bæjardyrnar.“
Þó Magnús hætti nú störfum segir
hann vel koma til greina að taka að
sér teikniverkefni fyrir bændur ef
eftirspurn væri eftir því, þá gjarnan
í samstarfi við Byggingaþjónustuna.
„Ég gæti vel hugsað mér það.
Þessi tími sem ég hef starfað við
þetta er búinn að vera afskaplega
góður og skemmtilegur.“ /fr
Bætiefni efla bústofn
Fjölbreytt vöruúrval fyrir allan búfénað
Rediar Rautt anolAlhliðasteinn Allium hvítlauksolía
Söluráðgjafar Líflands ráða þér heilt við val á bætiefnum.
Vöruflóra Líflands inniheldur m.a. júgurbólguforvörn, skitumeðal, orkudrykk,
bætiefnafötur, fljótandi selen og vítamín.
Hestafata með
hvítlauk
H fata
Lynghálsi, Reykjavík Lónsbakka, Akureyri Efstubraut, Blönduósi
Sími 540 1125 Sími 540 1150 Sími 540 1155Sími 540 1100
lifland@lifland.is www.lifland.is
Magnús er mikill hestamaður og hefur síðastliðin 17 ár farið í árvissa vikulanga hestaferð með Ferðafélaginu Feita
Jarpi.