Fréttablaðið - 25.04.2016, Blaðsíða 2
Norðankaldi og dálítil él austast, en
annars hægari og bjart með köflum.
Fremur svalt í veðri. sjá síðu 16
Við kunnum þetta
Árlegar vorsýningar nemenda í Danslistaskóla JSB hófust með stæl í Borgarleikhúsinu í gær og halda áfram í dag og á morgun. Fréttablaðið/SteFán
Grímsey Íbúar í Grímsey eru orðnir
langþreyttir á aðgerðaleysi í sam-
göngumálum eyjarinnar. Ekkert bóli
á efndum ríkisstjórnar á gefnum lof-
orðum um lækkað fargjald á flugi til
heimamanna.
„Það var samþykkt að það yrði
lækkað fargjald til heimamanna,“
segir Jóhannes Gísli Henningsson,
formaður hverfisráðs Grímseyjar.
„Við höfum engin svör fengið við
því hvenær og hvernig átti að fram-
kvæma þessi loforð, við erum orðin
langþreytt en höldum áfram að ýta á
eftir aðgerðum,“ segir hann.
Að sögn Jóhannesar er lækkun
fargjalda og fjölgun ferða ferjunnar
mikið hagsmunamál fyrir íbúa í
Grímsey.
„Það segir sig sjálft, fyrir fjölskyldu
kostar það álíka mikið að fara úr
Grímsey til meginlandsins og að
fara í borgarferð til Evrópu,“ segir
Jóhannes og bendir á að ýmsa þjón-
ustu sé stundum bráðnauðsynlegt að
sækja utan eyjarinnar, svo sem ýmsa
sérhæfða læknisþjónustu og annað.
„Þetta er okkar þjóðvegur hér á milli
og bættar samgöngur eru brýnustu
mál okkar.“
Starfshópur sem innanríkisráð-
herra skipaði árið 2014 um að kanna
opinbera gjaldtöku í innanlandsflugi
og mögulegar leiðir til að lækka far-
miðaverð skilaði skýrslu í fyrra.
Í niðurstöðum starfshópsins er
bent á að niðurfelling farþega- og
lendingargjalda, svo og niðurfell-
ing virðisaukaskatts á aðföngum
í innanlandsflugi, myndi skila að
meðaltali 1.700 króna verðlækkun
á hverjum fluglegg.
Þá bendir hópurinn á þá leið að
bjóða út flugleiðir og skilgreina
leyfilegt hámarksverð. Í skýrsl-
unni kom fram að komið hefði til
umræðu að bjóða út allar flugleiðir
innanlands og skilgreina í útboði
leyfilegt hámarksverð.
Sex flugleiðir eru ríkisstyrktar á
grundvelli markaðsbrests: Bíldu-
dalur, Gjögur, Grímsey, Þórshöfn,
Vopnafjörður og Höfn.
Eftir útgáfu skýrslunnar í febrúar
á síðasta ári sagði innanríkisráð-
herra stjórnvöld ætla að endurskoða
álögur og leita leiða til að gera flugið
ódýrara.
Jóhannes segir Grímseyinga ekk-
ert hafa heyrt eftir að starfshópur
innanríkisráðherra lauk starfi sínu.
„Við höfum heldur ekki heyrt
neitt um fjölgun ferða með ferjunni.
Það var búið að gefa það út að það
ætti að fjölga þeim um 52 ferðir á
ári, um eina ferð í hverri viku, þetta
var gefið út síðasta haust og fólk hélt
að það ætti að koma fljótlega í gegn.
Það kom samþykkt frá ríkisstjórn en
einhvers staðar strandar það greini-
lega.“ kristjanabjorg@frettabladid.is
Grímseyingar telja sig
svikna af stjórnvöldum
Kostnaður við ferðir til og frá Grímsey jafnast á við ferðalög til borga í Evrópu.
Starfshópur innanríkisráðuneytis skilaði skýrslu um lægri fargjöld fyrir rúmu
ári. Fargjöld hafa þó enn ekki lækkað og ferðum með ferjunni ekkert fjölgað.
Ferðum með Grímseyjarferjunni hefur ekki verið fjölgað og fargjöld í flugi hafa
verið ekki lækkuð þrátt fyrir fyrirheit til Grímseyinga. Fréttablaðið/anton brink
Veður
kópavoGur Umhverfissviði Kópa-
vogs hefur verið falið að meta kosti og
galla þess að bærinn setji upp hrað-
hleðslustöðvar fyrir rafbíla. Bæjar-
ráð samþykkti tillögu um þetta frá
Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa
Vinstri grænna.
Athugunin á að ná til uppsetningar
hraðhleðslustöðva á helstu starfs-
stöðvum bæjarins og við grunnskóla
eða í hverju hverfi. „Jafnframt verði
metinn kostnaður og gerð áætlun um
uppsetningu ef fýsilegt þykir,“ segir í
tillögunni. – gar
Skoða kosti
hleðslustöðva
Jafnframt verði
metinn kostnaður
og gerð áætlun um uppsetn-
ingu.
Úr tillögu Ólafs
Þórs Gunnarssonar
bæjarfulltrúa um
hraðhleðslustöðvar
í Kópavogi
menntun Frumvarp um ný heildar-
lög LÍN eru komin í kostnaðarmat
hjá fjármálaráðuneytinu og er unnið
að endanlegri útfærslu. Vonir standa
til, eftir heimildum fréttastofu 365,
að matinu ljúki jafnvel í næstu viku.
Í frumvarpsdrögum er lögð
áhersla á að hvetja ungt fólk til að
klára háskólanám sitt fyrr.
Þá kemur fram í ársskýrslu 2014
að sá fimmtungur lánþega sem
skuldar mest skuldi samtals um
102 milljarða króna. Það er tæplega
helmingur af útlánum lánasjóðsins.
– kbg
Áhersla á ungt
fólk hjá LÍN
Miklar breytingar eru í farvatninu í út-
lánum lÍn. Fréttablaðið/Valli
tyrkland Hollenskur blaðamaður
af tyrkneskum uppruna, Ebru Umar,
hefur verið látinn laus úr haldi
eftir að hafa komið fyrir dómara í
Tyrklandi. Umar var handtekin á
sunnudagsmorgun þar sem hún
var í fríi í Tyrklandi eftir að hafa tíst
um mæl um um Recep Tayyip Er-
dog an, for seta lands ins. Um mæl in
voru hluti af gagnrýnni umfjöllun
um Erdogan sem birtist í hollenska
blaðinu Metro. Umar sætir nú far-
banni en hollenska utanríkisráðu-
neytið fylgist grannt með framvindu
mála. Síðan árið 2014 hafa rúmlega
1.800 blaðamenn verið kærðir fyrir
að móðga Erdogan. – kbg
Blaðamaður
sætir farbanni
recep tayyip
erdogan, forseti
tyrklands
Þetta er okkar
þjóðvegur hér á
milli og bættar samgöngur
eru brýnustu mál okkar.
Jóhannes Gísli Henn-
ingsson, formaður
hverfisráðs Gríms-
eyjar
2 5 . a p r í l 2 0 1 6 m á n u d a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
5
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
3
-2
5
C
4
1
9
3
3
-2
4
8
8
1
9
3
3
-2
3
4
C
1
9
3
3
-2
2
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K