Bændablaðið - 16.04.2014, Síða 52
52 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
Utan úr heimi
Víða erlendis eru gríðarlega mikil
votlendissvæði sem eru vannýtt
til landbúnaðarframleiðslu en
flest lönd hafa þó sett strangar
takmarkanir við notkun þessara
svæða vegna mikilvægi þeirra í
nútíma vistkerfi. Vegna þessa hafa
verið sett af stað ótal verkefni sem
miða að því að nýta núverandi
framleiðslugetu svæðanna, án
þess að raska þeim og er þar oftast
horft til möguleika svæðanna til
framleiðslu á hráefnum til lífgas-
framleiðslu. Verkefnið GrassBots
er eitt þessara verkefna, en
tilgangur þess að er að þróa tæki
sem geta slegið og hirt uppskeru
votlendis með góðum afköstum en
um leið án þess að valda skaða á
umhverfinu.
Léttur sláttuþjarkur á beltum
Til þess að ná tilætluðum árangri
var nauðsynlegt að þróa tæki sem
nota mætti á votlendissvæðinu án
þess að marka í það og fyrir valinu
varð beltastýrð sláttuvél sem er
sjálfkeyrandi, þ.e. mannlaus svo hún
sé léttari. Sláttuborðið er ekki nema
2,65 metrar en vélin er svo létt að
hægt er að aka henni yfir mjög blaut
svæði og slá þau. Það er fyrirtækið
Kongskilde sem hefur þróað þennan
merkilega sláttuþjark en hann er
knúinn 100 hestafla Caterpillar-vél
og notast við grunnbúnað frá Lynex
en sláttuvélin sjálf er JF CM 2645F
tromluvél. Sláttuþjarkurinn er í dag
einungis sláttuvél en hugmyndir
Kongskilde eru að þróa tækið þannig
að það verði búið sláttukóngi og
tækið safni uppskerunni jafn óðum
upp í vagn.
Fullkomin tækni
Sláttuþjarkinn er búinn óhemju
fullkomnum búnaði sem tvinnar
saman upplýsingar sem berast frá
þrívíddar-myndavélum, radarmælum,
leiserbúnaði og hitamyndavélum.
Með þeim gögnum sem frá
þessum tækjum berast getur svo
höfuðtölva sláttuþjarkans brugðist
við breytilegum aðstæðum og skiptir
þá engu hvort þjarkinn keyrir fram á
veiðimann, girðingarstaur eða stórt
spendýr.
Notast við gervihnetti
Það er ekki eingöngu fullkominn
búnaður sem er á sláttuþjarkinum
sjálfum. Við stjórnun þjarksins er
einnig notast við gervihnattamyndir
og sérstakan hugbúnað, sem tengir
saman myndir frá Google Earth
kerfinu af því svæði sem á að slá og
hirða og svo reiknar tölvan út hvaða
leið sé heppilegust fyrir þjarkinn
að fara um svæðið. Þetta sama
kerfi hefur einnig verið í notkun í
hefðbundnum landbúnaði með það að
markmiði að lágmarka akstursleiðir
og hefur kerfið þegar sannað sig með
15% eldsneytissparnaði og 10-15%
auknum afköstum.
Miklir notkunarmöguleikar
Þó svo að verkefnið GrassBots byggi
á því að hanna tæki sem getur nýtt
vannýtt votlendissvæði þá horfa
forsvarsmenn Kongskilde til þess
að tækið, og tækni sem þróuð hefur
verið í tengslum við þetta verkefni,
geti nýst miklu víðar í landbúnaði
í framtíðinni. Þar er m.a. horft til
bæði brattlendra svæða sem erfitt
er að hirða í dag með vélum en
einnig hefðbundins heyskapar og
annarrar akuryrkju sem með þessu
má gera sjálfvirka með öllu. Fyrst
er stað er þó horft til hinna vannýttu
votlendissvæða en í Danmörku,
þar sem Kongskilde er einmitt
með þróunarsvið sitt staðsett, er
talið að um 210 þúsund hektarar af
votlendi séu vannýttir og geti með
réttri nýtingu staðið undir mikilli
lífgasframleiðslu.
Ekki einfalt mál
Jafnvel þó svo að tæknin sé orðin slík
í dag að það sé í raun hægt að senda
sláttuþjarkana af stað út á akrana
eru nokkur óleyst mál til staðar og
þar á meðal lagaumhverfi margra
landa. Fæst landslög gera ráð fyrir
því að til sé sjálfvirkur sláttuþjarkur
og vakna því upp margar spurningar
um skyldur og ábyrgð eigenda,
öryggi fólks og dýra o.fl. Þar til
lagaumhverfi þjarka verður skýrara
þurfa því fyrirtækin sem þróa og selja
búnaðinn að setja eigin öryggiskröfur
og í þessu verkefni hefur verið sett sú
viðmiðunarkrafa að sláttuþjarkinum
fylgi amk. einn maður með
neyðarstöðvunarhnapp og geti því
brugðist við og yfirtekið stjórnina
telji hann það nauðsynlegt. Í sumar
og næsta haust verður GrassBots-
þjarkurinn þróaður enn frekar, en
Kongskilde stefnir að því að sýna
hann á landbúnaðarsýningunni
Agromek 2014 sem haldin verður í
nóvember næstkomandi.
