Bændablaðið - 16.04.2014, Page 34
4 LbhI blaðið 2014
Nemendagarðar
Nemendagarðarnir á Hvanneyri
eru sjálfseignarstofnun sem býður
upp á húsnæði fyrir nemendur.
Í boði eru einstaklingsherbergi,
einstaklingsíbúðir og tveggja til
fjögurra herbergja íbúðir. Allar
upplýsingar um verð og stærð
húsnæðis á vegum garðanna á
heimasíðunni.
http://nemendagardar.lbhi.is/
Skeifudagur Grana
Sumardaginn fyrsta verður
haldinn hátíðlegur Skeifudagur
Grana og fer dagurinn fram á
Mið-Fossum í Andakíl sem er
hestamiðstöð LbhÍ. Grani er
hestamannafélag nemenda við
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Þennan dag sýna nemendur í
hrossarækt afrakstur vetrarstarfs-
ins í reiðmennsku og frumtamn-
ingum.
Reiðkennari nemenda í vetur
er Heimir Gunnarsson.
Opið hús í
Garðyrkjuskólanum
Að venju verður opið hús í
Garðyrkjuskólanum – Starfsstöð
Landbúnaðarháskóla Íslands - á
sumardaginn fyrsta, 24. apríl.
Opna húsið hefst kl. 10 og lýkur
kl. 18. Garðyrkjuskólinn er á
Reykjum – rétt hjá sundlauginni
í Hveragerði. Heimsókn að
Reykjum er fastur liður í hátíðar-
höldum hjá mörgum á sumar-
daginn fyrsta.
Icelandic Agri -
cultural Sciences
Icelandic Agricultural Sciences
(IAS) er alþjóðlegt vísindarit
sem birtir greinar um hagnýt
og fræðileg efni í náttúruvís-
indum, aðallega tengd norður-
slóðum. Ritið er gefið út af átta
íslenskum stofnunum sem beint
eða óbeint tengjast nýtingu á
náttúruauðlindum. Allar greinar
sem birtast í ritinu eru ritrýndar
af fræðimönnum sem oft eru
erlendir. Greinar í IAS koma fram
í ýmsum alþjóðlegum vefsetrum
og má t.d. finna í Google-Scholar
leitarvél. Matsstuðull (e. Impact
Factor) í Web of Science er nú
1,750. Ritið kemur út einu sinni
á ári. IAS er í prentaðri útgáfu
og í opnum rafrænum aðgangi á
vefsíðu ritsins www.ias.is.
Tveggja ára MS
nám í skipulagsfræði!
Námsbraut í skipulagsfræði
er tveggja ára MS nám með
sjálfbæra þróun og sköpun
lífvænlegs umhverfis að
leiðarljósi. Lögð er áhersla á
gagnrýna skipulagshugsun.
Skipulagsfræði er sjálfstæð
fræðigrein, en henni tengist
fjöldi annarra faggreina svo
sem lögfræði, félagsfræði,
hagfræði, landfræði, nátt-
úrufræði, sagnfræði, arkitektúr
og verkfræði.
Námið er byggt upp af
námskeiðum og rannsóknar-
verkefni. Námskeiðum lýkur á
þriðju önn og þá hefst vinna við
rannsóknarverkefnið.
Miðað er við að nemendur
sem útskrifast af námsbrautinni
hafi aflað sér nauðsynlegrar
þekkingar til að uppfylla þær
menntunarkröfur sem gerðar
eru til skipulagsfræðinga af
Skipulagsfræðingafélagi Íslands.
Mikilvægt er að skipulags-
fræðingar á Íslandi hafi aflað
sér þekkingar á náttúrufari,
veðurfari, samfélagi, hagkerfi,
lagaumhverfi, tækni, menn-
ingu, fagurfræði, sögu landsins,
byggðaþróun og innri gerð
byggðar.
