Bændablaðið - 16.04.2014, Side 38

Bændablaðið - 16.04.2014, Side 38
38 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Kynbótamat sauðfjár hefur nú verið uppfært miðað við niðurstöður skýrsluhaldsins árið 2013. Í 1. töflu má sjá matið fyrir þá hrúta sem voru í notkun á sæðingastöðvunum síðasta vetur. Við endurútreikninginn núna voru grunnhópar kynbótamatsins skilgreindir á sama veg fyrir alla eiginleika. Þannig þýðir einkunn 100 núna meðalkynbótamat fyrir gögn síðustu 10 ára eða frá 2004- 2013. Breytingarnar eru óverulegar fyrir dætraeiginleikana, frjósemi og mjólkurlagni þar sem grunnhópar fyrir þá voru áður skilgreindir á sama hátt. Breytingin er heldur meiri fyrir kjötgæðaeiginleikana, gerð og fitu og samanburður á eldra kynbótamati og því nýja fyrir þá eiginleika er með öllu ómarktækur. Mikilvægt er að hafa í huga að innbyrðis röð gripa breytist ekki þar sem gripir sem áður voru háir eru áfram þeir hæstu þó reiknuð einkunn hafi lækkað. Kynbótamatið er eitt af öflugustu verkfærunum sem sauðfjárbóndi hefur til að stuðla að erfðaframförum í stofninum hjá sér. Þegar þróunin í kynbótamati einstakra eiginleika er skoðað fyrir síðustu 20 ár sést að gríðarlegur árangur hefur náðst í bættri gerð gripa. Mikill árangur hefur náðst síðustu fimm árin í öllum eiginleikum sem kynbótamat er reiknað fyrir. Erfðaframfarirnar eru metnar með því að reikna meðalkynbótamat hvers eiginleika hjá öllum hrútum sem fæddir eru viðkomandi ár með þeim skilyrðum að hrútarnir eigi lágmarksupplýsingar um bæði sláturlömb og dætur. Á 1. mynd má sjá árangurinn. Umræða um vægi eiginleika í kynbótamati á sér reglulega stað. Nýverið var vægi gerðar og fitu breytt í einkunn fyrir kjötgæði þannig að eiginleikarnir hafa núna jafnt vægi. Almennt hafa viðbrögð við þessari breytingu verið jákvæð en jafnframt hafa komið nokkrar fyrirspurnir varðandi vægi einstakra ára í einkunn fyrir frjósemi. Fagráð í sauðfjárrækt ályktaði árið 2010 að breyta væginu á þann veg að aukin áhersla skyldi lögð á frjósemi tveggja vetra áa. Margir bændur hafa gagnrýnt þessa ákvörðun en þá þarf að hafa í huga að kynbótamarkmið þurfa að vera skýr og vera þau sömu í ákveðinn árafjölda svo þau skili tilsettum árangri í stað þess að breyta þeim reglulega. Fyrr í vetur gerði greinarhöfundur úttekt á frjósemi tveggja vetra áa fæddum árin 2006-2011 á sömu 140 búunum öll árin. Í hverjum árgangi eru um 10.000 ær á þessum búum. Meðalfrjósemi þessara áa má sjá í 2. töflu. Líkt og taflan gefur til kynna er frjósemi hjá tveggja vetra ám heldur að aukast og því rétt að sjá hvort aukin áhersla á þann eiginleika muni ekki skila enn meiri ávinningi á allra næstu árum. Eyjólfur Ingvi Bjarnason Sauðfjárræktarráðunautur hjá RML eyjolfur@rml.isKynbótamat sauðfjár 2014 Hyrndir hrútar: Fita Gerð Kjötgæði Mjólkurlagni Frjósemi Heild Kvistur 07-866 106 Snær 07-867 108 Kjarkur 08-840 111 Guffi 08-869 109 Þróttur 08-871 105 Tenór 08-873 114 Bósi 08-901 116 Ás 09-877 105 Gaur 09-879 111 Rafall 09-881 107 Guðni 09-902 114 Snævar 10-875 105 Stakkur 10-883 112 Grámann 10-884 109 Hængur 10-903 112 Kári 10-904 113 Myrkvi 10-905 108 Salamon 10-906 110 Váli 10-907 110 Drífandi 11-895 111 Prúður 11-896 109 Garri 11-908 110 Þorsti 11-910 104 Bekri 12-911 111 Bursti 12-912 107 Skratti 12-913 107 Vetur 12-914 104 Saumur 12-915 107 Kollóttir hrútar: Steri 07-855 109 Sigurfari 09-860 103 Dalur 09-861 109 Höttur 09-887 107 Strengur 09-891 107 Dolli 09-892 120 Baugur 10-889 104 Kroppur 10-890 102 Roði 10-897 107 Fjalli 11-898 103 Rosi 11-899 104 Robbi 11-900 108 Landsýn – Vísindaþing landbúnaðarins 2014: Ónýtt tækifæri í veiðiferðamennsku hér á landi Ónýtt tækifæri eru við stangveiðar hér á landi. Einkum eru þau tækifæri fólgin í ódýrari veiðum, silungsveiði í vötnum