Bændablaðið - 16.04.2014, Page 39

Bændablaðið - 16.04.2014, Page 39
39Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014 Matar- og handverksfélag kvenna á Vesturlandi: Ljómalind kemur vel undan vetri Í byrjun árs 2013 kom saman hópur 12 kvenna af Vesturlandi og ákvað að stofna matar og handverksfélag, sem síðar hlaut nafnið, Ljómalind. Markmið hópsins var að halda úti sveitamarkaði þar sem hægt væri að koma á framfæri vörum úr héraðinu. Í samvinnu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Kaupfélag Borgfirðinga og Vaxtarsamning Vesturlands var mögulegt að opna markaðinn í maí 2013 og er staðsettur á Sólbakka 2, hjá hringtorginu norðan við Borgarnes. Opið hefur verið allar helgar í vetur Markaðurinn hefur verið opinn allar helgar í vetur, sem verður að teljast óvenju metnaðarfullt hjá sveitamarkaði úti á landi. En Ljómalind hefur náð að þreyja þorrann og kemur vel undan vetri. Sífellt fjölgar vörum úr héraðinu sem rata inn í frumlegar hillur Ljómalindar. Hefur markaðurinn hleypt lífi í hina ýmsu framleiðslu og með opnun nýrrar matarsmiðju í Borgarnesi handan við hornið aukast möguleikarnir enn frekar. Handverk, hönnun, leikföng, smyrsl og matvörur Á markaðnum er kjöt, ís, sultur, smyrsli, saft, skyr, te og jafnvel leikföng. Einnig er í boði vandað handverk, bæði þjóðlegt og nýstárleg hönnun í bland. Við leggjum mikið upp úr að vöruúrval sé fjölbreytt og fylgi hugmyndafræðinni um vandaða, vel framsetta vöru úr náttúrulegum efnum, rétt eins og innréttingarnar í versluninni endurspegla. Svo virðist sem vöntun hafi verið á valkosti sem þessu, því viðtökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum, bæði hjá ferðamönnum og heimafólki. Ljómalind nálgast nú sinn fyrsta afmælisdag og um um leið og við þökkum fyrir móttökurnar, bjóðum við alla velkomna að kíkja á vöruúrvalið eða bara setjast og fá kaffi í notalegu umhverfi. Það verður opið alla daga frá 16. apríl og fram á haust. Virka daga 10.00-18.00 og laugardag og sunnudag 13.00-18.00. /Sigrún Elíasdóttir. Húsnæði Ljómalindar í Borgarnesi. Lynghálsi, Reykjavík Lónsbakka, Akureyri Efstubraut, Blönduósi Sími 540 1125 Góður heyfengur er gulli betri Megastretch rúlluplast í hæsta gæðaflokki Allar nánari upplýsingar um verð er að finna á www.lifland.is Megastretch rúlluplast Megaplast Power stæðuplast Advance íblöndunarefni Netex rúllunet Sími 540 1150 Sími 540 1155Sími 540 1100 lifland@lifland.is www.lifland.is Rjúpnaveiðar: Verulega hefur dregið úr veiðum frá 2000 Mjög hefur dregið úr veiðum á rjúpu á undanförnum árum samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. og eru veiðarnar vart nema um fjórðungur þess sem þær voru um síðustu aldamót. Samkvæmt tölum Hagstofu voru veiddar 192.200 rjúpur árið 2000, 101.548 árið 2001 og 79.584 árið 2002. Þá varð algjört hrun í veiðunum og árið 2003 var ekkert veitt, en aðeins voru veiddar 1.065 rjúpur árið 2004 samkvæmt opinberum tölum. Árið 2005 kom aftur verulegur kippur í veiðarnar og þþað ár veiddust 80.432 rjúpur, en veiði datt svo niður í 52.012 fugla árið eftir. Frá þeim tíma hefur veiðin verið nokkuð flöktandi og mest árið 2009, eða 89.735 rjúpur. Síðan hefur veruilega dregið úr veiðum og á árinu 2012 voru aðeins veiddar 36.286 rjúpur. Tölur um veiðarnar á síðasta ári liggja ekki fyrir.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.