Meginmarkmið náms-
brautarinnar er að útskrifa
nemendur sem hafa tileinkað
sér sérhæfingu skipulags-
fræðingsins í að tvinna saman
alla þá ólíku þætti sem koma
að skipulagsgerð, hagræna og
félagslega, umhverfislega, laga-
lega og hagsmunatengda þætti.
Nám við Landbúnaðarháskóla Íslands
Auðlindadeild / Umhverfisdeild
Þriggja ára BS nám á Hvanneyri í Borgarfirði. Rannsóknatengt MS nám
á nokkrum sviðum. MS nám í skipulagsfræði í Reykjavík.
Búvísindi
Haldgóður grunnur í raunvísindum sem byggt er ofan á með sérgreinum landbúnaðarfræða með áherslu
á íslenskan landbúnað og sjálfbæra nýtingu landsins
Náttúru- og umhverfisfræði
Fjórar áherslur: Almenn náttúrufræði, náttúrunýting, þjóðgarðar og verndarsvæði, náttúra og saga.
Áhersla er lögð á vistfræðilega nálgun
Skógfræði/Landgræðsla
Tvær leiðir: Sjálfbær skógrækt og endurheimt vistkerfa. Fléttað er saman náttúruvísindum, tækni og
haggreinum auk landupplýsinga - og landslagsfræða
Umhverfisskipulag
Grunnám í landslagsarkitektúr og skipulagsfræðum. Mótun umhverfis í stórum og smáum skala með
áherslu á vistvænar hönnunarlausnir
Hestafræði
Sameiginleg námsbraut LbhÍ og Hólaskóla – Háskólans á Hólum. Traustur þekkingargrunnur á öllum
meginsviðum hestamennsku
Skipulagsfræði
Námsbraut í skipulagsfræði er tveggja ára MS nám með sjálfbæra þróun og sköpun lífvænlegs umhverfis
að leiðarljósi. Lögð er áhersla á gagnrýna skipulagshugsun
Starfs- og endurmenntunardeild
Bændaskólinn
Tveggja ára nám á framhaldsskólastigi. Bændaskólinn er á Hvanneyri.
Búfræði
Markmið búfræðináms er að auka þekkingu og færni einstaklingsins til að takast á við búrekstur og
alhliða landbúnaðarstörf
Garðyrkjuskólinn
Tveggja ára nám á framhaldsskólastigi auk verknáms.
Garðyrkjuskólinn er á Reykjum við Hveragerði.
Blómaskreytingar
Blómaskreytinganámið veitir nemendum undirstöðuþekkingu í störfum sem lúta að
blómaskreytingum og fá þeir innsýn í rekstur blómaverslana
Garðyrkjuframleiðsla: Garð- og skógarplöntubraut
Nemendur eru búnir undir sérhæfð störf á fagsviði garð- og skógarplöntuframleiðslu. Þeir fá
undirstöðuþekkingu í framleiðslu allra helstu tegunda garð- og skógarplantna
Garðyrkjuframleiðsla: Ylræktarbraut
Nemendur eru búnir undir sérhæfð störf á fagsviði ylræktar og matjurtaræktunar. Ylræktarnám veitir
nemendum undirstöðuþekkingu á framleiðslu allra helstu tegunda í gróðurhúsum
Námsbraut um lífræna ræktun matjurta
Markmið námsbrautar um lífræna ræktun matjurta er að búa nemendur undir sérhæfð störf á
fagsviði lífrænnar ræktunar matjurta í gróðurhúsum eða í útiræktun
Skógar- og náttúrubraut
Námið á brautinni veitir nemendum undirstöðuþekkingu í störfum sem lúta að skógrækt,
landgræðslu og öðrum landbótum og umönnun umhverfis
Skrúðgarðyrkja
Löggilt iðngrein. Sveinspróf að loknu verknámi. Nýframkvæmdir, umhirða og viðhald garða og
grænna svæða. Hellulagnir, hleðslur og önnur mannvirki í umhverfinu
www.lbhi.is