og stangveiði í sjó við strendur. Miklu skiptir þó að viðhalda sjálfbærri nýtingu fiskistofna, að búsvæðum fisks verði ekki spillt, hugað verði að vatnsgæðum og ímynd stangveiði. Þetta er niðurstaða Guðna Guðbergssonar sviðsstjóra hjá Veiðimálastofnun en Guðni hélt erindi með yfirskriftinni Stangveiði í ám og vötnum – ferðamennska með nýtingu hlunninda á Landsýn – Vísindaþingi landbúnaðarins 2014. Í erindi sínu benti Guðni á að stangveiði hér á landi sé í samkeppni við stangveiði í nágrannalöndum en einnig í samkeppni við annars konar innlenda afþreyingu. Veiðiferðamennska er talsvert sérhæfð og hefur ekki fylgt almennri ferðamennsku í miklu mæli hérlendis. Almennt er það svo að verið er að fara í veiðitúr en þó eru einnig dæmi um að fólk sameini ferðalög sín og veiði sem afþreyingu. Segja má að meiri gaumur hafi verið gefinn þeim hópi sem fer sérstaklega í veiðiferðir enda veiðileyfi í eftirsóttar ár dýr og oft seld með löngum fyrirvara. Þá er aðgengi að mörgum vötnum og ám óskýrt sem veldur því að aðgengi að ódýrari veiðum er ekki til staðar. Leigutakar auka verðmæti Veiðiréttur hér á landi fylgir landi og verður ekki frá því skilinn. Skylt er að stofna veiðifélög um veiðar í ám og vötnum og venjan er sú að veiðiréttur sem boðinn út til hæstbjóðanda. Það þýðir að veiðiréttur verður eins og hver önnur verslunarvara enda selja svo þeir sem halda á veiðirétti árinnar veiðirétt til einstakra veiðimanna. Leigutakar eru í raun mjög mikilvægir fyrir landeigendur þar eð þeir hafa náð meiri verðmætum út úr ánum, þeir hafa getað verðlagt veiði hærra en ella. Veiðimenn halda gjarnan tryggð við ákveðnar ár, koma þangað aftur og aftur og verða um sumt talsmenn veiði auðlindarinnar. Við ár hafa risið veiðihús og eru þau sérsniðin þörfum veiðimanna. Þau eru því sjaldan nýtt til annars og eru nálega eingöngu í notkun yfir veiðitímann. Þá er þjónusta og leiðsögn sérsniðin að þörfum veiðimanna og skila arði út í samfélagið. Samkvæmt könnun sem gerð var árið 2000 töldu um 60.000 manns sig stunda stangveiðar hér á landi. Meðal veiðidagar voru 8 ár hvert. Samkvæmt umræddri könnun var talið að á bilinu 3.000 til 5.000 erlendir stangveiðimenn kæmu til landsins árlega en þær tölur sveiflast all nokkuð, bæði í tengslum við efnahagsástand og veiðivon. Veiði veitir fjármunum til dreifbýlis Rétt um 1.900 lögbýli njóta veiðihlunninda hér á landi og eru veiðifélög 106 talsins. Veiðidagar voru árið 1999 436 þúsund á ári en ekki liggja fyrir nýrri tölur. Stangveiði veitir sem sagt fjármunum frá þéttbýli til dreifbýlis og er á sumum svæðum mikilvæg undirstaða byggðar. Samkvæmt úttekt Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands frá árinu 2004 var velta greinarinnar á milli 9 og 10 milljarðar króna og beinar tekjur samfélagsins á milli 2 og 3 milljarðar. Þá styður stangveiði við um 1.000 störf á landinu öllu. Nauðsynlegt að ná til kvenna Veiði og veiðiferðamennska hefur ekki skipað stóran sess innan ferðaþjónustu hér á landi eins og áður segir. Það eru hins vegar tækifæri fyrir hendi, einkum í silungsveiði í ám og vötnum og ódýrari veiðiskapar. Að mati Guðna vantar hins vegar betra skipulag og væri skynsamlegt að taka upp þá aðferð sem beitt hefur verið við laxveiði og rakin er hér að ofan. Þá eru talsverð tækifæri til markaðssetningar sem byggir á sérstöðu í heimabyggð, til að mynda í tengslum við matartengda ferðamennsku. Hins vegar er ljóst að stangveiði er í samkeppni við aðrar tómstundir og kostnaður við veiðar hefur þar mikið að segja. Þá er afar mikilvægt að kynna veiðina sem sport fyrir bæði kynin en ekki bara fyrir karlmenn. /fr Samkvæmt könnun sem gerð var árið 2000 töldu um 60.000 manns sig stunda stangveiðar hér á landi.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.