Snorri Sigurðsson
sns@vfl.dk
Nautgriparæktarsviði
Þekkingarsetri landbúnaðarins
Sjálfkeyrandi sláttuþjarkar
fyrir votlendi
Verkefnið GrassBots er eitt þessara verkefna, en tilgangur þess að er að þróa tæki sem geta slegið og hirt uppskeru
votlendis með góðum afköstum en um leið án þess að valda skaða á umhver nu.
Sláttuþjarkinn er búnn óhemju fullkomnum búnaði sem tvinnar saman upp-
lýsingar sem berast frá þrívíddarmyndavélum, radarmælum, leiserbúnaði
og hitamyndavélum.
Kongskilde hefur þróað þennan merkilega sláttuþjark, en hann er knúinn
100 hesta a Caterpillar-vél og notast við grunnbúnað frá Lynex.
Bandarískir fjárfestar
sækjast eftir akurlendi
Fjárfestar á Wall Street vilja
kaupa 1,6 milljónir ferkílómetra
af akurlendi í Bandaríkjunum.
Ef fjárfestar eignast helming-
inn af ræktunarlandi í Banda-
ríkjunum getur það ógnað
matvælaöryggi í landinu, segir
hugmyndaveitan Oakland
Institute í nýbirtri skýrslu sinni,
Down on the farm, sem kom út
um miðjan febrúar.
Í ljós hefur komið að meðal
næstu kynslóðar í Bandaríkjunum,
sem ætti að taka við jörðum, sem
nú losna, hefur áhugi á búskap
dvínað. Þar með opnast fjárfestum
tækifæri til að eignast 400 milljónir
ekra af ræktunarlandi á næstu
tveimur áratugum, segir í skýrslu
frá fjármálastofnuninni Oakland
Institute, en það samsvarar
fjórföldu ræktunarlandi í Noregi,
að því er fram kom í blaðinu
Nationen 1. mars síðastliðinn.
Fjárfestingarsjóðir, þar á meðal
lífeyrissjóðir og háskólasjóðir,
fylgjast grannt með viðskiptum
með fasteignir í Bandaríkjunum,
segir Lukas Ross, sem starfar við
áðurnefnda fjármálastofnun og er
höfundur skýrslu þeirrar, sem hér
er fjallað um. Ef það tekst að ná
eignarhaldi á ræktunarlandinu,
getur ný stétt „jarðeignabaróna“
ógnað matvælaöryggi þjóðarinnar,
segir hann.
Samkvæmt skýrslunni sjá
bandarískir fjárfestar mikla framtíð
í því að komast yfir ræktunarland
þar í landi og viðskipti með það.
„Ný stétt jarðeignabaróna getur
þá ógnað öryggi í matvælaöflun
almennings,“ segir Lukas Ross.
Annar meinbugur, að áliti
Oakland Institute, er sá að
bændur sem vilja stunda búskap
verða undir í samkeppninni, þar
sem efnaðir fjárfestar þrýsta upp
verð bújarðanna. Áætlað er að
bandarískir fjárfestar hafi undir
höndum allt að 1,8 milljarða dala
til þessara fjárfestinga og þeir eru
nú þegar á höttunum eftir nýjum
fjárfestingarkostum.
Í skýrslunni er varað við
jarðeigendum, sem reka ekki
sjálfir búskap á jörðum sínum.
Töluverðar líkur eru á því
að þeir stundi búskap sem er
umhverfisspillandi eða óhollur
fyrir heilsu starfsmanna.
Anuradka Mittel, forstöðu-
maður Oakland Institute, telur
skýrsluna sýna þá þróun að
eigendur jarða, sem stunda
ekki búskap sjálfir, ráði
„rekstrarfélög“ til að annast
dagleg störf á búinu. Þau hafi
hins vegar aðra forgangsröðun á
því hvað beri að rækta til að ná
hámarkshagnaði. Það er því miður
ekki endilega rekstur sem miðast
við heildarhagsmuni, þ.e. baráttu
gegn veðurfarsbreytingum,
vaxandi hungri í heiminum og
stöðugleika í heimsviðskiptum,
segir Mittel í viðtali við vefritið
The International News Magazine.
Þýtt og endursagt /ME
DOWN ON THE FARM
WALL STREET: AMERICA’S NEW FARMER
Vélmenni leysa mannshöndina af hólmi
Finnar telja að á næstu 20
árum muni vélmenni (róbótar)
yfirtaka þriðja hvert starf í
Finnlandi. Það er niðurstaða
könnunar Rannsóknastofnunar
atvinnuveganna þar í landi.
Störf, sem ritarar, bankamenn og
skrifstofufólk annast nú, eru meðal
þeirra starfa sem einkum eru til
skoðunar í þeim efnum. Bjartsýni
ríkir um að bærilega muni ganga að
finna umræddu fólki ný störf, en að
tímabundið muni þó koma til aukins
atvinnuleysis í landinu.
Í Bandaríkjunum er áætlað að
vélmenni muni yfirtaka um helming
starfa þar í landi á næstu tveimur til
þremur áratugum.
Ræktunarland í Svíþjóð dregst saman
Um 18% af ræktunarlandi í
Svíþjóð er horfið á einum áratug,
samkvæmt fréttatilkynningu frá
Svenska Jordbruksverket.
Umrætt land er nú annaðhvort
sjálfgróið eða hefur verið tekið
undir aðra notkun. Hér er um að
ræða sjötta hluta alls ræktunarlands
í landinu.
Jordbruksverket hefur boðað að
stærð akra og túna verði aftur mæld
eftir tvö ár.